Morgunblaðið - 28.05.1960, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.05.1960, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 28. maí 1960 Skrifstofustúlka verður ráðin að innflutnings- og heildverzlun. Hún þarf að geta vélritað á ensku og dönsku. Æski- legt er verzlunarskóla eða stúdentspróf. Umsókn ásamt meðmælum sendist Morgunblaðinu merkt: „333 — 3944". F ramtíSaratvinna Ðugleg vel nienntuð stúlka óskast þann 1. sept. 1960, til þess að vinna á lækningastofu í nágrenni Reykja- víkur. Launakjör mjög góð, ef hæfni er fyrir hendi. Meðmæli, upplýsingar um fyrri störf, og menntun fylgi umsókn er sendist á afgreiðsu blaðsins fyrir 15. júní merkt: „Framtíðaratvinna — 3505". SKIPSTJÓRA - VÉLSTJÖRA Vantar reglusaman skipstjóra og vélstjóra á rúmlega 50 tonna bát strax. Uppl. í síma 22681. Rösk stúlka óskast nú þegar í eldhúsið. Uppl. gefur ráðskonan í síma 14292. ELli og hjúkrunarheimilið Grund. Afgreiðslustúlka óskast í matvörubúð. Uppl. í síma 11451 og 22649. AÍvörun Samkvæmt i 5. grein lögreglusamþykktar Reykjavík- ur má á almannafær eigi leggja eða setja neitt það, er tálmar umferðinni. Eigendur slíkra muna, svo sem skúra, byggingarefnis, umbúða, bifreiðahluta o. þ. h. mega búast við að þeir verði fjarlægðir á kostnað og ábyrgð eiganda án frekari viðvörunar. Lögreglustjórinn í Reykjavik, 25. maí 1960. Sigurjón Sigurðsson. Keflavík Samkvæmt samþykkt Byggingamefndar Keflavíkur er öllum óheimilt að standa fyrir byggingum í Kefla- vík nema þeir hafi fengið til þess leyfi nefndarinnar. Þeir sem þegar hafa fengið slík leyfi skulu nú endur- nýja þau annars teljast þau úr gildi fallin. Umsóknir ásamt nauðsynlegum skilríkjum sendist skrifstofu minni Hafnargötu 27. Byggingarfulltrúinn í Keflavík. Vélbátur til sölu Höfum til sölu 38 lesta vélbát í mjög góðu ástandi. Vél Caterpillar 1% ára gömul. Nýr SIMRAD mælir. TRYG F&STE16N1R Austurstræti 10, 5. hæð simi 13428 og 24850 eftir kl. 7 simi 33983. Margrét Þorsteinsdóttir húsfreyja — áttrœð HINN 27. þ. m. átti Margrét Þor- steinsdóttir, húsfreyja frá Kald- rananesi áttræðisafmæli. Vildi ég með örfáum orðum minnast þessarar ágætu konu og senda henni kveðju mína og færa henni þakkir fyrir ógleymanlega kynningu frá liðnum árum. Hún er fædd að Kaldrananesi í Strandasýslu 27. mai 1880. For- eldrar hennar voru hin þekktu merkishjón, Þorsteinn Guð- brandsson Sturlaugssonar frá Rauðseyjum, af víðkunnum breið firzkum ættum og Svanborg Guð brandsdóttir frá Syðri-Brekkum á Langanesi og er sá ættbogi einnig víðþekktur og dreifður víða um land. Fluttist Margrét með foreldr- um sínum frá Kaldrananesi að Bjarnarnesi í sama hreppi árið 1895, þá 15 ára, og ólst þar upp til fiþlorðins aldurs. Þótt Mar- grét gengi ekki menntabraut, í æsku, í venjulegum skilningi þess orðs, þá aflaði hún sér á æskuskeiði hollrar og raunhæfr- ar fræsðlu, bæði í bóklegum og verklegum efnum, enda var hún \ senn bæði greind og fjölhæf. A uppvaxtarárum sínum dvaldi hún um tveggja vetra skeið í Ól- afsdal, — á líinu nafnfræga menningar- og menntasetri, og naut þar tilsagnar bæði í hann- yrðum og bóklegum fræðum. En auk þess hlaut hún í föðurgarði hollt og giftudrjúgt veganesti, því heimili foreldra hennar, Þor- steins og Svanborgar, var ann- álað fyrir myndarskap, reglu- semi og snyrtimennsku í allri umgengni. Árið 1907, giftist Margrét Matt- híasi Helgasyni, búfræðingi frá Bræðrabrekku í Strandasýslu, gáfuðum manni og mikilhæfum á alla lund og fluttust þau, árið 1910 frá Bjarnarnesi, ásamt for- eldrum Margrétar aftur að Kald rananesi, þar sem þau bjuggu um 40 ára skeið, eða til ársins 1950. Allt samstarf og samlíf þeirra hjóna, Matthiasar og Mar- grétar var frá fyrstu tíð með þeim ágætum að fágætt má teljá. Heimili þeirra var talandi vott- ur um einhug þann og samræmi sem ríkti í öllum áformum og athöfnum þeirra hjóna, enda stóð Kaldrananes í búskapartíð þeirra tvímælalaust í fremstu röð önd- vegisheimila Strandasýslu að myndarskap og menningu og fögr um heimilisháttum. — Á þess- um árum áttu margir leið að Kaldrananesi. Húsbóndinn hafði með höndum flest trúnaðarstörf í hreppnum. Hann var oddviti, hreppstjóri, símastjóri og bréf- hirðingamaður, auk margra ann- ara starfa er á honum hvíldu. Auk þess var Kaldranaes kirkju- staður, þar var samkomuhús hreppsins og þar voru iðulega haldin námskeið að vetrarlagi, fyrir bæði karla og konur. Verkahringur húsfreyjunnar hlaut því að verða ærið víður og erilsamur, þar sem risna og hverskyns beinleikar stóðu öll- um til boða, er að garði bar, helga daga sem virka. Mundi slíkt starfssvið nú á tím um reynast flestum ofviða eða ókleift. Með hljóðlátri ástúð og ljúfu viðmóti og umhyggju innti húsfgreyjan á Kaldrananesi af höndum hlutverk sitt með sér- stökum myndarbrag og rausn. Það var sem ósýnilegar hendur væru með í starfi að reiða fram, vistir og föng og hlynna að þeim, sem á einhverju sviði höfðu þörf fyrir hlýja og nærgætna hönd. Þeim hjónum Matthíasi og Margréti varð þriggja barna auð- ið: Eru tvö þeirra á lífi: Þor- steinn, skólastjóri á Blönduósi, kvæntur Jófríði Jónsdóttur frá Ljárskógum og Svanborg, gift Stefáni Jónssyni, múrarameist- ara í Reykjavík. Halldór son sinn, hinn mesta efnismann, misstu þau, aðeins 17 ára að aldri. Þá ólu þau hjónin upp tvær fóst- urdætur, Kristínu Magnúsdóttur og Sigurveigu Jónsdóttur, sem báðar eru giftar. Heimili þeirra hjóna í Kald- rananesi bar á sér blæ hinna fornu, íslenzku höfuðbóla, sem í senn voru vígi og miðstöðvar héraðanna og sem sendu frá sér þjóðholla menningarstrauma bæði í fræðilegum og verkleg- um efnum. Ef slíkum heimilum fækkar í sveitum landsins, verð- ur þjóðlífið stórum fátækara á eftir og héröðin risminni, jafn vel þótt vinnuvélum fjölgi og húsburstir rísi hátt frá jörðu. Árið 1950 brugðu þau hjónin búi að Kaldrananesi og fluttust til Reykjavíkur og hafa síðan dvalið hjá Svanborgu dóttur sinni og manni hennar að Lang- holtsvegi 14. Þótt starfsþrek Margrétar sé að mestu þorrið eftir langan og annaríkan ævidag og þótt skugg- ar byrgi henni dagsins ljós, nýt- ur hún engu að síður mikillar birtu, sem fellur umhverfis hana frá ástríkum eiginmanni, börn- um og kærum vinum, sem um- vefja hana ástúð og hlýju. Yfir henni hvílir einnig, enn sem fyrr, hinn tigni virðulegi blær mildi og ljúfmennsku. Á ásjónu henn- ar Ijómar björt og fögur heið- ríkja og friður. Það er hin innri birta, sem stafar frá hlýju, göf- ugu og lífsfróðu hjarta. Þeir geislar falla eins og sól- stafir á vegu ástvinanna og munu ylja þeim langa ævi. Ég vil á þessum timamótum senda þessari kæru vinkonu minni einlægar blessunar- og árnaðaróskir og þakka henni alla kynningu og fagrar minningar, sem naumast munu fölna, þótt árin líði. Þorsteinn Jóhannesson. Jóhonnes Norfnson — minning uðust 5 börn og eru 4 þeirrá á lífi. Friðþjófur loftskeytamaður á Gullfossi, Sigríður húsfrú, Krist- ;án skrifstofumaður og Bergljót Alda, enn í foreldrahúsum. Son sinn Hindrik Valdimar misstu þau 1957. Þau hafa búið allan sinn búskap í Hafnarfirði og heim ili þeirra lengst af verið að Hell- isgötu 7. Sú kynslóð og þeir sjómenn sem ruddu brautina á sviði tog- veiða Islendinga, er nú óðum að hverfa af sjónarsviðnu. Jóhann- es var einn af þeim er réðust á togarann „Coot“ frá Hafnarfirði 1905, þá 15 ára gamall, en með hingað komu þess skips og þeirri reynslu sem af því fékkst fengu menn trú á því að togaraútgerð gæti verið arðvænleg, eins og síðar átti eftir að koma enn betur í Ijós. Það var harður skóli sem ungir menn gengu í á þessum skipum, því að þá var engu leift af því sem menn gátu, og þeir sem ekki -'étu bugast í því harki, lögðu grundvöllinn að þeim ævintýra- legu framförum og lífi sem við höfum lifað hin síðari ár. Jóhannes var einn af þess- um mönnum, hann eyddi öilum sínum beztu árum á togurunum, var lengst af bátsmaðui, énda verkmaður í bezta lagi og með afbrigðum áreiðanlegur, og trúr. Ungir menn sem lærðu til verka undir handleiðslu hans- og meðal þeirra var sá sem þetta ritar — fengu notadrjúgt vega- nesti enda þótt þeim stundum þætti hann full eftirgangssamur um að vel væri unnið að neta- bætingu eða öðru en það vgr þá heldur ekki hætta á að í ljós kæmi að kastað hefði verið hönd- um að verki, þegar að á reyndi, því að það kom þá alltaf í Ijós að það sem hann taldi nógu vel gert, var vel gert. Jóhannes var dagfarsprúður maður, hann var fáskiptin um annarra hagi og lét lítið á sér bera út á við. Það var gott að vinna með honum og af honum gátu ungir menn margt lært. Ég sendi ástvinum hans samúðarkveðjur um leið og ég kveð hann og þakka honum löngu liðna samveru, en hann var einn af mínum hugþekku félögum á sjónum um lengri tíma. Sigurjón Einarsson skipstjóri. I DAG verður gerð útför Jó- hannesar Narfasonar frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði, én hann andaðist 21. þ. m. að Sólvangi eftir stranga og erfiða legu. Jóhannes var fæddur í Hafnar- firði 9. október 1889. Foreldrar hans voru þau hjónin Narfi Jó- hannesson sjómaður og Sigríður Þórðardóttir. Hann var elztur 8 systkina og að þeirrar tíðar hætti fór hann snemma að létta undir sem kallað var, og 11 ára hóf hann sjómennsku á skútum, og stundaði sjó þaðan af meðan að kraftar entust, eða þar til að honum bilaði sjón og hafði hann þá stundað sjóinn í full 51 ár. Jóhannes var á tímabili nokk- uð við útgerð riðinn, hann var hluthafi í m.b. ,Falken“ sem gerð ur var út frá Hafnarfirði og síð- ar varð hann hluthafi í b.v. „Geys ir“, en það skip strandaði við Okrneyjar 1936 á heimleið frá Englandi. Jóhannes Narfason var kvæntur eftirlifandi konu Guð- rúnu Kristjánsdóttur. Þau eign- Tveir bílskúror til leigu 2 samliggjandi bílskúrar í fokheldu ástandi eru til leigu, gegn því að leigutaki taki að sér að fullgera þá. Stærðin er ca. 40 ferm. Tilboð sendist Morgun- blaðinu merkt: „3943“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.