Morgunblaðið - 21.04.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.04.1960, Blaðsíða 1
24 síður 47. árgangur tbl. — Fimmtudagur 21. apríl 1960 PrentsmiSja Morgunblaðsins Ný tillaga í Genf 12 mllna fiskveiðilogsaga \ ákveðin nu en landhelgis- 1 ákvorðun vísað til S.Þ. GenJ, 20. april. — Eirikaskeyti til Mbl. Jrá Þorsteini Thorarensen, UNDARLEGT andrúmsloft ríkir á ráðstefnunni hér í Genf Varla nokkur fæst til að flytja ræðu, en Wan forseti kallar menn saman til funda, sem eru hálfgerðar fýluferðir. Þó ríkir undir niðri einhver spenningur. Allir standa, hver framan í öðrum, og spyrja hvað sé að gerast, en enginn veit neitt. Séu helztu fulltrúarnir spurðir um hvað muni gerast, svara þeir eins og véfréttin í Delfi: „Eitthvað mun gerast.“ — Eina ræðan, sem flutt var á árdegisfundi var áköf baráttu- ræða Drew fulltrúa Kanada fyrir bandarísk-kanadísku tillögunni, en hann hafði annars lítið nýtt til málanna að leggja. Skoraði hann á aila að fylgja einu til- lögunni sem til mála gæti komið að fengi tvo þriðju hluta at- kvæða. Fór hann þess á leit að ákveðið yrði hvenær loka- atkvæðagreiðslan fari fram. ATKVÆÐAGREIÐSLU FRESTAÐ Tunkin, fulltrúi Rússa svar- aði því til að slíkt væri óþarft. Atkvæðagreiðslan hafi verið ákveðin hinn 22. apríl og til vara hinn 23. Kom nú í ljós að það sem Drew vildi var að fresta ráð- stefnunni um nokkra daga. Var ákveðið í framkvæmdaráði að íresta lókaatkvæðagreiðslu til þriðjudagsins 26. apríl. Fylgjendur bandarísku tillög-' unnar virtust fyrst eftir at- kvæðagreisðlu í heildarnefnd gripnir vonleysi, en eru nú að þreifa fyrir sér hvort ekki megi með einhverju móti ná tveim þriðju atkvæða, jafnvel með því að einhver breyting verði gerð á tillögunni. A sama hátt rannsaka nú ríkin átján og Rússar hvernig þeir geti haldið nægri mótstöðu gegn tillögunni til að tryggja það að hún nái ekki fram að ganga. Feykimiklar og stöðugar viðræð- ur fara fram milli sendinefnd- anna og meðan verið er að þreifa fyrir sér mikið. vill enginn segja BOBAR NYJA TILLOGU Á síðdegisfundi í dag spurði Wan prins hvort nokkur vildi tala á árdegisfundi eða síðdegis- fundi á morgun, en enginn gaf sig fram í fyrstu. Virtist svo sem Wan prins yrði að aflýsa fundi, en loks stóð upp Garcia Robles, fulltrúi Mexikó og lýst því yfir að mjög góðar líkur væru fyrir því að átján ríkin mundu bera fram nýja tillögu á morgun, sem fæli í sér mikilvæga sáttaum- leitun. Þetta vakti mikla athygli og þyrptust allir að Robles eftir fundinn og spurðu hann hvaða sáttatillögu hann hefði í huga. Hann varð alveg eins og vé- fréttin og sagði: „Þið sjáið það á morgun“. Þegar sumir fulltrúar hinna átján ríkjanna voru spurð- ir hvað væri á seyði, svöruðu Framh. á bls. 2 Enn róstur í S-Kóreu Þingið hvatt saman til aukafundar Seoul, Suöur-Kóreu, 20. apríl. — (NTB — Reuter). — ÞÚSUNDIR stúdenta héldu í dag áfram mótmælagöngum Handtökur í S-Afríku! JÓHANNESARBORG, 20. apríl (NTB, Reuter); — Lögreglan í Suður Afríku réðist enn í dag í blökkumannahverfin og hand- tók þar um 550 manns, og hefur hún þá handtekið um 1200 manns síðan á mánudag. Höfðu samtök blökkumanna skorað á meðlimi sína að mæta ekki til vinnu, en fæstir hlýddu þeirri áskorun og mun ástæðan aðallega vera sú að þó vantar til hnífs og skeiðar. Beið lögreglan þar til blökkumennirnir voru farnir til vinnu sinnar, en réðist síðan inn í þorp þeirra og hand- tók alla þá, sem ekki höfðu vega bréf eða voru að öðru leyti álitnir hafa brotið af sér. Allt útlit er fyrir því að ríkis- stjórninmi muni nú takast að koma á ró í landinu og álitið er að stjórnin sé að athuga mögu leika á því að bæta ástand blökku mannanna. Ekki mun þetta ein- göngu að þakka átökum blökku- manna, heldur einnig hsæðslu varðandi utanríkisviðskipti lands ins, vegna mótmæla um allan heim og hótana um viðskipta- bann. Louw utanríkisráðherra til- kynnti þinginu í Suður Afríku í dag að Verwoerd forsætisráð- herra mundi sennilega geta tek- ið aftur til starfa eftir um það bil viku tíma, en yrði ef til vill fyrst um sinn að vinna störf sín í svefnherberginu. Louw sagði að Verwoerd væri á góðum bata- vegi eftir morðtilraunina. gegn ríkisstjórn Suður-Kóreu í öllum stærri borgum lands- ins. Lenti á stöku stað í bar- daga milli þeirra og hersins, sem alls staðar er á verði. Á einum stað hóf lögreglan skothríð á hóp stúdenta í norðurhluta horgarinnar. Ekki kom þó til átaka svip- aðra þeim er urðu á þriðju- dag, þegar a. m. k. 92 féllu og 1000 særðust. Kr. 2.850,— per Iík Syngman Rhee forseti hét því í dag að aðstandendum hinna drepnu yrðu greiddar skaðabæt- ur sem næmu 50.000 Hwan til hverrar fjölskyldu (um kr. 2.850,—). Skyldu skaðabæturnar greiddar við framvísun líkanna. Þá lofaði forsetinn því að ítar- leg rannsókn yrði látin fara fram á kröfum stúdentanna ag stuðningsmanna þeirra strax og friður væri kominn á. Falsaðar kosningatölur Forsetinn hefur verið undir stanzlausri gagnrýni frá því hann var endurkjörinn forseti í fjórða sinn 15. marz sl. hefur því verið haldið fram að kosningaúrslitin hafi verið föls- uð. Uppþotin í dag voru meðal annars í borgunum Taego, Inch- on, Chonju og Suwon, þar sem hundruð manna fóru kröfugöng- ur um göturnar. Framhald á bls. 23. f dag er sumardagurinn’J Sfyrsti. Sá dagur er orðinn) \dagur æskunnar. Þá munut Lbörnin í Reykjavík hópast/ 'prúðbúin um götur bæjarins/ 7— ef veðrið verður gott ■ )og líta við hjá Tjörninni og) )bjóða íbúum hennar gleðilegtv Uumar. Börnin á þessari myndC (verða áreiðanlega í þeim hópi,/ /því það er aldrei hægt að fá/ /nóg af íbúum TjarnarinnarJ Jsem eru nær einu tengzl æsk-; )unnar í Reykjavík við sveit-j Nina og náttúrulífið. Uppreisn í Venezuela CARACAS, Venezuela, 20. apríl, (NTB-Reuter). — Flokkur upp- reisnarmanna undir forystu Jesus Maria Castro Leon fyrrverandi Flugslys )BOGOTA, Kolombiu, 20. apríl( \(Reuter). — Farþegaflugvél ( /af gerðinni C-46 Superstar frá/ /Lloyd Aero Colomboano flug-, )félaginu fórst í gærkvöldi ná-' )lægt Bogota. Með vélinni fórst( (31 en 19 særðust. Var vélin í( /aðflugi til lendingar á leið frá / /Miami í Bandaríkjunum. Féll) )vélin í tjörn um 100 metrum )frá flugbrautarenda og drukkn( (uðu margir þeirra sem um( /borð voru. Meðal þeirra sem / /fórust var flugstjórinn. hershöfðingja og varnarmálará3» herra, réðist í dag inn í borgina Saji Cristobal. Aðalbækistöðvar hersins þar í borg eru nú i hönd- um uppreisnarmanna. Ein af út- varpsstöðvum San Cristobal send ir nú áskoranir til íbúanna um að reisa götuvirki i borginni, og skorar sérstaklega á fyrrverandi herménn að ganga í lið með upp- reisnarmönnunum. Ríkisstjórnin hefur sent mikið herlið til San Cristobal og her- flugvélar. Hefur stjórnin fyrir- skipað íbúunum að yfirgefa borg ina. Búizt er við að íbúunum verði gefinn einhver frestur til að hafa sig á brott áður en loft- árásir verða gerðar. Freigátan General Jose Moran er einnig á leið til heimahafnar sinnar frá Curacao, eftir að hafa fengið Framh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.