Morgunblaðið - 30.06.1960, Side 19

Morgunblaðið - 30.06.1960, Side 19
% Fimmtudagur 30. júní 1960 MORGUNBLAÐIÐ 19 Þannig leit skólahúsið út eftir nrunann. Skólahús að Eiðum brann í gær Sigurbur Hafstað sendiráðunautur i Osló SIGURÐUR Hafstað, deildar- stjóri í utanríkisráðuneytinu, lauk nýlega hæstaréttarprófi sínu. Hann hefur verið í utan- ríkisþjónustunni síðan árið 1944. Hefur hann m. a. starfað við sendiráðið i Stokkhólmi og var um nokkurra ára skeið sendifull- trúi Islands í Moskvu. Síðustu árin hefur hann verið deildar- stjóri í utanríkisráðuneytinu. Sigurður Hafstað tekur nú við starfi sem sendiráðunautur við sendiráðið i Ösló. Hann fer utan með Gullfossi nk. laugardag. Skátamót í Botnsdal AKRANESI, 29. júní: — í dag hófst í Botnsdal í Hvalfirði fjöl- mennt skátamót, urdir forustu Páls læknis Gíslasonar. Þangað fjölmenna skátar úr höfuðborg- inni, Keflavík, Hafnarfirði, Kópa vogi, Borgarnesi og Hveragerði, og héðan úr bænum fór altfjöi- mennur hópur skáta. Mótið mun standa yfir þar til á sunnudags- kvöldið. — Oddur. PILTAR - ef þií clqlð 'inni/stun? p'a a éq hrinqanð y /p&75*7 4sma/jasiof}\ Egilsstöðum, 29. júní. SKÓLAHÚSIÐ að Eiðum eyði- lagðist að mestu í eldsvoða í morgun, er eldur kom upp í hin- um gamla hluta ?kólabyggingar- innar, þar sem voru skólastofur, nemendaíbúðir og íbúð Þórarins Þórarinssonar skólastjóra. Hefur þetta gamla skólasetur orðið fyr- ir miklu tjóni. Klukkan halí ellefu í morgun varð þess vart að eldur var laus í skólastjóraskrifstofunni. Hún var í elzta hluta skólabyggingar- innar, byggt árið 1902. Á næsta augnabliki var skrifstofan og íbúð skólastjórans alelda og stóðu eldtungur út um gluggana. Það var enginn í skólastjóraíbúðinni og enginn í skólahúsinu er þetta gerðist. Staðarmenn dreif fljótt að til björgunarstarfa og hringt var eftir hjálp til Seyðisfjarðar, Reyðarfjarðar og hingað til Egils staða. Héðan eru 15 km að Eið- um, en enginn slökkviliðsbíll, þótt undarlegt megi virðast. — Staðarmenn á Eiðum höfðu geng- ið rösklega fram í því að bjarga út úr skólanum borðum, stólum og áhöldum. En ekki varð komizt inn í íbúð Þörarins Þórarinssonar skólastjóra. Fljótlega komu til hjálpar menn úr Eiðahreppi ásamt okkur Egilsstaðakauptúns- mönnum. Skólahúsið varð brátt alelda og er slökkviiiðsbíll Seyðfirðinga kom á vettvang skömmu fyrir há degi hafði eldurinn læst sig í þak íþrótta- og sundhallarinnar. Var strax byrjað á því að senda menn upp á þak íþróttahússins með slökkvislöngur og tókst furðu fljótt að ráða niðurlögum eldsins. En skemmdir urðu mikl- ar á þaki hússins og einhverjar á sjálfum íþróttasalnum. — Kvikmyndir Framh af bls. 6. í rústum og fær þá vitneskju að fjölskylda hans öll hefur orðið sprengjum óvinanna að bráð. Einmana og beygður af hinum þungbæru örlögum ráfar hann um, en hittir þá fyrir ungan svein, sem á heldur ekki neinn að, og þessi tveir einstæðingar verða vinir, eins og faðir og son- ur og reyna að byggja upp líf sitt á nýjum grundvelli. Mynd þessi er mjög abhyglis- verð, áhrifarík og vel gerð, ef til vill nokkuð langdregin í sumum atriðum, og vel leikin. Einkum er sterkur og áhrifamikill leikur Sergei Bondartsjúik, er leikur að alhlutverkið, hermanninn Andrei Sokolof. Efri hæð skólahússins var mikið til orðin alelda er allt í einu kvað við mikil gasspreng- ing í hinu brennandi húsi. Var hún svo óflug, að mikill hluti þaksins þeyttist í loft upp og kom niður brennandi með miklu braki norðan við húsið. Þar hafði alltmargt manna verið við björg- unarstörf, en þeim tókst að forða sér undan. Piltur einn hafði þó hlotið skrámur á öxlinni. Frá Reyðarfirði var komið með slökkvidælu. Slökkvistarfið beindist einkum að því að verja svokallað Smíðahús skólans, sem er allmikil bygging, sem stendur skammt frá. Um 40 manns, sem þátt tók í slökkvistarfinu, stóð í samfelldri röð frá húsinu og nið- ur í Eiðalæk, um 30 metra leið, og myndaði þannig nokkurskonar „færiband" fyrir vatnsföturnar, sem notast var við, til þess áð verja Smíðahúsið. Tókst þetta mjög vel. Með harðfylgi sínu tókst þeim, sem að slökkvistarfinu unnu að bjarga miklu úr kennslustofum og bókasafni skólans, sem fyrr greinir. En aldrei varð komizt inn í skólastjóraíbúðina. Þar átti Þórarinn skólastjóri eitt bezta bókasafn í einkaeign á gjörvöllu Austurlandi. En Þórarinn er í árs fríi frá störfum og hefur dvalizt í Reykjavík og erlendis. Hann missti einnig allt innbú sitt. Er hans von nú einhvern hinna næstu daga heim. Ármann Hall- dórsson gengir störfum í fjarveru hans. Hann bjó í skólastjóraíbúð- inni í vetur, en var fyrir þrem dögum fluttur úr íbúðinni í eigið hús. Persónulegt tjón Þórarins skólastjóra má teljast óbætan- legt. Þó vasklega hafi verið gengið fram í slökkvistarfi, þá verður því ekki neitað, að ákjósanlegra gat veðrið ekki verið. Stafalogn og sólskin var ,og því stóðu eld- tungurnar upp í loftið, en ekki á hm næstu hús. Um klukkan 1 í dag var skóla- húsið svo brunnið, að aðeins stóðu útveggir eftir. Öll gólf og skilrúm voru úr timbri. Standa því loftin svört og sviðin uppi. 1 kvöld átti ég sem snöggvast tal við Ármann Halldórsson sett- an skólastjóra. Hann kvað brun- ann. mikið áfall, en hann taldi sig eygja möguleika til þess að skólahald á Eiðum þyrfti ekki r.iður að falla næsta haust. Benti hann á að hægt væri að innrétta : rithæð heimvistarbyggingarinn- ar, nýju sem er mikið hús. í vet- ur voru í skólanum um 100 nem- endur. Ari. — Sintóniu- hljómsveitin Framh. af bls. 3 konsertmeistari hljómsveitarinn- ar, og leikur hann fiðlukonsert Beethovens. Önnur viðfangsefni á þeim tónleikum eru „Moldá“, hið undurfagra ættjarðarljóð tékk- neska tónskáldsins Bedrioh Smet- ana, og Sinfónía nr. 4 í d-moll eftir Robert Schumann, en hinn 8. júní voru 150 ár liðin frá fæð- ingu Schumanns, og er þess af- mælis minnzt um allan heim um þessar mundir. Á tónleikunum í Vestmanna- eyjum verður einleikari Einar G. Sveinbjörnsson, einn af yngstu fiðluleikurum hljómsveitarinnar, sem nýlega hefir lokið fram- haldsnámi í Bandaríkjunum og hefir getið sér mikið orð fyrir frammistöðu á tónleikum í Reykjavík. Hann leikur Rómönsu í F-dúr eftir Beethoven. Meðal annarra viðfangsefna á þeim tón- leikum er Lýrísk svíta fyrir hljómsveit eftir Pál Isólfsson og tvö verk eftir Smetana: ,,Moldá“ og ballettmúsík úr óperunni „Selda brúðurin“, sem sýnd var nýlega á listahátíð Þjóðleikhúss- ms. Vestfjarðaferðin stendur í 9 daga, og verður lagt af stað í hana miðvikudaginn 6. júlí. Ein- söngvari með hljómsveitinni verður Kristinn Hallsson, og syngur hann bæði óperuaríur og íslenzk lög. Önnur viðfangsefni verða þessi: Forleikur að óper- unni „Brúðkaup Fígarós" eftir Mozart, ,Lýrísk svíta“ eftir Pál Isólfsson, þrír tékkneskir dansar eftir Slava Vorlova og ballett- músík úr óperunni ,Selda brúð- urin“ eftir Smetana. Tónleikar verða haldnir á sjð stöðum á Vestfjörðum sem hér . segir: Fimmtudaginn 7. júlí kl. 21.00 I á Þingeyri. Föstudaginn 8. júlí kl 21.00 á Isafirði. Laugardaginn 9. júlí kl. 21.00 í Súgandafirði. Sunnudaginn 10. júlí kl. 15.00 á Patreksfirði. Sunnudaginn 10. júlí kl 21.00 á Bíldudal. Þriðjudaginn 12. júlí kl. 21.00 í Bolungarvík. j Miðvikudaginn 13 júlí kl. 21.00 ' á Flateyri. Hljómsveitin hefir bækistöð í héraðsskólanum að Núpi í Dýra- ' firði, meðan hún dvelst vestra, 1 og hefir skólastjórinn, sr. Eirík-1 ur Eiríksson, lánað húsakynni ' skólans í þessu skyni. ( Innilega þakka ég öllum sem á margvíslegan hátt glöddu mig á 75 ára afmælisdegi mínum 24. júní 1960. Kærar kveðjur. Ásgeir Jónsson frá Hjarðarholti. Mínar innilegustu þakkir færi ég vinum og vandamönn- um er á margan hátt glöddu mig á sextugs afmælinu þann 26. júní. — Guð blessi ykkur öll. Andrés Guðmundsson, Saurum Innilega þakka ég öllum vinum mínum og vandamönn- um fjær og nær, fyrir hlý handtök, skeyti, blóm og gjafir á stötíu ára afmæli mínu 11. júní sl. Málín Á. Hjartardóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SlGRfÐUB JÖNSDÓTTIR Krossamýrarbletti 6 andaðist að morgni þess 28. þessa mánaðar Börn, tengdabörn og barnaböm Hjartkær eiginmaður minn, ÞORSTEINN RUNÓLFSSON frá Markaskarði, lézt í Landspítalanum 28. júní. — Fyrir hönd bama, tengdabarna og barnabarna. Guðrún Ingvarsdóttir Móðir mín og tengdamóðir STEINUNN BJÖRNSDÓTTIR Sólvallagötu 39, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni föstudaginn 1. júlí kl. 13,30. Fyrir okkar hönd og annara vandamanna. Sigrún Bjarnadóttir, Jenný Valdimarsdóttir. Faðir okkar og tengdafaðir, GUNNAR JÓNSSON kaupmaður, Hverfisgötu 69 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. júlí kl. 1,30 e.h. Böm og tengdaböra Konan mín ÁGtJSTA MAGNOSDÓTTIR Háteigsveg 54 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugardaginn 2. júlí kl. 10,30 árdegis. — Blóm afbeðin, en þeim sem vildu minnast hennar er góðfúslega bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Sjafnargötu 4. Böðvar Jónsson Innilegt þakklæti til allra þeirra mörgu, sem auðsýndu vinsemd og vinarhug við andlát og jarðarför SIGRfÐAR TÖM ASDÓTTUR Ennfremur þakka ég fyrir hönd hinnar Látnu öllum þeim, sem studdu hana og glöddu í einverunni og veik- indum öllum. Fanney Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.