Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 6
6 MORCUKTtT, AÐ1Ð Miðvikudagur 18. maí 1960 Andstæðar raddir I IXIoregi: Sigurdagur Þungt áfail ! | — Akvörðuninni um utfærslu fiskveiðitakmarkananna mis- jafnlega tekið EFTIR að Halvard Lange, utanríkisráðherra Noregs, til- kynnti í Stórþinginu sl. föstudag ,að fiskveiðilandhelgin við Noreg mundi færð út í 12 mílur, gerði Morgunblaðið fyrir- spurn til tveggja norskra blaða, Lofotposten og Sunnmörs- postcn, um afstöðu og undirtektir manna við boðskap ríkis- stjórnarinnar. — Um helgina hárust Mbl. eftirfarandi skeyti frá Arne Halvorsen við Lofotposten og Anton Iversen við Sunnmörsposten til svars við þessum fyrirspurnum. I skeyti sínu segir Arne Halvorsen: SIGURDAGTJR Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að færa fiskveiðilandhelgina út í 12 mílur er tekið með gleði og ánægju hvarvetna í Norður- Noregi. Áraiöng barátta við að sannfæra stjórnarvöldin um nauð syn þess að færa út fiskveiðitak- mörkin hefir nú borið árangur, og það eru fyrst og fremst fiski- menn og útgerðarmenn Norður- Noregs, sem hafa borið þessa kröfu fram til sigurs. Það er varla of mikið sagt, þótt spáð sé, að föstudagurinn 13. maí (þrátt fyrir ,,óhappatöluna“!) verði framvegis talinn sigurdagur fyr- ir hina 50 þúsund fiskimenn við strönd Norður-Noregs og samtök þeirra. — Þeir einu, sem eru nokkuð áhyggjufullir út af þessum frétt- um, eru einstakir hagsmunahópar á Vesturlandinu, sem reka fisk- veiðar við strendur annarra landa. Þeir eru hins vegar aðeins fulltrúar mikils minnihluta í þessu máli. EKKI SÖMU AÐFERÐ OG ÍSLENDINGAR Lofotposten, sem er stærsta blaðið í Norður-Noregi og óháð, segir í ritstjórnargrein, að hin eindregna yfirlýsing utanríkisráð herrans hafi komið eins og óvænt sprengja yfir utanríkismálanefnd og fiskimálanefnd Stórþingsins. Menn hafi búizt við að ríkisstjórn in hygðist halda fast við samn- ingaleiðina í þessu máli, og sú hafi líka sennilega verið ætlun hennar, þar til fyrir fáum dög- um. — En talið er, segir blaðið, að hinar eindregnu áskoranir, sem undanfarið hafa komið frá helztu samtökum útvegsins og fiskimanna, hafi valdið breyt- ingu á afstöðu ríkisstjórnarinnar. Ábyrgir aðilar leggja megin áherzlu á, að Norðmenn megi ekki beita sömu aðferð- um og íslendingar við út- færslu fiskitakmarkanna. — Finna verði einhvers konar bráðabirgðafyrirkomulag, — þannig að þeir erlendir fiski- menn, sem nú missa auðug fiskimið, fái tíma til að leita annarra úrræða. — Við Lo- fotposten hafa fimm ár verið nefnd sem hæfilegur tími, og raunar þurfa Norðmenn Iíka slíkan undirbúningstíma — t. d. þarf að auka mjög strand- gæzluna. SKILYRÐI FYRIR UNDANÞÁGUM Samkomulag um undanþágur má auðvitað aðeins gera við þær þjóðir. sem fúsar eru til að veita norskum fiskimönnum sams kon- ar eftirgjöf, segir blaðið. Þess vegna gæti það gerzt, að sum- um erlendum togurum yrðu meinaðar veiðar innan 12 mílna markanna, jafnskjótt og hinar nýju reglur ganga í gildi — hvort sem það verður nú 1. jan. 1961, eins og norsku fiskimanna- samtökin hafa krafizt, eða síð- ar. — Að likindum koma ráð- stafanir þessar til að byrja með fyrst og fremst niður á hinum mikla togaraflota Rússa á Norð- ur-Atlantshafi. Formaður fiskimálanefndar- innar, Johannes Olsen, hefir látið svo um mælt við Lofet- posten, að fái norskir fiski- menn ekki leyfi til þess að stunda veiðar nokkurn tíma innan 12 mílna landhelgi Sovétríkjanna, muni rússnesk- Morgunblaðinu hafa borizt einkaskeyti frá tveimur bæjum x Noregi með umsögnum um stækkun norsku Iand- helginnar. í Svolvær í Lofoten fagna menn aðgerð- unum en í Ála- sundi á Sunn- mæri líkar mönnum illa við þær. ir togarar reknir af norskum miðum, jafnskjótt og hin nýju fiskveiðilandhelgi verður lög- gilt. —0— Bæði fiskimennirnir og stjórn- völdin gera sér það ljóst, að á- kvörðunin um að fylgja dæmi fs- lands í þessu máli mun útheimta baráttu, bæði á hinu „diplómat- íska“ sviði og hinu „praktíska“, þ.e. við framkvæmd laganna — en önnur lausn er ekki til, ef norskur útvegur á að geta búið við lífvænleg skilyrði. Þetta skeyti Halvorsens mun túlka allvel viðhorf flestra útgerðamanna og sjómanna í norðanverðum Noregi í þessum málum, en nú skulum við sjá, hvað „sunnanmenn", eða Vest- lendingar hafa að segja, sam- kvæmt símskeyti Antons Iver- sens við Sunnmörsposten: SVARTSÝNI Einhliða útfærsla fiskveiðiland helginnar við Noreg mun reyn- ast afar þungt áfall úthafs-fiski- flotanum á Sunnmæri — og jafn- vel geta ráðið úrslitum um fram- tíð slíkra veiða. Þessi skoðun er almenn meðal fiskimanna í Ála- sundi og á Sunnmæri, og eru menn allsvartsýnir. Ef aðrar fisk veiðiþjóðir grípa til svipaðra ráð- stafana, mun norski úthafsflot- inn verða útilokaður frá mörgum miðum, þar sem skipin hafa fisk- að á árunum eftir stríðið. Einnig benda menn á selveið- arnar, og hefir t.d. verið vísað til þess, að selfangarinn „Pól- stjarnan", sem kom heim af Ný- fundnalandsmiðum með 14000 seli, hafi fengið allan afla sinn aðeins 4 mílur frá strönd Kanada. Almenn útfærsla fiskveiðitak- marka í 12 mílur mun leiða til þess, að Norðmenn verði að hætta selveiðum á þessum miðum. — Jafnframt eru menn áhyggjufull- ir í sambandi við þorsk- og lúðu- veiðarnar við Vestur-Grænland og Nýfundnaland. Þessar veiðar hafa farið vaxandi síðustu árin og reynzt mjög arðbærar fyrir útgerðar og fiskimenn. — Þrátt fyrir þetta, kom yfirlýsing utan- ríkisráðherrans í Stórþinginu ekki svo mjög á óvart fiskimönn- unum á Sunnmæri — en það hef- ir vakið athygli, hve yfirlýsingin var eindregin og skilyrðislaus. EKKI MÁ RASA UM RÁÐ FRAM Meðal þeirra, sem atvinnu hafa af útvegi, er mj6g vonazt eftir því, að takast muni samningar með þeim 54 rikjum, sem studdu tillögu Bandarikjanna og Kanada á sjóréttarráðstefnunni í Genf. — Nauðsynlegt að gera eitthvað bráðabirgðasamkomulag um und- anþágur. Þegar miklir hagsmunir eru í veiði, má ekki rasa um ráð fram. Það verður að reyna allar aðrar leiðir, áður en gripið er til þessara ráða — menn verða að gefa sér tóm til að grannskoða málið, svo sem framast er unnt. • Þjófheldir öryg-gis- lásar Viggó Oddsson, formaður Reykjavíkurdeildar Bindindis félags ökumanna, skrifar : í sunnudagsblaðinu skrifið þér um hina tíðu bílstuldi sem á þessu ári hafa verið tíðari og valdið meira tjóni en menn muna áður hér á landi. Oft er þessum bílum stolið af ölvuð- um unglingum sem eyðileggja bæði mannorð sitt og bíla sem kosta hundruð þúsunda, ein- stakir eða samanlagt, og valda eigendum bílanna tjóni á verð mætum sem oft hefur tekið áratugi að afla. Bindindisfélag ökumanna hefur í nokkur ár reynt að vekja áhuga bílaverzlana á til veru þjófheldra öryggislása á bíla en með litlum árangri. B. F. Ö. á Norðurlöndum hafa í vor vísað mér á viðurkennt fyrirtæki í Svíþjóð sem fram- leiðir gírlása á um '200 teg- undir bíla. Lásarnir kosta um 30 sænskar kr., eða nálægt 500 kr .ísl. úr búð. Þessir lásar hafa meðmæli sænskra trygg- ingafélaga og lögreglu og eru sömu aðilar á íslandi mjög hlynntir innflutningi á þess- um öryggislásum. Bráðlega geta því bíleigendur fengið sér aukatæki í bíl sinn sem kostar um einn af hundraði eða þúsundi af verðmæti bíls- ins, til að koma í veg fyrir gjöreyðingu verðmæta. ótrú- lega auðvelt er að stela ýms- um bíltegundum sem er læst með venjulegum lyklum. Sama fyrirtæki framleiðir einnig vélhitara til að auð- velda ræsingu bílvéla í frosti, eru bílstjórar mjög hrifnir af þessu áhaldi. Vélar og Skip hf. Hafnarhvoli, veitir nánari upplýsingar og sér um inn- flutning þessara tækja. • Útiloka blindandi glampa Einnig má nefna annað tæki sem ökumönnum hentar að eiga. Það eru Polaroid (laxa) gleraugu. Polaroid gleraugu útiloka að mestu eða öllu blindandi glampa af vatni, blautum götum í sól og öðrum glampandi hlutum og efnum. Polaroid filterar eru notaðir í þrívíddar myndum með sér- stökum gleraugum. En til al- mennra nota eru Polaroid gler augu heppileg í snjóbirtu á sjó og alltaf þar sem endurspegl- un á sér stað. Polaroid filter má líkja við rimlagardínu sem hleypir aðeins ,í gegn þeim geislum sem hafa sömu stefnu og rimlarnir en stöðvar það ljós sem kemur þvert eða ská- hallt á rifurnar. Ég segi að munur á venjul. og Polaroid FERDIIM AIMD Copyriflht P. I. B. Box 6 Copenhogen n <59/-/ sólgleraugum sé eins og og köldu og hef notað gleraugu við akstur og veru í sól í 3 ár. • Erindaruglingur Maður nokkur hringdi til Velvakanda á mánudag. Vildi hann vekja athygli á því, að í þætti Svavars Gests á sunnu- dag, þegar leikið var Sveitin mín eftir Sigurð Jónsson frá Arnarvatni, þá hafi stjórnand inn dæmt svarið „Fjalladrottn ing móðir mín“ rangt, en rétt „Blessuð sértu sveitin min“, sem heiti á erindinu. En Fjalla drottning móðir mín sé upp- hafið á fyrsta erindinu, en Blessuð sértu sveitin mín upp hafið á því sjötta. Þetta sjáist bæði 1 ljóðabók Sigurðar og ísland þúsund ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.