Morgunblaðið - 30.06.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.06.1960, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 30. júní 1960 Kommúnistar ráðasf að ósekju á Landhelgisgæzluna í ÞJÓÐVILJANUM í gær er ráðizt að Uandhelgisgæzlunni fyrir „linlega framgöngu“. Til- efnið er það, að þess hefur ver- ið gætt að taka ekki brezkan togara, fyrr en öruggt mátti telja að sanna mætti sök hans. Á þann hátt hefur Landhelgis- gæzlan forðað því, að hægt væri að saka ísliendinga um óbilgirni og vafasama vald- beitingu. Hins vegar tók Land helgisgæzlan að sjálfsögðu í fyrradag þann togara, sem ó- umdeilanlega var langt innan fiskveiðitakmarkanna. Með stillingu sinni og skyn- samlegum athöfnum hefur Landhelgisgæzlan enn orðið okkur til sóma og málstað okk- ar til hins mesta gagns, því að augljóst er nú öllum, að það voru Bretar, sem rufu „vopna- hlé“ það, sem þeir sjálfir höfðu boðað að mundi a.m.k. standa fram í miðjan næsta mánuð. Gremja Þjóðviljans í garð Landhelgisgæzlunnar er aug- Ijóslega sprottin af því, að hún hefur gætt þess að efna ekki til átaka í þeim tilfellum, þeg- ar erfitt kynni að hafa reynzt að sanna sök togaranna. Á þann hátt hefur verið komið í veg fyrir að hatrammar deil- ur og gagnkvæmar ásakanir risu milli íslendinga og Breta um það, hvorir hefðu átt frum kvæðið að því að stofna til nýrra átaka. Engum orðum þarf að eyða að því, að slíkt hefði getað stórskaðað hinn ís- lenzka málstað, og samúð þá, sem við njótum víða um heim. Hins vegar fer ekki milli mála, að einmitt þetta hefðu komm- únistar talið allra ákjósanleg- ast, því að slíkar ásakanir hefðu verið líklegastar til að spilla samskiptum okkar og Breta. Þessi framkoma kommún- ista er enn ein sönnunin fyrir því, að þá varðar ekkert um málstað okkar, ef hægt er að efna til árekstra og illdeilna, sem húsbændur þeirra geta hagnýtt sér til áróðurs. Landhelgisgæzlunni ber hins vegar að þakka sérstaklega, eins og Mbl. minntist á í gær, að hún sltyldi ekki falla fyrir þeirri freistni að leggja til atlögu við togara, sem að und- anförnu hafa verið að ögra varðskipunum á 12 mílna mörkunum og jafnvel rétt inn- an þeirra. Heldur gæta þess vel, að fyrsti togarinn, sem tekinn væri, yrði örugglega sekur fundinn. Með athöfnum sínum og töku Northern Queen í fyrra- dag hefur Landhelgisgæzlan enn • leyst af hendi frábær störf, á sama hátt og öll störf önnur frá því að nýju fiskveiði takmörkin gengu í gildi 1. september 1958 og Bretar hófu veiðar í landhelgi. Kartöfluskortur i landinu næstu vikur afleiðing þess að Drangajök.ull fórst — VIÐ töldum að tekizt hefði að kaupa til landsins nægar kart öflubirgðir unz hérlendar kæmu á markaðinn og að skipin, sem þær flyttu, myndu koma með þær með reglulegu millibili og að ekki kæmi til þess að landið yrði kartöflulaust. Nú hefur þetta farið á annan veg og fyrir sjáanlegt að landið verður með öllu kartöflulaust í tvær vikur eða þar um bil. Þannig komst Björn Guðmunds son skrifstofustjóri Grænmetis- verzlunarinnar að orði við M'bl. í gær. Svo sem kunnugt er var Drangajökull með kartöflufarm er hann fórst í fyrradag. Þær birgðir af nýjum kartöfl- um sem töpuðust með Dranga- jökli hefðu ásamt dálitlu magni af dönskum kartöfium, einnig nýrri uppskeru, sem von er á með Gullfossi, nægt landinu öllu í hálfan mánuð. Síðar koma meiri birgðir frá Danmörku og loks 500 tonn frá Póllandi, en — Enn sild Frh. af bls. 20. síldar frá því á laugardaginn. Þá fylltist höfnin þar af skipum og löndunarstöðvun varð. — í gærkvöldi voru enn í höfninni 10 skip, sem biðu löndunar. Síldarverksmiðjan er nú farin að vinna með fullum afköstum 6000 mál á sólarhring. Og innan fárra daga verður hægt að taka á móti síld til vinnslu í hina nýju ristóru stálgeyma, sem rúma 37.000—38.000 mál síldar. 'Meðan löndumarstöðvunin hef- ur staðið yfir á Raufarhöfn, hafa allmörg skip farið með síld á Austurlandshafnir, Neskaupstað og Seyðisfjörð og i gærkvöldi byrjaði Vopnafjarðarverksmiðj- an að taka á móti síld til vinnslu. Til Siglufjarðar höfðu 15 skip farið. Ekkert hefir verið saltað af síld frá því á mánudag ★ SEYÐISFIRÐI, 29. júní: — Hér eru erfiðleikar við löndun síldar- innar, svo að fyrirsjáanlegt er að þau skip sem bíða löndunar í kvöld, alls 18 skip, eiga fyrir höndum rúmlega sólarhringsbið. Stafar þetta ef því að aðeins annar löndunarkraninn hér er virkur. Hinn, alveg nýr af nálinni, bilaði þegar við fyrstu löndun og hefur verið óvirkur síðan. Hér er búið að landa alls um 5300 má’- um. Eru þessi skip hæst sem lönduðu 1 dag: Ársæil Sigurðs- son 768 og Seley 761 mál. — Hin skipin eru með 500—600 máJ. Skipin sem löndunar bíða eru tal in vera með alls um 10,700 mál. Eru hæstu skipin Hilmir 750 xnái, Svanur RE 800, Hrafn Svein bjarnarson 750 og Tálknfirðingur 700 ★ NESKAUPSTAÐ, 29. júní: — Hér mun síldarverksmiðjan hefja vinnslu á föstudaginn. Snæfellið frá Akureyri er með mestan afla þeirra skipa sem hingað hafa kom ið, með 1500 mál og Guðrún Þor- kelsdóttir SU með 900 mál. Önn- ur skip eru með 400—500 mál ★ HJALTEYRI: — Til Hjalteyrar- verksmiðjunnar haf nú borizt til vinnslu alls um 10,000 mál síld- ar. Þar lönduðu í gær m. a. Akra- borg 1283 málum, Auður 981 og Rifsnes 900 málum. ★ KROSSANES: Hæstu skip sem þangað komu í gær voru Björg- úlfur með 1184 mál, Björgvin 1235, Súlan 1120 og Sigurður Bjarnason 958. iskifræðingarnir mjúg bjartsýnir Rannsóknarskipin farin frá Seyðisfirði Seyöisfiröi, 29. júní. FISKIFRÆÐINGARNIR, sem hér hafa setið á rökstól- um og rætt niðurstöður rann- sókna sinna á síldargöngum í N-Atlantshafi, kvöddust sd. í dag í Félagsheimilinu. Áður en þeir héldu til skipa sinna, átti ég stutt tal við yfirmann rússneska leiðangursins, þess norska og þess færeyska. Var vissulega gott í þeim hljóðið. Foringi Rússanna sagði m. a., að yfirborð sjávarins hefði aldrei verið jafnhlýtt og nú þau þrjú sumur, sem hann hefði verið við þessar síldarrannsóknir. Rússinn , sagði að þetta myndi hafa í för með sér að síldin dreifðist öðru vísi en áður. Hann sagði megnið af síldinni halda sig djúpt norður af íslandi og NV af Færeyjum. Hann kvaðst og vilja lýsa ánægju sinni með samstarf fiskifræðing- anna á þessu sviði. Hann lagði áherzlu á mikilvægi þess fyrir þær þjóðir, er síldveiðar stunda í N-Atlantshafi að áframhald yrði á þessU samstarfi. Norðmaðurinn Östvedt sagði að hann hefði verið bjartsýnn á horfurnar við ísland, er G. O. Saars lét úr höfn 2. júní. 1 dag, er við kveðjumst hér er ég ennþá bjartsýnni enn þá. Jakob Joensen frá Færeyjum sagði að síðan hann hefði byrjað að starfa við þessar síldarrann- sóknir, hefði útlitið ekki verið eins gott og nú. Ingvar Hailgrímsson, leiðang- ursstjóri, sagði að hann hefði ekki frekar við það að bæta, sem þegar hefði komið fram í sam- tali Mbl. við hann. Merkilegust er sú staðreynd að síidin er nú komin í vestur- og suðurjaðar Austur-íslandsstraumsins, sem svo mjög hefur komið við sögu undanfarin ár og haft hefur mikil og slæm áhrif á göngu síldarinn- ar hér við land. Ingvar kvaðst fara til Reykja- víkur á morgun og myndi þá verða send út tilkynning um heildarniðurstöður rannsókn- anna. —■ K. NA /5 hnúior SV 50 hnútor ' * 1 U Skúrir K Þrumur miz, KuUaskil ^ Hitoski! H H*» L Laq» — Kinverjar Frh. af bls. 1 Þegar Nepalarnir nálguðust Kínverjana hófu hinir síðar- nefndu skothríð og felldu for- ingja landamæraliðsins. Síðan réðust Kínverjar til atlögu inn fyrir nepölsku landamærin. Þeir tóku 16 landamæraverði til fanga, misþyrmdu þeim og rændu líki foringjans, sem hafði fallið og tóku m. a. af honum úr. Indversk blcð hafa að undan- förnu birt fregnir af því að 200 þúsund hirðingar, sem búa á þessu svæði Tíbet-megin landa- mæranna hafi risið upp gegn ógnarstjórn kommúnista. Hafa miklir bardagar staðið á þessu svæði. Hirðingjarnir eru lítt vopnaðir, en búa um sig í fjalla- skörðum og gera leifturárásir á Kínverjana, oftsinnis að nætur- lagi. Annars herma fregnir frá Tíbet, að nær því öll þjóðin sé nú í vopnaðri uppreisn gegn hinni kínversku herraþjóð. Urn 3000 flóttamenn hafa komið yfir landamærin til Nepals síðasta mánuðinn. ■ SÍÐUSTU 2—3 daga hafa allar ugri er yfir S-Svíþj. Veldur s loftvogir landsins staðið á hún N-hvassv. á Norðursjó. Á s „hreinviðri", „fair“ eða „meg- þeim slóðum er líka kalt í ■ et smukt“, en samt hefur verið veðri, víðast 10—12 st. hiti við ; dumbungsveður og stundum sjó og 15 st. til landsins. S rigning á vestanverðu land- ■ inu. Norðan lands og austan er Veðurspáin kl. 10 I gær- s bjartviðri með köflum og hlýtt kvöldí: SV-land til Vestfjarða S í veðri. Kl. 15 var víða 18 st. og SVmið til Vestfj.miða: S S s niti í innsveitum fyrir norðan Sunnan og SV gola, skýjað en og austan. úrkomulítið. Eins og kortið ber með sér, Norðurland til Austfjarða erum við nú í norðanjaðri á og Norðurmið til Austfjarða- miklu háþrýstisvæði Hins veg miða: SV og vestan gola, víða ar er grunn lægð við S-Græn- þokuloft í nótt. land og þokast hún NA eftir. SA-land og SA-mið: Hæg- Önnur lægð og miklu kröft- viðri, léttskýjað með köflum. þær koma í lok júlí. íslenzkar kartöflur munu koma á mark- aðinn kringum miðjan ágúst. Björn Guðmundsson kvað Grænmetisverzlunina nú þegar hafa snúið sér að því að útvega skip frá Hollandi og kaupa kart- öflur í stað þeirra, sem sukku með Drangajölki. Ef vel gengur standa vonir til þess að þetta leiguskip verði komið hingað til Reykjavíkur eftir tvær vikur. Að lokum gat Björn Guð-' mundsson þess að verðmæti kart öflufarmsins með Drangajölki vær metið á rúma eina milljón. — Landhelgin Frh. af bls. 1 gæzlunnar strax í fyrrakvöld. —. Var yfirmanni herskipsins tjáð, að ef hann ætlaði að hindra töku togarans, yrði hann að flytja varðskipsmenn þaðan sjálfur, þar eð þeir myndu ekki verða sóttir frá varðskipinu. Að lokum skýrði Gunnar Berg steinsson Mbl. frá því, að gengið hefði verið frá skýrslu til dóms- málaráðuneyíisins um málið. MÁLIÐ AFGREITT í DAG Mbl. spurðist fyrir um það hjá dómsmálaráðuneytinu seint í gær hvort því hefði borizt skýrsla Landhelgisgæzlunnar um atburð- inn við Grímsey í fyrradag. Ráðuneytiff skýrffi frá því, aff skýrslan hefffi ekki borizt fyrr en undir kvöld og hefði því ekki unnizt tími til að taka máliff til meffferffar í ráðuneytinu í gær, en þaff yrffi væntanlega gert fyrir há- degi í dag og máliff afhent ut- anríkisráffuneytinu. ENGINN í LANDHELGI Þess skal að lokum getið, að samkvæmt upplýsingúm, er MbL aflaði sér seint í gærkvöldi, var enginn brezkur togari að veiðum innan fiskveiðitakmarkanna í gær og hafði því ekki dregið til frekari tíðinda í þessum efnum. DREYMl YKKUR VEL! í seinni fréttum frá Reuter í gær er frekar rakiff efni tilkynn- ingar brezka flotamálaráðuneyt- isins um atburðinn. Þar segir m. a. aff Bretar hafi á engan hátt beitt valdi viff aff bjarga togar- anum frá íslendingum. Skipstjórinn á Northern Queen skýrffi brezku sjóliffunum frá því, aff hann hefði lokaff sig inni í klefa sínum, þegar íslenzku varff- skipsmennirnir fóru aff beina byssum aff honum. Þá sagffi hann aff íslendingarnir hefðu reynt aff brjóta niffur hurffina að klefa hans og ætlað aff flytja hann yfir á Þór í hraðbát. Ennfremur segir I tilkynningu flotamálarálðuneytisins aff ís- Iendingamir hafi slíffraff skamm- byssumar, þegar brezku sjóliff- arnir komu um borff og þá hafi þeir einnig kastaff fyrir borff Utl- um sandpokakylfum sem þeir voru búnir. Þegar íslendingamir voru aft- ur farnir yfir í Þór og gagnkvæm mótmæli höfffu veriff borin fram sendi herskipið Duncan ljósmerki til Þórs á þessa lciff: „Góða nótt. Ég vona aff við hittumst aftur viff betra tækifæri“. Og Þór svaraffi: „Ég vona þaff líka. Dreymi ykkur vel“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.