Morgunblaðið - 21.04.1960, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.04.1960, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 21. apríl 1960 Síðusta umferðirnar á Skákþingi fslands verffa tefldar í dag, og hefjast skákirnar kl. 2 e. h. í Breiðfirðingabúð. — Á myndinni sjást Gunnar Gunnarsson (til hægri) og Benóný Benónýsson, og er myndin tekin er þeir tefldu saman sl. laugardagf. — Gunnar vann skákina. Áœflunarferðir Loftleiða fil Helsingfors hefjasf 30. apríl. Flugmálaráðherra og blaðamönnum boðið i fyrstu ferðina LAUGARDAGINN 30. apríl n. k. munu Loftleiðir hefja áætlunar- flug til Helsingfors. Hefur félagið boðið flugmálaráðherra, flugr- málastjóra, ritstjórum og blaðamönnum, fulltrúum frá utanrikis- ráðuneytinu og flugráði að vera með í þessari fyrstu áætlunar- ferð íslenzkrar flugvélar til höfuðborgar Finnlands. Farin verður ein ferð vikulega. Verður farið héðan frá Reykjavík kl. 8,15 árd., komið við í Osló og komið til Helsingfors kl. 6 síðd. Samdægurs verffur farið til baka. Það er önnur hinna nýju flugvéla Loftleiða, sem mun fara þessa fyrstu ferð. — ÍÆtluðu til Akureyraij að leika sér • SÍÐASTLIÐINN þriðjudag greip ævintýraþráin tvo strák linga úr Silfurtúninu, þar sem þeir voru að leik í grennd við heimili sín. Þar sem þetta voru ekki skáld, sem láta sér nægja að dreyma um ævintýri og fjarlægar slóðir, heldur dug- miklir framkvæmdamenn, — héldu þeir þegar niður á Hafn arfjarðarveg, búnir öxum og hnífum, og „húkkuðu" þar bíl til Reykjavíkur. En það var aðeins byrjunin á löngu ferða- lagi — ferðinni var heitið til Akureyrar. Þeir komust að vísu aldrei svo langt, en það var ekki þeim að kenna — eða þakka. Ævintýrið endaði í Fomahvammi, — seint að kvöldi sama dags. Á meðan strákarnir ferðuð-, uzt á putunum í áttina til fyr-: irheitna landsins, leituðu skát- ar og lögreglan í Hafnarfirði að þeim í grend við Hafnar- fjörð, en heima biðu foreldr- ar og systkini í ofvæni. Þessi leit bar auðvitað ekki árang- ur. Það var ekki fyrr en bónd inn í Fornahvammi, sem fannst þetta ferðalag stráka á barnaskólaaldri grunsamlegt, hringdi til Reykjavíkur — fyrst í númer, sem strákarnir gáfu honum upp, (reyndist vera gabb) — og síðar til lög- reglunnar, að menn vissu, hvar þeir voru niðurkomnir. Með því var steini létt að að- stendendum, sem teknir voru að óttast um afdrif þeirra. Blaðamaður frá Morgunblað inu heimsótti annan „flæking- inn“ í gær og spjallaði lítils- háttar við hann um ferðalag- ið. — Hann er aðeins 9 ára gamall og getur ekki kallazt kloflang- ur, en það gerði ekki mikið til, sagði hann, því hann þurfti sama sem ekkert að ganga — bara eina mílú — afganginn óku þeir í bílum. — Hvernig bílum?' — Við stoppuðum marga bíla, fimm eða sex, jeppa, trukk og fólksbíla. — Spurðu bílstjórarnir ykk ur ekki, hvert þið væruð að fara? — Nei, þeir voru svo kurt- eisir — nema sá síðasti, hann spurði og spurði. Þá fórum við úr í Fornahvammi og ætluð- um að taka annan þar áfram. — Hvað ætlaðir þú að gera til Akureyrar? — Leika mér. > • — Við hvern? —- Við Áma. — Kr það hinn slrákurinn? — Já. — Hvað er hann gamall? — Fjórtán ára. — Hvað heitir þú? — Ekkert. Og nú er eins og hetjuskap- urinn renni af litla ferða- manninum, þar sem hann sit- ur á stól í náttfötunum, syfju legur og úfinn. — Þú ætlar aldrei að gera þetta aftur, segir móðir hans. — Jú, það endar með því, segir hann, snökktandi. — Honum finnst allir hálf vondir við sig, segir móðir hans, þó enginn hafi skamm- að hann — því hann ætlar aldrei að gera þetta aftur. — Til hvers voruð þið með exi og hníf, spurði blaðamað- urinn?. — Við ætluðum að nota þær. — Til hvers? — Veit það ekki — bara leika okkur. Allir leikir taka enda og alvaran tekur við — þannig var það líka með Vilhjálm litla Vilhjálmsson, sem einu sinni ætlaði að ferðast á put- unum til. Akureyrar. Ýmsir forráðamenn Loftleiða munu verða með í förinni, svo sem formaður félagsstjómar, Kristján Guðlaugsson, Alfreð Elíasson forstjóri og Sigurður Magnússon fulltrúi. Gestir fé- lagsins munu vera fjóra daga í ferðinni og koma heim 4. maí. Flugfarið til Helsingfors frá Reykjavík mun kosta kr. 5447 en kr. 9850 fram og til baka. Ileimsókn finnskra blaðamanna 1 byrjun júní í sumar er ráð- gert að hingað komi 37 finnskir blaðamenn. Hafa Loftleiðir skipu lagt heimsókn þeirra hingað. Munu þeir dveljast hér í fjóra daga og ferðast um landið. Full- trúar frá flestum meiriháttar blöðum í Finnlandi munu taka bátt í þessari för. Þýzk heimsókn Þá munu einnig koma hingað á næstunni tveir hópar þýzkra ferðaskrifstofumanna. — Munu þeir dvelja hér nokkra daga. Hefur fulltrúi Loftleiða í Ham- borg skipulagt heimsókn þeirra hingað. Er hér um að ræða lið í Iandkynningarstarfsemi Loft- leiða. Sigurður Magnússon skýrði fréttamönnum frá því í gær, að — Venezuela Framhald af bls. 1. Ieynilegar fyrirskipanir frá rík- isstjórninni. Romulo Betancourt forseti hef- ur flutt þjóð sinni ávarp og skor- að á hana að fylkja sér um ríkis- stjórnina, og ríkisstjómin skorað á íbúana að hefja allsherjarverk- fall til að styðja stefnu stjórnar- innar. — Ekki var vitað hvort uppreisnin mundi breiðast út. Castro til hjálpar Fréttir frá Havana á Kúbu herma að Dorticos forseti hafi boðið Betancourt forseta hern aðaraðstoð til að brjóta nið- ur uppreisnina. Dorticos bauð hvort heldur vantaði hergögn eða herlið. Sagði hann að slík aðstoð hefffi fyrst verið boðin „hinni hugrökku þjóff í Fen- ezuela“ þegar Fidel Castro forsætisráðherra heimsótti Caracas á síðasta ári. fýrstu þrjá mánuði ársins 1960 hefðu Loftleiðir flutt 5780 far- þega en 4791 á sama tíma í fyrra. Ér hér um að ræða 20,6% aukn- ingu farþegafjöldans. Vöruflutningar félagsins hafa hins vegar aukizt um 48,6% á sama tíma og póstflutningar um 65,1%. — Arekstur í loíti piCKORY, Norður-Karolínu, 20. Úpríl (Reuter): — Árekstur varð í dag milli bandarískrar farþega- þotu og lítillar einkaflugvélar af gerðinni Cessna 310C. 36 farþeg- ar voru í þotunni og sluppu þeir allir ómeiddir, en fjögur lík fund ust í einkavélinni, sem féll nið- ur á akurlendi eftir áreksturinn. Farþegi í þotunni segir að sér hafi virzt einkavélin rekast á vihstri væng þotunnar, en sjón- arvottar segja að bátar vélarnar hafi verið að koma inn til lend- ingar. — Genf Framh. af bls. 1 þeir: „Við vitum ekki hvað Rob- les átti við“. Virðist af þessu ólíklegt að samkomulag sé komið á milli átján ríkjanna um nýja tillögu, en Robles aðeins vongóð- ur um að slíkt samkomulag náist. Sögusagnir 1 öllu þessu andrúmslofti þagn ar og baktjaldamakks myndast fjöldi sögusagna eins og að nú sé ' ráði að fresta ráðstefnunni og halda nýja í Genf í júlí eða í New York í september. Þá gengur sterklega orðrómur um að vænt- anleg tillaga átján ríkjanna verði sú að ákveða nú þegar tólf mílna fiskveiðilögsögu, en fresta ákvörðun landhelginnar til næsta hausts. Enn gengur orðrómur um að Bandaríkin reyni að fá Suður Ameríkuríkin og sum átján ríkj- anna á sitt band með því að lofa þeim verulegri tæknilegri að.itoð til að auka fiskveiðar sinar. Ajlt er þetta enn í ivissu, e.n vitað er að þeir Drew írá Kanada. Dean írá Bandaríkjur.um og Hare frá Bretlandi voru önnum kafn:r á íundum fram yfir miðnætti siðustu nótt. Mótfallin frestun Drew virtist á árdegisfundin- um aðeins tala til þess að ein- hver tæki til máls og talaði blaða laust. Sagði hann meðal annarS: Við höfum snúið hingað afcur ur páskafríi, sem var lítið frí fyrir rnarga vegna viðræðna. Við mun- um halda áfram að ræða málin og vona ég að ef einhverjir eru með nýjar tillögur þá leggi þeir þær fram sem skjótast. Vegna orðróms vil ég taka fram að Kanada er mótfallið hverskonar frestun á ráðstefnunni, heldur viljum við atkvæðagreiðslu sem endi með samkomualgi, enda eru sjónarmiðin fullkomlega skýr. Drew bjartsýnn Drew sagði að margir hefðu lýst yfir svartsýni vegna þess hve bandarísk-kanadíska tilL hlaut lítið fylgi við atkvæðagreiðsluna í heildarnefndinni. Engin ástæða væri til svartsýni og sýndu það bezt atkvæðagreiðslúr á síðustu ráðstefnu, en þá hafði banda- ríska tillagan lítið fylgi í nefnd, en jók mikið við sig á allsherj- arfundi. Kvaðst hann vona að menn sýkist ekki dimmum svart- sýnis-sjúkdómi, enda væri margt hvetjandi, meðal annars að þeg- ar hefðu mörg þeirra ríkja er hjá sátu eða voru á móti banda- risk-kanadísku tillögunni látið í það skína að þau mundu fylgja henni. að lokum og færi þessi stuðningur vaxandi. Drew ræddi mikið um það að lagánefndin hefði engan úrskurð kveðið upp um það hver breidd land- og fiskveiðihelgi skyldi vera, heldur falið ráðstefnunni að ákveða það. Ávítaði hann harðlega þá sem hefðu sagt að sum ríki myndu ekki hlýða ákvörðunum tveggja þriðju hluta ráðstefnunnar, því ef svo væri, hvernig ætti þá að semja alþjóðalög, ef aðeins minni hluti ætti alltaf að fá sitt fram. Kvaðst hann vona að enginn full trúanna stefndi beinlínis að því að ráðstefnan yrði órangurslaus. Tunkin, fulltrúi Rússa, sem einnig flutti stutta ræðu, sagði að Rússar væru á móti því að ráð- stefnunni yrði frestað. En tals- verða athygli vöktu þau úmmæli hans að unnt myndi að leysa hluta af því máli sem lægi fyrii ráðstefnunni. 12 mílna fiskveiðilögsaga Eftir að haldinn var fundur átján ríkjanna í kvöld, hefi ég fengið öruggar heimildir fyrir því að sett verður fram ný tillaga, hvort sem átján ríkin öll flytja hana eða Mexikó eitt, með stuðn- ingi hinna. Efni tillögunnar er það að vísa skuli til Sameinuðu þjóðanna endanlegri ákvörðun um stærð landhelgi, en hins veg- ar, þar sem ljóst sé fullt sam- komulag um tólf mílna fiskveiði- lögsögu, skuli ráðstefnan sam- þykkja þ>að endanlega. í tillögr unni verður ekkert ráð gert fyrir sögulegum rétti fjarlægra ríkja til fiskveiða á svæðinu milli 6 og 12 mílna. Verður þessi tillaga lögð fram í fyrramálið. Vafalítið er talið að bandarísk-kanadíski hópurinn verði á móti tillögunni, því þau vilja ekki svipta sig samn ingsstyrk um landhelgi með því að draga fiskveiðilögsöguna útúr. Enda vilja þau umfram allt ekki fresta ákvörðun um sex mílna landhelgi, því víst þykir að með tilkomu nýrra ríkja muni tólf mílna landhelgi skjótt aukast fyigi- Dagskrá Albingis FUNDIR eru boðaðir í báðum deildum Alþingis á morgun, föstudag, kl. 13,30, og eru dagskrár á þessa leið: Efri deild: — 1. Sjúkrahúsalög. frv. — 2. umr. — 2. Dýralækningar, frv. — 2. umr. Neðri deild: — 1. Innflutnings- og gjaldeyrismál, frv. — Frh. 1. umr. — 2. Lækningaleyfi, frv. — 2. umr. — 3. Umferðarlög, frv. — 3. umr. — 4. Eignarnámsheimild fyrir Húsavíkur- kaupstað á Preststúni, frv. — 1. umr. — 5. Sala tveggja jarða í Austur-Húna- vatnssýslu, frv. — 2. umr. — 6. Ráð- stöfun erfðafjárskatts og erfðafjár til vinnuheimila, frv. — 2. umr. — 7. Verzlunarstaður við Arnarnesvog, frv. — 1. umr. — 8. Landnám, ræktun og byggingar í sveitum, frv. — 1. umr. — 9. Menntaskólar, frv. — 1. umr. — 10. Vitabyggingar, frv. — 1. umr. — 11. Sala eyðijarðarinnar Hellnahóls, frv. — 1. umr. NA /S hnúhr\ y SV 50 hnúlar X1 Snjókoma * ÚSi - V Skúrir K Þrumur mst KuUas/i/ Zs* Hituski/ H Hat L Lagi í GÆR var vestan garri hér á landi, sums staðar 30 hnúta vindur (7 vindstig) eða meira. í 2,5 km hæð var 60 hnúta vindur og olli hann töfum á flugi innanlands. Var mjög ó- kyrrt í lofti, þar sem strekk- ingurinn stóð þvert á dalina svo sem á Akureyri. í vetur hefur oft verið mild- ara hér á landi en á megin- landi Evrópu. Nú þegar vorið er að koma, verður þetta æ sjaldnar, og í gær var t.d. 20 stiga hiti í Hamborg, en 17 í Kaupmannahöfn. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi SV-land til Breiðafj. og SV- mið til Breiðafjarðarmiða. — Allhvass SV, skúrir og síðar él. — Vestf., Norðurl., Vest- fjarðamið og Norðurmið: — Vestan og SV-stinningskaldi, él. — NA-land til SA-lands, NA-mið og Austfj.mið: Vest- an stinningskaldi, bjartviðri. — SA-mið: Allhvass vestan, skúrir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.