Morgunblaðið - 18.05.1960, Síða 14

Morgunblaðið - 18.05.1960, Síða 14
14 MORCTlNBTJniÐ Miftvíkudagur 18. maí 1960 Leikfélag Reykjavíkur: Græna lyftan gamanleikur ef iir Avery Hopivood Leikstjóri: Gunnar Róbertsson Hansen LEIKFÉLAG Reykjavíkur frum- sýndi sl. laugardagskvöld hinn góðkunna gamanleik „Grænu lyftuna“, eftir ameríska rithöf- undinn Avery Hopwood. Var höfundurinn um skeið einn af mikilvirkustu og vinsælustu leik ritahöfundum Bandaríkjanna, samdi ekki færri en átján leik- rit á fimmtán árum, en sló svo botninn í alla leikritun árið 1925, þá á miðjum aldri. Er „Græna lyftan“ eitt allravinsælasta leik- rit höfundarins og lifir enn góðu lífi á leiksviðum víða um heim. „Fjalakötturjnn“ sýndi leikrit- ið hér fyrir tólf árum með þeim hjónunum Ingu Þórðardóttur og Alfreð Andréssyni í aðalhlut- verkunum. Var leikur þeirra beggja bráðskemmtilegur, enda naut leikritið afarmikillar að- sóknar og hrifni áhorfenda. Efni leiksins verður hér ekki rakið, enda mun það flestum minnisstætt, sem sáu sýningu „Fjalakattarins" hér og hinum, sem enn hafa ekki séð leikinn væri lítill greiði gerður með þvi að kynna þeim fyrirfram það sem gerist á hinu ágæta heimili þeirra hjónanna Lauru og Billy Bartlet. Ég vil þó leyfa mér að tilfæra hér fáein orð um leik- ritið úr leikdómi mínum um sýningu „Fjalakattarins": „Leikurinn færir okkur karl-' mönnunum og þó einkum þeirri tegund manna, sem eiginmenn kallast, ýmis góð og gild (?) lífs- sannindi og lætur okkur skyggn- ast inn í hugskot konunnar, þessa furðuverks sköpunarinnar, sem er jafntorræð og jafnyndis- leg í dag og hún var daginn, sem hún gaf Adam náðargjöf synd- arinnar í Edenslundi forðum". Gunnar R. Hansen hefur sett leikinn á svið og annast leik- stjómina. Hefur nokkurt hlé verið á starfi þessa mikilhæfa leikhúsmanns á vegum Leikfé- lagsins og munu því allir fagna því með félaginu að það fær nú aftur að njóta öruggrar leik- stjórnar hans. Bregst leikstjór- anum ekki nú fremur en oftast endranær að skapa hið rétta andrúmsloft á sviðinu og blása lífi í það sem fram fer, með eðlilegum hraða og staðsetn- ingum og góðum samleik. — Auk þessa hefur leikstjórinn teiknað og gert módel af leik- tjöldunum og málað þau ásamt Steinþóri Sigurðssyni. Eru tjöld- in hin prýðilegustu: Árni Tryggvason leikur Billy Bartlet, veigamesta hlutverk leiksins. Er leikur Arna bráð- skemmtilegur, ekki sízt hin kostulegu svipbrigði hans, sem tala sínu ótvíræða máli, og hinir sprenghlægilegu tilburðir hans í 2. þætti þegar áhrif kokkteilsins ná hámarki. Hitt er svo annað mál að mér finnst Billy Bartlet varla sú „týpa“, að sennilegt sé að kona af gerð Lauru hafi látið heillast af honum, jafnvel þó að töfrar Feneyja hafi komið til. En hvað sem þessu líður þá orkar ekki tvímælis að Árni er mjög vaxandi í list sinni. Annað mesta hlutverk leiks- ins, Blanny Weeler, eiginkonu Jack Weeler’s, leikur Helga Bachmann. Hún er glæsileg á að líta og leikur hennar yfirleitt góður, nema í 2. þætti, er hún þreytir kokkteildrykkjuna með Billy, þjáningarbróður sínum. Þá bregzt henni bogalistin eins og svo mörgum öðrum konum þeg- ar þær eiga að sýna ölvun. Bendir það til þess, að slíkt at- hæfi sé frekar karlmannsverk, þó að reyndar séu til „heiðar- legar“ undantekningar í því efni. Sigríður Hagalín leikur Lauru Bartlet, sem hefur ákveðið að skilja við Billy sinn vegna þess hversu vammlaus og góður eig- inmaður hann er — og því frá- munalega leiðinlegur. Fer Sig- ríður dável með þetta hlutverk, en treður þó, því miður, sína gömlu slóð um leikmáta og túlkun persónunnar. Jack Weeler, eiginmann Blanny, leikur Steindór Hjör- leifsson. Jack er mikill á lofti og dregur ekki dul á það við vin sinn Billy, að hann sé hreinasta Ilelga Bachmann c ofurmenni í kvennamálum og því manna færastur að gefa Billy góð ráð í hjúskaparvanda hans. Þetta reynist þó allt á annan veg þegar hann stendur sjálfur andspænis sínum eigin vandamálum, lítill og ráðþrota og verður að játa skrum sitt. Er þetta skemmtileg þróun mál- anna, er nýtur sín ágætlega í prýðilegri meðferð Steindórs. Guðmundur Pálsson leikur Philip Evans, fornvin Lauru. Guðmundur hefur að mínu viti, ekki til að bera það, sem þarf til þess að túlka rétt þessa per- sónu. Evans er að vísu í með- ferð Guðmundar prúður og geð- þekkur maður, en ekkert í fari hans og framkomu bendir til að hann sé eða hafi verið sá verald- armaður og „Don Juan“, sem Laura lætur í veðri vaka. Mjög var athyglisverður leik- ur Guðrúnar Ásmundsdóttur í hlutverki Tessie, þjónustustúlku á heimili Bartlets-hjónanna. Hún er örugg í framkomu og skemmtilega frökk og ástleitin. Er ég illa svikinn ef hún býr ekki yfir góðri leikgáfu. Þeir Brynjólfur Jóhannesson Árni Tryggvason Aðalfundur félags búsáhaldakaup- manna LAUGARDAGINN 23. april sl. var 20. aðalfundur Félags búsá- halda- og járnvörukaupmanna haldinn í Leikhúskjallaranum að loknu sameiginlegu borðhaldi. Fundinn setti formaður félags- ins, Björn Guðmundsson, og stjórnaði honum. Formaðurinn flutti því næst skýrslu stjórnarinnar um störf á síðasta starfsári og rakti síðan yfirlitssögu félagsins undanfarin 20 ár. Félagið gerðist á síðasta ári aðili að alþjóðasamtökum jám- og búsáhaldakaupmanna og sótti fulltrúi félagsins þing alþjóða- samtakanna. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin, en hana skipa. Björn Guð mundsson, formaður, en með- stjórnendur þeir Páll Jóhannes- son og Sigurður Sigurðsson. STUTTAR athugasemdir við grein G. H. í Tímanum 9. og 12. apríl sl., „Átyllur sinar gamburmennin gylla." Enn fer Guðm. á Bergstöðum á stað með níðskrif um mig und- irritaðan vegna þess að eg er ekki þegar búin að leggja fyrsta flokks veg um Svartárdal allan (29 km. austanmegin) fyrir það litla fé, sem lagt hefur verið til vegarins að þessu. Allt sem sagt er um sam- göngumál Svarfdælinga í svar- grein minni í Morgunblaðinu 20. desember sl. ,eru óyggjandi stað- reyndir, sem í engu hagga róg- mælgi manna og þó vottorð fylgi um sannleiksgildi þeirra frá mönnum, sem eru í sama ,.blóðfloKki“ og G. H. Er því óþarft og ógeðfellt að elta alia þvælu mannsins, þar sem eitt rekst á annars horn. Mun því aðeins undirstrika nokkrar staðreyndir í fyrri grein minni og leiðrétta nokkur ný öfugmæli Guðmundar. Það vekur athygli að grein G. H. er skrifuð 22. jan. sl., en er birt nær tveimur mánuðum síðar. Það virðist svo sem rit- stjórn Tímans hafi klígjað við. Og víst er að höfundurinn kom sjálfur suður til að fá greinina birta. Var hún þá birt í tveimur áföngum með þriggja daga milli- bili. Sennilega gert af hugulsemi við lesendur, svo þeir fengju að jafna sig áður en þeir meðtækju síðari skammtinn. Nokkrar staðreyndir, sem eg veik að : fyrri grein minni skulu hér að lítlu leyti endurteknar og undirstrikaðar. Þegar eg tók við umsjón veg- anna í Húnavatnssýslu var alger vegleysa um Svartárdal — eng- inn spotti kerrufær. Illfærar reiðgötur lágu sumpart um grýttar eyrar, en annars staðar framan i bröttum fjallshlíðum og hengiflugi. Með góðri sam- vinnu við sýslunefnd og vega- nefndir sveitarinnar tókst á til- tölulega skömmum tíma að leggja bílfæran veg (12 km) að Leifsstöðum. Megin hluti vegar- ins ca. 0V2 km upphleyptur. All- ar þesser framkvæmdir voru gerðar meðan vegurinn var sýsluvegur, en það var hann til skamms tíma, og árlegar fjár- veitingar til hans lengst af að- eins nokkur hundruð krónur. A sama hátt, af litlum efnum, en miklum áhuga, var vegurinn frá Leifsstöðum alla leið að Fossum, sumstaðar uppbyggður, annarsstaðar ruddur eða sprend- ur inn x klettabelti, svo sem í Steindór Iljörleifsson, Árni Tryggvason, Guðm. Pálsson, Sigríður Hagalín og Helga Bachmann. þrengslunum norðan við Fossa. Munu þeir Fossafeðgar ekki lasta þær umbætur, eða rægja neitt, sem gert hefur verið til úrbóta samgöngumálum í Svart- árdal, við hin erfiðu skilyrði með litlu fjármagni, eiga þeir þó lengst að sækja og torveldasta leið að fara. Þykir það hvergi lastvert í heimi hér, nema í Svartárdal, að akvegir séu ruddir, þar sem reiðgötui lágu fyrr um harða mela. Fyrsta skrefið til að finna lausn á samgöngumálum vestan Svartár var auðvitað brú eða brýr á ána og fá leiðina viður- kennda í einhverjum vegar- flokki, eins og ég gekkst fyrir. Af sérstökum ástæðum, sem ekki *er mín sök, hefur vegar- lagning dregizt. Brúin hjá Berg- stöðum verður fullgerð í sumar og þá er einstætt, að byrja vegar lagningu frá henni. Hér hefur enn verið skýrt frá staðreyndum, sem allir „dalbú- ar“ munu þekkja. Afsanna þær fyllilega fullyrðingar G. H. um margra ára skeytingarleysi mitt. — Skáldskapargáfa mannsins verður að fá útrás. Fyrst mis- heppnast honum á venjulegum vettvangi skálda, þá reyna þenn- an. „List er það líka og vinna“. Yinnuflokkur var fluttur í Svartárdal sl. sumar samkvæmt áðurgerðrl áætlun, þó ekki stæð- ist fyllilega, vegna óvenjulegrar úrkomu, en var að engu bundin klögumálum þeirra „vinanna" á Bergstöðum og Leifsstöðum, enda mér ekki kunnugt um fyrr en ég las grein G. H. Til að forð- ast tugþúsunda óþarfa kostnað við flutninga véla og vinnu- flokka eru þeir fluttir til eftir ákveðinni línu. Þetta skilur „skáldið ekki“ en það gera flest- ir aðrir. Þó vegagerð reyndist erfið sl. sumar vegná tíðarfars, og bleytu jarðvegsins, hygg ég þó að vei mætti kallast, ef alls- staðar fengjust jafngóð afköst, sem vinnuflokks míns í Svartár- dal, sem G. H. ræðir um. Líta ætti hann m. a. í eigin barm. Ég fór í fylgd með vegamála- stjóra um Svartárdalsveg sum- arið 1957. Þetta er G. H. ókunn- ugt, sem flest annað er hann ræðir um. G. H. kveinkar sér er minnzt er á „frumhlaup" nokkurra „dal- búa“ árið 1956, og gerir sokkinn að háleist. En hvernig stóð á að margir er lásu „plaggið“ neit- uðu að skrifa undir? Og tveir, sem undir skrifuðu, sögðu síðar að þeir hefðu ekki lesið „plagg- Framh. á bls. 2V og Valdimar Lárusson fara með^ lítil hlutverk, en eru báðir hinir skemmtilegustu. Sverrir Thoroddsen hefur þýtt leikinn á lipurt mál og hnittið. Leikhúsgestir tóku leiknum forkunnarvel. Sigurður Grímsson. ,B ergstaðaskál d ið' á refilstigum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.