Morgunblaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 1
24 síður 09 Barnalesbók
Fðgur orð án athafna
leysa ekki vandann,
sagði Guðmundur í Guðmunds<
Genf
Verwoerd er á
batavegi
son 1
UTANRÍKISRÁÐHERRA ís-
lands, Guðmundur í. Guð-
mundsson, flutti ræðu á sjó-
réttarráðstefnunni í Genf í
gær. Fer ræða hans hér á eft-
ir, eins og hún barst frá
réttaritara utanríkisráðuneyt
isins:
í RÆÐU minni á þessari ráð-
stefnu fyrir fáum dögum, skýrði
ég afstöðu stjórnar minnar varð
andi víðáttu landhelgi og fisk-
veiðimarka. Ég útskýrði þá að
þetta mál væri ákaflega mikil-
vægt fyrir land mitt, og ég sagði
þá, og endurtek nú, að nefnd mín
er innilega þakklát fyrir þann
skilning er margar nefndir hér
hafa sýnt — bæði í ræðum og
einkasamtölum — á þeirri stað-
reynd að fiskveiðimarkamálið er
sannarlega mál sem gildir líf eða
daúða fyrir þjóð mína.
Eins og háttvirtur starfsbróð-
ir niinn frá Bretlandi, hef ég talið
nauðsynlegt að biðja aftur um
orðið ,af því að nýir hlutir hafa
komið fram, og þó ekki væri ann-
ars vegna en að ég vildi gjarna
svara nokkrum þeim atriðum,
sem hann drap á. Ég er sammála
einu sem háttvirtur fulltrúi Bret
lands sagði og það er, að ég get
ekki heldur látið sem mér falli
í geð tillagan er Bandaríkin og
Kanada hafa lagt fram, en auð-
vitað eru aðstæður þess aðrar.
ísland greiðir atkvæði gegn
þeirri tillögu. Við hefðum getað
fallizt á þrönga landhelgi að því
tilskildu að ákveðin væri nægil.
fiskveiðilögsaga. Á meðan svo er
ekki, að okkar skoðun, mun nefnd
mín telja nauðsyn á að styðja
hverja þá tillögu sem tryggði í
raun nægjanlega fiskveiðilögsögu
í hvaða formi sem hún væri.
Ástandið ekki breytt
Háttvirtur fulltrúi Bretlands
gagnrýndi íslenzku tillöguna sem
fram hefur verið lögð um forrétt-
indi utan marka fiskveiðilögsögu
með einkarétti til veiða og ég
myndi bregðast skyldu minni, ef
ég ræddi ekki þau atriði sem
hann tók fram í þessu sambandi.
Fyrst og fremst er stjórn mín
ósammála þeirri fullyrðingu, að
ástandið sé nú gerbreytt frá því
tillaga okkar kom fram fyrst, ár-
ið 1958. Háttvirtur fulltrúi Bret-
lands sagði að þá hefði tillagan
verið til athugunar með hliðsjón
af 6 mílna fiskveiðilögsögu. Um
þessa fullyrðingu hef ég ekki
annað að segja en það, að auk
ýmissa annarra tillagna á ráð-
stefnunni 1958, lagði kanadíska
nefndin þar fram tillögu um
6 + 6-r ekkert, og hvað sem
hver einstakur fulltrúi kann að
hafa hugsað, þá gat enginn vitað
það fyrirfram, hverja afgreiðslu
sú tillaga myndi fá.
Hagsmunamál þjóðar,
ekki einstakLinga
Annað atriði var það, að tillag-
an sé of óljós. Samkvæmt túlkun
okkar sjálfra er tillagan takmörk
uð að þrennu leyti og er þá fyrst
1 gær
að telja að hún tekur aðeins til
þeirra tilvika er íbúar lands eru
yfirgnæfandi háðir fiskveiðum
við ströndina vegna afkomu sinn
ar og efnahagsþróunar. Við telj-
um því óhugsandi að hægt væri
að túlka tillöguna eins og vikið
er að í brezku ræðunni, að þar
sé átt við „sérhvert samfélag á
strönd, sem hefur viðurværi sitt
af hafinu og í því tilfelli gæti
hún átt víða við“. Auðvitað er
ekki átt við neitt þess háttar.
Þetta er einkum ljóst þegar
litið er á tillöguna sem vera ber
eins og hagsmunamál þjóðar, en
ekki á grundvelli hagsmuna til-
tekinna einstaklinga.
Framhald á bls. 23.
Jóhannesarborg, Suður Afríku,
12. apríl (Reuter).
HENDRIK Verwoerd, forsætis-
ráðherra Suður Afriku, er nú á
batavegi eftir banatilræðið, sem
honum var sýnt sl. laugardag.
Fjórir læknar eru sífellt á verði
4>við sjúkrarúm hans, og segir í
tilkynningu þeirra, að þjánlngar
hans fari minnkandi.
Þá er einnig hafður vörður viS
inngöngudyr sjúkrahússins og
engum leyft að heimsækja sjúkl
inginn, nema konu hans, er fékk
leyfi til að heimsækja hann
skamma stund.
Ákveðið hefur verið, að Ver-
woerd verði áfram í forsæti
stjórnarinnar þótt hann sé rúm-
Framh. á bls. 2.
Krúsjeff
þreyftur
MOSKVU, 12. apríl. (Reuter) —
Nikita Krúsjeff, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, er auðsýni-
lega þreyttur eftir ferðalög sín
víða um heim og hefur tekið sér
frí frá störfum og er farinn til
Suður-Rússlands.
Krúsjeff kom úr 11 daga ferð
sinni til Frakklands hinn 3. apríl
sl., og fór flugleiðis frá Moskvu
með fjölskyldu sinni á föstudag
áleiðis til Suður-Rússlands.
Talið er líklegt að hann muni
dveljast á sveitasetri við strönd
Svartahafs.
• I Frakklandsferð sinni óskaði
Krúsjeff eftir því að áætlun
hans yrði breytt þannig að hann
fengi betri tíma til að hvíla sig.
En við komuna til Frakklands
hafði hann verið þreytulegur,
sennilega vegna þess að hann
hafði legið rúmfastur með inflú-
enzu eftir ferð sina um Asíu.
Hvíti stórbóndinn David Pratt handtekinn eftir banatilræðið við Verwoerd, forsætisráðherra. —
Óeirðir i S-Kóreu
SEOUL, Suður-Kóreu, 12. apríl.
(NTB) — Lögreglan í Suður-
Kóreu handtók í dag ellefu
manns vegna óeirða sem hófust
í gær í borginni Masan, þar sem
10 ^00 stúdentar og borgarar
fóru kröfugöngu gegn ríkis-
stjórninni. Tveir menn létu lífið
í óeirðunum.
I Taego, sem er 80 kílómetr-
um fyrir norðan Masan, réðist
lögreglan á 90 meðlimi demó-
Pólitísk ofsókn kommúnista
gegn lögreg'ustjóranum
Reynt að grafa undan trú bjóðarinnar
á lög og réttaröryggi
Það er engin nýlunda, að
kommúnistar og málgögn
þeirra ráðist á Sigurjón Sig-
urðsson, lögreglustjóra í
Reykjavík. — Þessi reglu-
sami og duglegi embættismað-
ur hefur undanfarin ár verið
lagður í einelti af ritsóðum
kommúnistar reynt að sverta
kommúnista. Jafnframt hafa
lögregluna í heild, gera hana
tortryggilega gagnvart borg-
urunnim og torvelda þannig
hið mikilvæga þjónustuhlut-
verk hennar í þágu þjóðfélags
ins.
Niðurrifsstarf.
Með þessu niðurrifsstarfi
eru kommúnistar ekki aðeins
að ná sér niðri á duglegum og
heiðarlegum löggæzlumönn-
um. Takmark þeirra er fyrst
og fremst hitt að veikja sjálft
þjóðfélagið, og grafa undan
trú þjóðarinnar á lög og rétt-
aröryggi í Iandinu.
Síðasta tilefni kommúnista-
blaðsins til árása á Sigurjón
Sigurðsson lögreglustjóra er
hótunarbréfamál Magnúsar
Guðmundssonar lögregluþjóns
sem eins og kunnugt er, er
talinn hafa ritað lögreglustjór
anum bréf, þar sem honum er
hótað lífláti. Er á öðrum stað
hér í blaðinu birt stutt samtal
við lögreglustjóra, þar sem
lýst er gangi þess máls.
Venjuleg málsmeðferð
Af upplýsingum lögreglu-
stjórans í þessu samtali er auð
sætt, að með það hefur að öllu
leyti verið farið með venjuleg
um hætti og hvorki lögreglu-
stjórinn né aðrir yfirmenn lög
reglunnar verða með rökum
sakaðir um vanrækslu í þess-
um efnum. Samtalið við lög-
reglustjórann birtist á 24. síðu
blaðsins í dag.
krataflokksins, sem er í and-
stöðu við stjórn Syngmans Rhee
og telja forsetakosningarnar í
síðasta mánuði hafi verið lólög-
legar. Ekki kom til blóðsúthell-
inga þar, en lögreglan hefur all*
staðar verið aðvöruð um að vera
viðbúin.
Lögreglan í Seoul heldur þv£
fram að komizt hafi upp um fé-
lagsskap sem hafði í hyggju aS
steypa ríkisstjórninni með valdi.
Búizt er við auknum aðgerðum
lögreglunnar á næstu dögum.
Flugslys
á Sjálandi
VORDINGBORG, Danmörku, 12.
apríl (NTB): — Svissnesk einka-
flugvél af gerðinni Cessna 180
hrapaði logandi til jarðar nálægt
Vordingborg á suðurodda Sjá-
lands í dag og fórust þrír Sviss-
iendingar, sem í henni voru.
Þremenningarnir voru allir frá
Basel og höfðu komið til Kaup-
mannahafnar sl. sunnudag í verzl
unarerindum. Vegna veðurs frest
uðu þeir heimferðinni fram eft-
ii degi, en ákváðu síðan að fara
frá Kastrup til Mannheim í Vest-
ur-Þýzkalandi, og hálftíma eftir
flugtak varð slysið. Ekki er vitaO
um orsökina.