Morgunblaðið - 24.06.1960, Side 11
Fðstudagur 24. júní 1960
MORGVNBLAÐIÐ
u
Pcll Jónsson írú Selldtrum
Bognar aldrei, brestur í
bylnum stóra seinast.
HARÐUR, ákveðinn, áræðinn og
þó mildur. Og eitt enn að gefast
ekki upp. Halda áfram.
Þannig má í stuttu máli lýsa
Páli í Sellátrum og nú þegar
hann er allur fer ekki hjá því að
í vinahópi hefur sá strengur
brostið, sem eftirsjá var að og
erfitt er að bæta. Persónuleiki
Páls, svör hans, athuganir og
áform voru þannig að þau setja
ósjálfrátt svip í hugi samferða-
mannanna, svip er ekki gleym-
ist á stundinni.
Að hverju sem Páll gekk var
hann hinn sami. Hvort fengizt
var við landbúnað, sjávarútveg
eða iðnað. Þar voru ekki fáim-
tökin. Ég man hann á hinum
snyrtilega bæ hans Sellátrum í
Reyðarfirði. Gleymi ekki komum
mínum þangað og það fer ekki
milli mála að þangað var gott
_ að koma. Þær minningar eru í
mínum hug sveipaðar þeim
ævintýrablæ, sem er svo inni-
legur og mikill yfir allri minni
bernsku.
Skipstjóri var hann öruggur
og fengsæll á þess tíma mæli-
kvarða. Hann var um skeið skip-
stjóri á bát sem ég vann við og
það var hressilegur blær yfir
allri vinnu þar, enda sveif þar
andi Páls yfir vötnunum.
Það er fallegt á Sellátrum
eins og á svo mörgum jörðum
landsins. Sú jörð liggur við sæ
og voru þar sótt verðmæti í tíð
Póls bæði í greipar Ægis og
fósturmoldarinnar. — Snyrti-
mennskan til sjós og lands var
þar aðallinn.
Páll þekkti bæði hverfulleik og
hamingju lífsins. Hann þekkti
vel að baráttan kostar oft fórnir
og erfiðj. Stundum var lítið upp
úr erfiðinu eins og gerist og geng
ur og fengur misjafn. En hvort
sem vel gekk eða illa, var æðru-
leysið hið sama. Ekki verið að
kippa sér upp við smámunina.
Páll skipar sérstöðu í hug
mínum og því get ég ekki annað
en minnzt hans í nokkrum orð-
Morgþætt starf Dýraverndunar-
félags Skagafjorðor
Sauðárkróki 9. júní ’60: —
AÐALFUNDUR Dýraverndunar-
félags Skagafjarðar var haldinn
á Sauðárkróki 26. maí s. 1.
Formaður félagsins Ingimar
Bogason skýrði frá starfsemi fé-
lagsins á s. 1. ári.
Félagið hafði fengið mörg við-
fangsefni til meðferðar á árinu.
Margar umkvartanir höfðu bor-
izt frá ýmsum einstaklingum, og
beðið var um aðstoð félagsins,
til verndar dýrum, m. a. eftirlit
með friðunarákvæðum um
verndun fugla, leitað aðstoðar
um björgun á fénaði á flóðasvæði
og ein skrifleg kæra hafði bor-
izt til stjórnar félagsins út af
slæmu útliti á búfé hjá manni
ónefndum. Þá hafði félagið í
samráði við löggæzlueftirlitið, eft
irlit með reglugerðarákvæðum
um aðbúnað á bifreiðum sem not
aðar voru til fjárflutninga og að
sá umbúnaðar væri sem bezt í
samræmi við reglugerðarákvæði,
var reglugerðinni útbýtt til bif-
reiðarstjóra, þeirra er fjárflutn-
inga önnuðust. Mótmælt var
uppsetningu á pípuhliði er sett
var á akbraut heim að hinu nýja
sjúkrahúsi við Sauðárkrók.
Stjórn félagsins telur að grinda
hlið þetta sé stórháskalegt búfén
aði manna þar sem bilið á milli
pípnanna er 9,5 cm. og skepnur,
sem út á þessar grindur stíga,
falla niður á milli pípnanna, sem
liggja í föstum lykkjum.
Stjórn félagsins bar fram mót
mæli 20. sept. s. 1. við formann
sjúkrahúss-stjórnar og bæjar-
fógetann á Sauðárkróki. 1 mót-
mælabréfinu benti stjórnin á
aðra gerð af grindahliðum, sem
sé rúllugrindahiiðum sem al-
þekkt eru á mæðiveikivarnalín-
um víða um land, og stórum
minni hætta stafar frá.^
Stjórn félagsins hefur enn
ekki fengið því framgengt að
grindahliði þessu hafi verið
breytt, en vonast eftir að það mál
vinnist.
Nauðsynlegt er að allir dýra-
vinir standi á móti því, kröftug-
lega að slík pípuhlið verði fram-
leidd og sett upp, hvar sem er á
landinu.
Félagið sendi formann sinn
eem fulltrúa á ráðstefnu Sam-
bands Dýravemdimarfélaga ís-
lands, sem haldin var 8. nóv. s.l.
(1959). Vegna fjárskorts sá félag-
ið sér ekki fært að senda fleiri
fulltrúa, en átti rétt á sæti fyrir
7 fulltrúa á ráðstefnunni.
í lok ráðstefnunnar afhenti
gjaldkeri sambandsstjórnar for-
manni D. S. ca. kr. 1600,00 sem
óafturkræft styrktarframlag frá
S. D. í. til varnarráðstafana
vegna fjárskaðanna í „Skorum“
í Tindastól. Á sambandsstjórn
góðar þakkir skilið fyrir þetta
framlag. — Dýraverndunarfélag
Akureyrar hefur einnig styrkt
með fjárframlagi á s. 1. ári björg-
unar- og varnarráðstafanir þær
sem D. S. hefur haft á hendi að
undanförnu.
Á síðast liðnum vetri, rétt fyr-
ir jólin barst félaginu höfðingleg
peningagjöf, kr. 2000,00, frá
systrunum Sigurlaugu og Guð-
rúnu Björnsdætrum frá Veðra-
móti, en þær eru báðar búsettar
í Reykjavík. Gjöf þessi átti að
vera til minningar um bróðir
þeirra Guðmund Bjömsson, sem
lengi var búsettur á Sauðárkróki,
en flutti siðast til Reykjavíkur
og andaðist þar. Gjöfinni átti að
verja til líknar einhverju því
dýri sem í nauðum kynni að vera
statt, þá væri tilgangi gefendanna
náð.
Formaður félagsins ritaði systr
unura þakkarbréf fyrir þann
mikla velvilja og hlýhug, sem fé-
laginu og starfi þess væri sýnt
með gjöfinni.
Á þessum aðalfundi félagsins
gengu úr stjórninni, að þessu
sinni, dýralæknarnir Guðbrand-
ur Hlíðar og Guðmundur Andrés
son. Voru þeim fluttar þakkir
fyrir stjórnarnefndarstörf á s.l.
ári. —
Þar sem Guðbrandur Hlíðar
mun á næstunni hverfa af landi
brott og flytja til Svíþjóðar, setj
ast að í Stokkhólmi og taka þar
við mikilvægu starfi, þá flutti
fundurinn honum sérstakar þakk
ir fyrir störf hans hér, og þann
góða áhuga og velvilja sem hann l
hefur á öllum málefnum félags-
ins, og fyrir þann ríka skilning
sem hann hefur á öllum málefn-
um sem snerta dýravernd. Að
slíkum mönnum er mikil eftir-
sjá úr starfi. Fundurinn árnaði
honum allra heilla í framtíðinni.
Stjórn Dýraverndunarfélags
Skagafjarðar skipa nú: Ingimar
Bogason, formaður. Brynjólfur
Danivalsson, varaformaður. Árni
Hansen, ritari. Sæmundur Her-
mannsson, gjaldkeri. Svavar
Helgason. meðstjórnandi.
— Jón.
i
um þegar göngunni er nú lokið.
Þakkað góða og ánægjulega sam-
fylgd.
Ég á óneitanlega margar minn-
ingar um svo stórbrotinn mann
eins og Páll var. Hann var af
góðu bergi brotinn. Byrjaði ung-
ur sitt ævistarf. Eins og þá tíðk-
aðist fengu börnin ekki lengi að
sitja auðum höndum í foreldra-
húsum, alla krafta varð að nýta
við vinnuna. Vélaöldin var í
fjarska. Og þrek Páls var ekki
sparað til átaka. Skóli lífsins
var honum drjúgur. Ég tel víst
að hann hefði hafnað nútíma-
skólagöngu fyrir hina, ef hann
hefði átt um annað tveggja að
velja. Manndómur hans bauð
honum slíkt.
Páll var fæddur 18. des. 1872
og því kominn nær níræðu er
hann lézt. En allan sinn aldur
var hann sívinnandi og fram í
banaleguna stundaði hann starf
sitt í Kassagerð Reykjavíkur.
Annað var honum ekki samboðið.
Páll var kvæntur Sigríði
Björnsdóttur, mikilli mannkosta-
konu. Hún var honum samhent
í öllu og lán þeirra var margfalt.
Gestrisni og greiðvikni þeirra
var eins og íslenzk gestrism í
öndvegi. Ljúfmennska og alúð
húsfreyjunnar voru til fyrir-
myndar.
Þeim varð eigi bama auðið, en
í skjóli þeirra ólust börn upp, þar
' á meðal sonur Páls er hann átti
áður, Helgi, nú búsettur á Eski-
firði.
Heimili þeirra stóð lengi á
Grettisgötu 45 1 Reykjavík. Þar
bjó Páll til æviloka.
Eins og gengur og gerist verða
heimsóknir fátíðari í Reykjavík
og því fór svo að ég var þar ekki
daglegur gestur, enda búsettur í
fjarlægð. En þeim mun oftar var
komið til þeirra á Sellátrum og
á Éskifirði, meðan þau voru þar.
Þaðan eru ógleymanlegar minn-
ingar.
Ég vil svo að seinustu þakka
Páli allar góðar og gamlar sam-
verustundir. Þakka prýðis sam-
fylgd, bros og gólátlega glettni.
Hann var traustur til hinztu
stundar og beygði ekki af
og rifaði ekki segl meðan þess
var nokkur kostur. Hjá honum
var strikið öruggt og ég veit.að
siglingin hefur verið glæst til
heimahafnar.
Blessuð sé minning hans.
Árni Helgason.
— Erle.nt yfirlit
Framh. af bls. 8
höfðu iyrt upp landamærabóm-
unni, en felldu hana niður jafn-
skjótt og ræningjabíliinn var
kominn austur fyrir.
Fregnir bárust síðar með aust-
ur-þýzkum lögreglumönnum sem
flýðu land, af hörmulegri með-
ferð og pyndingum á Walter
Linse. Það var enginn vafi á því,
að sjálf hin svokallaða ríkis-
stjórn Austur-Þýzkalands hafði
staðið að og skipulagt þetta
glæpaverk.
Hitt var ekki fullljóst, að fyrir
mælin komu jafnvel lengra að.
Vesturveldin mótmæltu mann-
ráninu við hernámsstjóra Rússa
í Austur-Berlín, en hann svaraði
hvað eftir annað, að hann hefði
ekki hugmynd um hvarf Walters
Linse. Rússar vissu ekkert í mál-
inu.
En nú fyrir nokkrum dögum
barst þýzka Rauða krossinum
stutt tilkynning frá Rauða krossi
Rússlands. Hún skýrði frá þvi,
að Walter Linse hefði dáið í
fangelsi 15. desember 1953, en
ekki í Austur-Þýzkalandi, heldur
í rússnesku fangelsi austur í
Moskvu.
Þegar Walter Linse var rænt
var hann 48 ára, framtakssamur
atorkumaður í blóma lífsins og
ekki var vitað til að hann væri
neitt heilsutæpur. En eftir 17
mánaða dvöl í austur-þýzkum og
rússneskum fangelsum var líf
hans slokknað.
Og svo leyfa sumir sér að
halda því fram, að glæpalýður,
sem stjórnar slíkum hermdar-
verkum eigi eftir að frelsa heim-
inn.
Þorsteinn Thorarensen.
Til sölu nú þegar
G. M. C. 10 hjóla trukkur, model ’52 í mjög góðu
lagi, með nýium sturtum og gálga. Einnig Daimont
sverari gerð. Mjög lítið ekinn og í góðu lagi. Upp-
lýsingar í síma 15113 kl. 4—6 e. h.
Helmasaumur
Vanar saumakonur óskast til að taka að sér heima-
saum nú þegar. Hátt kaup. Upplýsingar í síma 17118
í dag milli 3 og 7.
Nauöungaruppboð
það, sem fram átti að fara í dag á húsinu nr. 5 við
Smiðjustíg, her í bænum, talin eign Halldórs Indriða-
sonar o. fl., fellur niður.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
N auöungaruppboö
sem auglýst var í nr. 15.—-17. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins á b.v. ísborg Í.S. 250, fer fram eftir kröfu Lands-
banka íslands hér í skrifstofunni þriðjudaginn 28.
júní n.k. kl. 13,30. (
Bæjarfógetinn á Isafirði 20.6. 1960.
N auöungaruppboÖ
sem auglýst var í nr. 15.—17. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins á hraðfrystihúsi ísfells h.f., fer fram eftir kröfu
Landsbanka tslands hér í skrifstofunni þriðjudaginn
28. júní n.k. kl. 13,30.
Sýlumaðurinn í Isafjarðarsýslu, 20. júní 1960.
Tvær afgreiðslustulkur
geta fengið atvinnu í kjörbúðinni Austurveri. önnur
1. júlí og hin 1. ágúst. Óskum einnig að ráða konu
til starfa í söluturni 1. júlí n.k. Vaktavinna.. Aðeins
röskar og snyrtilegar stúlkur koma til greina.
, Upplýsingar á skrifstofunni, Vesturgötu 2.
Austurver hf.
Sími 11260.
V E L 0 X SokkaviHgeLavéLr
Gamaft verð.
HAWES ÞORSTEIIXISSOIM & CO