Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 22
22 MORCUNBLAÐIh Miðvikudagur 18. maí 1960 'Pressuleikur44 annað kvöld; Landslið gegn „kakfeil úr 7 félögum 44 ANNAÐ kvöld fer fram fyrsti leikur sumarsins á Laugardalsvellinum. Er það leikur tilraunalandsliðs, þ. e. liðs landsliðsnefndar og liðs er knattspyrnugagnrýnendur blaðanna hafa valið. Þetta er fyrsta prófið fyrir landsliðið fyrir landsleikinn sem verð- ur eftir rúmar 3 vikur. Litlar breytingar Landslið.snefndin tilkynnti lið sitt á mánudagskvöld. Það er ó- breytt landslið frá því í fyrra, með þeirri undantekningu að Rík harður Jónsson er nú ekki með og kemur Ingvar Elíasson Akra- nesi í hans stað. Það vekur nokkra athygli að landsliðsnefnd in skyldi ekki gera breytingar á liðinu einkum vegna þess að sum ir landsliðsmannanna hafa ekki sýnt þá þjálfun í ár og þá hæfni sem gerði að verkum að þeir voru valdir í liðið í fyrra. Tilraunir í framlínu Blaðamenn velja lið sitt úr 7 félögum. Sá „kokteill" getur brugðist til beggja vona, en liðs- menn hafa allir sýnt góða leiki í vor utan það að enginn hér syðra hefur séð Björn Helgason, ísa- firði, en hann er sagður í góðri þjálfun og þótti því sjálfsagt að gefa honum tækifæri til að sýna hvað í hon'um býr. Merkileg til- raun er reynd með Rúnar Guð- Liðin eru annars þannig: LANDSLIÐ mundsson Fram,. Hann er settur í framlínuna — og kann það ef til vill að leysa þann vanda sem landsliðsnefndin er í við skipun framlínu landsliðs íslands. Víst má telja að ef „kokteill- inn“ sameinast vel þá mun hann veita landsliðinu harða keppni. Frammistaða leikmanna blaða- liðsins í leikjum vorsins rökstyð- ur bezt þá ályktun. Helgi Daníelsson Akranes Hreiðar Ársælsson Árni Njálsson KR Val Garðar Árnason Hörður Felixson Sveinn Teitsson KR KR Akranes Sveinn Jónsson Ingvar Elíasson KR Akranes Örn Steinsen Þórólfur Beck Þórður Jónsson KR KR Akranes Gunnar Guðmannsson KR Ellert Schram KR Björn Helgason Kristinn Gunnlaugsson Isafirði Akranes Helgi Hannesson Gretar Akranes Þórður Ásgeirsson Þrótti Rúnar Guðmansson Baldur Scheving Fram Fram Guðjón Jónsson Fram Ormar Skeggjason Val Guðmundsson Þrótti Heimsmeistarakeppnin # Við Víkingsmarkið í Ieiknum Víkingur: KR á mánudags- kvöldið gerðist margt kynlegt og oft var lánið Víkingum hlið- hollt, eins og meðfylgjandi mynd sýnir. KR—Víkingur 4:0 K,R.R. má skoða reglugerðina um þátttöku i meistaraflokk kandknattleik SAMKVÆMT upplýsingum sem fyrir liggja getur til greina komið að islenzka karlalandsliðið í hand knattleik, þurfi að fara tvær ferð- ir til Þýzkalands vegna þátttöku þess í Heimsmeistarakeppninni, sem ákveðið er að fari fram í Þýzkalandi 1,—12. marz 1961. Stjórn handknattleikssambands íslands skýrði fréttamönnum frá væntanlegri tilhögun keppninn- ar í gær, samkvæmt upplýsing- unum sem HSÍ hefir fengið frá Þýzkalandi, en þýzka handknatt- leikssambandinu hefir verið fal- ið að sjá um keppnina að þessu sinni. — Undankeppnin Þátttaka þjóða í aðaikeppninni er bundin við 12 þjóðir. Þar af leiðir að ef þátttaka verður Knattepyrnnpmót Keflavíknr KNATTSPYRNUMÓT Keflavik- ur hófst um sl. helgi, en þátttaK- endur í mótinu eru aðeins tveir, Ungmennafélag Keflavíkur og Knattspyrnufélag Keflavíkur. UMFK hefur verið sigursselt og unnið alla sína leiki til þessa. Það sigraði í V. fl., 4:0, í IV. fl., 11:0 og í meistaraflokki sigraði UMFK, 3:2. KFK mun hafa kært meistara- flokksleikinn, þar sem UMFK lét 3 eða 4 þríðjaflokksmenn leika með meistaraflokki, en slíkt er ekki leyfilegt samkvæ.nt keppnisreglum KSl. Meistaraflokksleikurinn var fremur þófkenndur og lítið bar þar á góðri knattspyrnu, en það voru strákarnir úr þriðja floKki, sem helzt reyndu að ná stuttum samleik, enda eru sumir þe;rra mjög efnilegir leikmenn. — B Þ. meiri, verður að hafa undan- keppni, sem sker úr um hvaða 12 þjóðir fái rétt til að taka þátt í aðalkeppninni. Ef sú verður raunin mun undankeppnin verða leikin í Þýzkalandi á tímabilinu 1. des. 1960 til 15. janúar 1961. — Ákvörðun tekin 22. sept. Þátttökutilkynningar verða að vera komnar til þýzka sambands- ins fyrir 1. september n.k. en síð- an mun stjórn Alþjóðahandknatt leikssambandsins taka loka á- kvörðun um endanlegt fyrirkomu lag keppninnar á fundi sem hald inn verður í Liége 22. sept. 1960. fsland í undankeppninni Ef dæma má út frá þátttöku í síðustu heimsmeistarakeppni, þar sem þátttöku þjóðirnar voru 16, þá er mjög líklegt að ekki verði komizt hjá að láta undan- keppnina fara fram. Ef svo fer og ísland lendir í henni, þá eru líkur til þess að landsliðið verði að fara tvær ferðir til Þýzkalands á næsta ári vegna þátttöku sinn- ar í keppninni, þ. e. a. s. ef lands- liðið verður það sterkt að það vinni sig áfram til aðalkeppninn- ar. — ísland getur átt mikla möguleika Forráðamenn HSÍ töldu að möguleikar íslands í keppninni væru miklir, ef handknattleiks- mennirnir tækju æfingar og all- an undirbúning alvarlega. En vissulega kæmu margir örðug- leikar fram, ef um undankeppni yrði að ræða. Æfingar skipulagðar Eins og kunnugt er valdi lands- liðsnefndin menn til landsliðsæf- Framh. á bls. 23 KR-INGAR unnu Víking 4:0 í Ileykjavíkrurmótinu sl. mánudags- kvöld. Leikurinn var tilþrifalítill frá upphafi til enda og því í alla staði hinn lélegasti, og ekki einu sinni skemmtilega leiðinleg- ur. Víkingarnir færðu nú ótví- ræðar sönnur á að það er kominn tími til að K.R.R. fari að herða á reglum þeim, sem gilda um þáttöku Reykjavíkurfélaga í meistaraflokksmótum, því lið Víkings á alls ekki heima meðal þeirra, sem á einhvern hátt bera nafnið meistarar. í öðru lagi færði þessi leikur jafnframt sönn- ur á það að KR liðið er hvergi Landslið valið Stúlkurnar fara til Svíþjóðar 21. iúní n.k. LANDSLIÐSNEFND Handknatt- leikssambandsins valdi s.l. sunnu dag stúlkur til utanfarar á Norð- urlandamótið í handknattleik, sem fram fer í Svíþjóð í næsta mánúði Valdar voru 15 stúlkur til fararinnar, 6 frá Armanni, 3 frá K..R., 2 frá F H. og ein frá Val, Víking, Fram og Þrótti. Stúlkurnar sem eru fulltrúar ís- lands á Norðurlandamótinu eru: Sigríður Lúthersdóttir, Á; Rut Guðmundsdóttir, Á; Sigríður Kjartansdóttir, Á; Kristín Jóns- dóttir, Á; Liselotta Oddsdóttir, Á; Gerða Jónsdóttir, K.R.; Erla Isaksen, K.R.; Perla Guðmunds- dóttir, K.R.; Sigurlína Björgvíns- dóttir, F.H.; Sylvía Hallsteins- dóttir, F.H.; Katrín Gústafsdóttir, Þrótti; Ólína Jónsdóttir, Fram; Rannveig Laxdal, Víking og Sig- ríður Sigurðardóttir, Val. Fyrirliði á leikvelli verður Katrín Gústafsdóttir, en til vara Sigríður Sigurðardóttir. ICörfuknatfleiksnámskeið l.R. hefir í hyggju að efna til námskeiðs í körfuknattieik fyrir drengi á aldrinum 11—14 ára. Ef þátttaka verður góð mun nám- skeiðið hefjast mánudaginn 23. þ. m. og standa yfir í 14 daga. .Aðalkennari námskeiðsins verð- ur Einar Ólafsson, iþróttakenn- ari, en auk hans munu meistara- fiokksmenn félagsins aðstoða við kernsluna. Þátttökugjald verður kr. 50.00 — Áskriftarlistar liggja frammi í skrifstofu Í.R. í Í.R.-hús inu við Túngötu, í dag og á morg un kl. 5—7 e. h. — Öllum drengj- um, sem áhuga hafá á körfuknatt leik er heimil þátttaka í nám- Fara út 21. júní Stúlkurnar munu fara flug- leiðis til Svíþjóðar 21. júní n.k. en í för með þeim verða tveir fararstjórar þeir Axel Einarsson og Rúnar Bjarnason, landsliðs- þjálfarinn Pétur Bjarnason og Valur Benediktsson, sem fer sem dómari, en það er venja að hvert þátttökugjald leggi til dómara til að dæma 1 mótinu. Æfa úti Stúlkurnar hafa sem kunnugt er lagt mikla stund á æfingar sínar, sem hafa verið innanhúss frá því um miðjan janúarmánuð, en nú æfa stúlkurnar af krafti úti og hafa 3. og 2. flokks karla- lið leikið gegn þeim til að fá meiri kraft og styrk í leik liðs- ins. Blíðlegt bros kostar happa- drættismiða Stúlkurnar hafa unnið mjög ötullega til að afla fjár svo þær geti staðið sem mest að kostnað- inum sjálfar. Einn liðurinn í þeirri starfsemi er sala happa- drættismiða og er mikið kapp í stúlkunum þessa dagana að koma þeim út. Vallargestir munu verða varir við þær á Laugardalsvell- inum annað kvöld og ekki að efa að menn kaupi miða af þeim, eftir að hafa fengið blíðlegt bros. nærri eins sterkt lið og það var í fyrra og með þessu áframhaldi er varla von á að þeir haldi hinni óslitnu sigurgöngu sinni í knatt- spyrmumótunum. Að vísu má segja að snemma sé árs og því vart hægt að dæma menn hart þó þeir nái ekki sínu bezta. En því er aftur til að svara að KR hefir æft vel og liðinu því engin vorkunn að sýna góða knatt- spyrnu sem vitað er að liðið ræð- ur yfir, þegar rétt stemming og aðstæður krefja þá til að gera sitt bezta. í leiknum komust Víkingar varla yfir á vallarhelming KR og teljandi voru því þau skipti serti markmaður KR fékk að hand- leika knöttinn. Aftur á móti var markmaður Víkinganna ailtaf „í knettinum" og stóð sig oft heð hinni mestu prýði. Hér var um varamarkmann Víkinga áð ræða, þar sem aðalmarkmaður þeirra meiddist á Akureyri um helgina, en hann keppti þar í liði Þróttar. KR skoraði tvö mörk í hvorum hálfleik. Sveinn Jónsjon og Ellert Schram í fyrri hálfleik og Þór- ólfur Beck og Gunnar Guðmanns son í síðari hálfleik. Úrslit um Evrópubikar- inn í dng Úrslitaleikurinn í keppninni um Evrópubikarinn verður leikinn í dag í Glasgow, en eins og kunnugt er eru það Real Madrid og Eintracht sem leika leikinn. Spánska liðið er af mörg- um talið bezta knattspyrnu- lið í heimi og á þar einn mestan þátt I, ungverski knattspyrnumaðurinn Pusk- as, ásamt fleiri löndum sín- um. Þýzka liðið Eintracht hef- ir staðið sig vel í keppninni en fáir munu vera sem telja sigurhorfur þess sterkar. Leiknum verður sjónvarp að til Norðurlandanna og flestra Evrópulanda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.