Morgunblaðið - 26.05.1960, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 26. maí 1960
Engin smábylgja
þegar hún kom
Sig. Þórarinsson kom frá Hawai í gosr
SIGURÐUR Þórarinsson,
jarðfræðingur, kom í gær
heim frá Hawai, sem var sið-
asti staðurinn í fyrirlestrar-
ferð hans vestur um haf, þar
sem hann hélt 16 fyrirlestra
í 12 háskólum. Sigurður fór
frá Hawai 22. maí, en flóð-
bylgjan mikla á Kyrrahafi
skall þar á ströndina aðfara-
nótt þess 24.
Sigurður sagði í samtali við
blaðamann Mbl. í gaer, að strönd-
in á Hawaiieyju sem bylgjan skall
yfir, væri flöt og hættuleg að
þessu leyti. Fólkið freistaðist til
Neðri deild:
Tvö stjórnar
frumvörp
afgreidd
NEÐRI deild afgreiddi
fyrradag tvö af frumvörp-
um ríkisstjórnarinnar. Var
það frumvarpið um Verzl
unarbanka tslands hf., sen
samþykkt var með aðeins
mótatkvæði, og frumvarp
ið um verðlagsmál, sen
samþykkt var samhljóða
Bæði þessi frumvörr
komu til fyrstu umræðu
Efri deild í gær. — Gerð
Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptí
málaráðherra, þar greir.
fyrir þeim, en síðan fóru
þau til athugunar í nefnd.
Þess má einnig geta, að
rikisreikningurinn 1957 hef
ur nú verið endanlega af-
greiddur í Efri deild og fær
Neðri deild hann nú til
meðferðar.
að byggja nálægt sjónum, og
hefði það einmitt borizt í tal í
rabbi hans við jarðfræðinganna í
Eldfjallarannsóknarstöðinni sem
þarna er, hve erfiðlega gengi að
fá fólkið til að byggja ekki svo
nálægt sjónum. Líklega þyrfti
smáflóðbylgju, til að koma því í
skilning um þetta. En það var
engin smáflóðbylgja þegar hún
kom daginn eftir. Samt mun hafa
orðið tiltölulega lítið tjón þár, því
ströndin þarna megin er strjál-
byggð. Þó fórust 50—60 manns.
Borgin Honolulu er hinum meg-
in á eyjunni og í hættu, þegar
flóðbylgjurnar koma úr hinni átt-
inni, eins og eftir jarðskjálfta.
Missti af tveim eldgosum
Um jarðskjálftana og flóðbylgj
una miklu kvaðst Sigurður lítið
vita nema af blaðafregnum. Þess-
ar flóðbylgjur eru einkennilegar,
sagði hann. Úti á rúmsjó verður
maður lítið var við þær, þvl þær
eru svo lágar. En þær geta verið
mörg hundruð km. breiðar og
fara með ofsahraða. Er þær mæta
landi brotna þær og æða á land.
A Hawaii hélt Sigurður fyrir-
lestur um íslenzk eldfjöll. En
hann rétt missti af tveimur eld-
gosum þar. — Eldgosin á Hawaii
eru vist alveg stórkostlega falleg
sagði hann. Hraunið er svo þunnt
og spýtist upp eins og Geysisgos,
getur farið allt upp í 450 m.
hæð. Eg missti af þeirri sýn, en
hraunið var enn volgt er ég kom
þangað, og frá jarðfræðilegu sjón
armiði jafn gott.
Dyngýufjöll á Hawaii og Islandi
Hawaii hefur líka annað sér-
stakt, dyngjufjöll, eins og á ís-
landi, en þar gjósa þau enn. __
Sigurður kom beina leið frá
Hawaii um Los Angeles og New
York, og tapaði einum degi á tíma
mismuninum. Þetta er engin smá-
ræðis vegalengd, því frá Los Ang
eles til Hawaii er jafn langt og
frá New York til Reykjavíkur.
Fjárskadar v/ð
Djúp
EINS og skýrt var frá í blaðinu
á þriðjudag, kom hríðarveðrið,
sem skall á við ísafjarðardjúp 20.
þ.m., víða illa við, þar vestra.
Síðan veðrinu slotaði hafa menn
verið að smala fénu saman, en
gengur misjafnlega.
Áður hefur verið sagt frá kind-
um, sem saknað er í Snæfjalla-
hreppi, en í gær símaði fréttarit-
ari blaðsins á Þúfum, að flest fé
vantaði í Nauteyrarhreppi, um
30 kindur á Laugalandi, en ein
fannst dauð. Er óttazt að nokkuð
af fé þessu hafi farizt.
Sauðburður var ekki byrjaður
þar. Á öðrum bæjum en Lauga-
landi er flest féð fundið, sumt
dregið lifandi úr sköflum. Ber
mikið á doða. Þá varð einng mik-
ið tjón á æðarvarpi í Æðey, því
að hreiðrin fennti í kaf.
Góð byrjun hval-
vertíðarinnar
13 búrhveli úr fyrstu veiðiför
ÞAÐ var handagangur í öskj-
unni í hvalstöðinni í Hvalfirði
í gærmorgun, er fréttamaður
Mbl. kom þangað upp eftir. Allir
fjórir hvalbátarnir höfðu komið
inn til stöðvarinnar þá um nótt-
ina, með samtals 13 hvali í togi.
Bátarnir höfðu verið úti í u.þ.b.
tvo sólarhringa um 190 mílur út
af firðinum og var þetta fyrsta
veiðiferðin á nýbyrjaðri vertíð.
Loftur Bjarnason forstjóri hf.
Hvals tjáði Mbl. að þetta sé bezti
byrjunarafli í sögu fyrirtækis-
ins,. Var hér eingöngu um búr-
hveli að ræða, en þau fara í
bræðslu. Það tekur fjóra tíma
að gera að hverri skepnu, og
voru allir starfsmenn stöðvar-
innar að verki í gærmorgun en
í flæðarmálinu og við bryggju-
sporðinn lágu 9 hvalir og biðu
meðferðar. Þegar bátarnir hafa
dregið hvalinn að síðunni er
þegar sprautað í hann efni sgm
nefnt er „acronise“. Er það gert
til að verja hann skemmdum,
og þá er óhætt að láta hann
liggja óverkaðan um nokkurn
tíma án þess að eiga á hættu að
hann skemmist.
Myndirnar hér að ofan vóru
teknar í Hvalfirði í gærmorgun
og sýna þegar lengd hvalsins er
mæld, og skurðarmaðurinn tíýr
sig til atlögu með flugbeitta
sveðju í hendi Ljósm. Mbl. Marl
a
baini
a von
RÓM, 25. maí. — Leikkonan
Jayne Mansfield tilkynnti hér í
dag, að hún ætti innan tíðar von
á barni með manni sínum, „kjöt-
fjallinu" Mickey Hargitay, sem er
ungverskur að ætterni.
Útsvarsmálid mikið
rætt í Neðri deild
Þar stendur nú yfir 2. umrœða um bráða-
birgðabreytingar stjórnarinnar }
ÚTSVARSMÁLIN voru rædd
NA 15 hnúiar / S/50 hnúfar X Snjókoma t úii \7 Skúrír K Þrumur ifíx Kufdaski! Hifaski/ H Ha» L Laq»
Minjasafn um Ein-
ar Benediktsson
STJÓRN Útgáfufélagsins Braga
hefur ákveðið að efna til minja-
safns um Einar Benediktsson
skáld, og safna ýmsum munum,
sem voru í eigu hans. — Hefur
stjórn félagsir.s falið Þóroddi
Guðmundssyni frá Sandi að
vinna að undirbúningi þessa
máls, en hann hefur kynnt sér
slík minjasöfn í Skotlandi. Flyt-
ur Þóroddur Guðmundsson er-
índi í útvarpið x kvöld um hið
fyrirhugaða minjasafn uro Einar
Benediktsson.
HLÝINDI halda áfram og eru
ekki líkur fyrir frosti hér á
landi næstu daga. Hlýindin,
sem ollu norðanáttinni á dög-
unum voru yfir Mið-Svíþjóð á
hádegi í gær og ollu norð-
lægri átt í Noregi.
Á kortinu er regnsvæði fyr-
ir vestan ísland. Það náði inn
yfir Vestfirði og Snæfellsnes
og olli þar talsverðri úrkomu
í gær. Annað regnsvæði var
að nálgast landið úr suðri, og
enn sunnar hið þriðja. Má því
búast við vætutíð sunnan
lands næstu daga. Norðan- og
Austanlands verður hins veg-
ar þúrrara og skemmtilegra
veður.
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV-land, Faxafl., VS-mið og
Faxafl.mið: S og SV kaldi,
smáskúrir en bjart á milli.
Breiðafjörður, Vestfirðir,
Breiðafj.mið og Vestfj.mið:
SA-kaldi og rigning í nótt,
en S-kaldi og skúrir á morg-
un.
Norðurland til Austfj. og
Norðurmið til Austfj.miða: SA
kaldi og víða rigning í nótt,
en sunnan gola og léttskýjað
á morgun.
SA-land og SA-mið: SV
gola og úrkomulítið með
morgninum, en SA kaldi og
dálítil rigning síðdegis.
í 4Vi klukkustund í Neðri
deild Alþingis í gær og lauk
þó ekki 2. umræðu um frum-
varp ríkisstjórnarinnar um
þau efni.
Eins og skýrt var frá í Mbl. í
gær, voru mál þessi tekin fyrir
að nýju á fundi deildarinnar í
fyrradag, þegar félagsmálanefnd
hafði lokið athugun sinni á frum
varpi ríkisstjórnarinnar um bráð
abirgðabreytingu á útsvarslög-
unum. Umræður um frumvarpið
héldu svo áfram á fundi Neðri
deildar í fyrrakvöld og töluðu þá
þeir Gunnar Jóhannesson, Hall-
ðór E. Sigurðsson og Skúli Guð-
mundsson, sem allir höfðu sitt-
hvað við frumvarpið að athuga.
Þegar fundur í Neðri deild
hófst kl. 13 Vfe í gær svaraði
Guðlaugur Gíslason framkom-
inni gagnrýni, en því næst töl-
uðu þeir hver á eftir öðrum
Eysteinn Jónsson, Einar Olgeirs-
son og Jón Skaftason og stóðu
ræður þeirra fram til klukkan
tæplega 19, að undanskildu
klukkutima kaffihléi milli kl. 16
og 17. Gagnrýndu þeir stjórnar
andstæðingar ýmis ákvæði
frumvarpsins, m.a. þá útsvars-
stiga, sem fyrirhugað er að lög
festa, svo og þau ákvæði frum-
varpsins, sem setja samvinnufé-
lögin á bekk með öðrum fyrir-
tækjum að því er greiðslu veltu-
útsvars snertir, á þeim stöðuin,
sem þau útsvör verða á annað-
borð tíðkuð. Þess má geta, ,að
stjórnarandstæðingar voru síður
en svo sammála í gagnrýni sinni
á frumvarpinu og viku því einn-
ig orðum hver að öðrum í ræð-
um sínum, þó að vonum kvæði
mun minna að þeim innbyrðis
ýfingum þeirra en ádeilum á
stjórnarflokkana.
Mælendaskrá var ekki tænid,
þegar fundi lauk, og var umræð
unni því frestað.
2000. sýningin
í þjóðleikhúsinn
1 KVÖLD verður tvöþúsund-
asta sýningin á leiksviði Þjóð-
leikhússins og svarar það til að
um 200 sýningar hafi að jafnaði
verið á ári s.l. 10 ár.
Á þessum tíma hefur þjóðleik-
húsið tekið til meðferðar 120
verkefni,.
„í Skálholti" verður sýnt í
kvöld í 10. sinn. Aðsókn að þess-
um leik hefur verið ágæt, en
sýningum verður nú hætt á því
í bili vegna annarra verkefna
sem sýnd eru á „Listahátíðinni.“
Slldarverðið 110 kr. málið
S J ÁV ARÚTV EGSMÁLARÁÐ -
HERRA hefur ákveðið að fengn
um tillögum stjórnar Síldarverk-
smiðja ríkisins, að verð á sumar-
veiddri síld fyrir Norður- og
Austurlandi til bræðslu verði í
sumar kr. 110.00 fyrir hvert mál
síldar.
Reynist síld, sem afhent er
síldarverksmiðjunum til bræðslu,
óvananlega fitulítil, er þeim heim
ilt að ákveða lægra verð en að
framan greinir fyrir þá síld.
Þá er verksmiðjunum heimilað
að taka til vinnslu af þeim, er
þess kynnu að óska og greiða þá
við móttöku 85% af áætlunarverð
inu, kr. 110.00, þ.e. kr. 93.50, og
eftirstöðvarnar, ef einhverjar
verða, þegar reikningar verk-
smiðjanna hafa verið gerðir upp.