Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 24
1 Íbróttasídan er á bls. 22. 9f0tniiMUk 112. tbl. — Miðvikudagur 18. maí 1960 Flóttamenn í Berlín eru á bls. 13. Höfum unnið okkur traust með hreinskilni og sanngirni Frá Varðarfundi í gœrkvöldi A VARÐARFUNDINUM, ' sem haldinn var í gærkvöldi flutti Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra ræðu um landhelgismálið, þar sem hann varpaði skýru ljósi á störf Genfarráðstefnunnar og j þróun alls málsins. 1 upphafi ræðu sinnar vék ráðherrann að því, að ekki væri nema eðlilegt, að nýir atburðir tæki hugi manna, ekki sízt þeg- ar fregnir berast af meiri við- sjám milli stórvelda en nokkurn tíma áður frá styrjaldarlokum. Fregnirnar af framferði Krús- jeffs minna okkur á atburði þá, sem tvívegis áður hafa hent. — Fyrst 1914 kröfur og hótanir Austurríkismanna á hendur hinu serbneska ríki og síðar hátt- erni Hitlers og Mussolinis 1938 og ’39. Þá eins og nú voru að- ferðir til að auðmýkja andstæð- inginn látnar sitja í fyrirrúmi fyrir málefnalegri lausn. Hvað sem um njósnaflug Bandaríkjamanna má segja, þá kemur hneykslun Rússa óneitan- lega kynlega fyrir sjónir. Banda- ríkjamenn hafi sjálfir harðast gagnrýnt njósnaflugið og Eisen- hower lýst yfir, að sams konar aðferðir verði ekki endurteknar. Framkoma á borð við þá, sem Krústjeff viðhefur nú í París, hefur tvívegis hleypt af stað styrjöld og er því ekki að undra, ijþótt menn séu nú svartsýnir. En það er heldur ekki úr vegi að gera sér grein fyrir þessum átökum stórveldanna, þegar rætt er um Iandhelgismálið, því að atvikin á Genfarfundinum voru samtvinnuð þeim. MálstaSur Islands styrkist Ræðumaður vék síðan að átökunum á ráðstefnunni og kvað okkar sendinefnd hafa ver- ið lausari við hinn mikla áróð- ur en margar aðrar, þar sem stefna okkar hefði ætíð verið skýr og menn ekki gert ráð fyr- ir, að neinu yrði þar um þokað. Menn geta verið ósammála okkur, en við verðum ekki sak- aðir um að hafa blekkt neinn. Við vorum staðráðnir í að tryggja 12 mílna fiskveiðitak- mörk okkar með alþjóðasam- þykkt og ná þeim rétti til frek- ari útfærslu siðar, sem unnt værL Við kepptum að því, að ráðstefnan bæri árangur, ef þetta tækist ,en ætíð var Ijóst, að víð mundum greiða atkvæði gegn tillögum, sem skemmra gengju. Brá ráðherrann síðan upp skýrri mynd af því, sem gerðist hak við tjöldin í Genf og rakti sérstaklega átök stórveldanna um víðáttu hinnar almennu landhelgi, sem fyrst og fremst voru hemaðárlegs eðlis, þó að ræðumenn viðurkenndu það aldrei beinlínis. Rússar og fylgiríki þeirra héldu fast við 12 mílna land- helgi og ljóst var hvaðan þær | ráðagerðir voru komnar, að hindra með öllum ráðum, að Is- lendingar tryggðu rétt sinn, þó að almenn regla um ótakmark- aða 12 mílna fiskveiðilandhelgi yrði ekki samþykkt. Máli sínu lauk dómsmálaráð- herra, með því að undirstrika, að menn mættu ekki halda, að allir örðugleikar væru úr sög- unni. Enginn efi væri á því, að sakaruppgjöfin hefði mjög styrkt málstað íslands og aukið á virðingu og vinsemd í okkar garð. Enda væru hófsemd og sanngirni vissulega öruggasta leiðin til að fá endanlegan sigur. Ráðherranum þakkað Að frumræðunni lokinni tók Júlíus Havsteen fyrrv. sýslumað- ur til máls. Þakkaði hann Bjarna Benediktssyni ræðuna, sem hann kvað hafa verið með sömu ágæt- um og allar aðgerðir hans í Genf. Ræddi hann síðan al- mennt nokkuð um landhelgis- málið. IHiií við bryggju kl. 6 Hafnarfirði — Maí, hinn nýi togari bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar, leggst hér upp að bryggju klukkan 6 síðdegis í dag. Þá kvaddi Ólafur Thors, for- sætisráðherra, sér hljóðs og þakkaði dómsmálaráðherra af- skipti hans af landhelgismálinu og hina glæsilegu frammistöðu í Genf. Bað hann fundarmenn að hylla Bjama Benediktsson með húrrahrópi. Er fundarmenn höfðu tekið undir orð forsætisráðherra, kvaddi Bjarni Benediktsson sér hljóðs. Þakkaði hann hlýhug ræðumanna og fundarins og gat þess, að samvinnan við utanrík- isráðherra í Genf hefði verið með ágætum og fæfði einnig þakkir fyrir ágæta samvinnu þeim Hans G. Andersen, Davíð Ólafssyni, Hendrik Sv. Björns- son og Jóni Jónssyni. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son form. Varðar stjórnaði fund- inum. Mælti hann nokkur orð í upphafi fundarins og sleit hon- um með lokaorðum. Tvœr íkveikjur? í GÆRKVÖLDI var slökkvi- liffið kallað að Austurvelli, en í Vallarstræti, við bakdyr raf tækjaverzlunar Júl. Björns- sonar stóð stór umbúðakassi í björtu báli. Rétt hjá þar sem kassinn stóð er stór rúða í sýningarglugga verzlunarinn- ar. Við hinn mikla hita frá bálinu í kassanum sprakk rúð an með háum hvelli og hrundi niður á götuna. Á verzluninni urffu ekki aðrar skemmdir né varningi og ekki komst neinn reykur þar inn. Fullvíst er talið að þarna hafi verið um íkveikju að ræða og í gærkvöldi voru brunaverðir ekki grunlausir um, að svo hafi einnig verið í bröggunum sem brunnu suð ur í Fossvogi í gærdag. Fóstbræðrum mjög vel tekið í Noregi Frú Soffía og Magnús Kjaran með brjóstmyndinni eftir Einar Jónsson myndhöggvara. — Myndin er tekin á heimili þeirra að Hólatorgi 4. (Ljóms. Mbl. Ól. K. M.) Lionsfélagar heiðra Magnús Kjaran t TILEFNI af sjötugsafmæli Magnúsar Kjarans létu Lionsklúbb- arnir á Islandi í sameiningu steypa brjóstmynd af honum í brons. — Mynd þessa mótaði Einar Jónsson myndhöggvari fyrir 9 árum og hefur hún verið geymd í safni hans. Sl. mánudag heimsóttu nokkr- ir forvígismenn Lionshreyfingar- innar Magnús Kjaran og frú Soffíu konu hans og færðu þeim bronsmyndina, sem klúbbarnir hafa Iátið gera. Afhenti Árni Kristjánsson umdæmisstjóri af- mælisbarninu brjóstmyndina. — Magnús Kjaran þakkaði þann heiður, sem sér væri sýndur og það vináttuþel, sem bak við hann lægi. Óskaði hann að brjóstmynd in yrði geymd í húsakynnum Lionshreyfingarinnar á íslandi. Magnús Kjaran var forgöngu- maður um stofnun fyrsta Lions- klúbbsins hér á landi. BJÖRGVIN, 17. maí. — Karla- kórinn Fóstbræður söng í Staf- angri þann 15. maí. Aðsókn að samsöngnum var ágæt og voru blaðadómar mjög lofsamlegir. Að lokinni söngskemmtuninni buð'u íslenzk-norska félagið og Sören- sen ræðismaður íslands, kórnum í bátsferð. Þá sátu söngvararnir boð heima hjá Árna G. Eylands. Þann 16. maí söng kórinn í Haugasundi. Geysileg hrifning var meðal áheyrenda og allar mót tökur frábærar. Kórnum var m.a. haldinn veizla í ráðhúsi borgar- innar og ræðismaður íslands bauð kórfélögum heim til sín. 2000 í sundlaugunum og margir á Langasandi ALLIR þeir, sem komu því við í gærdag, munu hafa notað veð- urblíðunnar til einhverskonar „sóldýrkunar". 1 sundlaugunum var gífurleg þröng allan liðlang- an daginn og höfðu komið þang- að yfir 2100 manns. Talsvert innan við þriðjungur sundgestanna lauk hinni íþrótta- legu skyldu sinni að synda 200 metrana. Höfðu baðverðir laug- anna í gærkvöldi fært inn nöfn 640 tvörundruðmetra sundgarpa þann daginn. Og fréttaritari Mbl. á Akranesi símaði í gærkvöldi að mikil þröng manna hefði verið á hinni skemmtilegu baðströnd þeirra Akurnesinga, Langasandi, þar sem fólk á öllum aldri naut veð- urblíðunnar. — En einkum voru það börn og unglingar sem fóru í sjóinn, en margir höfðu fengið sér sjóbað í námunda við bryggju Sementsverksmið j unnar. Á fulla skemmu cf vara- hlutum í fjarskiptatœki FYRIR um það mánuði gerðist það, að einn af starfsmönnum flugmálastjórnarinnar, Arnór Hjálmarsson, flugumferðarstjóri á Reykjavíkurflugvelli keypti nærri því fulla skemmu af vara- hlutum í alls konar vélar og áhöld, sem notuð eru til fjar- skiptaþjónustu í lofti og á landi. Þessir varahlutir hafa verið geymdir í stórri skemmu suður á Reykjavíkurflugvelli og mun kaupandinn sjálfur tæpast enn vita til fullnustu hve miklar vara hlutabirgðir það eru, sem hann er orðinn eigandi að. Margt af þeim tæjum, sem þar eru, munu vera mjög dýrmætt. Þessir varahlutir allir eru komnir í skemmuna frá varnar- liðinu á Kelfaví'kurflugvelli. Eru þeir þar í sínum upprunalegu umbúðum, einsog gengið var frá þeim í verksmiðjunum, sem fram leiddi þá. Síðan komust þeir sem hvert annað „varnarliðsgóss" í hendur sölunefndar varnarliðs- eigna. Nefndin mun hafa leitað til Landssíma íslands, sem líkleg- ustu stofnunina um að hafa not fyrir varahlutina, og boðið sum- um að kaupa allar birgðirnar fyr ir, að því er frétzt hefur um 800 þúsund krónur. Það varð ekki af því að síminn keypti varahlutina. Þá hafði Arnór Hjálmarsson kom ið til skjalanna og fengið vara- hlutina keypta fyrir mun lægra verð en sölunefndin hafði í fyrstu ætlað að selja þá á. Hljómleikum frestað VEGNA ófyrirsjáanlegra atvika varð að fresta þjóðlagasöng Engel Lund, sem átti'að vera í gærkvöldi í AusturbæjarbíóL Laugarásbíó opnaði í gær HIÐ nýja kvikmyndahús Dvalar- heimilis aldraðra sjómanna, Laugarásbíó, hafði frumsýningu í gærkvöldi á stórmyndinni South Pacific. Hefur hið nyja kvikmyndahús Todd-AO-sýning* artæki, sem eru hin fullkomn' ustu, sem til eru hér á landi. — Henrý Hálfdánarson bauð gesti velkomna fyrir hönd sjómanna- dagsróðs og lýsti hinu nýja sam- komuhúsi. Kvikmynadsýningin er hin glæsilegasta. Meðal gesta voru forsetahjónin og ráðherrar. Sýningunni lauk um miðnætti. íbúðiirbra^ganum var bjargað ELDUR kom í gærdag upp í braggaþyrpingu suður í Fossvogi, fyrir neðan kirkjugarðinn þar og varð þarna mikið bál á svip- stundu. Þegar bílar slökkviliðs- ins komu á vettvang, var einn bragganna alelda, en hinir tveir í yfirvofandi hættu. Annar þeirra er íbúðarbraggi. Tveir bragganna voru notaðir sem geymslur fyrir alls konar drasl. Brunnu braggarnir að inn- an ásamt því, sem í þeim var, en sjólfir braggarnir stóðu uppi, þc þeir verði trúlega rifnir. Íbúðar- braggann tókst slökkviliðinu með sínum góðu slökkvitækjum að verja, svo á honum urðu engar skemmdir. Bragginn fylltist af reyk, og eitthvað af vatni mun hafa komizt þar inn fró bruna- slöngunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.