Morgunblaðið - 24.06.1960, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.06.1960, Blaðsíða 5
Föstudagur 24. júní 1960 MORGVNLL.4ÐIÐ 5 V' •-•-.V,* » —o-- — Heyrðu góða mín, kallaði eiginmaðurinn. Mamma þín er í símanum. Á ég að koma með stól handa þér. Árnað heilla 65 ára er á morgun, 25. júní, Sigurður Guðmundsson, Urðar- stíg 6, Reykjavík. Sjötug er í dag Ragnheiður Árnadóttir, húsfrú, Tröllatungu, Kirkjubólshr., Strand. f dag verða gefin saman í hjóna band á Hólum í Hjaltadal, stud. philol Hörn Harðar, Stórholti 21, Rvík og stud. oceon Gunnar Ragnars, Siglufirði. Séra Björn Björnsson, prófastur, framkvæm- ir vígsluna. 17. júní opinberuðu trúlofun sína ungfrú Margrét Sigurðar- dóttir, öldugötu 14. Hafnarfirði og Sigm/undur Eiríksson, pípu- lagnivgarmaður, Kársnesbraut 28 Kópavogi. Tvær stúlkur báru saman bæk- ur sínar um ballið kvöldið áður. — Og þegar við löbbuðum út í skóg, þá var tunglskinið svo bjart og fallegt, að maður gat lesið blöðin eins og í dagsbirtu. — Jemundur minn, sagði hin. — Hvað gerði hann? — Gerði hann? Las blöðin auð- vitað. —o— Snjall náungi í París hefur ný- lega tekið að gefa út vikublað, sem heitir „Blað hinna óánægðu“. Þar birtast eingöngu bréf frá les- endum, sem þurfa að kvarta und- an einhverju, svo sem umferða- löggjöfinni, skattkúguninni, léleg um vörukaupum, dónaskap em- bættismanna, eyðslu og óráðsíu hins opinbera o. s. frv. Blað nöldurseggjanna flýgur út og stækkar stöðugt, svo að allar horfur eru á að hannesáhorninu- stétt Frakka verði brátt útdauð. — Hver er bezti lögfræðingur- inn í bænum? — N.N., þegar hann er ófullur. — En hver er þá sá næstbezti? — N.N. fullur. Mennskur maður brást buldustúlku. Móðir hennar hefndi dóttur sinnar og lét manninn farast i lendingu, en vitj- aði síðan móður hans í draumi og kvað: Hér f vörum heyrist bárusnarl, höld ber kaldan ölduvald á faldi, sveltupiltar söltum veltast byltum, á sólarbóli róla f njólugjólu. Öfgir tefla afl við skeflurefla, sem aS þeim voga, boga, toga, soga! En sumir geyma svima f draumarúmi, sofa ofurdofa í stofukofa. Skrifstofur Loftleiða í Ham- borg hafa nýlega flutt úr Reesendamm 1 í nýtt húsnæði að Esplanade 38/39. Er það skammt frá Alstervatni, í hjarta borgarinnar. Meðfylgj- andi mynd er úr hinni nýju skrifstofu. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla fer írá Rvík kl. 18 á morgun til Norður- landa. Esja er á Austfjörðum. — Herðu breið er á Vestfjörðum. — Skjaldbreið er á Vestfjörðum. — Herjólfur fer frá Reykjavík kl. 21 í kvöld til Vest- mannaeyja. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: — Katla er á leið til Kotka. — Askja er í Napoli. H.f. Jöklar: — Drangjökull er í London. — Langjökull er á leið til Ventspils. — Vatnajökull er í Ventspils. Skipadeild SÍS: — Hvassafell er í Rvík. — Arnarfell losar á Norðurlands- höfnum. — Jökulfell er á leið til Gautaborgar. — Dísarfell er á leið til Hornafjarðar. — Litlafell losar á Aust- fjörðum. — Helgafell er í Þorlákshöfn. — Hamrafell er á leið til Aruba. Eimskipafélag íslands h.f.: — Detti- foss er á leið til Ventspils. — Fjallfoss er á leið til Hamborgar. — Goðafoss er í Hamborg. — Gullfoss er í Kaupmh. — Lagarfoss fer frá Rvík í kvöld aust- ur um land. — Reykjafoss fór frá Rvík kl. 5 í morgun til Akraness. — Selfoss er á leið til New York. — Tröllafoss er í Hamborg. — Tungufoss er á leið til Fur. Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda- flug: Gullfaxi fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:00 í dag, vænt anlegur til baka kl. 22:30. Fer sömu leið kl. 08:00 í fyrramálið. — Hrímfaxi fer til Oslóar, Kaupmh. og Hamborgar kl. 10:00 í fyrramálið. — Innanlandsflug í dag: Til Akureyrar (3 ferðir), Egils- staða, Fagurhólsmýrar, Flateyrar, Hólmavíkur, Hornafjarðar, Isafjarðar, Kirkjubæjarklausturs, Vestmannaeyja (2 ferðir) og Þingeyrar. — A morgun: Til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Húsavíkur, Isafjarðar, Sauðárkróks, Skógasands og Vestmánnaeyja (2 ferð- ir. — Læknar fjarveiandi Bergþór Smári, fjarv. 24. júní til 5. ágúst. Staðg.: Arni Guðmundsson. Bjarni Konráðsson til 18/7. Staðg.: Arinbjörn Kolbeinsson. Björn Gunnlaugsson, læknir verður fjarverandi til 4. júlí n.k. Staðg.: Ol- afur Jónsson, Pósthússtræti 7. Guðjón Klemenzson, læknir Njarð- víkum frá 13. júní til 25. júni. Stað- gengill Kjartan Olafsson, héraðslækn- ir, Keflavík. Guðmundur Eyjólfsson fjarv. 27.—30. júní. Staðg.: Erlingur Þorsteinsson. Halldór Arinbjarnar frá 13/6—1/7. Staðgengill Henrik Linnet. Haraldur Guðjónsson fjarverandi frá 7. júní í mánuð. Staðg.: Karl Sig. Jónasson. Jóhannes Björnsson 18/6—25/6. — Staðg.: Grímur Magnússon. Jón Þorsteinsson fjarverandi júní- mánuð. Staðgengill Olafur Jónsson. Kristján Þorvarðarson verður fjar- verandi til 15. júlí. Staðg. Eggert Stein þórsson. Olafur Geirsson, fjarv. 23. júní til 25. júlí. Ragnhildur Ingibergsdóttir verður fjarverandi til júlíloka. Staðg. Brynj- úlfur Dagsson, héraðslæknir í Kópav. Sigurður S. Magnússon læknir verð- ur fjarverandi frá 14. marz um óákv. tíma. Staðg.: Tryggvi Þorsteinsson, Stefán Olafsson, fjarv. 23. júní til 25. júlí. — Staðg.: Olafur Þorste.'nsson. Víkingur Arnórsson til 1. ágúst. Stað gengill: Axel Blöndal. Dömur Á baðströndina: Baðfatatökur: — Frottesloppar, Sundbolir, Sund- hettur, Sólbaðsbrjóstahaldarar, Bikini. , hjá Báru. íbúð í Koupmannahöfn 4 herb. nýtízku íbúð í Hellerup í Kaupmannahöfn, 20 mín. ferð frá miðborginni, örskammt frá strönd og skóglendi, fæst leigð með innanstokksmunum frá 9. júlí um eins mánaðar skeið, í skiptum fyrir afnot af þokkalegum bíl á Islandi á sama tíma. Sími 17165 á skrifstofutíma. Styrktarfélag vangefinna auglýsir Óskum að ráða skrifstofustúlku nú þegar. Ennfrem- ur unglingspilt til sendiferða. Ráðningartími 3—4 mánuðir. Upplýsingar á Skólavörðustíg 18. Sími 15941 frá kl. 14—17 daglega. Síldarstúlkur Nokkrar duglegar stúlkur óskast 4 síldarstöð á Siglufirði. Fríar ferðir og gott húsnæði fyrir að- komustúlkur. Nánari upplýsingar veita Ráðningar- stofa Reykjavíkur og Kristinn Halldórsson, sími 5 Siglufirði. Iðnaðar- eða skrifstofuhúsnæði Iðnaðar- eða skrifstofuhúsnæði ,sem er hæð ca. 340 ferm. að stærð á mjög góðum stað í bænum er til sölu nú þegar. Uppl.í síma 15508 milli kl. 4 og 7. Sex herb. íbúð í vesturbænum til sölu. Nánari upplýsingar gefur: MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA Finars B. Guðinundssonar, Guðalug Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar Aðalstræti 6, HE. hæð (Morgunblaðshúsinu) Símar: 1-20-02 — 1-32-02 — 1-36-02. Til sölu Þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í nýbyggingu við Stóragerði. Seljast tilbúnar undir pússningu að Nánari upplýsingar gefur: MÁLFLUTNIN GSSKRIFSTOFA Einars B. Guðmundssonar, Guðalug Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar Aðalstræti 6, III. hæð (Morgunblaðshúsinu) Símar: 1 20-02 — 1-32-02 — 1-36-02. Vélbátur til sölu Vélbátur 28 tonna eikarbyggður með nýuppgerðri Caterpillarvél 115 ha. er til sölu nú þegar með mjög góðum skilyrðum. Báturinn er sérstaklega hentugur til dragnótaveiða. FYRIRGREIBSLUSKRIFSTOFAN Fasteigna og verðbréfasala Austurstræti 14, 3. hæð Sími 12469 eftir kl. 5.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.