Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 2
2
MORGVTSBLAÐÍÐ
MiðviKudagur 18. maí 1960
Stiórnarfrumvarp á Alþingi í gær:
Tollvörugeymslur veröi leyfö-
ar hér á landi
í Nýtt fyrirkomulag i innflutningnum, \
\ sem orðið getur til mikilla hags-
| bóta fyrir allan almenning
— Ur ræðu Gunnars Thoroddsen,
fjármálaráðherra
1 GÆR var lagt fram á Alþingi og tekið til fyrstu
umræðu nýtt frumvarp frá ríkisstjórninni um toll-
vörugeymslur, þ. e. geymslur þar sem heimilt er að
hafa vörur, án þess að greiða þurfi af þeim aðflutn-
ingsgjöld, fyrr en jafnóðum og vörurnar eru seldar
eða teknar til vinnslu. Þetta fyrirkomulag tíðkast
víða erlendis og þykir fylgja því hið mesta hagræði
bæði fyrir innflytjendur, neytendur og aðra.
Tíðkast víða erlendis
Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráðherra, fylgdi frumvarpinu úr
hlaði með ýtarlegri ræðu. Hann
kvað flesta íslendinga kannast
við fríhafnir, sem víða væru til
í öðrum löndum. Þær væru með
margvíslegum hætti, misjafnlega
víðtækar, og um þær giltu ólíkar
reglur. En fríhöfnum og tollvöru-
geymslum væri það sameiginlegt,
að tilgangurinn með þeim væri
sá fyrst og fremst, að innflytj-
endur þyrftu ekki að greiða að-
flutningsgjöld af henni strax við
innflutninginn, heldur gætu þeir
fengið frest á slíkum greiðslum
og innt þær af hendi jöfnum hönd
um eftir því sem varan væri tek-
in úr fríhöfninni eða tollvöru-
geymslunni til endursölu eða ann
arrar notkunar. Ennfremur væri
það mjög algengt, að skipafélög,
útgerðarfélög, flugfélög og aðrir
þeir aðiljar, sem flutninga önn-
uðust, fengju nauðsynjar sínar
keyptar í slíkum fríhöfnum meira
eða minna án tollgreiðslna.
Málið undirbúið af nefnd
Því næst vék fjármálaráðherra
að þróun þessarra mála hér á
landi og gat þess m.a. í því sam-
bandi, að á tveim síðustu ára-
tugum hefði oft verið rætt um
nauðsyn þess, að koma nýrri skip
an á þessi mál í líkingu við það,
sem tíðkaðist í mörgum öðrum
löndum. Það hefði þó ekki verið
fyrr en haustið 1958 að skipuð
hefði verið nefnd til þess að
undirbúa málið. í henni hefðu
átt sæti þeir Sigtryggur Klem-
enzson, ráðuneytisstjóri, sem ver-
ið hefði formaður nefndarinnar,
Unnsteinn Beck, tollgæzlustjóri,
Hjalti Pálsson, framkvæmdastj.,
og Gunnar Ásgeirsson, stórkaup-
maður. Þessi nefnd hefði lagt
mikla vinnu í það að kynna sér
löggjöf um þessi málefni í ná-
grannalöndum okkar, vinna úr
þeim gögnum og velja, hver skip-
an mundi bezt henta okkur hér
á íslandi. Árangurinn af þessu
starfi væri svo frumvarp það, sem
nú væri lagt fram, en á því hefðu
aðeins verið gerðar örfáar breyt-
ingar í samráði við þá nefndar-
menn.
Efni frumvarpsins og hinna
ýmsu kafla þess
Síðar í hinni ýtarlegu ræðu
sinni gerði Gunnar Thoroddsen
fjármálaráðherra síðan svohljóð-
andi grein fyrir efni frumvarps-
ins:
Aðalefni þessa frumvarps er
það, að setja hér reglur um toll-
vörugeymslur, þ. e. a. s. vöru-
geymslur, sem taka aðfluttar vör
ur til geymslu, án þess að þurfi
að greiða gjöldin af þeim þegar í
stað, heldur eftir því, sem þær
seljast eða eru teknar til vinnslu.
í öðru lagi, að skipafélög og flug-
félög eigi þess kost að koma sér
upp forðageymslum fyrir erlend-
ar vörur og geti tekið sínar nauð-
synjar úr þeim jafnóðum og þessi
farartæki þurfa á að halda, en
þurfa ekki að eiga slík viðskipti
við erlenda aðila eða milliliði.
Og ennfremur varðandi innlend-
ar framleiðsluvörur sem á að
flytja út, að þær endurgreiðslur
gjalda, sem þar er um að ræða,
Þrjú atriði hafa þýðingu
í HeUumálinu
Ölíkur þáttum blandað saman í
blekkingaskyni
AS undanförnu hefur stjórnar-
andstæðingum verið tíðrætt um
mál það, sem Kaupfélagið Þór
höfðaði vegna þess að breytt var
skipulagi Hellukauptúns til tjóns
fyrir fyrirtækið. í þessum um-
ræðum hefur verið blandað sam-
an óskyldum þáttum málsins og
á þann hátt reynt að gera það
tortryggilegt. Er því rétt að rifja
málavexti enn upp og greina á
milli þeirra atriða, sem þýðingu
hafa.
1. MÁESHÖFÐUN EÐLILEG
Úr því að stjórn kaupfélags-
ins taldi félagið hafa orðið fyr
ir tjóni af skipulagsbreyting-
unni var eðlilegt, að hún vildi
Dagskrá Alþingis
FUNDUR er í Sameinuðu Al-
þingi að loknum aðalfundi Hins
íslenzka þjóðvinafélags. 27 mál
eru á dagskrá, þar á meðal tvær
fyrirspurnir, kosning stjómar
byggingarsjóðs, allra til þriggja
ára og kosning þriggja alþingis-
manna í Þingvalianefnd.
reyna það, hvort hægt væri
að fá tjónið bætt með máls-
sókn. Þá ákvörðun tók stjórn-
in áður en Ingólfur Jónsson
varð ráðherra, en auðvitað
hefði hún jafnt orðið að gæta
hags félags síns, þó að fyrr-
verandi stjórnandi þess væri
kominn í ráðherraembætti,
auk þess sem málið heyrir alls
ekki undir hans ráðuneyti.
Óumdeilanlegt er því að
aðgerðir stjórnenda Kaup-
félagsins Þórs voru í alla
staði sjálfsagðar og eðlilegar.
2. GERÐARDÓMUR
HEPPILEGUR
Málarekstur fyrir gerðar-
dómi er að ýmsu leyti heppi-
legri í máli sem þessu, m. a.
fljótvirkari og ódýrari. Eru
líka fjölmörg dæmi þess, að
slík mál séu útkljáð fyrir gerð
ardómi, þó að hérlendis sé
varla nóg gert af því að nota
hagkvæmni gerðardóma. Fyr-
ir gerðardómi er fjallað um
nákvæmlega sömu atriði og
fyrir almennum dómstólum og
hlýtur niðurstaða ákveðinna
dómara því að verða hin sama
í gerðardómj og föstum dóm-
stólum. Þar sem meiri
hluti hæstaréttardómara skip
aði gerðardóminn hlaut hin
endanlega niðurstaða þessa
máls því að verða hin sama,
þótt það hefði farið gegnum
tvö dómstig.
Má því segja, að eina ástæð-
an til að hafa ekki gerðar-
dóms málsmeðferð hefði verið
sú, að óhlutvandir menn
mundu nota ókunnugleika al-
mennings á gerðardómum til
þess að reyna að gera málið
tortryggilegt, eins og nú hef-
ur komið á daginn.
3. UMDEILD NIÐURSTAÐA
Um niðurstöðu þessa máls
má auðvitað deila eins og svo
margra annarra, enda rísa mál
yfirleitt vegna þess að óvissa
er um réttarstöðuna. Hinni
umdeildu niðurstöðu má þó
alls ekki blanda saman við
málatilbúnaðinn, sem í alla
staði var eðlilegur.
Þegar menn aðskilja þannig
hina óskyldu þætti þessa máls
verður ljóst, hve óréttmætar eru
ásakanir á Ingólf Jónsson og
þann ráðherra, sem málið heyrir
undir, þ. e. a. s. fjármálaráðherra
Gunnar Thoroddsen. Ætti því
ekki að þurfa að ræða mál þetta
frekar.
geti átt sér stað um leið og vör-
unni er komið í slíka tollvöru-
geymslu.
í greinargerð frumvarpsins er
gerð ýtarleg grein fyrir ýmsum
tegundum tollvörugeymsla, í
fyrsta lagi fríhafnir, í öðru lagi
lagerar, í þriðja lagi transít lag-
erar eða flutninga- eða úthleðslu
geymslur og í fjórða lagi svo-
nefndir provitaerisfrílagerar eða
tollfrjálsar forðageymlsur. Þetta
frumvarp um tollvörugeymslurn-
ar er sniðið aðallega eftir sænsk-
um og dönskum fyrirmyndum og
þeirri reynslu, sem fengizt hef-
ur í þeim löndum í þessum mál-
um.
Almennar tollvörugeymslur
f þessu frumvarpi eru í fyrsta
kafla reglur um almennar toll-
vörugeymslur. Er þar gert ráð
fyrir því, að heimilt sé að ákveða
að tollgæzlan stofni og reki al-
mennar tollvörugeymslur á höfn-
um þar sem þess þykir þörf og
húsakynni og aðrar aðstæður eru
til að reka slíkar geymslur. Enn-
fremur er í 1. grein veitt heimild,
til þess að leyfa sveitarfélögum,
félögum og einstaklingum að
koma á fót og reka almenna toll-
vörugeymslu.
í 3. grein segir svo nánar um
það, að innflutningsverzlanir, iðn
rekendur, útgerðarfyrirtæki og
aðrir, sem svipaðra hagsmuna
hafa að gæta geti kcmið vörum
í tollvörugeymslur án undanfar-
andi greiðslutolla og annarra að-
flutningsgjalda. Ennfrem.ur er
það ákveðið sem almenn regla,
að vöru, sem sett hefur verið í
almenna tollvörugeymslu skuli
tollafgreiða endanlega innan eins
árs frá því að hún kom til lands-
ins nema ástæða þyki til að sam-
þykkja lengri frest. f 4. grein
segir svo um tryggingar þær,
sem setja skuli ríkissjóði og í
5. grein nánari reglur um þær
innflutningsskýrslur og þær aðr-
ar upplýsingar, sem afhenda skuli
tollstjóra til öryggis í þessum efn
um.
Tollfrjálsar forðageymslur
Annar kafli frumvarpsins fjall-
ar svo um tollfrjálsar forða-
geymslur. Þar er gert ráð fyrir að
Gunnar Thoroddsen
geti fengið heimild til þess að
geyma vistir, útbúnað og annaa
forða fyrir þau fyrirtæki í sér-
stökum geymslum án greiðslu að-
flutningsgjalda. Slíkar geymslur
eru algengar erlendis en hingað
til hafa hérlend skipafélög orðið
að kaupa vistir, varahluti og ann-
an forða hjá erlendum skipamiðl-
urum, þar sem skip er statt
hverju sinni við verði, sem oft
er stórum hærra heldur en ef
skipt er beint við framleiðanda
eða útflutningsverzlun í fram-
leiðslulandinu, og er því augljóst
hagræði að því að geta keypt
þessar vörur á hagkvæmustu
verði án óþarfrar milligöngu auk
þess sem við þetta sparast er-
lendur gjaldeyrir. í þessum kafla
eru loks ýtarleg ákvæði og all-
ströng um það, hverjar kröfur
skuli gera til þeirra húsakynna,
sern geyma á slíkar vörur i.
Verzlanir í flugstöðvum
Þriðji kaflinn fjallar svo um
verzlanir, eða segir, að ríkisstjórn
inni sé heimilt að reka verzlanir
með tollfrjálsar vörur í flugstöðv
um á Reykjavíkurflugvelli og
Keflavíkurflugvelli, þar sem far-
þegum í millilandaferðum er gef-
inn kostur á að kaupa tollfrjáls-
ar vörur, en þetta fyrirkomulag
er þekkt á ýmsum flugvöllum í
Evrópu. Nokkur reynsla er þegar
fengin af slíkum tollfrjálsum
verzlunum, eftir að slík verzlun
var sett á stofn á Keflavíkurflug-
velli, samkv. lögum frá 1958.
Rekstur þeirrar verzlunar hefur
gefið góða raun. í sambandi við
þessar verzlanir er nauðsynlegt
að reka tollfrjálsar geymslur og
því éðlilegt, að ákvæði um þessar
skipaútgerðir og útgerðafélög Framh. á b!s. 8
NA /5 hnuiar / SV 50 hnutar ¥: Snjókoma > 06 i V Skúrir K Þrumur W’S, KuUaskil Hiltskil H HaS L* Lcegi
í GÆR var stór hæð yfir Is-
landi og hafinu umhverfis, en
grunn lægð við Nýfundna-
land. Lítill þrýstingsmunur
var yfirleitt á svæðinu, sem
kortið nær yfir, og þess vegna
eru þrýstilínurnar svo fáar og
langt á milli þeirra, sem raun
ber vitni.
Af sömu ástæðum er vind-
ur alls staðar hægur, víðast
hvar eitt til tvö vindstig, og
sums staðar logn. Mesta veð-
urhæðin var fjögur vindstig
eða 15 hnútar í Kaupmanna-
höfn og á veðurskipinu Bravo
milli Labrador og Hvarfs á
Suður-Grænlandi.
Ennþá er frost á Norðaustur
Grænlandi, og er því hætt við
að kólnað gæti hér á landi, ef
gengi til norðanáttar.
Veðurspáin klukkan
10 í gærkvöldi:
SV-land og SV-mið: Hæg-
viðri, víðast léttskýjað.
Faxafl. til Vestfj., Faxafl.-
mið til Vestfj.miða: Stillt
veður og víða léttskýjað fram
eftir nóttu, vestan gola og
skýjað á morgun.
Norðurland til SA-lands og
norðurmið til SA-miða: Stillt
veílir og léttskýjað.