Morgunblaðið - 21.04.1960, Side 24
I
Kardemommubœr
Sjá bls. 3.
JMtffgtmfiIðftifr
90. tbl. — Fimmtudagur 21. apríl 1960
Björn Ólafsson
skrifar grein á bls. 13 i dag.
Mynd þessa tók ljósmyndari Mbl. i gær af frú Ilelgu Scheving
og syni þriggja mánaða á heimili hennar, Fögrukinn 19 i
Hafnarfirði.
Ung móðir bjargar 7 ára
dreng frá drukknun
’HAFNARFIRÐI — 1 fyrradag vann ung húsmóðir hér í bænum
það afrek að bjarga sex ára gömlum dreng frá drukknun. Hafði
hann verið á fleka eða einhverju því líku úti á allstórri og djúpri
tjörn, sem er skammt frá verksmiðju Reykdals, gegnt Lækjar-
kinn, og fallið í hana.
Kvaðst konan, sem heitir
Helga Scheving og á heima að
Fögrukinn 19, hafa heyrt hróp-
að á hjálp frá tjöminni, en þá
hafði önnur kona vaðið út í eftir
drengnum en festst í botnleðju,
sem er mikil þarna. Hún komst
þó hjálparlaust til lands.
Brá Helga skjótt við og stakk
sér til sunds, en þá hafði dreng-
urinn, sem gat sér enga hjálp
veitt, sokkið tvisvar til botns en
skotið upp í bæði skiptin. Varð
hún að synda út í miðja tjörn
til að ná drengnum, sem þá
hafði að vonum sopið mikið vatn
og var orðinn helblár og mátt-
lítill. — Synti hin snarráða hús-
móðir síðan með hann í land, en
þar hafði þá safnazt fyrir fleira
fólk, sem tók við drengnum og
flutti hann heim til sín, þar sem
honum var hjúkrað. Mun hann
hafa náð sér tiltölulega fljótt
eftir volkið.
Helga Scheving, sem er Vest-
manneyingur að uppruna, en
búið hefir hér í nokkur ár, hefir
með snarræði sínu og hugrekki
imnið hér mikið afrek. Hér
mátti ekki tæpara standa að illa
færi. Helga er þriggja bama
móðir og gift Halldóri Bjarna-
syni loftskeytamanni. — G. E.
Miidur vetur kveður
VETURINN kvaddi Akureyringa
blíðlega, en kveðjustundin var
dálítið hörkulegri hér í Reykja-
vík. Hér var útsynningur, þoku-
loft og frekar svalt í veðri, þó
ekki byrjaði að rigna fyrr en
komið var fram undir kvöld.
Fréttaritari Mbl. á Akureyri
sagði, að það væri vor í lofti,
sunnanþeyr, sólskin og sex stiga
hiti.
— Við kveðjum mildan vetur.
Þó stundum hafi gert snörp
áhlaup, þá var veturinn góður,
sagði fréttaritari Mbl. á Húsavík.
Það var hægviðri á Húsavík og
skiptist á sólskin og éljadrög, en
ekki festi snjóinn í byggð, en fjöll
höfðu gránað.
Hvasst en hlýtt fyrir austan
Á Seyðisfirði var hvassviðri í
gær, hlýtt í veðri, sólskin og
bjart. Seyðfirðingar eru ekki enn
farnir að geta ekið bílum sínum
yfir háheiði Fjarðarheiðar. Hér
var snjór í 2—3 vikur á mótum
þorra og góu, sagði fréttaritarinn,
svo að þetta er með snjóléttustu
vetrum, sem hér hafa komið um
nokkurt árabil.
Illviðri í Vestmannaeyjum
í Vestmannaeyjum var í gær
mesta leiðindaveður, suð-vestan
hvassviðri, 8—9 vindstig, og gekk
á með snörpum rigningarskúrum.
Veltubrim var og enginn bátur á
sjó. í gærkvöldi hafði vindinn
lagt nokkuð en þoka var þá nið-
ur í byggð. Annars er vertíð nú
í fullum gangi í Eyjum og því
ekki tími til að gera sér veruleg-
an dagamun í tilefni af sumar-
komu.
Slydda á ísafirði
Þegar Mbl. átti tal við frétta-
ritara sinn á ísafirði seint í gær,
sagði hann að þar væri lygnt —
en kafaldsslydda öðru hverju.
hægt að segja, að saman frysu
sumar og vetur, sem sagnir
hermdu að væri fyrirboði góðs
sumars. Venjulegast er lítið um
að vera á Isafirði á sumardaginn
fyrsta, enda sjaldnast orðið svo
hlýtt þar um það leyti, að hægt sé
að halda útifagnað.
Kalt í Reykjavík.
f gærmorgun var kuldalegt hér
í bænum. Það var útsynningur í
honum, það braut á grynningum
út af Skerjafirði. Esjan var orðin
hvít af nýföllnum snjó niður fyr-
ir miðjar hlíðar. Það var 4 stiga
hiti. Hann fór hægt vaxandi eft-
ir því sem á daginn leið og náði
sex stigum. Síðdegis í gær var
það svo á veðurstofunni að heyra
að það mundi verða éljaveður
aðfaranótt sumardagsins fyrsta
og kólnandi veður. Það getur því
verið að það verði snjór á jörðu,
þegar árrisulustu bæjarbúar gá
til veðurs í dag.
Einn sá mildasti
Það er almannarómur, að sá
vetur, sem nú er að kveðja, sé
„í Skólholti"
íiumsÝnt í gærkvoldi
ÞJÓÐleikhúsið frumsýndi í gær-
kvöldi „í Skálholti“ eftir Gilð-
mund Kamban. Var þetta hátíð-
arsýning í tilefni af 10 ára af-
mæli leikhússins. Áður en sýning
hófst var þjóðsöngurinn leikinn,
ávörp flutt af menntamálaráð-
herra, formanni Þjóðleikhúsráðs
og Þjóðleikhússtjóra. Leikritinu
var ágætlega tekið og barst leik-
endum fjöldi blóma í leikslok.
Leikstjóri var Baldvin Halldórs-
son. — Forsetahjónin voru meðal
frumsýningargesta.
í dagbókinni er nánar rætt um
Ekki væri því með fullum sanni Guðmund Kamban og verk hans.
Hér eru hjónin Sigrún Gísladóttir og Gunnlaugur Þorfinnsson, Grænukinn 5, ásamt börnum
sínum tveim, Sigriði Ólöfu 4 ára og Gísla, sem bjargað var fyrir mikið snarræði Helgu
Scheving. Hafði drengnum ekkert orðið meint af volkinu og var hinn brattasti í gær.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
f.leð sprengiefni á barnaleikvelli
HAFNARFIRÐI — í gærdag varð
hér slys á tveimur ungum drengj
um, sem með einhverjum hætti
höfðu komizt yfir sprengiefni
(púður) og borið að því eldspýt-
ur. Ekki munu þeir hafa meiðzt
hættulega og var mesta mildi að
ekki hlauzt verra af.
Voru þeir að fikta við púður
þetta á barnaleikvellinum við
Kirkjuveg og voru þrír saman.
Ekki voru önnur börn þarna ná-
lægt. Er ekki fyllilega ljóst, hvað
gerzt hefur, en mikil sprenging
kvað við, og sagði maður, sem
var staddur nokkuð frá, að hús
hefðu nötrað.
Brenndust tveir drengjanna
talsvert í andliti og á höndum,
en sá þriðji slapp. Drengirnir
tveir, sem eiga heima þarna i
grendinni, eru 7 og 11 ára, og
mun sá yngri einnig hafa skadd-
ast á auga.
Meðal annarra, sem komu
þarna að eftir sprenginguna, var
Garðar Benediktsson slökkviliðs-
vörður, en slökþvistöðin er næsta
hús við leikvöllinn. Tók hann
úlpu annars drengsins, sem þar
lá, en þá kvað við önnur spreng-
ing og brenndist Garðar nokk-
uð á höndum. Mun eitthvað af
púðri hafa verið eftir i úlpunni.
—G.E.
einn sá mildasti er komið hefur
í manna minnum, sagði frétta-
ritari blaðsins í Holtunum nú
á dögunum. Að vísu hefði snjóað
nokkuð, en snjórinn hefði aldrei
legið stundinni lengur. Frost-
kaflar hefðu komið og enn væri
nokkur klaki í jörðu, en lengst
af hefði verið fádæma veður-
blíða. Vegir eystra hafa staðið
sig með bezta móti og lítið um
að þeir færu niður nú í vor.
Tún eru farin að grænka, enda
rignt nokkuð að undanförnu.
)Og þcgar veturinn kvaddi í(
\gær, stóð þetta tré nær hálf-
.laufgað í garðinum við Lauga-1
!veg 76, — til sanninda um þaði
/hve veturinn var mildur. —V
IFrú G'uðrún Daníelsdóttirr
'.gróðursetti þetta tré árið 1930/
Kí litla garðinum sínum og hún)
ísagði að á hverju vori sé þaðl
/einmitt þetta tré, sem lauígisÓ
/fyrst.
Brittingham
látinn
♦ Bandaríkjamaðurinn Thomas
E. Brittingham, sem mörgum er
að góðu kunnur hér á landi
vegna hinna fjölmörgu náms-
styrkja, sem hann hefur veitt
íslenzkum stúdentum við banda-
ríska háskóla undanfarin ár, lézt
úr hjartaslagi í Wilmington, Dela
ware sl. laugardag. Mr. Britting-
ham var sæmdur hinni íslenzku
fálkaorðu fyrir tveim árum. Hann
var 61 árs, er hann lézt.
Rok á miðununi
AKRANESI, 20. apríl. Nokkrir
bátar voru úti í nótt og ætluðu
að draga net sín í morgun. Sú
ráðagerð þeirra fór þó út um
þúfur, því að suð-vestan storm
gerði á þá og urðu þeir frá að
hverfa. Þeir komu að landi síð-
degis í dag.
í gær lögðu bátarnir á land
90 lestir. Nú er færafiskur að
koma og er jafnvel genginn á
grunnið. Af 5 trillubátum, sem
reru héðan í gær, fengu tveir
1300 kg hvor.