Morgunblaðið - 28.05.1960, Qupperneq 5
Lailfyarrlpcriir ^ moT 1Q£0
II n n r Ff v r r I *) Jf f)
5
Unglingstelpa óskast
Upplýsingar í síma 34207.
Atvinna- — Stúlka með
stúdentspróf úr stærðfræði
deild Menntaskólans óskar
eftir atvinnu. Tilb. sendist
á afgr. Mbl., fyrir kl. 6 á
mánud. merkt „Reglusöm
— 3509“.
Stúlka óskast
til pökkunarstarfa. —
K A T L A h.f.
Pökkunarverksmiðjan
Laugavegi 178.
Rafvirkjameistarar
16 ára piltur óskar eftir að
komast að sem nemi í raf-
virkjun. — Upplýsingar í
síma 36467 e.h.
Keflavík — Njarðvík
4 herb. og eldhús til leigu
í Njarðvík, frá 1. júní. —
Uppl. í síma 1136.
Hafnarfjörður
Ung hjón óska eftir 1—2
herb. íbúð, nú þegar. Barna
gæzla kemur til greina. —
Sími 34312, frá 4—7 í dag
og á morgun.
Halló!
Vantar vinnu á kvöldin og
um helgár. Hef bíl. Tilboð
merkt. „Aukavinna —
3945“, sendist Mbl.
íbúð óskast
2ja til 4ra herbergja íbúð
óskast til leigu, sem fyrst.
Sími 10080.
- M E5SU R -
Á MORGUN:
I sambandi við héraðsfund Reykja-
víkurprófastsdæmis, sem haldinn verð-
ur á sunnudag og hefst kl. 4 síðd.,
'skipta prestarnir með sér messum,
lem hér segir:
Dómkirkjan, kl. 11, séra Gunnar
Arnason.
Hallgrímskirkja, kl. 11, séra Arelíus
Níelsson.
Laugarneskirkja, kl. 11, séra Jón
Thorarensen.
Neskirkja, kl. 11, séra Jón Þorvarðs-
son.
Langholtsprestakall, í safnaðarheim-
llinu kl. 2, séra Oskar J. Þorláksson.
Háteigsprestakall, í Sjómannaskól-
anum kl. 2, séra Garðar Svavarsson.
Bústaðaprestakall, í Háagerðisskóla
kl. 2, séra Jón Auðuns.
Fríkirkjan: Messa kl. 11 f.h. Ath.
breyttan tíma. Séra Þorsteinn Björns
son.
Ég varð fyrir slysi í gær.
Hvað olli?
Tengdamamma sofnaði í aftur-
sætinu.
— Frændi var að reyna að búa
til nýja tegund bifreiða. Hann
tók hjól undan Kadiljáki, hita-
kerfi úr Ford, stýri úr Plymouth
og.......
— Og hvað fékk hann út úr
þessu?
— Tvö ár.
Lárétt: — 1 maður — 6 kassi —
7 ílátið — 10 verkfæri — 11 falleg
— 12 fangamark — 14 ósamstæð-
ir — 15 nautið — 18 kryddaði.
Lóðrétt: — 1 gælunafn — 2
verkfæri — 3 skurður — 4 kögur
— 5 kona — 8 nagdýr — 9 ill-
mælgin — 13 blóm — 16 verkfæri
— 17 tónn.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: — 1 járninu — 6 eið —
7 makanum — 10 brú — 11 ínu
— 12 OI — 14 gl. — 15 tunna —
18 sandinn.
Lóðrétt: — 1 Jumbo — 2 reku
— 3 nía — 4 iðni — 5 urmul —
8 árita — 9 ungan — 13 önd —
16 UN — 17 Ni.
I lokahófi sjó-stangaveiði- I
mótsins, sem haldið var í
Silfurtunglinu sl. mánudags
kvöld, voru afhent verðlaun
fyrir beztu veiði á mótinu.
— Sveit Bandaríkjamanna
vann farandbikar gefinn af
Flugfélagi íslands. Jóhann
Sigurðsson fulltrúi Flugfé-
lagsins í London afhendir
bikarinn.
(Ljósm. Sv. Sæm.).
Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda-
flug: Sólfaxi fer til Osló, KaUpmh. og
Hamborgar kl. 08:30 í dag, væntanlegur
til baka kl. 18:00 á morgun. — Gullfaxi
fer til Glasgow og Kaupmh. kl. 08:00
í fyrramálið. — Innanlandsflug í dag:
Til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða,
Húsavíkur, Isafjarðar, Sauðárkróks,
Skógasands og Vestmannaeyja (2 ferð-
ir). — A morgun: Til Akureyrar, Siglu
fjarðar og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.: — Leifur Eiríksson er
væntanlegur kl. 6:45 frá New York.
Fer til Osló og Helsingfors kl. 8:15. —
Edda er væntanleg kl. 19:00 frá Ham-
borg, Kaupmh. og Gautaborg. Fer til
New York kl. 20:30. — Leifur Eiríks-
son er væntanlegur kl. 01:45 frá Osló
og Helsingfors. Fer til New York kl.
03:15.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Detti-
foss er í Reykjavík. — Fjallfoss fór frá
Rvík í gærkvöldi til Vestmannaeyja
og þaðan vestur og norður um land
til Húsavíkur. — Goðafoss fór frá Riga
í gær til Gdynia. — Gullfoss fer frá
Kaupmh. á hádegi í dag til Leith og
Rvíkur. — Lagarfoss er í New York. —
Reykjafoss fór frá Gautaborg 26. þ.m.
til Odense. — Selfoss er á leið til Rvík-
ur. — Tröllafoss og Tungufoss eru í
Reykjavík.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla og Askja eru í Reykjavík.
Hafskip: — Laxá er á Akureyri.
H.f. Jöklar: — Drangjökull fór frá
Hull í gær til Rotterdam. — Langjökull
fer frá Hafnarfirði í dag til Austur-
Þýzkalands. — Vatnajökull er í Lenin-
grad.
Skipadeild S.I.S.: — Hvassafell er í
Kotka. — Arnarfell er 1 Kaupmh. —
Jökulfell er væntanlegt til Rostock i
dag. — Dísarfell er í Olafsvík. — Litla-
fell losar á Norðurlandshöfnum. —
Helgafell fór 22. þ.m. frá Reykjavík til
Leningrad. — Hamrafell er í Batum.
Skipaútgerð ríkisins: —- Hekla, Esja,
Herðubreið og Þyrill eru í Reykjavík.
— Skjaldbreið fór frá Reykjavík í gær
vestur um land til Akureyrar. — Herj-
ólfur fer frá Vestmannaeyjum í dag
til Reykjavíkur.
Bæjarútgerð á Seyð
isfirði úr sögurmi
BÆJARSTJÓRN Seyðisf jarðar
hefur nú tekið þá ákvörðun að
leggja niður bæjarútgerð kaup-
staðarins, en til hennar var stofn
að af V-stjórninni, eftir að hún
hafði látið gera hlutafélagið Bjólf
á Seyðisfirði gjaldþrota. Það
keypti togarann fyrir nær 12 ár-
um..
Rekstur togarans og bæjarút-
gerðin var á dagskrá bæjarstjórn
ar Seyðisfjarðar sl. mánudag.
Með öllum greiddum atkvæðum
var samþykkt að bjóða ríkissjóði
að yfirtaka skipið. Mun líka svo
vera komið að nauðungaruppboð
á skipinu er yfirvofandi. Tveir
bæjarfulltrúanna höfðu setið hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Vegna togarans eru nú skuldir
sem hvíla á bæjarsjóði Seyðis-
fjarðar um 10 milljónir króna.
í fyrravor tók Axel Kristjáns-
son, útgerðarmaður, og eigandi
togarans Keilis, að sér rekstur
Brimness, fyrir milligöngu þá-
verandi ríkisstjórnar. Togarinn
kom hingað til Reykjavíkur að-
faranótt þriðjudagsins. Hefur á-
höfn hans nú verið afskráð og
sýnilegt er að togaranum verði
innan skamms lagt í Þanghafinu.
Árnað heilla
í dag verða gefin saman í hjóna
band í Laugarneskirkju af séra
Árelíusi Níelssyni, ungfrú Ingi-
gerður Konráðsdóttir, Miðtúni 76
og stud. philol. Malcolm Frank
Holliday, Nýja Garði. — Brúð-
hjónin dvelja í dag að Miðtúni 76.
Gefin hafa verið saman í hjóna
band að séra Jóni Þorvarðssyni,
ungfrú Jónína Þóra Einarsdóttir
og Guðmundur Ægir Ólason, sjó-
maður. Heimili þeirra er að Berg
staðastræti 38.
Ennfremur ungfrú Svanfríður
María Guðjónsdóttir, Urðarstíg
16, og Gísli Reynir Karlsson,
kennari, Langholtsvegi 45. Heim
ili þeirra er að Gunnarsbrapt 26.
ÁHEIT og GJAFIR
Sólheimadrengurinn, afh. Mbl.: —
EE krónur 50,00.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að augiýsa
í Morgunblaðinu en í öðrum
blöðum. ’ —
TIL LEIGU
Skrifstofuherbergi
í Austurstræti. Tilboð óskast sent í póst-
box 252.
Eru LÍF og BRUNATRYGGINGAR yðar
nægilega háar? ef svo er ekki, þá vinsam-
lega snúið yður til umboðsmanna vorra,
eða skrifstofunnar, Lækjargötu 2, sími
1-3171.
Vátryggingaskrifstofa
Sigfúsar Sighvatssonar hf.
Sandgerdi
Oss vantar ungling eða fullorðinn mann
til að annast afgreiðslu Morgunblaðsins
í Sandgerði.
Upplýsingar hjá Axel Jónssyni, Sand-
gerði eða afgreiðslu blaðsins í Reykjavík.
3ttft¥0ttttltlitft itt
Vetrargarðurinn
Dansleikur í kvöld kl. 9
F alcon-kvintettinn
Söngvarar: Berti Möller og Gissur
Trilla
Til sölu Vz hlutur í 5 tonna
trillu, með 34 ha. Benz-
dieselvél. Upplýsingar í
síma 16776.