Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 18. maí 1960 MORcrnvrtr 4ðið 17 Hœfta á ferðum PARÍS, 17. maí (Reuter). — ÞaS uggvænlega viS þróun mála ,hér í rústum topp- fundarins, er að Rússar beina nú sjónum manna að Berlín. í morgun sagði Krúsjeff: — Ef Eisenhower biður mig ekki afsökunar, þá er ég floginn heim með viðkomu í Austur Berlín. Lýsti Krú- sjeff því yfir, að nú myndi hann gera sérstaka friðar- samninga við Austur Þjóð- verja. En áður hefur Krúsjeff margoft lýst því yfir, að við slíka friðarsamninga yrðu allir samningar um ferðir til og frá Vestur Berlín yfir Austur Þýzkaland ógiidir og yrðu Vesturveldin þá að semja um umferðarétt við austur-þýzku stjórnina. Endalok í nánd PARÍS seint í gærkvöldi (Reut- er). — Talsmenn vestrænu sendi- nefndanna sögðu í kvöld: — Nú er ráðstefnan endanlega farin út um þúfur. ★ Krúsjeff hefur óskað eftir stutt um einkafundi með de Gauile á morgun, miðvikudag. Hann ætlar að kveðja hann. ★ Eisenhower fer ekki úr París á morgun, en á fimmtudag mun hann fljúga til Lissabon í Portú- gal í opinbera heimsókn. Eisen- hower hefur einnig ákveðið að halda fast við opinbera heim- sókn sína til Japan í júní-mán- uði. Áður áætlaði hann að heim- sækja Japan á leið sinni heim frá Rússlandi. ★ Seint í kvöld gaf Eisenhower út stutta yfirlýsingu, þar sem hann kveðst enn sem fyrr reiðu- búinn að sitja toppfund þar sem rætt væri um alþjóðavandamál. Hins vegar myndi hann ekki sitja fleiri áróðurssamkundur. — Par'is Framh. af bls. 1. heimsækja hús sem Eisenhower bjó í, er hann var yfirmaður herja Atlantshafsbandalagsins. Einn blaðamaðurinn spurði, hvort þetta þýddi, að „toppfund- urinn" ætti nú að flytjast úr París og upp í sveit. Hlógu allir að þessari spurningu, sem er þó svo táknræn fyrir ástandið hér. Þó er það athyglisvert, að þegar maður er staddur hér, þá finnst manni eins og stórviðburðirnir gerist þó allt sé með kyrrum kjörum. Pressa frá hernum Sumir hérna halda, að ástæð- an til framkomu Krúsjeffs sé sú að hann sé undir pressu frá hemum, en Malinovsky mar- skálkur virðist fylgja honum eftir næstum því hvert fótmál. Ég spurði talsmann Rússanna, W. S. Egerizev, hvort þetta væri rétt. Hann svaraði: — Okkar stefna er ekki stefna einstaks manns, heldur allrar stjórnar- innar og kommúnistaflokksins. Þrátt fyrir þetta álíta menn, að einhver breyting hljóti að hafa orðið í Rússlandi, sem knýi Krúsjeff nú til að breyta um stefnu. Sumir telja, að Rússar séu orðnir hræddir við „sambúð“ við önnur ríki. Ummæli Bohlens í gær þykja mjög athyglisverð, þar sem hann upplýsti að Krúsjeff hefði sagt, að rússnesk innanríkismál væru hér í spili. Bohlen kveðst ekki fyrr hafa heyrt slíka yfirlýsingu frá Rússum. Fer Krúsjeff Ég spurði talsmann Rússanna, hvort Krúsjeff færi á morgun, ef ekki væri gengið að úrslitakost- um hans. Hann svaraði játandi en bætti því við að Krúsjeff væri reiðu- búinn að ræða skilyrðin utan dag skrár. Hins vegar gerum við okk- ur ekki ánægða með annað en að skilyrðunum sé fullnægt. Annars fer Krúsjeff með flugvél til Berlínar á morgun. Ég spurði þá: — Haldið þér raunverulega, að Krúsjeff fari á morgun Talsmaðurinn anzaði: — Þér getið svarað yður sjálfur. Sagt er að allra síðasta mála- miðlunar-tilraunin hafi verið gerð í kvöld. Selwyn Lloyd ræddi við Gromyko um sættir, en Gromyko hafnaði þeirri mála- miðlun tafarlaust. Ritgerðasamkeppni meðal unglinga 13-16 ára -« Red Foster, hljómsveitarstjóri Ágætir hljómleikar Red Foster HLJÖMLEIKAR Red Foster og félaga hans úr bandaríska flug- hernum á mánudagskvöldið, vökstu óskipta ánægju viðstaddra og að verðleikum. Hljómsveitin er auðheyrilega mjög vel samæfð og meðferðin á viðfangsefnunum því góð. Öll lög in voru leikin af öryggi, hvort sem um var að ræða jasslög, dæg urlög eða suðræn (latin music). Af einstökum lögum mætti vekja athygli á Caravan, í útsetningu Duke Ellingtons, Fat Man Boogie (hér væri smekklegra að píanó- leikarinn léki boogie woogie solo í laginu að einleik hans ólöstuð- um), Mabo lagið var í mjög skemmtilegri útsetningu og Honky Tonk hressilegt Boogie lag o. fl. o. fl. Aðal einleikarinn á hljómleikunum var hljómsveit arstjórinn Red Foster, sem lék af smekkvísi á saxófóninn. Trompetleikarinn Bill Wieser lék einnig einleik í nokkrum lögum og virðist efnilegur, en dálítið hikandi eða taugaóstyrkur. Píanó leikarinn og trommarinn voru líka ágætir en raddsetningar lag- anna gáfu þeim lítil tækifæri til einleiks. Tenórsöngvarinn Dean Schultz söng lögin I Belive og Without a Song, með ágætum og var skemmtilegur á sviðinu, en hægi valsinn „He“ „fór alveg í vask- inn“ í uppfærslunni en aðeins vegna þess að hann var leikinn alltof hratt. Mátti söngvarinn hafa sig allan við að koma text- anum fyrir. Harmóníkuleikarinn Alex Urb an lék þrjú lög við mikla hrifningu, en leikur hans hreif mig ekki og átti raddsetn- ing laganna frekar sök á því en einleikarinn sem virtist allfær. Það má segja um hljómleika þessa, að þeir voru vel heppnaðir. Við fáum aldrei að hlusta á svona stóra innlenda danshljóm sveit, og ættum því að nota tæki- færið í kvöld er hljómsveitin leik ur aftur í Austurbæjarbíói. — Fólk ætti ekki að láta orð eins og „jass“ fæla sig frá að hlusta á hljómsveitina, því prógrammið er létt og auðvelt. (Þetta er jú á vegum Náttúrulækningafélags- ins). Aðsókn var dræm og má kenna Keflavíkur og íslenzka út- varpinu um sem hella yfir okkur lélegri rokkmúsik sí og æ. Hljómsveitinni og stjórnanda bárust blóm. Kynnir var Baldur Georgs. Á. f. FÉLAGIÐ Samtök um vestræna samvinnu hefur ákveðið að efna til ritgerðasamkeppni unglinga á aldrinum 13—16 ára. Mega þátttakendur velja milli tveggja ritgerðarefna. „Æskan og lýð- ræðið“ nefnist annað efnið, en hitt „Vestræn samvinna“. Veitt verða tvenn verðlaun, og eru þau fólgin í ókeypis ferð til Kaupmannahafnar og dvöl í sumarbúðum utan við borgina dagana 13.—27. ágúst næstkom- Jarðgöng á þjóðvegum KJARTAN J. Jóhannsson fylgdi í gær úr hlaði í efri deild Al- þingis frumvarpi sínu og Magn- úsar Jónssonar um jarðgöng á þjóðvegum, sem lýst var hér í Mbl. í gær. Rakti Kjartan J. Jóhannsson efni frumvarpsins og gerði grein fyrir veigamestu röksemdum þess. Auk hans tóku til máls þeir Ásgeir Bjarnason og Ólaf- ur Jóhannesson, sem báðir voru málinu hlynntir, en töldu þó vafasamt, hvort rétt væri að taka fé til lengri jarðganga úr brúarsjóði. Atkvæðagreiðsl- ur í Neðri deild Á FUNDI Neðri deildar Alþingis í gær fóru m.a. fram tvær at kvæðagreiðslur, sem frestað var í fyrradag. Var þar í öðru lagi um að ræða frumvarp ríkis stjórnarinnar um lækkun útflutn ingsskattsins, sem vísað var til 2. umræðu og fjárhagsnefndar. Hins vegar var frumvarp sjávar- útvegsmálanefndar Neðri deildar um takmarkaðar dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi. Því var einnig vísað til 2. umræðu, en þar scm nefndin bar það fram, þótti ekki ástæða til að vísa því til hennar aftur. andi. 1 sumarbúðum þessum munu dveljast 28 danskir ungl- ingar og jafnmargir unglingar frá ríkjum Atlantshafsbanda- lagsins utan Danmerkur. Munu tveir unglingar frá hverju landi valdir til fararinnar, og verða þeir allir valdir með hliðsjón af ritgerðasamkeppninni í hverju landi um sig. Ritgerðirnar skulu vera allt að því þrjár venjulegar vélritaðar síður að lengd. Upplýsingar um fullt nafn, aldur og heimilisfang fylgi ritgerðum. Frestur til að skila ritgerðum er til 10. júní næstkomandi, og sé þeim skilað í pósthólf 1096, Reykjavík. Síðasta kvöld leiksöpmnar I KVÖLD verður flutt í útvarpíð framhaldsleikritið „Ekið fyrir stapann“, eftir Agnar Þórðarson. Þetta verður 13. og síðasta leik- kvöldið. Margir hafa fylgzt með leikrit- inu af miklum spenningi. Hefur spenna í leiksögunni farið mjög vaxandi. Menn velta því fyrir sér hvernig höfundurinn muni skilja við aðalpersónu sögunnar Benna. Leiksaga þessi er rituð í hroll- vekjustíl. Lífeyrissjóður togarasjóiuanna I GÆR var samþykkt á Alþingi sá viðauki við lögin um lífeyris- sjóð togarasjómanna nr. 49 frá 12. júní 1958, að iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda skuli hvíla sem lögveð á hlutaðeigandi tog- ara og ganga fyrir öllum öðrum veðum. Cunnar Jónsson Lögmaður við undirrétti or h-*estarétt. Þingholtsstræti 8. — Sími 18259- 7 tonn skildu á milli FRÉTTARITARI Mbl. í Sand- gerði símaði í gær, að nú væri vetrarvertíðinni lokið en þar hafa barizt um aflakóngssætið vél bátarnir Helga og Víðir II. — Var Helga aflahærri. Er báturinn með 1057 tonn í 93 róðrum. Víðir H er með 1050 tonn í 92 róðrum. Næstir koma Mummi með 995 tonr, í 94 róðrum og Steinunn gamla með 934 tonn í 91 róðri. Alls er afli Sandgerðisbáta á þessari verðtíð, en þaðan reru 16 bátar 11,569 tonn í 1313 róðr- um og jafngildir það 8,8 tonna meðalafla í róðri. í fyrra var afli 19 báta 11,640 tonn í 1265 róðr- um og árið þar áður voru 18 bát ar með 10880 tonn í 1365 róðr- Árrisul og “glöð á góðum degi” mett og vel undir daginn búin, þannig er gott að vita börnin fara að heiman. framleitt úr heilkorni er ný tegund morgunmatar þrungin heilnæmi. LIF gullnlr, litlir ferhyrningarstökklr og girnilegar til átu frá fyrstu skeið tif síðustu munnfylli. Góður skammtur af LIF með mjólk hefir að geyma gnógt hinna nauðsynlegustu næringarefna, ( eggjahvítu-efni, járn, fosfór, B-vítamín — sem endast lengi dags. Og svo þarf engan sykur með LIF. Berið LIF fram sem mor- gunmat og sjáið glaðna yfir mannskaþ- num.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.