Morgunblaðið - 13.04.1960, Qupperneq 8
8
MORGTJNRJ 4fí IÐ
Miðvik'udaerur 13. april 1960
Barizt um atkvæðin í Genf
Óliklegt, oð miðlunartillagan nái
nægum meirihluta — en mjög er
mjótt á munum
Genf, 12. apríl.
ÞEGAR atkvæðagreiðsla fer
fram í heildarnefndinni á
landhelgisráðstefnunni á
morgun, miðvikudag, er
sennilegt að hin sameigin-
lega tillaga Bandaríkjanna og
Kanada muni ná þeim ein-
falda meirihluta, sem þarf í
nefndinni. Hér verður ekki
um að ræða nein endanleg
úrslit, en atkvæðatölur geta
gefið nokkrar leiðbeiningar.
Þær munu sýna atkvæða-
hlutföllin eins og þau eru nú
á ráðstefnunni, og væntan-
lega kemur þar í ljós, ef ekk-
ert algerlega óvænt skeður,
að tillagan hefur enn sem
komið er ekki þá % hluta
atkvæða, sem hún þarf end-
anlega til þess að öðlast
gildi. Líkur benda til þess að
hún hljóti á miðvikudaginn
milli 40 og 50 atkvæði, en
móti henni verði hins vegar
rúm 30 atkvæði.
* TALA KJARK í LIÐ SITT
Að lokinni þessari atkvæða-
greiðslu í nefnd, verður gefið
páskafrí. 1 næstu viku hefjast
svo allsherjarfundir á ráðstefn-
unni, og er búizt við, að úr-
slitaatkvæðagreiðslan verði í
vikulokin, annaðhvort 22. eða 23.
apríl. Páskafríið og tíminn fram
að þeirri úrslitastund verður
notaður á báða bóga til þess að
berjast um þau fáu atkvæði,
sem ráðið geta úrslitum. Verða
þær viðræður vafalaust sóttar af
kappi. Auk þess er búizt við, að
fuiltrúar á ráðstefnunni leiti
álits og fyrirmæla ríkisstjórna
sinna og að ýmsar viðræður fari
fram í páskafríinu á hærri stöð-
um en milli fulltrúanna á ráð-
stefnunni. — Enn er sem sagt
allt í óvissu um úrslitin. Báðir
aðilar, þeir sem erU með og móti,
tala kjark í lið sitt, og stangast
þá algerlega á staðhæfingar
þeirra og spádómar um úrslitin.
* SVO BREGÐAST
KROSSTRÉ ------
Það er ekki ósennilegt, að
tnörgum heima á Islandi hafi
komið í hug orðtakið, að svo
bregðast krosstré sem önnur tré,
þegar fulltrúi Kanada samdi við
bandaríska fulltrúann og bar
fram sameiginlega tillögu um 10
ára uppsagnarfrest sögulegu rétt
indanna. — En hér kom það
fram, sem oft hefur verið bent
á og auðvitað er augljóst hverj-
um þeim, sem fylgzt hefur með
þessari ráðstefnu, að hún snýst
alls ekki fyrst og fremst um ís-
land og landhelgismál þess,
þvert á móti eru þau svo sér-
stæð, að fremur hefur verið tal-
að um nauðsyn sérreglna en
meginreglu í þeim efnum, og fá-
ar eða engar þjóðir eiga algera
hagsmunasamstöðu með okkur.
Og hér, eins og hvarvetna ann-
ars staðar, hugsar hver þjóð
fyrst um sig og síðan um aðrar.
* KANADA HAFÐI
SITT FRAM
Þegar fulltrúi Bandaríkj-
anna setti fram tillöguna um
eilífan sögulegan fiskveiðirétt í
landhelgi annarra, var það auð-
vitað fyrst og fremst til að
vemda hagsmuni og aðstöðu
bandarískra fiskimanna á kanad-
iskum og mexíkönskum miðum.
Alveg sama er að segja um af-
stöðu kanadiska fulltrúans. Hann
lýsti því jafnan yfir, að það væri
ekki ætlun Kanadamanna, þótt
þeir væru á móti sögulegum
rétti, að útilokd bandaríska fiski-
menn þegar af miðunum. Þvert
á móti kvað hann Kanadastjórn
vilja semja við Bandaríkjamenn
um áframhaldandi veiðar. Hann
var aðeins á móti því, að fiski-
menn frá öðrum löndum fengju
eilíflega rétt til að veiða á 6—12
mílna svæðinu. Lengra náði
ekki krafa Kanada né samstaða
þeirra með íslendingum. — í
málamiðlun þeirri, sem gerð var
milli Bandaríkjanna og Kanada,
höfðu Kanadamenn raunveru-
lega sitt fram, því að Bandaríkin
féllust á það sjónarmið þeirra,
að hinn sögulegi réttur skyldi
ekki vara endalaust heldur að-
eins 10 ár. — í rauninni væri
um eins konar uppsagnarfrest að
ræða.
* EKKI FYRST OG FREMST
FISKVEIÐIRÉTTINDIN
Þar að auki verður að gæta
þess, að landhelgisráðstefnan
Marokkó, Ghana, Súdan, Gínea,
Eþíópía og Jemen. — Nú hafa
tvö Suður-Ameríkuríki, Mexíkó
og Venezúela, gerzt meðflytjend
ur að tillögunni, og eru andstöðu
ríki sameiginlegu tillögunnar þá
orðin 18. — Þá koma ríkin tíu í
„rússnesku blokkinni“ (Rúss-
land, Hvíta-Rússland, Úkraína,
Albanía, Búlgaría, Tékkósló-
vakía, Ungverjaland, Pólland,
Rúmenía og Júgóslavía). Þar
höfum við 28 atkvæði. — Tillaga
Asíu- og Afríkjuríkjanna er her-
ferð gegn hinni sameiginlegu til-
lögu Bandaríkjanna og Kanada
— og nokkur ástæða er til að
ætla, að sú herferð beri árangur,
þannig að komið verði í veg fyr-
ir samþykkt tillögunnar. Þvi,
enda þótt nokkuð virðist vera
farið að saxast á andstöðu Suð-
ur-Ameríkuríkjanna, e. t. v. fyr-
ir áhrif frá Kanada, má þó telja,
að a. m. k. 5 til viðbótar séu enn
hörð í andstöðunni: Gúatemala,
Panama, Ekvador, Perú og
Úrúguay.
★ MJÓTT A MUNUNIJM
Þarna eru þá saman komin
33 atkvæði gegn bandarísk-
kanadísku tiliögunni. — Fylgj-
endur hennar virðast samt vera
vongóðir og benda á, að vel geti
það hent, að ríki breyti afstöðu
sinni á síðustu stundu. — Þrátt
fyrir það staðhæfa andstæðing-
ar sameiginlegu tillögunnar, að
hún muni aldrei fá % hluta at-
kvæða á ráðstefnunni. En, eins
og það ber með sér, sem ég hef
rakið hér, getur vissulega mun-
að mjög litlu, þegar til úrslita
kemur.
Þorsteinn Thorarensen.
DREW
hafði sitt fram.
35 kaiipsýslunienn
til Hannover
HIN kunna kaupstefna í Hann-
over hefst sem kunnugt er 24.
apríl. Munu margir íslenzkir
þessa. Ferðaskrifstofa ríkisins
útbýr hópferð til Hannover, og
hafa 35 menn nú þegar fengið
kaupsýslumenn sækjakaupstefnu
fyrirgreiðslu hjá skrifstofunni
varðandi ferðalög þangað, ýmist
í hópferðinni eða sér.
Eftirminnileg leikhúsför
DEAN — varð að viðurkenna
uppsagnarfrestinn.
snýst ekki aðeins um fiskveiði-
réttindin, en þau eru okkur Is-
lendingum að sjálfsögðu ein-
göngu í huga, og hafa einnig
orðið áberandi vegna hinnar
langvarandi deilu Bandaríkj-
anna og Kanada um reglur varð-
andi viðbótarfiskisvæði. — En
þrátt fyrir allt eru meginátökin
á ráðstefnunni um annað en
fiskveiðilandhelgi. Þar er bak
við tjöldin mest áherzla lögð á
stærð sjálfrar lögsögulandhelg-
innar og hernaðaraðstæður í
sambandi við það, ef til styrjald-
ar kæmi. Ýmsir eru þeirrar
skoðunar, að viðbúið sé að rúss-
neskir kafbátar mundu á styrj-|
aldartímum reyna að leynast í
landhelgi hlutlausra ríkja — og
sé því varhugavert að færa lög-
sögulandhelgina almennt út. —
Þá er vitað, að Arabaríkin sækj-
ast eftir víðari landhelgi, m. a.
til þess að fá aðstöðu til að taka
fyrir siglingar Israelsmanna frá
hafnarborginni Elath við Araba-
flóann út á Rauðahafið. — Það
eru þannig fyrst og fremst þau
ríki, sem vilja stóra landhelgi,
sem nú berjast gegn hinni sam-
eiginlegu tillögu Bandaríkjanna
og Kanada.
* MEÐ OG MÓTI
Menn greinir á um það á
báða bóga, hvort nokkrir mögu-
leikar séu á því, að tillagan nái
fram að ganga með % hlutum
atkvæða. — Dean, fulltrúi
Bandaríkjanna, kveðst vera
bjartsýnn á, að tillagan fái nægi-
legt fylgi, en andstæðingar hans
telja það enn sem fyrr útilokað.
Með réttu hefur verið bent á,
að 29 mótatkvæði nægja til að
hindra samþykkt tillögu á ráð-
stefnunni. — Sem stendur er
vitað um Asíu- og Afríkuríkin
16, sem fram hafa borið sérstaka
tillögu á móti bandarísk-kanad-
ísku tillögunni. Eru það þessi
ríki: Persía, Indónesía, Filipps-
eyjar, írak, Saudi-Arabía, Jór-
danía, Líbanon, Arabíska sam-
bandslýðveldið, Líbýa, Túnis,
Lisikynning Mbl.
SÍÐAN Morgunblaðið tók upp
listkynningu í sýningarglugga
sínum, hefir það þótt skemmti-
leg tilbreyting að sýna verkefni
barnanna í skólum bæjarins um
páskana. Að þessu sinni verða til
sýnis málverk og teikningar 10
til 12 ára barna í Miðbæjarskól-
anum. Börnunum er kennt að
gera þessar myndir á þann hátt,
að fyrst er myndflöturinn kvoðu-
borinn eða vaxborinn og síðan
málað með vatns- eða þurrlitum.
Nota börnin ekki pensla eða önn-
ur áhöld, heldur mála með fingr-
unum. Teiknikennari skólans,
Jón E. Guðmundsson, segir að
hvert barn hafi gert um 20 til
30 myndir í vetur og um 50
mydnir frá þessum börnum eru
nú til sýnis í skólum á Vest-
fjörðum.
SIÐASTLIÐINN sunnudag brá
ég mér í Þjóðleikhúsið með lítilli
vinkonu minni, til þess að horfa
á Kardemommubæinn. Og eins
og flestum mun kunnugt fjallar
einn hluti þess „mikla listaverks"
um þrjá ræningja.
En svo virðist sem fleiri ræn-
ingjar hafi verið staddir í leik-
húsinu þenna umrædda sunnu-
dag en hinir þrír sem komu fram
á sviðinu. Ég hafði sem sé með-
ferðis mjög dýrmætan leikhús-
kíki og lagði hann frá mér á
borðið hjá fatageymslunni svo
sem eina sekúndu meðan ég tók
á móti yfirhöfnum okkar. Og
sjá: hann var horfinn eins og
undirdjúpin hefðu gleypt hann,
og fannst hvergi, hvernig sem
hans var leitað. Ég bar mig upp
við umsjónarmann hússins, hann
var sannast sagt ekkert hissa,
hann sagði að þetta væri engin
nýung hér, jafnvel kventöskur
hefðu horfið ef eigendunum
hefði orðið það á, að leggja þær
við hliðina á sér í sætunum.
Það sýnist vera að menningar-
ástandið í þessari höfuðborg okk
ar sé komið svo langt niður, að
fóik geti helzt ekki farið í leik-
hús eða á aðra skemmtistaði, án
Tveir meiddust við
vinun sina
SÍÐDEGIS í gær féll þungt járn
stykki ofan L vinstri fót Hösk-
uldar Eyfjörðs Guðmannss., er
hann var að /inna hjá Almenna
byggingarfélaginu í Borgartúni
7. Ekki gat blaðið fengið upp-
lýsingar um hvort meiðsli hans
hefðu orðið siæm.
^Og á sunnudag mun annar
maður hafa meiðst við vinnu
sína. Varð það Helgi Gíslason,
sem féll ofan af pokastæðu við
höfnina og kvartaði um verk í
baki.
þess að hafa vátryggt það sem
það hefur með sér lauslegt.
Ég vil nú að lokum, skora á
þann sem kíkinn greip, að
koma honum til skila ef honum
finnst það meira virði að vera
heiðarlegur maður en þjófur.
Reykjavík, 11. apríl 1960
Margrét Jónsdóttir
Hringbraut 45.
íraftaverk og
ivani
Frá fréttaritara Mbl.
í Genf, Þ. Th.
FULLTRÚI Liberíu, svert-
inginn Nathan Barnes vék
að því sem fleiri í ræðu
sinni, hve hrapaleg mis-
tök það yrðu, ef þessi ráð-
stefna yrði árangurslaus.
Það yrði þriðja ráðstefnan
sem gæfist upp á því, að
ákvarða hver stærð land-
helgi skyldi vera. Fyrsta
ráðstefnan hefði verið í
Haag 1930, önnur í Genf
1958 og svo þessi. Hann
sagði í þessu sambandi svo-
litla dæmisögu.
Ungur maður kom til föð-
ur síns og spurði: — Ef
ég færi upp í þennan háa
turn og kastaði mér niður
úr honum og slyppi ómeidd
ur, hvað væri það?
— Það væri kraftaverk,
sem stafaði af elsku Guðs.
— En ef ég gerði það í
annað sinn og slyppi einn-
ig ómeiddur.
— Þá væri það tilviljun.
— En ef ég gerði það í
þriðja sinn og slyppi enn
ómeiddur?
—Þá þyrfti ekkert krafta-
verk, sagði gamli maðurinn,
"— Þá væri þetta orðinn
ávani.
Þessi inynd, sem heitir „Uppsátur", er gerð af J óni Hálfdanarsyni í 12 ára bekk E. Er hún meða
mynda, sem börn í Miðbæjarskólanum sýna um þessar mundir á vegum Listkynningar Mbl.