Morgunblaðið - 11.05.1960, Side 1

Morgunblaðið - 11.05.1960, Side 1
24 síður ocf Barnalesbók 47. árgangur tbl. — Miðvikudagur 11. maí 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins Óánægjavax- andi í Hull Mikið um fundahóld vegna íslenzkra landana Grimsby, 10. maí. Einkaskeyti til Mbl. frá Haraldi J. Hamar. WILLIAM Oliver, ritari fé- lags yfirmanna á togurum í Hull, sagði í morgun að það, sem væri nú að gerast í Grimsby og Hull, væri allt á ábyrgð þeirra manna, sem sendu íslenzku togarana þrjá Olía til Afríku LONDON 10. maí (NTB) — Fréttir frá Suður-Rhodesíu herma að Ráðstjórnarríkin hafi undirritað olíusainning við Etiopíu, sem muni stór- lega skaða Vesturveldin og olíuviðskipti þeirra í Aust- ur-Afríku og við Rauða- hafið. Ef þessar fréttir hafa við rök að styðjast, er samn ingurinn á þá leið að Ráð- stjórnarríkin skuli byggja olíuhreinsunarstöð á strönd Eritreu, sem var sameinuð Etiopiu 1950. Þau munu lána Etioplu sem svarar 100 milljónum dollara (3.800 milljónir kr.), en Haile Sel- assie keisari sjái um að ein- göngu verði á boðstólunum rússnesk olía í landinu, og bjóði hana á lágu verði til annarra landa. Segja fréttirnar að þetta sé stærsti viðskiptasigur Sovétríkjanna síðan þau tóku að sér byggingu As- wan stíflunnar í Egypta- Iandi. núna eftir helgina á Bret- landsmarkað. Oliver hefur áður lýst sig ósamþykkan verkfallshótun yfirmanna í Grimsby, en ó- ánægja Hullara er sögð fara vaxandi, enda var það að heyra á Oliver, að kurrinn í hans hópi væri orðinn hávær. Sagði Oliver að í síðustu viku hafi verið gefið til kynna að engir fleiri íslenzkir togar- ar kæmu fyrr en í haust, en þessar togarakomur hafi spillt því andrúmslofti sem góðvilj uðum mönnum hafði tekizt að skapa, þrátt fyrir háar sölur íslendinga að undanförnu. „Við vorum að vona að tíma- bilið fram á haust yrði notað ti lað lægja öldurnar, en sú von hefur mikið spillzt nú“, sagði hann. Júní með góðan fisk Yfirmaður lögreglunnar við höfnina í Hull sagði að allt hafi verið með kyrrum kjörum og engin ástæða til að óttast átök þegar Júní landaði þar í nótt, en sagði að greinilegt sé að brezk um togaramönnum væri farið að hitna í hamsi. Togarinn Júní frá Hafnarfirði var með góðan fisk, samtals 2492 kitts (158,2 lestir), og seldi fyrir 9.833 sterlingspund. 10 kitt voru ónýt. Fiskurinn var eins og sá bezti á markaðinum þar í morg- un. Brezkir togarar eru nú farn ir að koma heim af íslands- miðum eftir að banninu var aflétt í lok Genfarráðstefnunn ar. Greinilegt er hvað þessir togarar hafi meiri afla en tog- arar af öðrum miðum. Af allmörgum brezkum tog- urum, sem lönduðu í Grimsby Framh. á bls. 23 Krúsjeff sýnir myndir sem hann segir að teknar hafi verið úr bandarisku njósnaflugvélinni yfir Rússlandi. Var vélin skotin niöur? Rússar afhenda formleg mótmæli Moskvu, 10. maí. (NTB, Reuter) RÁÐSTJÓRNARRÍKIN mót- mæltu í dag formlega flugi bandarísku njósnaflugvélar- innar yfir rússneskt land- svæði hinn 1. maí sl., en Bandaríkin óskuðu eftir að fulltrúi þeirra fengi að tala við flugmanninn. Skiptust þeir Gromyko, ut- anríkisráðherra, og Edward Freers, sendifulltrúi Banda- ríkjanna á orðsendingu þessa efnis í dag. Sendifulltrúinn var kvaddur á fund Gromykos skömmu eftir að sendiherra Bandaríkjanna helt^ til Parísar til að undirbúa þar Flestir í Grimsby and- vígir verkfalli En togarasíómenn mjóg bitrir * í garð Islendinga svo enn veit enginn hvað gerist. ENN er allt í óvissu um það, hvort togaramenn í Grimsby hefja verkfall hinn 15. maí, eins og hótað hefur verið. — Eins og kunnugt er, þá er það Dennis Welch, formaöur yfirmannafélagsins í Grims- by, sem beitir sér allra manna mest fyrir verkfalli þessu, en ráðagerðir hans hafa mætt mótspyrnu víðsvegar, m. a. meðal sjómanna í Hull og meðal togaraeigenda, sem hafa lýst yfir vanþóknun sinni vegna verkfallshótana þessara og telja að ekkert sé i jafnhættulegt og líklegt til að spilla fyrir viðræðum við Is- lendinga. Vegna þess hve margir að- ilar hafa snúizt gegn Dennis Welch í þessu er farið að tala um það að verkfallið muni renna út í sandinn. Ekki er þó hægt að treysta því, fyrst og fremst vegna þess hve Dennis Welch og nánustu stuðnings- menn hans eru einbeittir og hatrammir í baráttu sinni gegn íslendingum. Virðist og sem Mr. Welch hafi óskorað- an stuðning félagsmanna sinna, félags vélstjóra og tog- arasjómanna í Grimsby. Ætlaði að tala við Harker — en Welch talaði Fréttaritari Mbl., Haraldur J. þátttöku Bandaríkjanna í „topp“ fundinum, sem hefst hinn 16. þ. m. Sendiherrann, Llewellyn Thompson, mun í gær hafa farið þess á leit við Krúsjeff, forsætis- ráðherra, er þeir hittust í veizlu hjá tékkneska sendiráðinu, að fulltrúi sendiráðsins fengi að hafa samband við Francis Garry Powers, flugmann, og vitnaði í því sambandi í 27 ára gamlan samning rikjanna, sem heimilar handteknum mönnum að hafa samband við sendiráð landanna. Denis Welch Hamar, sem nú er staddur í Grimsby, hefur áður átt samtal við Dennis Welch, sem birtist í blaðinu fyrir nokkru. En í fyrra- dag ræddi hann aftur við þenn- an andstæðing íslendinga og spurði hann um ýmis ný viðhorf í málinu. Skeyti Haraldar fer hér á eftir: Ég fór í morgun (mánudag) til fundar við Mr. Harker, framkvæmdastjóra félags vél- stjóra á togurum og bað hann segja mér álit sitt á deilumálun- Framh. á b's 8 ALLT FYRIR PENINGA Orðsendingaskiptin fórn fram nokkrum klukkutímum eftir að Rauða stjarnan, mál- gagn hersins, birti þá lýsingu á Powers, að hann væri „heimskur, spilltur, fégráðug- ur ævintýramaður“, og sagði að hann hefði játað án nokk- urs samvizkubits að hann hafi verið í njósnaflugi þegar flugvél hans var skotin niður. I greininni er haft eftir Powers að yfirmaður hans á flugstöðinni í Tyrklandi hafi sagt honum að flugið yfir Ráðstjórnarríkin væri algjör- lega hættulaust. Þeir sem yfirheyrðu Powers kváðu hann hafa sagt, að sig hafi dreymt um það að geta keypt Framh. á bls. 23. í kafi 84 daga Washington, 10, maí (Reuter). BANDARÍSKI kjarnorkukafbát- urinn Triton kom í dag til hafn- ar eftir að hafa siglt neðansjávar 36.000 sjómílna leið umhverfis jörðina. — Triton er 7.750 lestir og búinn tveim kjarnakljúfum. Er álitið að hann sé stærsti kaf- bátur heims í dag. Fylgdi Triton að mestu þeirri siglingarleið er Ferdinand Mag- ellan sigldi árin 1519—21, er hann fyrstur allra sigldi umhverfis jörðin;> Triton hélt frá New London í Connecticuríki 16. febrúar sl. og hóf þá ferð sína neðansjávar. Kom hann aftur upp á yfirborðið í morgun eftir að hafa verið í kafi í 84 sólarhringa. Á sigling- unni kom báturinn aðeins tvisvar upp á yfirborðið. í fyrra skiptið til að koma sjúkum sjóliða um borð í bandarískt herskip til lækninga, í siðara skiptið fyrir utan Cadiz hinn 2. maí til að hylla Magellan, sem hóf hnatt- siglingu sína þaðan. •

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.