Morgunblaðið - 30.06.1960, Page 1
20 síður
47. árgangur
^45. tbl. — Fimmtudagur 30. júní 1960
Prentsmiðia Morgunblaðsins
Flotamálaráðu-
neytið skýrir
rangt frá töku
Northern Queen
!
Báðir abilar vopnadir skambyssum
um borð i togaranum
SAMKVÆMT Reuters-fregn- Þór hefðu farið um borð í tog-
um frá Lundúnum síðdegis íarann. Þeir hefðu verið með
gær, hafði brezka flotamála-
ráðuneytið þá fyrr um daginn
lýst yfir pví, að menn úr ís-
lenzku Landhelgisgæzlunni,
sem fóru um borð í togarann
„Northern Queen“, hefðu
beint skammbyssum að skip-
stjóra og loftskeytamanni tog-
arans. Ennfremur sagði tals-
maðurinn, að samkomulag
hefði að lokum náðst um að
lið Landhelgisgæzlunnar yfir-
gæfi hinn brezka togara.
RANGAR UPPLÝSINGAR
Mbl. bar þesei atriði undir
Gunnar Bergsteinsson, sem gegn-
ir störfum forstjóra Landhelgis-
gæzlunnar í fjarveru Péturs Sig-
urðssonar, og leitaði jafnframt
nánari upplýsinga hjá -honum
um málið.
Hafði Gunnar þá fengið ítar-
legri frásögn bjá undirmönnum
sinum af tilraun „í>órs“ til að
færa lögbrjótinn til hafnar — og
kvað bæði þessi atriði í ummæl-
um flotamálaráðuneytisins vera
röng.
BYSSU EKKI MIÐAÐ
A NEINN
Skýrði Gunnar Bergsteins-
son svo frá, að sjö menn af
skammbyssur og tveir þeirra
auk þess merkjabyssur. Byss-
unum hefði hvorki verið beint
að skipstjóra, sem hafði læst
sig inni í íbúð sinni, né loft-
skeytamanni togarans.
Hins vegar hefði einn
varðskipsmannanna tekið
skammbyssu úr belti sínu
— án þess að miða á nokk-
urn mann —- þegar togara-
menn höfðu tregðazt við að
færa sig til á þilfarinu.
Sjóliðarnir frá herskipinu
„Duncan“ voru alls 18 um
borð í togaranum, sagði Gunn
ar ennfremur — þar af 5 með
skammbyssur en hinir með
kylfur.
EKKERT SAMKOMULAG
— HELDUR HÖRÐ
MÓTMÆLI
í sambandi við þau ummæli
talsmanns flotamálaráðuneytis-
ins, að varðskipið hefði að lokum
fallizt á að draga sig í hlé, sagði
Gunnar Bergsteinsson, að skip-
herrann á „Þór“ hefði einmitt
mótmælt aðgerðum herskipsins
harðlega, eins og tekið var fram
í fréttatilkynningu Landhelgis-
Framh. á bls 2.
:
Reyksúluna leggur upp af skólahúsinu að Eiðum, sem brann i gær. Til hægri sést í gafl íþrótta-
hússins. — Sjá frétt á blaðsíðu 19.
berasí aö for-
ráðamönnum S. I. S.
Enn nýr þáttur olíumálsins að koma ■ Ijos
MBL. er kunnugt um, að
böndin eru nú mjög tekin að
berast að forráðamönnum
Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga í sambandi við
rannsókn olíumálsins. Munu
nú liggja fyrir gögn u m það,
að á annað hundrað þúsund
dollarar af tekjum, sem Olíu-
félagið h.f. hefur haft vegná
Kínverjar gera herhlaup
inn f smáríkið Nepal
Viðurkenna að uppreisnarástand
riki i Tibet
Katmandu, 29. júní. (Reuter)
TVÖ þúsund manna kín-
verskur herflokkur réðist sl.
sunnudag frá Tíbet inn yfir
landamæri smáríkisins Nepal.
Þegar nepalskir landamæra-
verðir snerust gegn þeim til
að benda þeim á að þeir færu
með ólögum og mótmæla
þessum aðgerðum, skutu Kín-
verjar nepalskan liðsforingja
til bana og handtóku 16 landa-
mæraverði og tóku nokkra
hesta þeirra herfangi.
Mótmæli
Ríkisstjórn Nepals hefur ákveð
ið ao senda kínversku stjórninni
harðorð mótmæli vegna þessa
brots gegn sjálfstæði og landa-
mærum smáríkisins. Segir tals-
maður nepölsku stjórnarinnar, að
ástandið parna sé mjög alvar-
legt. Óttast Nepalar, að Kínverj-
ar ætli að innlima hluta Nepals
með valdi i Kínaveldi.
Kínverska stjórnin hefur við-
urkennt, að hersveitir hennar
hafi farið inn á hlutlaust svæði
á landamærum Tíbets og Nepals
til að elta uppi tíbetska skæru-
liða. Segja Kínverjar að herliðið
verði aftur dregið til baka, þegar
skæruiiðaflokkarnir hafa verið
sigraðir. Þessi yfirlýsing Kín-
verja er talin fyrsta viðurkenn-
ing þeirra á því að mikil og hörð
uppreisn er nú í Tibet
Herbúnaður á hlutlausu svæði
Átök þessi urðu í Mustang-
héraðinu, sem er ógreiðfærasta
og afskekktasta byggða svæðið í
Nepal. Fyrir skömmu gerðu
Kínverjar og Nepalstjórn samn-
ing um að á landamærum Nepals
og Tíbets skyldi vera 12mílna
breitt hlut.laust og vopnlaust
svæði og skyidi báðum aðiljum
bannað að flytja herlið þangað.
Af síðustu fregnum frá Nepal
er það ljóst, að kínverskir komm-
únistar hafa nú svikið þennan
samning. Gexðist það á sunnu-
dagsmorgumnn, að eftirlitshópur
nepalskra iandamæravarða fór
til könnunar inn á hlutlausa
svæðið. Komu þeir þá að 2000
manna kínversku liði, aðeins 700
metra frá nepölsku landamærun-
um og þannig langt inni á hlut-
lausa svæðinu. Kínverska her-
liðið hafði búið vel um sig í
virkjum og skctgröfum og virtist
hafa verið þarna lengi.
Framh. á bls. 2.
leigu á olíugeymum í Hval-
firði, hafi verið færðir yfir
til Sambandsins, sem notaði
þá á ólöglegan hátt, m. a. til
innflutnings á bifreiðum. OIíu
geymar þessir hafa undan-
farin ár verið leigðir varnar-
liðinu og Olíufélagið fengið
leiguna greidda í dollurum.
Með vitneskjunni um þetta
bætist nýr þáttur við olíu-
málið, sem áður var þó orðið
ærið víðtækt. Fyrrgreind
dollaraupphæð svarar a. m. k.
til fjögra milljóna ísl. króna.
Mbl. leitaði í gærkvöldi
staðfestingar á þessari frá-
sögn hjá Guðmundi Ingva Sig
urðssyni, sem er eins og kunn
ugt er annar af tveimur rann
sóknardómurum olíumálsins.
Taldi hann ekki tímabært að
birta frekari fréttir af rann-
sókn málsins á þessu stigi,
en vildi hvorki staðfesta né
neita frásögn blaðsins.
Blaðinu er kunnugt um að
miklar yfirheyrslur hafa stað
ið yfir undanfarið í olíumál-
inu. M. a. hafa komið fyrir
rétt aðalforstjóri SÍS og for-
stjóri véladeildar, sem ann-
ast bifreiðainnflutning.
Nýtt gervilungl
LOS ANGELES 29. júní. (NTB)
Bandaríkjamenn skutu enn einu
gervitungli á loft í kvöld. Það
var tólfta gervitunglið af svo
nefndri Discover tegund. Því var
skotið upp frá Vandenberg-bæki
stöð á Kyrrahafsströnd og beint
í suðurátt. Gervitunglið mun
svífa í sporbaug yfir bæði heim-
skaut jarðar. Innan skamms
verður gerð tilraun til að láta
vélahylki úr tunglinu falla til
jarðar í fallhlíf.
Frelsishátíð í Kongo
LEOPOLDVILLE í Kongó, 29.
júní — (Reuter) — Það er uppi
fótur og fit í Leopoldville, sem
verður á morgun höfuðborg hins
nýja og sjálfstæða svertingja-
ríkis Kongós. Drífur mikinn
mannfjölda að til að vera við-
staddir hátíðahöldin á morgun.
Þangað eru komnir gestir frá
fjölda landa um ailan heim.
í dag kom Baldvin Belgíukon-
ungur til borgarinnar, en Eysk-
ens forsætisráðherra og de
Wigny utanríkisráðherra, sem
komnir voru áður til Kongós,
undirrituðu í dag vináttu- og
samstarfssamning Belgíu og
Kongós. Fyrir hönd Kongós und-
irritaði samninginn Lumumba
forsætisráð'ierra. Það er efni
samningsins, að belgískt herlið
skuli enn vera um sinn í Kongó,
að Belgíumenn aðstoði við fram-
kvæmd utanríkismála og að
Belgía veiti hinu nýstofnaða ríki
fjárhags- og tækniaðstoð.
Hið formiega valdaframsal fer
fram um bádegisleytið á morg-
un. Eftir pað fer fram hersýning
og efnt verður til mikillar skrúð-
göngu um aðalgötur Leopoldville.