Morgunblaðið - 21.04.1960, Side 17

Morgunblaðið - 21.04.1960, Side 17
i''i' Fimmtudaeur 21. apríl 1960 — Jónas Kristjánsson Frafh. af bls. 8 og traustur vinur vina sinna að fágætt mun vera. Nú er þessi stórbrotni hugsjóna maður horfinn af sjónarsviðinu eftir nær níutíu ára viðburðaríka æfi. En hann lifir hér áfram í verkum sinum. Heilsuhælið hans í Hveragerði mun reynast óbrot- gjarn minnisvarði um víðsýni hans og stórhug. Svo munu og reynast öll hans verk í þágu mannræktar og mannkærleika. Kæri vinur ég þakka þér sam- fylgdina, þótt hún yrði styttri en ég hefði óskað, hún varð mér mik ill ávinningur. >ín hollu ráð og föðurlega handleiðsla mun mér seint gleymast. Blessuð sé þín minning. Árni Ásbjarnarson. — ★ — Kveðja frá fyrrverandi sjúklingi ÞAR sem ég er á meðal þeirra mörgu, sem eiga líf og fjör að launa Jónasi Kristjánssyni, finn ég mig knúinn til þess að mæla örfá þakkar- og kveðjuorð. Ég segi því af sannfæringar- krafti og í fyllstu alvöru: Hér stend ég nú og má mæla, vegna hins mikla hugsjónaríka og giftusama starfs þessa framliðna vinar, sem nú er verið að kveðja í hinzta sinn. Mannvinurinn, hugsjónamað- urinn, mikilmennið Jónas Krist- jánsson hefur lokið sínum jarð- vistardögum, hér á meðal okkar. Hann hefur flutzt á annað og æðra tilverusvið til þess að ná enn meiri og fullkomnari þroska. Það, að þroskast til mestrar fullkomnunar var hans háleit- asta. hugsjón, sem meðal annars birtist skýrt og afdráttarlaust í öllu hans starfi á meðal vor. Þótt Jónas læknir sé horfinn sjónum okkar, yfir um til lands ódauðleikans, dáinn, sem kallað er, mun hann þrátt fyrir það lifa áfram á meðal þjóðar sinn- ar, sem einn mikilhæfasti og bezti sonur sem Island hefur fóstrað. Með starfi sínu hefur hann sjálfur reist sér minnisvarða sem óbrotgjarn mun reynast, og semmölur og ryð fá eigi grandað. Nafn hans og saga verður skráð gullnu letri á spjöld sögunnar í nútíð og framtíð, á meðal aldnra og óborinna, um aldir. „Heimsins þegar hjaðnar rós, og hjartað klökknar. Jesús gef mér eilíft ljós, sem aldrei slökknar“. Það ljós, sem um getur í þessu litla versi, var einmitt það ljós sem Jónas læknir átti í svo óvenjulega ríkum mæli. Ég hef tvívegis verið sjúklingur JónaS- ar, tala því af eigin reynslu, sem einstaklingur. Þó er ég þess full- viss að mér er óhætt að mæla jafnframt fyrir munn þúsund- anna sem eiga hinum framliðna lækni skuld að gjalda. Og segi: Hjartans þakkir fyrir mikið, göfugt og gifturíkt starf. Beztu óskir um áframhaldandi göfgi á sigurbraut mannsandans. Meiri fullkomnunar og þroska á land- inu handan hafsins mikla, á landi ódauðleikans. Þangað fá vor mannlegu augu ei greint, en vér vitum þó að það land er til, skynjum þann æðsta sannleika. Vinur og bróðir, nú er lokið hér miklum og löngum starfs- degi, starfi brautryðjandans: — Beztu þakkir fyrir allt og allt — í guðs friði. Haraldur Hallsson. MORGUNBLAÐ1Ð v 1? VITNA OSKAÐ Á FIMMTUDAGSMORGUN varð Sesselja Helgadóttir fyrir slysi á Hafnarfjarðarveginum, eins og sagt var frá í blaðinu í gær. Nú vantar Hafnarfjarðarlögregluna vitni að slysi þessu og biður þá sem kynnu að hafa séð það um að hafa samband við sig. Vitað er að bílstjóri á Fiatbifreið, sem ók á eftir bílnum sem slysinu olli, varð vitni að þvi, og er hann sérstaklega beðinn um að gefa sig fram. pjóhSCClÍÍ Sími 23333 ™ Dansleikur annað kvold kl. 21 K K - sextettinn Songvarar: ELLÝ og ÖÐINN Gestir hússins í kvöld verða dægurlagasöngkonan Astrid og Berti Möller Komið og heyrið hina ungu og efnilegu söngvara syngja með KKsextettinum í kvöld. Sumarfagnaour í Ingólfscafé í kvöld kl. 9 DISKÓ-kvintettinn leikur Söngvari: Harald G. Haralds. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12826 Sumargjöf Bazar og kaifisala Kvenfélag Lágafellssóknar, verður í Hlé- garði sunnudag. 24. apríl 1960, kl. 3,30 e.h. Leikfélag Kópavogs GAMANSÖNGLEIKURINN Alvorukrónan anno 1960 Eftir Túkall Leikstjóri: Jónas Jónasson, Leiktjöld: Snorri Karlsson Söngstjórn og útsetning: Magnús Ingimarsson. Dansstjóri: Hermann Ragnar Stefánsson Kvartett Braga Einarssonar. Frumsýning í Kópavogsbíó fimmtudaginn 21. apríl kl. 8 e.h. (Sumardaginn fyrsta). 2. sýning föstudaginn 22. apríl kl. 8,30 e.h. Aðgöngumiðasala á báðar sýningar alla daga eftir kl. 5 e.h. — Sími 19185. Tómur flöskur Framvegis kaupum vér tómar flöskur, sem merktar eru einkennisstöfum vorum Á.V.R. í glerið. Flöskurnar skulu vera hreinar og óskemmdar. Móttaka í Nýborg alla virka daga frá kl. 9—12 og 13—18, laugardaga frá kl. 9—12. Fyrir hverja flösku verða greiddar kr. 2.00. 20. apríl 1960. Afengisverzlun Ríkisins BÆNDUR BÆIMDUR FORDSON POWER MAJOR diesel hjóladráttarvélin, sameinar alla kosti minni dráttarvéla auk þess að vera nægilega þung (ca. 2200 kg) og aflmikil (51,8 hestöfl) til jarðvinnslu. Verðið er nú kr. 85.000.00 án vökvalyftu. FORDSON DEXTA er minni gerð af diesel-dráttarvélum frá sömu verksmiðju, mjög ódýr í rekstri og þægileg í meðförum, hentug til allra algengra starfa. Saga vél- arinnar er ein óslitin sigurför síðan framleiðsla hennar hófst 1958 m. a. vann hún alheims plægingakeppni bæði árið 1958 og 1959. Afl 32 hestöfl — Þyngd 1352 kg. Verð kr. 80.500.00 með vökvalyftu. Verð og gæði þessara dráttarvéla stenzt samanburð við allar hliðstæðar diesel-dráttarvélar enda eiga þessar vél- ar vaxandi vinsældum að fagna hjá öllum sem þeim hafa kynnst. Með vélunum eru fáanlegar sláttu og múgavélar auk ýmsra jarðvinnslutækja. Nánari upplýsingar fáanlegar hjá oss og eftirtöldum Söluumboðsmönnum vorum úti um land. Umboðsmenn fyrir dráttarvélar Verzl. Haraldar Böðvarssonar, Akranesi. Verzl.fél. Borg hf., Borgarnesi Verzl.fél. Borgarfjarðar hf., Borgarnesi. Kaupfél. Ólafsvíkur, Ölafsvík Verzl.fél. Grund, Grafarnesi. Verzl. Sig Agústssonar, Stykkishólmi. Verzl. Ólafs Jóhannessonar, Patreksfirði. Verzl.fél. Dýrafjarðar, Þingeyri. Hefill hf. Flateyri. Verzl. Páls Friðbertssonar, Súgandafirði. Timburverzl. Björk, ísafirði. Verzl. E. Guðfinnssonar, Bolungarvík. Verzl. Sig. Pálmasonar, Hvammstanga. Verzl. Valur, Blönduósi. Verzl.fél. Skagfirðinga, Sauðárkróki. Gestur H. Fanndal, verzl., Siglufirði. Verzl. Brynjólfs Sveinssonar, Ólafsfirði. Verzl Valdimars Öskarssonar, Dalvík. Byggingarvöruverzl. Tómasw Björnssonar, Akureyri. Verzl.fél. Austurlands, við Lagarfljótsbrú. Verzl. Björns BjörnSsonar, Neskaupstaði Pöntunarfélag Eskfirðinga, Eskifirði. Verzl. Framsókn, Reyðarfirði. Verzl. Einars Eiríkssonar, Höfn, Hornafirði. Verzl.fél. V-Skaftfellinga, Vík í Mýrdal. Kaupfélagið Þór, Hellu. Verzl. S. Ó. Ólafssonar, Selfossi. Sveinn Egiisson h.f. Ford umboð Laugavegi 105, Reykjavík — Sími 22466 Sölu-umboð: Verzlanasambandið h.f. Borgartúni 25 Reykjavík — Sími 18560

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.