Morgunblaðið - 24.06.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.06.1960, Blaðsíða 23
Föstudagur 24. júní 1960 MOTtGVNBI.AÐlÐ 23 Ferstikla opnar í endurbætt um húsakynnum Sjálfsafgreiðsla tekin upp til flýtis- auka fyrir ferðafólk VEITINGAHÚSIÐ Ferstikla í Hvalfirði hefur nýlega tekið til starfa, en rekstur þess hef- ur legið niðri yfir vetrarmán- uðina. — Hafa gagngerðar breytingar verið framkvæmd ar á húsakynnum og lóðinni í kring. Blaðamönnum var í fyrradag boðið upp eftir til þess að kynnast starfsemi veitingahússins og virða fyrir sér endurbæturnar, sem þar hafa verið gerðar. Veitingahús hefur verið starf- rækt að Ferstiklu frá stríðslok- um og var upphaflega rekið af Búa Jónssyni bónda, en árið Reksturstap á H amrafelli AÐALFUNDUR Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga var sett- ur að Bifröst í Borgarfirði 22. þ. m. Forstjóri sambandsins, Er- lendur Einarsson, gat þess í skýrslu sinni, að félagsmenn samvinnufélaganna hefðu verið 30.928 í árslok 1959, sem er nokkru fleira en í árslok 1958. Á árinu seldi sambandið innlend ar afurðir fyrir 520 millj. kr., landbúnaðarafurðir fyrir 257,4 millj. kr.„ sjávarafurðir fyrir 172.7 millj. og iðnaðarvörur frá samvinnuverksmiðjum fyrir 93.0 millj. Rekstrarafkoma batnaði á ár- inu. Tekjuafgangur varð 5.2 millj. er varið hafði verið 10.8 millj. til afskrifta. Erlendur Einarsson gat þess í skýrslu sinni að rekstur m.s. Hamrafells hefði gengið mjög erfiðlega á árinu og rekstrartap af helmingshluta Sambandsins orðið 5,6 millj., er 10% hafði ver- ið varið til afskrifta. Er það 1.1 millj. hærra en árið áður. Kveðjur á þjóð- hátíðardaginn Á f>JÓÐHÁTÍÐARDAGINN 17. júní bárust utanríkisráðherra ýtnsar heillaóskir, þ. á. m. frá utanríkisráðherrum Brazilíu, ísra els, Júgóslavíu og Kúbu, frá sendi herrum Finnlands, Hollands, ftal- íu, Júgóslavíu og Spánar, svo og frá ræðismönnum íslands í Barce lona, Sao Paulo, Tel Aviv og Genf. (Frá utanríkisráðuneytinu). • 140 stúdentar frá Cambridge eru famir vestur um haf með Boeing 707 farþegaþotu tii sum- ardvalar í Kanada, þar sem þeir munu bæði starfa ogr ferð'ast um i 3 mánuði. FARIN verður ierð í Landmanna laugar á vegum ferðadeiidar Heimdallar næstkomandi laug- ardag. Lagt verður af stað frá Valhöll við Suðurgötu kl. 2 eftir hádegi en komið til baka að kvöldi sunnudags. Nánarj upptýsingar gefnar á skrifstofu Heimdallar milli 2—6 í dag og á morgun (simi 17102). 1952 urðu eigendaskipti, og var þá þegar hafizt handa um breyt- íngar og endurbætur, en á þessu vori hefur innri búnaður veit- ingahússins tekið algerum stakka skiptum. Hitakerfi hússins hefur verið endurnýjað, svo og •af- lagnir og ljósaútbúnaður. Nýir og stórir gluggar hafa verið settir á framhlið hússins, allt hefur ver- ið málað utan og innan, og veit- ingasalurinn innréttaður með harðviði og spónflísum. Vafnings jurtir teygja sig upp eftir veggj- um salarins og blóm hafa verið sett niður á blettinum framan við húsið, og verður þar aðstaða fyr- ir gesti að taka sólbað. Eigendur Ferstiklu leggja mikla áherzlu á fljóta og góða afgreiðslu og hafa í þeim tilgangi Mennirnir fundnir Framhald af bls. 24. Niels Underbjerg skýrt frá því í neyðarskeytinu, að hann og menn hans væru að yfirgefa skipið og myndu fara upp á ísinn. Fregnum bar ekki saman um hve m.argir menn voru á selveiðaranum, ým- ist eru það sex eða 10 sem talað er um í fréttastofufregnum. Héðan frá Reykjavík fór dansk ur Catalínaflugbátur um klukk- an 9 í gærmorgun, til þess að reyna að finna skipbrotsmenn- ina. í gærkvöldi bárust þær fregn ir frá áhöfn flugbái>is, sem þá var lentur á Kulusuk flugvelli við Angmagssalik, að dimmviðri hefði komið í veg fyrir leitina. Þessi danski selveiðari sem er 50 tonna skip mun hafa verið við Kangerdlugssuaq-f jörð þegar slys ið varð. Herma Reutersfregnir að í síðustu skeytum Underbjergs skipstjóra á Kiki, hafi skipstjór- inn lýst ástandinu um borð í skipi sínu með þeim orðum að skip hans hafi lent inni í rekísnum, sem hafi skollið á skip h'ans. Var ísinn þá búinn að skrúfa skipið svo niður að framan að stefnið var komið á kaf, en afturstefnið var þá komið á loft og stóð skrúf- an hátt upp úr sjó. Underbjerg skipstjóri sagði að það væri von sín og manna sinna tekið upp sjálfsafgreiðslukerfi, fyrir farþega áætlunarbifreiða, og hefur þessi nýjung það í för með sér að veitingar verða mikl- um mun ódýrari heldur en ef þær væru bornar á borð í saln- um. Telur veitingastjórinn, Magnús Sumaliðason, að 30 manna bíll þyrfti ekki að hafa lengri viðdvöl, en 20 mínútur, þó að allir farþegar keyptu þar veitingar á þennan hátt. Alls rúmar salurinn um 90 manns. Úti á hlaðinu er stór söluskúr og eru þar á boðstólum alls kyns vörur fyrir ferðafólk, m. a. nið- ursoðnar matvörur og ýmir vara- hlutir í bifreiðar, auk olíu og bensíns. Fullkomið hátalarakerfi hefur verið lagt um allan staðinn fyrir stjórnendur langferðabif- reiða til þess. að tilkynna brott- för sína. — Þess skal að lokum getið, að veitingahúsið Ferstikla verður opið allan ársins hring l héðan í frá, en hingað til hefur I það einungis starfað að sumar- lagi, og verður þetta eðlilega til • mikilla hagsbóta fyrir þá sem leið eiga um Hvalfjörð að vetri til. — að komast yfir ísspöngina með léttibátinn frá skipinu, og freista þess að komast á honum upp að strönd Grænlands. Hann taldi fjarlægðina frá ísnum að strönd- inni um 10 mílur. Á þessum slóð- um ganga há björg í sjó fram, mikið ísrek er þar og sægur blind skerja. Laust fyrir miðnætti var kom- ið gott veður á leitarsvæðinu og háskýjað. Annar danskur Kata- línubátur var þá kominn til sög- unnar. Hafði hann verið á Straum. firði, kom til Kulusuk og tók elds neyti og hélt svo einnig til leitar. — Þá voru og rétt ókomnar til Keflavíkur tvær björgunarvélar frá bandaríska flughernum. Þær komu frá Prestwick og héldu skömmu síðar til Grænlands og taka þátt í leitinni. önnur er af Skymaster-gerð, búin fullkomn- ustu leitartækjum. Hin er einnig sérlega útbúin, Albatross-flug- bátur, sem gæti lent á auðum sjó á leitarsvæðinu, því þar er nú stillt veður. Norska fréttastofan sagði, að norsk flugvél, sem vinnur að ljós myndun selastofnsins við A- Grænland, tæki einnig þátt í leit inni. Sú vél var þó á Reykja- víkurflugvelli enn í gærkvöldi. Varðskipið Öðinn, sem statt var fyrir norðan þegar fréttin barst, hélt áleiðis að ísnum, '>n sneri aftur um miðnættið. — SUS-síðan Framh. af bls. 17 árangurinn. Persónuleg kynning þáttakenda innbyrðis er tvímæla laust mjög gagnleg svo og það að kynnast viðhorfum annarra þjóða til heimsmálanna. Umræður voru mjög fjörugar allan tímann og voru menn ófeimnir við að láta skoðanir sínar í ljós. Leitazt var við að jafna allan skoðanamismun með samkomulagi og tókst það ágæt- lega þrátt fyrir það að þátttak- endur voru úr mjög ólíkum stjórn málaflokkum. En eitt var öllum þátttakendúm sameiginlegt, að allir vildu þeir virða og vernda lýðfrelsi og vestræna menningu með samvinnu lýðræðisþjóðanna. ★ • Þess má að lokum geta, að i Chicago var tekinn upp tveggja tíma sjónvarpsþáttur um stjórn- mál í Evrópu og Ameríku. — Ræddust þar við 8 þátttakenda í ráðstefnunni, sex frá Evrópu, einn frá Bandaríkjnum og einn frá Kanada. Guðmundur Garð- arsson var einn þeirra, sem þai komu fram og var honum m. a. falið að flytja lokaávarp fyrii hönd þátttakenda allra. Þætti þessum verður sjónvarp- að um Bandaríkin í dag á vegum ABC sjónvarpsstöðvarinnar. B. B. 2 hjólkoppar af V.W. töpuðust síðdegis í gær milli Keflavíkur og Reykjavíkur, ásamt skrauthringjum í felgur. Vinsamlegast skilist Sverri Þórðarsyni, Morgun- blaðinu. — Þakka innilega öllum sem sýndu mér vinsemd og hlý- hug á 70 ára afmæli mínu 14. þ.m. Ingibjörg Jónsdóttir, Akureyri. Ég þakka hjartanlega öllum þeim er glöddu mig með 1 heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á afmælisdegi mínum 5. júní 1960. — Guð blessi ykkur öll. Guðbjörg Andrésdóttir. Innilega þakka ég samstarfsfólki mínu og öðrum vin- um og vandamönnum fyrir viná,ttu og rausn á sjötugs- afmæli mínu 8. júní s.l. Einar Sigurðsson, Guðrúnargötu 7. Innilega þakka ég öllum sem á margvíslegan hátt glöddu mig á 75 ára afmælisdegi mínum 14. júní. Kærar kveðjur. Júníus Jónsson. Þakka hjartanlega öllum er glöddu mig á einn eða annan hátt á 80 ára afmæli mínu þann 27. maí s.l. Guð blessi ykkur öll. Oddgeir Þorkelsson, Ási. LOVÍSA JÓNSDÓTTIR Brekkustíg 6, andaðist 22. þ. m. á Elliheimilinu Grund. — Jarðarförin ákveðin síðar. Systkini hinnar látnu. Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir og afi GUNNAR JÖNSSON kaupmaður, lézt að heimili sínu Hverfisgötu 69, 22. þ. m. Börn, tengdabörn og barnabörn. Konan mín og móðir okkar RANNVEIG S. JÓNSDÓTTIR Þernumýri, Vesturhópi, sem andaðist að Hrafnistu 19. júni verður jarðsungin að Breiðabólstað Vesturhópi 26. júní kl. 2 e. h. — Kveðjuat- höfnin verður í Fossvogskirkjunni kl. 10,30 f. h. laugard. Minningarathöfninni verður útvarpað. Valdimar Jónsson og dætur. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi HANNES JÓNSSON frá Spákonufelli, Vesturgötu 5, Hafnarfirði, sem andiðst 17. júní verður jarðsunginn frá Fríkirkj- unni Hafnarfirði laugardaginn 25v júní kl. 10,30 fyrir hádegi. Sigurborg Sigurðardóttir, börn og tengdaböm. Innilegustu þakkir öllum þeim, er sýndu okkur samúð og velvilja í sambandi við andlát og jarðarför dóttur okkar DAGMAR HULD Ennfremur þökkum við læknum, hjúkrunarfólki og öllum þeim öðrum, sem léttu henni baráttuna síðustu vik- urnar, með lipurð og hlýju. Patreksfirði í júní 1960. Bára Halldórsdóttir, Árni G. Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.