Morgunblaðið - 21.04.1960, Qupperneq 13
Fimmtudaerir 21. apríl 1960
MORGUNTtT 4Ð1Ð
13
Björn Ólafsson fyrrv. ráðherra:
Veltuútsvarið og skatt-
ar samvinnufélaga
UM það verður varla deilt, að
bein skattheimta ríkis og sveitar-
félaga undanfarin áratug, hefur
verið úr hófi fram og leitt af sér
almennt virðingarleysi skatt-
þegna fyrir skatta- og útsvars-
lögum, en valdið rakstrarfjár-
skorti hjá atvinnuvegunum. Ef
ekki er stungið við fótum, verður
þetta að átumeini í þjóðfélaginu,
er stofnar öllu efnahagskerfinu
í hættu.
Ríkisstjórnin hefir nú lagt inn
á þá braut að gera gagngerðar
breytingar í þessu efni með þeim
frumvörpum sem hún hefir lagt
fyrir Alþingi um breytingar á
skatta- og útsvarslögum. Þetta
eru að vísu bráðabirgða breyting
ar meðan heildarendurskoðun
laganna stendur yfir. En það spor
sem stigið hefir verið nú, léttir
stórlega skattabyrðina. Menn
gera sér þó grein fyrir, að langt
er frá því að með þessum breyt-
ingum sé hinu almenna skatta-
kerfi komið í viðunandi horf og
verður það ekki gert nema með
víðtækari endurskoðun laganna,
þar sem meðal annars nokkur
umdeild höfuðatriði skatta og út-
svarslaganna fá eðlilega og sann-
gjarna úrlausn.
Ég ætla ekki að gera hér að
umtalsefni hvaða breytmgar séu
yfirleitt æskilegar á lögunum,
heldur minnast stuttlega á tvö
höfuðatriði sem mjög snerta
skattakerfið eins og nú standa
sakir. Þessi atriði eru veltuút-
svarið og skattar samvinnufé-
laga.
í flestum löndum hafa sam-
vinnufélög í öndverðu lögfestan
skattagrundvöll fyrir starfsemi
sína, sem er mikið lægri en önn-
ur hliðstæð starfsemi verður við
að búa. í byrjun var þetta byggt
á þeim röksemdum, að félögin
væri samtök neytenda sem vildu
með þessum hætti ná hagkvæm-
um kaupum á nauðsynjum til
persónulegra þarfa. Hér á landi
hefir sú röksemd einnig verið
notuð til varnar skattfríðindum,
að félög sem hafi óskiftilega
sjóði, eigi ekki að greiða sama
skatt og aðrir.
í flestum löndum hafa skatt-
fríðindin gert félögin sterk og
voldug svo að þau eru ekki leng-
ur félög nokkurra einstaklinga,
heldur öflugir auðhringir sem
reka verksmiðjur, gistihús, vá-
tryggingarfélög, skipafélög, blaða
útgáfu og flest annað sem miklir
fjármunir leita til.
Af þessum ástæðum hafa víða
risið upp harðsnúnar deilur um
Itfcattfríðindi félaganna og því
haldið fram, að þegar þau séu
orðin að öflugum auðhringum,
sem láta sér enga starfsemi óvið-
komandi, sé niður fallin sú á-
stæða sem skattfríðindin í önd-
verðu voru byggð á.
Hér á landi hefir þróun sam-
vinnufélaganna orðið á sama veg
og annars staðar, þótt í smærri
stil sé. Þau hafa komið á fót iðn-
rekstri, vátryggingarstarfsemi,
skipastól og alls konar þjónustu,
auk þess sem mikill hluti af
verzlun landsmanna er á vegum
félaganna. Þegar skattafríðindi
félaganna voru ákveðin hér fyrir
nokkrum áratugum, var ekki gert
ráð fyrir þeim fjölþætta stór-
rekstri, sem félögin hafa nú með
höndum.
Almenningur gerir sér yfirleitt
ekki grein fyrir hversu mikilla
skattfríðinda félögin njóta og
hversu mikill munur er á skatta-
byrði þeirra og annarra félaga og
einstaklinga, er starfa að sams
konar atvinnurekstri. Ég skal
reyna að skýra þenna mismun í
fáum dráttum.
1. Sveitarútsvar.
Einstaklingar og félög greiða
20—30% af tekjum eftir upp-
hæð teknanna. Samvinnufélög
greiða:
a) útsvar af arði, sem leiðir af
viðskiptum við utanfélagsmenn.
b) allt að 2% af fasteignamati
húseigna sem félögin nota til
starfrækslu.
2. Veltuútsvar.
Félög og einstaklingar greiða
%%— 3% af veltu án tillits til
afkomu. Samvinnufélög hafa
undanfarið greitt veltu-útsvar
aðeins af utanfélagsviðskiptum
og þó aldrei hærra en tekjuaf-
gangi nemur. Samkvæmt frv.
sem nú hefir verið lagt fyrir Al-
þingi eiga þau að greiða sama
veltu-útsvar og aðrir.
Tekjuskattur.
Öll félög, einnig samvinnufé-
lög eiga samkvæmt lögunum að
greiða 25% af hreinum tekjum,
en sá böggull fylgir skammrifi
að því er samvinnufélögin varð-
ar, að þau geta á löglegan hátt
lagt allan tekjuafgang sinn í
skattfrjálsan sjóð og þurfa því
ekki að hafa neinar skattskyldar
tekjur frekar en þau sjálf telja
sér hagkvæmt.
Þessu til sönnunar má benda
á að síðasta ár greiddu samvinnu
félög á öllu landinu aðeins um
1,3% af öllum tekjuskatti til rík-
issjóðs, meðan önnur félög og
einstaklingar greiddu 98,7%. Eng
um getur dulizt að þetta er ekki
sanngjörn skipting á skattbyrð-
inni.
Eins og áður er sagt, er nú gert
ráð fyrir að samvinnufélögin
greiði veltu-útsvar eins og aðrir
skattþegnar. Félögin hafa til
þessa haft lítið af þessu rang-
láta útsvari að segja. Hins vegar
hefir það hvílt og hvílir enn eins
og farg á öllum öðrum atvinnu-
rekstri og mergsýgur atvinnu-
fyrirtækin. 'Undanfarin ár hafa
samvinnumenn lítið látið yfir
því að þessi skattheimta væri ó-
réttlát. Nú kveður við annan tón,
þegar félögin eiga að taka á sig
sömu byrði og aðrir.
Tíminn skrifaði fyrir nokkrum
dögum um veltuútsvarið:
„Erlendir sérfræðingar, sem
hafa kynnt sér íslenzk skattamál
hafa fellt þann dóm, að þetta sé
ranglátasti skattur, er sé lagður
á hérlendis, enda þekkist slíkur
skattur ekki heldur í nálægum
löndum. Skattur þessi er lagður
á fyrirtækin án alls tillits til
efnahags og afkomu, og verða
ýms fyrirtæki því oft að ganga
á eignir sínar til að greiða hann“.
Ég er þessu alveg sammála. En
meðan bæjar. og sveitarfélögum
er leyft að innheimta slíkt út-
svar, er með öllu óþolandi, að
byrðin sé ekki lögð hlutfallslega
jafnt á allan atvinnurekstur í
hvaða félagsformi sem hann
starfar. Hér er ekki um að ræða
nokkra ofsókn á hendur sam-
vinnufélögum, heldur réttláta
skiptingu skattbyrðanna meðan
hið rangláta veltu-útsvar er inn-
heimt.
Ég hygg að ekki sé ofmælt, að
sakttgreiðendur í landinu telji
það mikið ranglæti, að samvinnu
félögin sem hafa með höndum
mikinn hluta af verzlun, iðnaði
og samgöngum landsins, greiði
ekki skatta til ríkis og sveitar-
félaga í svipuðu hlutfalli og aðrir
skattgreiðendur. Flestum er nú
orðið ljóst, að skattgreiðslur sam
vinnufélaganna hafa verið í hróp
andi misræmi við greiðslur ann-
arra skattþegna.
Björn Ólafsson
Síðan fyrst voru sett hér lög
um samvinnufélög, hefir grund-
velli þeim sem félögin byggðust
á verið mikið breytt að tilhlutun
samvinnumanna sjálfrf. Þannig
var numið úr lögum árið 1937
ákvæði um samábyrgð félags-
manna og 1958 var afnumin
skylda félaganna til þess að
leggja í varasjóð 1% af samaU-
lagðri sölu vara og afurða, skv.
24. gr. laga um samvinnufélög.
Þó er tekið fram í 3. gr. þeirra
laga, að „eitt aðaleinkenni á
skipulagi samvinnufélaga“, sé
meðal annars að í „varasjóð
greiðist árlegt fjártillag af ó-
skiptum tekjum félagsins“.
Við það, að afnumin var skyld-
an til að leggja í varasjóð eða
aðra óskiptilega sjóði félaganna,
var raunverulega sundur skorinn
einn megin þátturinn í sérein-
kennum á skipulagi samvinnufé-
laga.
Séreinkenni samvinnufélaga
sem skattfríðindi þeirra í önd-
verðu byggðust á, hafa smám
saman verið að hverfa með ofan-
greindum breytingum á lögun-
um um samvinnufélög og þeim
miklu breytingum á verzlunar-
háttum, sem orðið hafa síðustu
áratugina, og einnig hinum mikla
iðnrekstri, sem risið hefir upp á
vegum félaganna. Það virðist því
ekki lengur nokkur skynsamleg
ástæða fyrir því, að samvinnufé-
lögin hafi algerlega sérstöðu um
skattgreiðslu til ríkissjóðs, sem
greinilega kemur fram í því, að
þau greiða aðeins 1,3% af öllum
tekjuskatti sem innheimtur var
á síðasta ári, eins og áður er sagt.
Áður en breytt var tekjuskatti
félaga með lögum 36/1958, höfðu
samvinnufélögin greitt 8% af
skattskyldum tekjum. Nú var
þeim gert að greiða 25% eins og
hlutafélögum og öðrum félögum.
En jafnframt þessari breytingu á
skattalögunum var úr lögum um
samvinnufélög numin sú kvöð, að
félögin skuli leggja 1% í vara-
sjóð, skv. 24 .gr. laganna. Upp-
haflega hefir þessi kvöð verið sett
í lögin til að tryggja það, að fél-
ögin komist ekki hjá að gefa upp
einhverjar skattskyldar tekjur.
En um leið og kvöðinni var af
létt, opaðist leið fyrir félögin, að
leggja allan reksturshagnað sinn
í stofnsjóðinn, sem er eign félags
manna og skattfrjáls hjá félögun-
um. En eins og kunnugt er, nota
félögin stofnsjóðinn sem veltu-
fé og þurfa þau ekki að endur-
greiða fé úr sjóðnum nema eftir
mjög þröngum reglum. Við þessa
breytingu varð ákvörðunin um
25% skattskyldu til ríkissjóðs ó-
raunhæf að mestu eða öllu leyti.
Það sýnist vera sjálfsögð og
réttlát krafa, að sá öflugi verzl-
unar- og iðnrekstur, sem nú er á
vegum samvinnufélaganna, greiði
til almenningsþarfa með tekju-
skatti hlutfallslega sama og aðrir
skattþegnar, er sömu atvinnu
stunda. Þjóðin getur ekki látið
slíkt ranglæti viðgangast að mik
ill hluti af verzlunar- og iðn-
rekstri landsmanna sé að mestu
leyti skattfrjáls meðan samskon-
ar rekstur í öðru félagsformi ber
þunga skatta.
Eins og áður er getið eru út-
svarsgreiðslur samvinnufélaga í
engu samræmi við slíkar greiðsl-
ur félaga og einstaklinga, sem
fást við iðnaðar- og verzlunar-
rekstur. Sú grein í samvinnulög-
unum (nr. 46/1937, 41. gr.) sem
ákveður greiðsluskyldu félag-
anna til sveitar og bæjarsjóða,
var sett til bráðabirgða en síðan
eru nú meira en tveir áratugir.
Segir í lagagreininni, að félögin
skuli greiða hin tilteknu gjöld
„þangað til fram hefir farið gagn
gerð endurskoðun á löggjöfinni
um tekjur sveitar og bæjarsjóða".
Virðist nú vera kominn tími til
að útsvarsgreiðslur félaganna
komi til endurskoðunar, svo að
þau fái tækifæri til að leggja
fram sanngjarnan og réttlátan
skerf til almennra þarfa sveitar
og bæj arfélaganna í landinu.
Veltuútsvarið.
Um veltuútsvarið hefir verið
frekar lítið ritað opinberlega en
því meira rætt manna á milli.
Atvinnureksturinn í landinu,
sem þetta útsvar hefir mergsogið
í mörg ár, er að missa þolinmæð-
ina. Raunar er furðulegt það
langlundargeð sem atvinnu-
vegirnir hafa sýnt, meðan skatt-
heimta rikis og sveitarfélaga ár-
um saman hefir dregið til sín
mestallan tekjuafgang þeirra og
stundum heimtað mikið meira en
allan tekjuafganginn. Þar er
veltuútsvarið þyngst á metunum.
Nú er atvinnureksturinn far-
inn að sjá fram á, að honum blæð
ir út á skömmum tíma, ef ekki
eru reistar skorður við þessari
furðulegu og óviturlegu skatt-
heimtu. Veltuútsvarið er lagt á
Ferming f Fríkirkjunni sumardag-
inn fyrsta kl. 2. (Sr. Jón Þorvarðsson).
Stúlkur:
Anna l’óra Karlsdóttir, Háteigsveg 1.
Friðgerður Sigríður Benediktsdóttir,
Barmahlíð 55
Guðríður Asa Matthíasdóttir, Meðal-
holti 10
Guðrún Olafsdóttir, Sigtúni 25
Hildur Halldórsdóttir, Hamrahlíð 11
Hildur Rúna Hauksdóttir Grænuhlíð 11
Hjördís Sigurðard., Bólstaðarhlíð 31
Laufey Barðadóttir, Skaftahlíð 11
Magnea Sigríður Guðmundsdóttir,
Bólstaðarhlíð • 16
Ragnheiður Þorsteinsd., Blönduhlíð 2
Sigrún Sigurðardóttir, Mávahlíð 4
Þórlaug Rósa Jónsdóttir, Bogahlíð 22
Drengir:
Agnar Frímann Svanbjörnsson,
Flókagötu 19
Asgeir Halldórsson, Mávahlíð 41
Björn Ingvarsson, Nóatúni 30
Einar Þorsteinsson, Bólstaðarhlíð 33
Erlendur Magnússon, Laugavegi 162
Finnbogi Garðar Guðmundsson,
Mávahiíð 44
Guðmundur Þorbjörn Harðarson,
Meðalholti 12
Jóhann Júlíus Hafstein, Háuhlíð 16
Jón Sigurðsson, Lönguhlíð 11
Jónas Tómasson, Blönduhlíð 35
Olafur Arnars, Skúlagötu 54
Olafur Frederiksen, Barmahlíð 17
Olafur Þór Sigurgeirsson, Grænuhlíð 5
án nokkurs tillits til fjárhagsaf»
komu eða eigna fyrirtækjanna
enda hefir komið fram geigvæn-
legt ranglæti gagnvart fjölda
skattgreiðenda við álangingu
þessa útsvars. Veltuútsvarið er á
lagt eftir að hið venjulega sveit-
arútsvar og skattar til ríkisins
hefir verið lagt á. Á þann hátt
hefir atvinnufyTÍrtækjunum ver-
ið gert ókleift að safna nokkrum
sjóðum til rekstursins en fjöldi
þeirra hefir orðið að rýra höfuð-
stólinn vegna skattanna.
Þessi skattheimta hefir nú bor
ið þann sorglega árangur, að all-
an atvinnurekstur í landinu
skortir rekstursfé og það er einn
meginþátturinn í þeim efnahags-
legu erfiðleikum, sem þjóðin
þarf nú að glíma við.
Veltuútsvarið nemur nú árlega
á öllu landinu að líkindum ekki
minna en 40—50 millj. kr. Þessi
fjárhæð er árlega tekin af at-
vinnuvegunum umfram venju--
lega skatta og sveitarútsvör. E£
um skynsamlega skattlagningu
væri að ræða, hefði þetta fé átt
að renna til atvinnuveganna til
reksturs og endurnýjunar. Það
er því engin furða þótt slík blóð-
taka segi til sín með stórkostlegri
truflun í efnahagskerfinu. Þeir
tugir milljóna kr. sem bæjar. og
sveitarfélögin hafa árlega dregið
til sín af hinu eðlilega og rétt-
mæta rekstrarfé atvinnuveganna,
hafa runnið í alls konar fjárfest-
ingu í stað þess að ganga til
uppbyggingar atvinnuveganna,
eins og hvarvetna annars staðar
er gert.
Skattheimta sem þessi þekkist
ekki í nokkru landi, enda brýtur
hún í bága við það lögmál sem
flestar þjóðir byggja á skattkerfi
sitt, en það er, að skattleggja
þegnana í réttu hlutfalli við árs-
tekjur þeirra og eignir.
Það er fásinna að hugsa sér að
hægt sé að halda áfram að inn-
heimta veltuútsvarið eins og
gert hefir verið. Þessi tekjustofn
er algerlega brostinn, enda er
áframhaldandi innheimta hættu-
leg atvinnuvegunum og þar með
fjárhagskerfi landsmanna. Velta
útsvarið verður því að hverfa i
sinni núverandi mynd.
Um aðeins tvær leiðir er að
velja: að afnema veltuútsvarið
og fá bæjar- og sveitarfélögunum
aðrar tekjur í staðinn eða lög—
heimila álagningu veltuútsvara
með því móti að atvinnufyrir-
tækin megi reikna með því £
verðlagningu og telja það til
kostnaðar í rekstrinum.
Á engan annan hátt er hægt að
losa atvinnuvegina við þá mikli*
hættu sem stafar af veltuútsvar-
inu. Skattlagning sem þessi er
ósamboðin hverri þjóð, sem telur
nauðsynlegt að búa við heilbrigt
efnahagskerfi.
Sigfús Birgisson, Stigahlíð 16
Steinar Magnússon, Stórholti 35
Sæmundur Snævar Holgerss., Uthlið 19
Þorsteinn Einarsson, Skúlagötu 52
Þórður Markús Þórðarson, Háteigsv. 19
Ferming í Fríkirkjunni i Hafnar-
firði á sumardaginn fyrsta, kl. 14.
Stúlkur:
Bára Guðmundsd., Austurgötu 29
Birna Sólveig Loftsdóttir, Alfaskeiði 3ð
Bryndís Gróa Jónsd., Kirkjuvegi 12B
Brynja Gunnarsdóttir, Strandgötu 7,
Erla María Kjartansdóttir, Oldugötu 31
Guðfifina Karen Brynjólfsdóttir,
Alfaskeiði 53.
Guðríður Sigurðardóttir, Suðurgötu 74
Ingibjörg Guðmundsd., Suðurgötu 18
Ragnhildur Rósa Héðinsdóttir, Skúla-
skeið 40.
Þórey Aðalsteinsdóttir, Suðurgötu 81
Drengir:
Einar Hreinn Bjarnason Hraunkambi T
Karl Trausti Sveinbjörnsson,
Alfaskeiði 30
Omar Onfjörð Kjartanss., Alfaskeiði 39
Reynir Kristinsson, Tjarnarbraut 17
Sigurður Valdimars Gunnarsson,
Hringbraut 38.
Snorri Lorens Kristinsson, Tjarnar*
braut 17.
Sveinn Kristinsson, Hverfisgötu 54»
Ægir Ellertsson, Hlíðarbraut 3.
Ferming í dag