Morgunblaðið - 06.04.1960, Síða 17
Miðvikudagur S. april 1960
MORCinvfir JtolÐ
17
— Miklabrautin
Framh. af bls. 13.
aS gera lóðréttar, 20—30 cm.
víðar borholur og fylla þær með
sandi. í svo vatnsheldum jarð-
vegi sem þarna er, ætti millibil
milli holanna ekki að vera meira
en 1,0—1,5 m. Ofan á götustæð-
ið er lagt þykkt sand- eða mal-
arlag, svo að vatnið þrýstist
fljótar brott og jarðvegurinn geti
sigið fljótar og meira.
5. Brottflutningur á mýrar-
jarðveginum og endurfylling
með malarefni. Þetta er róttæk-
asta aðferðin af þeim, sem hér
hafa verið taldar. Kostnaðurinn
er mjög háður því, hve langt
burt þarf að flytja mýrarjarð-
veginn og hve langt að þarf að
sækja fyllingarefnið.
Af þessum 5 aðferðum koma
aðeins tvær hinar síðustu til
mála af tæknilegum ástæðum,
þ. e. a. s. þurrkun með lóðréttum
sandstólpum eða algjör umskipti
á jarðveginum. Seinni aðferðin
er væntanlega dýrari í stofn-
kostnaði, en kostnaðarmismun-
urinn er áreiðanlega ekki svo
mikill, að hann geti vegið upp
ókosti fyrri aðferðarinnar, sem
eru langur byggingartími, áfram-
haldandi sig og missig og þar af
leiðandi léleg gata með miklum
viðhaldskostnaði.
í raun og veru er það aðeins
síðasttalda aðferðin, sem getur
fullnægt þeim kröfum, sem við
gerum til götu á borð við Miklu-
braut ,og sem ég hef lýst hér
áður. Það var eindregið ráð dr.
Leussinks, að mýrarjarðvegurinn
væri tekinn brott og malarkennt
efni flutt að í staðinn. Við verk-
fræðingarnir, sem höfum unnið
að þessu máli, erum sömu skoð-
unar og ákvörðunin var tekin,
að vinna verkið þannig.
Þessi vinnuaðferð er orðin al-
þjóðlegur praxis við byggingu
flugvalla og gatna, einkum eftir
að farið er að nota um allan heim
jarðýtur, vélskóflur og stóra
flutningavagna. Aðeins með
þeirri aðferð er hægt að tryggja
fyrirfram ákveðin gæði mann-
virkjanna, þegar svona stendur
á. Talið er, að með þeim jarð-
vegsþykktum, sem hér er um að
ræða, muni hinn aukni viðhalds-
kostnaður, sem leiðir af fyrri að-
ferðunum, gera meira en að vega
upp hærri stofnkostnað þeirrar
aðferðar, sem valin var.
Fyrir rúmu ári síðan heimsótti
ég prófessor Leussink í Karls-
ruhe og hafði þá tækifæri til þess
að ræða við hann á ný um þessi
mál. Hann staðfesti, að síðan
hann gaf álitsgerð sína 1954, hafi
ekkert nýtt komið fram, sem
skapi breytt viðhorf gagnvart
undirstöðu Miklubrautar.
Ég vil ennfremur skýra frá
því, að sumarið 1957 kom hingað
prófessor Édgar Schultze frá
Tækniháskólanum í Aachen í
Þýzkalandi. Hann er prófessor í
geoteknik og undirstöðufræði
mannvirkja og kom hingað í boði
Háskóla íslands og hélt hér fyr-
irlestra um fræðigrein sína.
Þegar þetta var, var verið að
skipta um undirstöðujarðveg í
Miklubraut, meðfram húsunum í
Hlíðarhverfi. Ég fékk prófessor
Schultze til þess að skoða vinnu-
staðinn og ræða um verkið. Nið-
urstaða þeirra viðræðna var á
sömu lund og það, sem hér á
undan hefur verið greint frá.
Ákvörðunin um það að skipta
um undirstöðujarðveg götunnar
var fyrst tekin vegna kaflans frá
Rauðarárstíg að Stakkahlíð. Á
þeim kafla eru þrjár akbrautir.
Ein þeirra er fyrir umferð að
íbúðarhúsunum. Þar verður að
jafnaði minni og léttari umferð
en á aðal-akbrautunum.
Það var ákveðið að skipta um
undirstöðuj arðveg einnig þar. Að
öðrum kosti hefði mátt búast við
miklu misgengi á hliðargötunni,
þegar búið væri að skipta um
undirstöðujarðveg aðalbrautanna
þar rétt hjá, og einnig vegna
hitaveitustokks sem leggja átti
í gangstéttina meðfram húsun-
um, en þá hafði verið ákveðið
að grafa fyrir Stokknum niður á
fast og fylla undir með malar-
efni. Hliðargatan þykir svo mik-
ilverður hluti götunnar allrar,
bæði að því er snertir hlutverk og
útlit, að ekki þótti réttmætt að
áberandi misræmi kæmi fram á
henni og aðalgötunni. Það kom
jafnframt til, að þennan hluta
götunnar þurfti hvort sem var
að grafa víða upp, vegna þess að
þar liggur mikið af leiðslum,
sem vitað var að lagfæra þyrfti,
áður en gatan væri malbikuð.
Rannsóknir á jarðveginum, sem
lýst hefur verið hér að framan,
voru gerðar í götustæði Miklu-
brautar bæði í Hlíðarhverfi og
Kringlumýri. Efnasamsetning
reyndist hin hama á báðum svæð
unum. Þykkt mýrarjarðvegsins
er 2 til 3 metrar í Hlíðarhverfinu,
en er meiri í Kringlumýri; þar
kemst hún í 4,2 m, þar sem mest
er.
í Kringlumýri er hins vegar
betri aðstaða til vinnu að því
leyti, að hús hafa þar ekki verið
reist við götuna og er þar svig-
rúm til þess að beita stórum
vinnuvélum. Með þeim tækjum,
sem við höfum, ráðum við vel
við jarðvegsdýpið.
Sú ákvörðun var tekin, að ryðja
einnig mýrarjarðveginum brott
undan akbrautum Miklubrautar
í Kringlumýri og flytja að malar-
kennt efni í staðinn. Mikilsvert
atriði í þessu sambandi er það,
að flutningaleiðir við þessa efnis-
flutninga eru yfirleitt mjög stutt-
ar.
Framkvæmd verksins
Miklabraut er 3,7 km á lengd,
en kafli sá austan Miklatorgs,
þar sem gatnagerð hetur verið
framkvæmd að öllu eða ein-
hverju leyti, er nú um 1,5 km á
lengd, eða tæpur helmingur af
lengd götunnar. Það er því ekki
tilefni til þess nú, að gefa yfirlit
yfir framkvæmd alls verksins,
heldur verður drepið á nokkur
tæknileg framkvæmdaatriði.
Mest af mýrarjarðveginum aust
an Rauðarárstígs var tekinn upp
með vélskóflum og lagður á bakk
ann, en síðan hafa jarðýtur tekið
við og jafnað efninu út um það
svæði, sem næst liggur. Aðeins
á þeim stöðum, sem næst liggja
húsunum, þurfti að moka mýrar-
jarðveginum upp á vagna og
flytja efnið brott á þeim.
Yfirleitt hefur verið hægt að
fá malarkennt efni til fyllingar
í næsta nágrenni Miklubrautar.
Talsvert af því hefur fengizt í
bökkunum austan við Golfskál-
ann. Við þessa efnisflutninga
hafa verið notaðir tveir stórir
vagnar af LeTourneau gerð, sem
taka 20 tonn hver (vega sjálfir
14 tonn, sjá mynd) og ennfremur
skófluvagn (scraper), einnig af
Le Tourneau gerð, er tekur 9
tonn. Skófluvagninn fyllir ság
sjálfur og tæmir. Hann er dreg-
inn af beltisdráttarvél. Þessi tæki
komast yfir mikla ófærð. Vöru-
bifreiðir bæjarins, sem bera um
10 tonn hafa og talsvert verið
notaðar.
Sú krafa er gerð til hinnar
nýju fyllingar, að það megi
byggja og fullgera götuna á
henni á sama árinu eða næsta
ári. Fyllingin má þá ekki síga
neitt teljandi eftir að hin endan-
lega gatnagerð byrjar.
Það er ekki auðvelt að leysa
þetta mál, þegar ekki er völ á
heppilegum tækjum til þjöppun-
arinnar. Venjulegir götuþjappar-
ar duga ekki, því að þeir komast
ekki áfram á fyllingunni. Voru
þá jarðýtur látnar þjappa fyll-
inguna^sem var mynduð úr þunn
um lögum. Umferð flutninga-
tækjanna var einnig notuð til
þjöppunar. Fyllingin var bleytt
meðan á þessu stóð.
Þegar malarfyllingin var kom-
in í rétta hæð meðfram húsun-
um á svæðinu frá Rauðarárstíg
að Lönguhlíð, voru settir á hana
15 hæðar mælipunktar undir
púkklagið. Umferðinni var síðan
hleypt -. þessa götu. Fimm mán-
uðum seinna vor muælingapunkt
arnir hæðarmældir á ný og kom
þá í ljós að þeir höfðu sigið
um £12 mm, mest 12 mm á tveim
stöðum í kanti á fyllingunni.
■
EITTHVAÐ FYRIR
Unglingana
„NY stjarna er komin upp á
himni dægurlagasöngsins".
Þetta sagði okkur „músikfróð-
ur“ um daginn og þar átti
hann við Keflvíkinginn unga
Einar Júlíusson, sem hefur
komið fram á tveimur söng-
skemmtunum hér í bænum að
undanförnu.
Við héldum inn í Austur-
bæjarbíó í vikunni og röbbuð-
um stundarkorn við Einar um
sör.gferil hans.
— Við höfum heyrt að þú
hafir byrjað að syngja opin-
berlega, þegar þú varst 3ja
ára?
— Ekki beint opinberlega.
Verzlunarstjórinn í Kaupfé-
laginu plataði mig oft til að
syngja eftir lokun fyrir starfs
fólkið, og þá stóð ég uppi á
búðarborðinu í hálftíma og
söng „Sibaba“.
— Aumingja starfsfólkið.
„Sibaba" í hálftíma?
— Nei, ég söng aðallega
„Sibaba", en svo voru „Allir
krakkar" og „Bí, bí og blaka“
líka á ,prógramminu“.
— Já — það er einmitt það.
En hvað syngurðu núna?
— Það er svo margt. Nú sem
stendur hefi ég mest dálæti
á „Pretty Blue Eyes“.
— Jæja, já — svo hún er
bláeyg.
— Hún hver?
— Hún.
— Það kemur lesendum
blaðsins ekki við.
— En segðu okkur eitt, er
þetta ekki fínn „bisniss" að
vera dægurlagasöngvari?
— Jú — alveg stórfínn. En
það er allt í óvissu hvort ég
geti lagt út á þá braut, þó ég
gjarnan vildi.
— Jæja — en leiðinlegt.
— Já, ég á nefnilega eftir
að fara í mútur.
— Það er skelfilegt, — en
ætlarðu samt ekki að syngja
til elleftu stundar — þangað
til allt er orðið rammfalskt?
— Nei, ég held ég hætti fyrr
— en ég á að syngja inn á
plötu núna bráðum, það er
bara eftir að velja lögin, og
svo kem ég fram á hljómleik-
um hérna í Austurbæjarbíói
á miðvikudaginn.
Nokkru síðar var hæðarmælt á
ný og virtist fyllingin þá komin
í ró.
Á þeim hluta götunnar, sem
nú hefur verið fullgerður, eru
aðal-akbrautirnar, sem hvíla á
fyllingunni, þannig byggðar:
Neðst er 25 cm. þykkt púkklag,
sandfyllt og þjappað. Þá kemur
5—10 cm. réttingarlag úr möl,
sandfyllt og þjappað. Er hellt
í það asfalti, til að það haldist
kyrrt. Síðan koma hin eiginlegu
malbikslög. Þau eru tvö. Hið
neðra, burðarlagið, er 6 cm.
þykkt, en hið efra, slitlagið, er
4 cm.. þykkt.
Kostnaður.
Ég mun nú gefa nokkurt yfir
lit yfir kostnað við þær fram-
kvæmdir, sem hér hefur verið
skýrt frá, sagði E.P.R. að lokum.
Sumarið 1953 var fyrsti kafli
Miklubrautar fullbyggður frá
Miklatorgi að Rauðarárstíg.
Lengd hans er 180 m. Það kost-
aðí 1,1 millj. kr. \
Sumarið 1957 var byrjað á end
anlegri gatnagerð Miklubrautar
í Hlíðahverfinu. Þá var skipt um
undirstöðujarðveg, akbrautir
púkkaðar, undirbúnar gagnstétt-
ir og niðurföll í syðri hluta götu
stæðisins, næst húsunum, á svæð
inu frá Rauðarárstíg að Stakka-
hlíð. Verkið var unnið í sam-
hengi við lögn hitaveitu í Hlíða
hverfið. Mikið var lagfært og
endurnýjað af leiðslum í göt-
unni. Kostnaður við götuna þetta
ár varð 2,1 millj. kr., þar af
kostaði kaflinn frá Rauðarárstíg
að Lönguhlíð 6 millj. kr.
Árið 1958 var lokið við að
skipta um undirstöðujarðveg
undir aðalakbrautum frá Rauð-
arárstíg að Stakkahlíð og púkka
þær undir malbik. Kostnaður við
götuna varð 2,9 millj. kr., þar af
fyrir kaflann frá Rauðarárstíg að
Lönguhlíð 2,4 millj. krónur.
Sumarið 1959 eru lagðar gang
stéttir og akbrautir malbikaðar
frá Rauðarárstíg að Lönguhlið
og steyptur undirgangur. Kostn-
aður við þær er nú 4,1 millj. kr.
í Kringlumýri, austan Stakka-
hlíðar, er skipt um undirstöðu-
jarðveg beggja akbrauta og þær
púkkaðar frá Stakkahlið og aust
ur undir Seljalandsveg. Það eru
lögð holræsi beggja megin við
götuna. Kotsnaður við gatnagerð
þar er kominn í um 1,7 millj.
krónur fyrir það sem af er árinu,
en mun væntanlega fara yfir 2
millj. kr. á þessu ári.
Miklabraut á kaflanum milli
Rauðarárstígs og Lönguhlíðar,
sem nú er nær fullgerður, kostar
þá nú um 8,1 millj. kr. Lengd
kaflans er 490 m og er það raun-
ar nokkru lengra en milli gatna-
mótanna. Til samanburðar má
geta þess, að brunabótamat fjöl-
býlishússins, sem bærinn reisti
á horni Miklubrautar og Löngu-
hlíðar, er nú 11,6 millj. kr.
Gröfturinn fyrir götunni á um-
ræddum kafla kostaði 1,1 millj.
kr., en fyllingin með malarefni
1,7 millj. kr., samtals 2,8 millj.
kr., eða um 35% af kostnaðinum.
Uppgröfturinn var um 34000 ten
ingsmetrar, og er þá meðtalið
það sem grafa þurfti aukalega fyr
ir hitaveituna.
Ef ekki hefði þurft að grafa
burt allan mýrarjarðveginn,
hefði kostnaðurinn orðið lægri.
Gera má ráð fyrir að þá mundi
hafa verið tekið brott að jafn-
aði eins metra þykkt lag úr götu-
stæðinu fyrir burðarlög götunn-
ar, og auk þess grafið fyrir leiðsl
um. Líklegt er að kostnaður við
gröft og fyllingu hefði lækkað
við það um helming. Hefði hann
þá orðið um 1,4 millj. krónur.
Sú upphæð er því greidd til þess
að tryggja að gatan sé varanlegt
mannvirki. Það eru um 17% af
8,1 millj. krónum.
Kostnaður við uppmokstur
mýrarjarðvegsins, brottflutning
og jöfnun var árið 1957 51 kr/ms,
en árið 1958 22 kr/ms. Hinn mikli
— A hverra vegum verðal
þeir 7
— Ja — þetta verða ein- J
göngu ungir hljóðfæraleikar-1
ar og söngvarar. — Nú, svo
hefi ég sungið sl. 2 ár með
minni eigin hljómsveit — það
er að segja hljómsveit Guð-
mundar Ingólfssonar í Kefla-
vík, og ég býst við að syngja
áfram með þeim.
— Segðu okkur nú að lok-
um, Einar, hvað ertu gamall?
— Ég er 15 — en þið eruð
svikahrappar ef þið setjið það
í blaðið, bíókarlarnir suður
frá mega ekki vita það því að
þá kemst ég ekki oftar í vetur
inn á myndir bannaðar innan
mismunur á þessu stafar af ólik-
um vinnuaðstæðum. Aðstaða og
svigrúm skiptir mjög miklu mála,
þegar notaðar eru stórvirkar
vinnuéla.r
Hið aðflutta malarefni, komið
á staðinn, lagt niður og þjappað,
kostaði um 60 kr/m3 árið 1957
en um 50 kr/m3 árið 1958.
Þau sumur, sem gatnagerð
Miklubrautar hefur staðið yfir
fram til þessa, hafa oftast unnið
þar um 25 verkamenn ásamt
vélamönnum, en fjöldi þeirra
varð mestur um 50 í sumar. Yf-
irverkstjóri er Guðlaugur Stef-
ánsson.
Verkfræðingar bæjarverkfrseð
ings, sem ásamt mér hafa unnið
aðallega að áætlunum og fram-
kvæmdum við Miklubraut, eru
Geir Þorsteinsson, Skúli Guð-
mundsson og Guttormur Þormar.
— Búnaðarháskóti
Framh. af bls. 14.
verða aldrei leyst nema af vel
menntuðum búvísindamönnum,
sem hafa góð skilyrði til rann-
sókna, og möguleika á nánu sam
starfi við skyldar vísindastofn-
anir, þegar á þarf að halda.
Þess vegna hlýtur það að
vekja furðu allra þeirra, sem
þessum málum eru kunnugir,
að menn, sem eiga að vinna
að heill landbúnaðarins, skuli
ekki hafa sett sér hærra tak-
mark um menntun búvisinda
manna en frumvarpsuppkastið
um búnaðarliáskóla á Hvann-
eyri ber vitni, og að sömu
menn skuli vinna markvisst
að því að einangra rannsókna
starfsemi landbúnaðarins frá
öðrum rannsóknarstofnunum
í ladninu, í stað þess að taka
höndum saman við þær um
Iausn hinna fjölmörgu verk-
efna, sem bændastéttin biður
með óþeryju úrlausnar á.
Reykjavík, 28. marz, 1960
Stefán Aðalsteinsson.