Morgunblaðið - 08.05.1960, Blaðsíða 11
Sunnudagur 8. maí 1960
MORGVlSBLABIt>
11
— Langar yður samt ekki
til að lifa eftir dauðann?
— Til hvers þessi eilífðarþrá?
Ég held að fæstir sem óska
þess að lifa áfram geri sér
ljóst hvað eilíft líf er. Við þrá-
um öll að missa meðvitund í
langan tíma á hverium sól-
arhring. Engan langar til að
bfia við svefnleysi, vaka dag
og nótt, jafnvel þó það gæti
aukið afköst hans verulega.
Mér finnst eilífðarþráin mis-
skilningur. Ef guð segði við
yður: — Hvort viltu heldur
lifa áfram ungur og hraustur
um alla eilífð eða hrörna og
deyja, þegar þinn tími er kom-
inn þá munduð þér senni'lega
svara: Ég vil heldur deyja.
Hræðslan við að geta ekki dó-
ið mundi verða miklu ægi-
legri en hræðslan við dauð-
ann getur nokkurn tíma orð-
ið.
Nei, dauðinn á að koma og
kemur hjá mörgum eins og
langþráður svefn og hvíld frá
lífsins þrasi. Menn þurfa ekki
að kviða honum og eiga ekki
að láta neinn telja sér trú um
að eilífðarkvalir bíði nokkurs
manns, eins og okkur hefur
alltof lengi verið kennt.
— En ef þér vöknuðuð nú
annars heims, yrðuð þér þá
fyrir miklum vonbrigðum,
haldið þér
— Ekki býst ég við því, en
undrandi yrði ég.
— Og hvernig haldið þér að
yður mundi líða?
.— Sennilega ekki verr en' hér.
En líklega yrði ég að fá mér
eitthvað annað að gera. Og
þó, hver veit nema maður geti
haldið áfram í faginu, því all-
ur bakteríuskarimn Mýtur að
lifa áfram, ef við gerum það.
Og svo mikið sem komið er
yfir um af fólki, þó eru þó
bakteríurnar og skijrkvikind-
in milljón sinnum fleiri.
Kannski gæti orðið nóg að
gera, hver veit?
M.
Kennsla
Látið dætur yðar læra að sauma
5 og 6 mánaða námskeið byrja
4. maí og 4. nóv. Sækið um ríkis-
styrk. — Atvinnumenntun. —
Kennaramenntun tvö ár. — - Biðj-
ið um skólaskrá. 4ra mánaða
námskeið 4. jan., 3ja mánaða 4.
ágúst. G. Hargböl Hansen. Sími
Tlf. 851084. — Sy og Tilskærer-
skolen, Nyköbing F, Danmark.
Bifreiðastjórar
Opið alla virka og helga daga fr,á kl. 8 að morgni
til 11 að kvöldi.
Hjólbarðaverkstæðið HKAUNHOLT
við hliðina á nýju sendibílastöðinni
við Miklátorg.
Hestamannafélagið Horður
Kjósarsýslu
Aðalfundur félagsins verður að Hlégarði föstudaginn
13. maí kl. 9 s d.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
MABKAflRRIHIN
Hafnarstræti 5
HRINGUNUM
FRÁ
(fti'
$í<h*Þí>
C/ (/ HAFNARSTR.4
VerzlunarhúsTiæði
á bezta stað í bænum til afnota í félagi við Ieigusala
—- eða sér. Nánari upplýsingar gefnar eftir móttekin
tilboð — Tilboð merkt: „Verzlun — 3295“ sendist
blaðinu sem fyrst.
Til sölu
3ja herb kjallaraíbúð rétt hjá íþróttaleikvanginum
í Laugardal.
VIÐSKIPTAMIÐLUNIN
Hallveigastíg 9 — Sími 23039
Til sölu
Fasteignir, bifreiðar og skip. Slíkar eignir teknar i
umboðssölu. Sölusamningarnir svo og aðrar samn-
ingagerðir framkvæmdar af reyndum lögfræðingi.
VIÐSKIPTAMIÐLUNIN
Hallveigastíg 9 — Sími 23039.
Til leigu
Samkvæmt ákvörðun hafnarnefndar og bæjarstjórn-
ar Siglufjarðar auglýsist hér með eftir leigutilboð-
um í þann bluta Jakobsenstöðvar, sem er í eigu
hafnarsjóðs. Leigutilboðum þarf að skila fyrir 20.
maí n.k. Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
Siglufirði, 2. maí 1960.
Bæjarstjóiri.
3/o herb íbúð
er til sölu á III. hæð í nýtízku húsi í vesturbænum.
Sér hitalögn og hitaveita. Getur orðið laus til íbúðar
eftir fáa daga.
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
Vagns E. Jónssonar.
Austurstræti 9. Sími 14400 og 32147.
„Roi“ dagstoíusettið
Nú getum við aftur afgreitt þessi glæsilegu
dagstofusett. — Áklæði í miklu úrvali.
Axel [yjólfsson Skipholt 7
Sími 10117 — 18742.