Morgunblaðið - 21.04.1960, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.04.1960, Blaðsíða 6
6 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. apríl 1960 Stefna ríkisstjórnarinnar: Freísi í verzlun og við- skiptum leysir höft og og bönn af hólmi \ Frumvarpið um innflutnings- og | gjaldeyrismál til 1. umræðu á þingi FRUMVARP ríkisstjórnar- innar um frjálsa verzlun og afnám á fjárfestingarhöml- um var til fyrstu umræðu í Neðri deild á fundi hennar í gær, en frumvarpið var sem kunnugt er lagt fram á þingi skömmu fyrir páska. Það var viðskiptamálaráð- herra, Gylfi Þ. Gíslason, sem fylgdi frumvarpinu úr hlaði. Þróun síðustu 40 ára Hann rakti nokkuð gang gjald eyrismálanna á því um 40 ára tímabili sem þau hafa verið í höndum landsmanna sjálfra, og kvað þróunina m. a. hafa mark- azt af miklum utanaðkomandi truflunum svo og mikilli lýðræð- islegr byltingu í stéttabaráttunni hér á landi. A þessu skeiði hefði gengið verið fellt formlega 6 sinn um, tvívegis reyndar í sambandi við gengisfellngar í nágranna- löndunum, þ. e. árin 1931 og ’49, og nú síðast hefði verið um að ræða formlega viðurkenningu á síendurteknum gengisfellingum allan síðasta áratug. Frelsi í verzlun og viðskiptum Um hið nýja frumvarp ríkis- stjórnarinnar sagði Gylfi Þ. Gísla son m.a. að grundvöllur þess væri frjáls innflutningur og gjald- eyrisviðskipti, enda væri það trú manna, að efnahagsmála- stefna ríkisstjórnarinnar, sem hún hyggðist fylgja fram með festu, myndi gera höft og bönn óþörf. Viðskiptin við jafnkeypislöndin Þar sem nálega % innflutnings ins ætti sér stað skv. jafnkeypis- samningum væri ekki hægt að gefa allan innflutninginn frjáls- an Ef slíkt yrði gert, væri hætt við að innflutningur frá þessum löndum mundi dragast mikið sam an, iökum þess að vc.ur þaðan þættu margar hverjar ohentugri, gæðin rýrari og gerð þeirra ís- lenzkum kaupendum síður að skapi Þetta mundi leiða af sér minnkandi kaup sömu landa á útflutningsvörum oka.ar, sem ekki væru eins og sakir stæðu finnanlegir aðrir markaðir fyrir Af þessum ástæðum væri í frumvarpinu gert ráð fyrir samr, ingu sérstakrar reglugerðar um það, hvaða vörur skyldu vera leyfisbundnar áfram, og væri undirbúningi að henni langt kom ið. Hefði við það verk verið haft samráð við ýmsa aðila, er þessi mál snertu mest. Aðeins 10% skammtað með leyfum Allmikill munur væri á því, hve mikið af innflutningi frá ein- stökum löndum yrði bundinn leyfum, og færi það m. a. eftir þeim vörutegundum, sem um væri að ræða. Þar eð nauðsyn- legt hefði þótt að gefa íslenzkum iðnaði nokkurn tíma til að búa sig undir aukna samkeppni er- lendis frá, hefðu nokkrar vöru- tegundir verið settar á sérstakan írílista, sem ekki gengi í gildi fyrr en eftir 6 mánuði. Leyfi verða aðeins skömmt- uð á um 10% heildarinnflutn- ingsins, en þar verður um að ræða viðbótarinnflutning á vörum, sem annars eru keypt- ar í jafnkeypislöndunum, en vegna gæða eða annarra sér- ástæðna þarf líka að íá ann- ars staðar frá. Einfaldari og ódýrari skipan Leyfisveitingar þessar verða framkvæmdar af innflutnings- bönkunum skv. reglum er ríkis- stjórnin setur. Leyfisveitingar verða þvi mun umfangsminni en áður hefur tíðkazt og mun fram- kvæmd þeirra öll verða stór- um einfaldari og ódýrari. Innflutningsbankarnir munu einnig úthluta þeim leyfum, sem þörf verður fyrir vegna gjald- eyrisgreiðslna, en leitazt verður við að gera þá starfsemi sem sjálf vhkasta. Meðal annarra atriða, sem við skipfamá'.a.aðherra gerði að um- taisefni, var stofnun gjaldeyri/- varas.óðs, sem ríkissjórnin hefur fengið 20 milljón dala lán tií að setja á fót Mkilvægt væri að þjóðin eignaðist slíkan sjóð sjálf er fram liðu tímar. Farsælli fjárfesting 1 sambandi við þau ákvæði frumvarpsins, er kveða á um að ríkisstjórnin fylgist með fjári'est- ingu í landinu og fyrirætlunum þess efnis, sagði Gylfi Þ. Gísla- son m. a, að fjárfestingin hefði á undanförnum árum beinzt inn á alrangar brautir og ekki leiít til eins mikillar framleiðsluaukn ingar í landinu og gerzt hefði með öðrum þjóðum. Að lokum talaði ráðherrann svo nokkuð almennt um afstoðu jafnaðarmanna til slíkra ráðstaf- ana sem hér væru á döfinni. Minni innflutningur Þórarinn Þórarinsson kvaddi sér næstur hljóðs og deildi á Aþýðu- flokkinn, fyrir að fylgja ekki sömu stefnu og áður í efnahags- málum. Hann var á móti því að Innflutningsskrifstofan væri lögð niður cg kvað slíkt hafa í för með sér óheppilegan samdrátt valds. Þá taldi hann hinar ýmsu ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar mundu leiða til þess, að verzlunarálagn- ing hækkaði og innflutningur drægist saman. Ræðumaður var óánægður með ákvæðin um út- flutningsverzlunina og kvað ástæðu til að endurskoða allt skipulag hennar. Réttara væri að auka höftin á sviði fjárfestingar- innar en draga úr þeim Frum- varpið væri bæði verzluninni og almenningi til tjóns. Léleg áheym Einar Olgeirsson kvað þetta .harðvítugasta og Ijótasta frum- varp ríkisstjórnarinnar’. Með gengislækkuninni hefði stjórnin komið fátæktinni á og með þessu frumvarpi væri lagður grund- völlur að því atvinnuleysi, sem ætlað væri að halda fátæktinni við. Þetta væri því hámarkið á kúgm ,arstefnu ríkisstjórnarinnar gegn almenningi. Þá gagnrýndi E. Olg. m. a stofnun gjaldeyris- varasjóðsins og kvað þjóðina aldrei hafa verið í meiri hættu að verða skuldaþrælar en ein- mitt nú. Einnig taldi hann orka tvímæls, hvort vð værum ekki of skuldbundnir Sovétríkjunum, vegna viðskiptanna við þau, til þess að geta lagt út í slíkar ráð- stafanir sem nú væri stefnt að. Það vakti nokkra athygli, að enginn af flokksbræðrum E. Olg. sat í þingsal, meðan hann flutti ræðu sína, nema hvað Asmundur Sigurðsson varaþingmaður var þar um stund. Þegar líða tók á ræðuna og lengst af meðan flutn- ingur hennar stóð yfir voru að- eins deildarforseti, Jóhann Haf- stein, og viðskiptamálaráðherra í þingsalnum. Þegar þingfundi lauk hafði ræðumaður ekki lokið máli sínu. íslenzk meimin«; kyrnit í ísrael HINN 29. marz s.l« hélt Félag Is landsvina í Israel (Icelandic Israel Friendship League) fund í Ramat-Gan í Israel. I sambandi við fund þennan var einnig opnuð sýning á endurprentunum íslenzkra málverka, sem Bóka- forlagið Helgafell hefur gefið út, sem kunnugt er. Fundinn setti aðalræðismaður Islands í ísrael, hr. Fritz Nasc- hitz, en þar á eftir fluttu ræður formaður Islandsvinafélagsins, Dr. E. Lehman, aðalbankastjóri Þjóðbanka Israels og Dr. Chaim Yahil, fyrrverandi sendiherra ísraels á Islandi, sem minnist Is- lands og hinna ánægjulegu sam- skifta íslands og Israels. Síðan söng frú A. Lavanne, Prófessor við „Rubin Academy of Music“ í Jerúsalem nokkur lög eftir Inga T. Lárusson. Að því loknu var sýnd litkvikmynd frá Islandi Fund þennan sóttu um 400 manns, þ. á . m. ritari forseta Israels, fulltrúar rikisstjórnar- innar og erlendra ríkja, svo og listamenn, blaðamenn og margir fleiri auk meðlima íslandsvina- félagsins. Sýningin á íslenzku málverka- endurprentununum var síðan opin í 10 daga og var hennar mjög lofsamlega getið í blöðum og útvarpi í Israel. 2 bílar eftir d árekstur Keflavíkurflugvelli, 20/4. |)HARÐIJR árekstur varð í gær/ )dag á Hafna-vegi milli jeppa-/ kbifreiðarinnar G-1615 ogl . þungrar flutningabifreiðar — f VL-2509. Jeppabifreiðin kom akandi/ Oeftir veginum frá Höfnum til/ OKeflavíkur. Skammt austani Kvið Keflavíkurflugvöll kom( /þung flutningabifreið af gerð- /inni DW-10 akandi af hliðar- ( Obraut inn á þjóðveginn. Ók / /jflutningabifreiðin á hlið jepp- (ans, kastaði honum út af veg- /inum og sneri honum í hálf-( Ohring. Laskaðist jeppinn mjög/ Omikið, eins og myndin ber með) (sér og bifreiðastjóri jeppans) /slasaðist. Flugvallarlögreglan ( /kom von bráðar á vettvang og( Oflutti hinn slasaða mann á/ Osjúkrahúsið í Keflavík. Flutningabifreiðin VL-2509 ) (er í notkun hjá Aðalverktök-( n við malarflutninga OStapafelli. Bifreiðarstjórinn, / Osem er islenzkur starfsmaður/ (verktakanna, slapp ómeiddur, í /enda sá ekki á hin^í stóru( /flutningatifreið að hana hafií /munað um annað eins lítilræði/ )og mola einn jeppa undir sér.) — BÞ. Málverkasýning Þorláks Halldorsen í Bogasal Þjóðminja- safnsins er opin daglega kl. 2—10 e. h. Ellefu myndir hafa þegar selzt. Milli 600 og 700 manns hafa séð sýninguna. — Málverkið hér að ofan er af Snæfellsjökli. skrifar úr siimur ui # daglegq lifinu J • Verzlun á Páskum „Lesandi" hefur sent „Vel- vakanda svohljóðandi bréf: „Það er ekki hægt annað en brosa, þegar maður les grein í vissu blaði- eftir blaðamann, sem skrifar undir dulnefni og heldur sig stóran karl. Gerir hann þar að umtalsefni pásk- ana og vinnutap það, sem or- sakast vegna þeirra. Einnig er hann reiður að fá ekki að skokka út í sjoppu á föstudag inn langa til gosdrykkja- kaupa. 1 sambandi við sjoppurnar eru aðeins þrír dagar á árinu, sem þær eru lokaðar, og er það að margra áliti alltof lítið. A jóladag, föstudaginn langa og páskadag. Er sjálfsagt fyr- ir það fólk, sem er aðfram- komið úr þorsta þessa daga að hafa þá framsýni að birgja sig upp fyrir þá. Fleira er og athugavert við grein þessa, þó að lítið sé af réttmætri gagnrýni í henni svo sem seta forsíjóra á kaffi- húsum. En af lestri greinar- innar í heild, grunar mig ein- hvern veginn , að höfundur hennar ætti að eiga heima í austurátt". * Þrifnaður á lóðum Vegfarandi skrifar: Húsið Tjarnargata 8, á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis var rifið að hluta sl. haust, enda mjög lélegt orðið. Það munu hafa verið einhverjir lögregluþjónar, sem rifu af því þakið og skilrúm á hæð- inni, í aukavinnu. Timbri var staflað í kjallarann en miklu spýtnadrasli og öðru drasli var fleygt í hrúgu vestanvert við húsið. Lóðin þarna með áðurnefndu hálfrifnu húsi og öðru drasli er hörmuleg ásýndum og hefur verið svo í allan vetur. Svona sóðaskap á ekki að þola, og verði lóðin ekki hreinsuð að fullu næstu vikur verður bærinn að láta gera það á kostnað lóðareig- enda fyrir 17. júní n.k. Væri reyndar fróðlegt að fá upplýst, hvað hefur dvalið þessar sjálf sögðu framkvæmdir svo lengi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.