Morgunblaðið - 11.05.1960, Síða 2
2
MORGUNBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 11. maí 1960
Skýrsla Emlls Jónssonar' á Alþingi:
Utflutningsskatturinn verður
aðeins greiddur á lengri tíma
Heildarupphæðin verður óbreytt
eftir sem áður
Frá umrœðum utan dagskrár í Neðri deild
UMRÆÐUR á Alþingi um
útflutningsskattinn og sam
komulag það um fiskverð,
sem fyrir síðustu helgi var
gert milli LÍÚ og sölusam-
taka fiskframleiðenda, héldu
áfram utan dagskrár á fundi
Neðri deildar í gær.
Upplýsingar Emils
Emil Jónsson gaf þar skýrslu
um málið til svars fyrirspurn
þeirri, sem Skúli Guðmundsson
bar fram í fyrralag. Sagði Em. J.
að þegar útflutningsskatturinn
hefði verið ákveðinn, hefði hon-
um verið ætlað
að greiða nokk-
urn hluta af
þeim halla, sem
vitað var að
verða mundi á
útf lutningssj óði.
Þennan halla
hefði þó fyrst og
fremst átt að
greiða með geng
ishagnaði .af sölu
birgða, sem afl-
að hefði verið
fyrir gengis-
breytinguna, en
ráðstafað eftir
hana. Nokkrar'
umræður hefðu í upphafi átt sér
stað um það, hversu hár útflutn-
ingsskatturinn skyldi vera og
niðurstaðan orðið 5%, sem geng-
ið hefði verið út frá að í gildi
yrðu, þangað til umræddur hluti
hallans yrði að fullu greiddur.
Útvegsmönnum hefði jafnframt
Fjórir
í einum
órekstri
UM hádegisbilið í gær rák-
ust fjórir bílar saman á
Suðurlandsbraut, skammt
frá Tungu, og skemmdust
allir meira eða minna.
Þrír bílanna, allt fólks-
bíiar, höfðu stanzað vegna
umferðarinnar, en sá fjórði,
stór sendiferðabíll, kom ak-
andi aftan að þeim. Ætlaði
bílstjórinn að stöðva bílinn,
en rann með fótinn út af
hemlunum, svo bifreiðin
Ienti aftan á næsta bíl,
kastaði honum fram og
skullu bílarnir allir þannig
hver á annan. Skemmdust
þeir allir eitthvað, og mið-
bílarnir illa, bæði að aftan
og framan. Engin slys urðu
á mönnum.
Happdrætti
f gær var dregið í 5. flokki Happ
drættis Háskóla íslands. Dregnir
voru 1.004 vinningar, að upphæð
1.295.000 krónur. 100 þús. kr.
komu á heilmiða númer 38578,
sem seldur var á ísafirði. 50 þús.
kr. komu á fjórðungsmiða númer
13582,
10.000 kr. komu á þessi númer:
7540 8495 9218 28273 43549 43878
48637.
5 þúsund krónur komu á nr.:
1670 4841 5391 8695 13803 17424
19160 22049 23281 27270 31331
34826 38577 38579 38818 40933
41914 45861 48414 53467.
(Birt án ábyrgðar)
verið gefið vilyrði um, að þegar
þessari upphæð væri náð, yrðu
gerðar ráðstafanir til að afnema
skattinn.
Heildarupphæðin sú sama
Nú hefði það skeð, að Lands-
samband ísl. útvegsmanna og
vinnslustöðvarnar hefðu óskað
eftír því, að skatturinn yrði
lækkaður, en jafnframt lýst yfir
að þau mundu una því, að heild-
arupphæðin yrði sú sama, aðeins
innheimt á lengri tíma. Inn á
þetta hefði ríkisstjórnín gengið
og heitið að beita sér fyrir því,
að skatturinn yrði lækkaður en
franalengdur sem því svaraði.
Mundi lágafrumvarp um þetta
væntanlega verða borið fram
einhvern næstu daga. — 1 þessu
felst engin aukin styrkveiting til
útvegsins, sagði Emil Jónsson,
— því að það lá fyrir, að styrk-
urinn yrði afnuminn, þegar tek-
izt hefði að jafna halla útflutn-
ingssjóðs. Hér er því á engan
hátt um að ræða neitt fráhvarf
frá fyrri stefnu ríkisstjórnarinn-
ar.
Skúli Guðmundsson þakkaði
fyrir upplýsingar ráðherrans um
að frumvarp um lækkun skatts-
ins yrði borið fram næstu daga.
Um það hefði hann spurt, af því
að blaðafrásagnir hefðu verið á
þann veg, að búið væri að lækka
skattinn.
Bætur í nýrrí mynd
Einar Olgeirsson talli handa-
hófs hafa gætt við álagningu út-
flutningsskattsins og varpaði
fram þeirri spurningu, hvort svo
væri einnig um
aðra skatta,
sem ríkisstjórnin
hefð lagt á um
áramótin. Enn-
fremur, hvort
það mundi líka
verða tiltölulega
auðsótt, ef aðrar
stéttir færu fram
a álika tilslakanir og útvegsmönn
um hefðu nú verið veittar. Ekki
væri hér um annað að ræða en
útflutningsuppbætur í nýrri
mynd, sem ríkisstjórnin hefði
gripið til, þegar allt hefði verið
að fara í strand.
Eysteinn Jónsson kvað það nú
komið í ljós, áð loforð ríkisstjórn-
arinnar um að útgerðinni yrði
gert kleift að standa á eigin fót-
um við eigi verri aðstöðu en
áður, hefði ekki verið efnt. í>ví
hefði ríkisstjórnin nú orðið að
taka um 60 milljónir króna til
þess að styrkja hana. Ekki stæði
steinn yfir steini í stefnu og að-
gerðum stjórnarinnar.
Röng niðurstaða takmarkið
Emil Jónsson tók því næst til
máls aftur og kvað tal þeirra
E. Olg. og Eyst. J. álíka skringi-
legt og ummæli blaða þeirra um
málið — enda væri þar leitazt
við að fá allt aðra niðurstöðu en
þá réttu. Einföldustu útreikning-
ar sýndu það, að 2%% skattur í
1 ár gæfi sömu útkomu og 5%
í 6 mánuði. f>að væri aðeins heild
arupphæðin, sem miðað hefði ver
ið út frá í upphafi. Henni hefði
mátt ná með báðum innheimtu-
aðferðunum og því væri handa-
hófstal E. Olg. marklaust.
E. J. vakti athygli á, að ákveð-
ið hefði verið að útvegsmenn
greiddu hallann og það mundu
þeir gera eftir sem áður, hvort
sem það yrði á 6 mánuðum eða
Z' NAIShnúlar Snjókoma \7 Skvrir Y/MReyn. KukJaski! H HatS
»/ S V 50 hnúiar > ÚSi ÍC Þrumur 'yyy/tva'Si ^ Hitoshi L LaqS
tólt. Það væri því ekki til almenn
ings leitað eftir þessu fé. Hinn
umræddi halli á útflutningssjóði,
sagði Em. J. að væri af völdum
aðgerða vinstri stjórnarinnar. f>á
sagði hann, að ástæða væri fyrir
Eyst. J. að minnast þess nú, þeg-
ar ríkisstjórnin lofaði því í hans
ráðhenatíð 1950, að 0,93 kr. yrðu
greiddar fyrir fiskkílóið — en
ekki hefðu fengizt nema 0,75 kr.
Nú hefði ríkisstjórnin ekki lofað
öðru en því, að hagur útvegsins
skyldi ekki versna — heldur hald
ast jafngóður, og við það væri
staðið.
Ekki gömul synd?
Eysteinn Jónsson kvað gagns-
lauSt að halda því fram, að hall-
inn á útflutningssjóði væri göm-
ul synd. Hann
hefði orðið til eft
ir að vinstri
stjórnin lét af
völdum. Ríkis-
stjórnin hefði tal
ið útflutningsat-
vinnuvegunum
fært að standa
undir 5% skatti
— en nú reyndust þeir illa geta
borið 21-2,%.
Einar Olgeirsson sagði að geng-
islækkanir hefðu alltaf orðið út-
vegnum til tjóns — og svo kæmu
kröíurnar frá honum á eftir. Það
að losa menn undan byrði væri
nákvæmlega það sama og að veita
þeim bætur. Úr því að ástandið
væri svona, þegar afli væri upp
á það bezta, hvað yrði pá þegar
minna aflaðist.
Einungis veittur gjaldfrestur
Að síðustu sagði Emil Jónsson
enn nokkur orð og vísaði því gjör
samlega á bug, að hallinn á út-
flutningssjóði ætti rætur að rekja
til annarra ráðstafana en gerðar
voru í tíð vinstri stjórnarinnar.
Það sem núveranli ríkisstjórn
hefði gert nú væri einungis að
veita gjaldfrest á útflutnings-
skattinum um nokkra mánuði.
Hér væri því, eins og áður hefði
verið sagt, ekki um neinar bætur
að ræða.
Ef aflbrestur yrði, sagði ráð-
herrann, að ríkisstjórnin mundi
að sjálfsögðu taka til athugunar
húgsanlegar ráðstafanir í því
sambandi.
Frú Karen Jónsson, ekkja Péturs Jónssonar söngvara, keypti
sér miða í DAS-happdrættinu á dögunum — og vann á hann
4ra herbergja íbúð. Myndin er af henni er hún veitti þessum
460 þús. kr. vinningi viðtöku.
Dregur úr
aflabrögðum
<o
HAFNARFIRÐI: — Nú hefir
mjög dregið úr aflabrögðum hjá
netabátunum og margir þeirra
um það bil að hætta veiðum.
Upp á síðkastið hafa bátarnir
einkum verið að veiðum vestur
undir Jökli og ísað um borð. Hafa
aflabrögð þar verið nokkuð mis-
jöfn.
Um síðustu mánaðamót voru
þessir bátar með mestan afla:
Haförn 1005 tonn í 88 róðrum,
Fákur 856 í 88; Fagriklettur 703
í 81; Guðbjörg 566 tonn í 65 fóðr-
um; Hafbjörg 557 í 79; Fiskaklett
ur 546 í 62; Örn Arnarson 540 í 63;
Álftanes 523 í 79 og Stefnir 514
tonn í 43 róðrum.
Togarinn Ágúst kom af veiðum
i gær (þriðjudag), og mun hann
vera með 220—230 tonn. Hann
fékk aflann út af Vestfjörðum.
—G. E.
Drykkjuskopur
í bænum
SÍÐAN um helgi hefur verið
mikið um drykkjuskap í bænum,
eins og oft vill verða í vertíðar-
lok. Hafa lögreglunni mikið bor-
izt kvartanir vegna drykkjuláta,
og kjallari lögreglustöðvarinnar
margfyllzt á hverri nóttu. Kl. 10
í gærkvöldi var kjallarinn þeg-
ar orðinn fullsetinn drukknum
mönnum.
Sjóboka
kringum landið
í GÆR var mikið mistur íTofti
hér um sunnan og austanvert
landið. Er það frá iðnaðarhér-
uðum Vestur-Evrópu, líklega
mest frá Bretlandseyjum. Þar
var víða hlýtt í gær, t.d. 21
stig í London og 23 í París.
Þegar þetta hlýja loft kemur
hingað norður á miðin kring-
um ísland kólnar það, og
vatnsgufan í því þéttist og
myndar þoku, sem getur oft
þannig sjóþoka alls staðar hér
við ströndina, nema við Faxa-
flóa og Breiðafjörð, því þar
stóð vindur af landi. Dýpra
hefur þó einnig verið þoka
þar.
Veðurhorfur kl. 22 í gærkv.:
SA-mið: Austan-stinnings-
kaldi, þoka, en úrkomulítið.
SV-land til Breiðafj., Faxa-
fl.mið og Breiðafj. mið: Aust-
an gola eða kaldi, skýjað en
víðast úrkomulaust, sums stað
ar þoka í nótt.
Vestf. til SA-lands, Vestfj.
mið tíl SA-miða: Hæg austlæg
náð yfir stór svæði. í gær var átt, úrkomulaust en víða þoka.
Sandgerðisbátar
SANDGERÐI, 10. maí: — 12 bát-
ar voru á sjó frá Sandgerði í gær
og fengu 56 lestir samanlagt.
Helga var hæst með 7,0 lestir og
næst Steinunn gamla með 6,1.
Línubáturinn Jón Gunnlaugs
fékk 8.7.
Flestir Sandgerðisbátar eru nú
hættir veiðum. Þó eru prír bátar
á sjó í dag. — Axel.
Stofnim verzltm-
arbanka rædd
FRUMVARP um stofnun
Verzlunarbanka íslands, sem
fram var lagt á Alþingi fyrir
helgina, var til 1. umræðu á
fundi Neðri deildar í gær.
Viðskipta- og bankamálaráð-
herra, Gylfi Þ. Gíslason, fylgdi
frumvarpinu úr hlaði og gat þess
m. a., að Verzlunarsparisjoður-
inn, sem stofnaður hefði verið
árið 1956, hefði eflzt svo mjög og
ræki nú orðið svo umfangsmikla
starfsemi, að sparisjóðsformið
hentaði honum ekki lengur. Því
hefði ríkisstjórnin orðið við
beiðni sparisjóðsins um að flytja
frumvarp um stofnun Verzlunar-
banka, sem tæki beint við af
honum og rekinn yrði af sömu
aðilum.
Einar Olgeirsson tók einnig til
máls við þetta tækifæri og ræddi
um ýmis almenn atriði í sam-
bandi við slíkar bankastofnanir
sem þessa. — Lýsti Gylfi Þ.
Gíslason einnig viðhorfum sínum
til þeirra í síðari ræðu.
Frumvarpinu var að þeim ræð
um loknum vísað til 2. umræðu
og fjárhagsnefndar með sam-
hljóða atkvæðum.