Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 16
16
MORGVHBLAÐ1Ð
MiSvíkuáagUT 18. maí 1960
H afnfirðingar
Garðyrkjuráðunautur bæjarins gefur bæjarbúum
kost á ókeypis Ieiðbeiningum um fegrun lóða og
garðrækt. — Er til viðtals í skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6, á föstud. og þriðjud. kl.
9—12 f.h.
Bæjarstjórinn Hafnarfirði
Stefáu Gunnlaugsson.
ALUHIINIIJIM
POTTAR
20, 30 og 40 lítra stærðir
Eggert Kristjánsson & Co. K.f.
Símar 1-14-00
Nýkomnir
0
notaðir mótorar og gírkassar í eftirtaldar
bifreiðir:
Buick 8 syl., — Dodge 6 cyl. — Ford 6 cyl.
Nash 6 cyl — Packard 6 cyl og 8 cyl.
Chevrolet.
Bílavarahlutaverzlu nin
Hringbraut 121 — Sími 10600
— Utan út heimi
Framh af bls. 13
hnútur. — Er því gert ráð fyrir,
að það verði skæður keppinautur
„stolts Bandaríkjamanna", stór-
skipsins „Unitel States“, en það
hefir haldið hinu eftirsótta „Bláa
bandi“ um nokkurra ára skeið
sem hraðskreiðasta skip á Atlants
hafsleiðin»i. Met þess er 3 Ví
sólarhringur á leiðinni Le Havre
—New York. Áætlað er, að
France fari jómfrúrsiglingu sína
einhvern tíma á sumri komanda.
Það segir sig sjálft, að ekki
verður slóðalega búið að farþeg-
unum um borð í „France".
Á ferðamannafarrými verður
rúm fyrir 1500 farþega, og
500 geta notið allrar dýrðarinn-
ar á fyrsta farrými. Um borð verð
ur heljárstór kvikmyndasalur,
þar sem unnt verður að sýna
allar hinar nýjustu tegundir af
„breiðfilmum". Þá má nefna tvær
stærðar-sundlaugar — verður
önnur undir þílfari, en hin undir
beru lofti. Sjónvarps- og útvarps
kerfi er um allt skipið. 1- nokk-
ur hundruð eins manns klefum
verður slíkur „lúxus“-búnaður,
að annað eins kvað aldrei hafa
þekkzt — og væri því víst rétt-
ara að hafa klefa-nafnið í gæsa-
löppum. — Fjöldi farþega getur
haft bíla sína með um borð —
þeir verða þar í öruggri geymslu.
Þá er margs konar útbúnaður til
þess, að skipið verði sem stöðug-
ast i sjó — og þannig mætti lengi
halda áfram að telja upp hvers
konar þægindi, sem menn verða
aðnjótandi um borð í hinu glæsi-
lega France, sem á ytra borði
þykir raunar fremur gamaldags,
en er bara þeim mun nýtízku-
legra hið innra.
Sveitarstjóri
Hreppsnefnd Hveragerðishrepps hefur ákveðið að
ráða sveitarstjóra. — Umsóknum sé skilað fyrir 1.
júní n.k. til oddvita, sem gefur nánari upplýsingar.
Hreppsnefnd Hveragerðishrepps
Kaupmenn
Kaupf élög
Hinar vinsælu „Teddy“
sportbuxur aftur fyrirliggj-
andi í öllum stærðum.
Röndóttar og köflóttar.
Ennfremur einlitar og
köflóttar skyrtublússur
hentugar við buxur.
Takmarkaðar birgðir.
Söluumboð :
Solido
Umboðs- og heildverzlun
Hverfisgötu 32,
Símar 18860—18950
SÍ-SLÉTT P0PLIN
(N0-IR0W)
MIN ERVA
STRAUNI NG
Ó0ÖRF
2
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BARNANNA
3
^ /J.
gat ekki dregið
Skjónu upp.
Sámur kom til mín, ég
sagði lágt og skipandi:
„Farðu heim og sæktu
Þór“ Það var bóndinn.
Sámur horfði á mig dá-
litla stund. Síðan gelti
hann hvellt og rauk af
stað í áttina heim til
bæjar.
Eftir litla stund heyrði
ég gelt og sá, hvar Sám-
ur, bóndinn og vinnu-
maður komu hlaupandi.
Þeir voru fljótir að draga
Skjónu upp úr.
Bóndinn sagði mér, að
Sámur hefði komið hlaup
andi heim á hlað, þar sem
hann var að vinna. Sám-
ur gelti og lét öllum ill-
um látum. Ekki hætti
hann fyrr, en hann hafði
rifið skálmarnar á bux-
unum, sem bóndinn var
í. Þá skildi bóndi, að eitt-
hvaö var að og Sámur
fékk hann til að elta sig.
Björgunarstarfinu var
nú lokið og við gengum
alhr heim. Seinna um
daginn, þegar ég var að
borða, kom bóndinn allt
í einu inn. Hann sagði, að
ég mætti eiga Skjónu,
því að. ég hefði bjargað
henni. Ég gat varla trúað
mínum eigin eyrum.
„Má ég eiga Skjónu?'
„Já, viltu það ef til vill
ekki?“ sagði bóndi
gletnislega.
Halldór SigurSsson,
12 ára, Reykjavík.
! ! !
Þórdís Hjálmarsdóttir,
Baldurshaga, Dalvík (10
—lí ára; Jóna Ósk Gunn-
arsdóttir, Brekastíg 15 A,
Vestmannaeyjum (10—11
ára); Sturla Jónsson,
Fljótshólum, Fióa Arn.;
(12—‘14 ára); Björg Edda
Friðþjófsdóttir, Holti,
Sandgerði (11—13 ára).
Skríttur
Kennarinn: „Stína, ef
þú tekur nú kjötbita og
skerð hann í tvennt,
hvað færðu þá?“
Stína: „Helminga".
Kennarinn: „Og ef þú
skiptir þeim aftur?“
Stína: „Fjórðuparta".
Kennarinn: „Og aftur?“
Stína: „Attunduparta".
Kennarinn „Og á-
fram?“
Stína: „Sextándu-
parta“.
Kennarinn: „Og ennþá
eihu sinni.“
Stína: „Kjötfars".
★
Fluga datt ofan í blek-
byttu ritstjóra nokkurs,
sem skrifaði mjög illa.
Lítill drengur, sonur rit-
stjórans, bjargaði henni
upp úr blekinu og lét
hana á pappírblað á borð-
inu. Flugan skreið eftir
blaðinu og lét eftir sig
hlykkjótta blekslóð, þar
sem hún fór yfír. Dreng-
urinn horfði á þetta um
stund, en hrópaði svo frá
sér numinn af undrun:
„Mamma! Komdu og
sjáðu. Hérna er fluga,
sem skrifar alveg eins og
hann pabbi“.
★
Kennarinn: „Þakka þér
fyrir, Pétur. Skilaðu
kveðju til mömmu þinn-
ar og segðu henni, að ég
muni líta inn seinna í dag
til að þakka henni fyrir
þessi átta indælu epli,
sem hún sendi mér“.
Pétur: „Afsakið, kenn-
ari, en gætuð þér ekki
verið svo góður að bakka
henni fyrir tólf.
ÆSIR og ÁSATRÚ
17. Morguninn eftir vís-
aði Skrýmnir þeím til
vegar að Útgarði. þar sem
jötuninn Útgarðaloki átti
heima. Síðan hélt hann
leiðar sinnar og varð fátt
um kveðjur.
Um hádegið kom Þór
og félagar hans að stórri
borg. Borgarhliðið var
lokað ,en þeir smeygðu
sér milli rimlanna og
gengu í höllina. Þar sátu
margir jötnar.
Útgarða-Loki sat í há-
sæti og lét hann Iengi
eins og hann sæi ekki
gestina. Loks varð hon-
um að orði: „Er sveins-
stauli þesi sjálfur Asa-
Þór? Kannski ert þú
stærri, en þú lítur út fyr-
ír að vera. Það skulum
við nú reyna, þegar þú
ferð að þreyta keppni við
mina menn.“
18. „Kappát skal eg
þreyta við hvern, sem er,
hrópaði Ásgarðs-Loki. Út-
gerða-Loki lét þá bera inn
kjötfat mikið og kallaði
á einn af jötnunum, sem
Logi hét, til að keppa við
Loka.
Loki og Logi settust við
sitt hvorn enda trogsihs
og hófu átið. Þegar þeir
mættust um mitt trogið,
hafði Logi ekki aðeins et-
ið allt kjötið, heldur einn-
ig beinin og sinn helming
af troginu.
Allir voru sammála um,
að Loki hefði beðið ósigur
í þessum kappleik.
Krossgáfc
Lárétt: — 1. býli — 5
bezta spilið — 6 leður-
band — 8 óðagot.
Lóðrétt: — 2 kind — 3
stór — 4 fæða — 7 á fæti.
Ráðningar
Gáta í tbl. nr. 12: Hey-
krókur.
Gátur í síðasta blaði: 1.
Til ösku. 2. Til að halda
uppi um sig buxunum.
Oryggi
— Er þessi flugvél nú
fullkomlega örugg?
— Já, hún er öruggari
en allar aðrar á jörðinni.