Morgunblaðið - 30.06.1960, Síða 20
UTSVARSLÖGIN
Sjá bls. 11.
245. tbl. — Fimmtudagur 30. júní 1960
IÞROTTIR
eru á bls. 18.
Drangajökull
sökk á 20 mín
Fólkið fór allt i gúmm'íbátana
HKKI er vilað neitt frekar af
hvaða orsökum skipið Dranga
jökull fórst svo skyndilega í
Pentlandsfirði, milli Skot-
lands og Orkneyja, í fyrra-
<iag. — Skipbrotsmennirnir
komu til Aberdeen í gær, en
svo virðist sem þeir vilji
ekkert segja um orsakirnar
fyrr en þá við sjópróf. Þeir
eru væntanlegir heim með
flugvél Flugfélagsins á föstu-
dag. Sjópróf fara fram í
Reykjavík, en ekki er enn af-
ráðið hvort þau geta hafizt
þegar á laugardaginn. — Það
er lauslega áætlað að tjónið í
6kiptapa bessum, bæði skip og
farmur, nemi a. m. k. 20
milljónum króna.
Á 40 faðma dýpi
Mbl. bárust í gœr nokkru nán-
firi fregnir af þessu sviplega at-
viki frá fréttamanni í Aberdeen.
hað var skozki togarinn Mount
Eden, 293 tonn sem bjargaði
skipshöfninni á Drangajökli og
kom hann með skipbrotsmenn til
Aberdeen árdegis í gær, miðviku-
dag, Mount Eden var að koma úr
téif daga veiðiför á Færeyjamið-
um og var að sigla með aflann til
Aberdeen.
John Snelling skipstjóri á
skozka togaranum segir, að hann
liafi verið um 5 mílur frá Dranga-
jökli, þegar hann varð þess vís-
ari að þetta íslenzka skip var 1
Gunnar litli.
Dauðum statt. Þetta gerðist þar
sem Pentlandsfjörður er mjóstur
undan vitanum á Stroma-eyju og
er þar-40 faðma dýpi. Sjö vind-
stig voru á norðan.
HoIIenzkur fáni til hita
Þegar Mount Eden kom að
Drangajökli var hann enn á floti,
en hafði hvolft. Skipsmenn höfðu
allir komizt í gúmmíbjörgunar-
bátana. Allir voru ómeiddir og
glaðir yfir björguninni, sem
barst þeim svo fljótt. Flestir voru
þurrir, nema fjórir eða fimm þeir
síðustu sem yfirgefið höfðu skip-
ið, — þeir höfðu stokkið í sjóinn
en komizt upp í gúmmíbátana.
Yngsti skipbrotsmaðurinn var
Gunnar fjögurra ára sonur skip-
stjóra. Utan um hann hafði verið
vafið til hita, hollenzkum fána,
fáni þessi hafði verið þrifjnn
í fáti upp úr fánakistu skipsins,
þegar fólkið varð svo skyndilega
að yfirgefa það. Drangajökull
sökk niður að aftan og hvarf í
hafið skömmu eftir að fólkið var
komið um borð í Mount Eden.
Guðs mildi
Einn skipverjanna á skozka
togaranum, hásetinn John Warm-
an sagði við fréttamanninn:
„Þessi björgun var Guðs mildi“.
Hann bætti því við að Pentlands-
fjörður væri alræmdur fyrir
hringiður, straum og úfinn sjó.
Skipbrotsmennimir búa nú á
sjómannaíheimilinu í Aberdeen.
Þegar fréttamaðurinn kom þang-
að var Gunnar litli sá fyrsti sem
kom á móti honum. Hann var á
hlaupum fram og aftur á rósrauð-
3 oKií
OlfAlV&RjÖVUlL
0&*>
fleewttfi
Eldur í
síldarbát
SEYÐISFIRÐI, *9. júní: —
Slökkviliðið hér var kallað
niður að höfn um klukkan 8
í morgun. Eldur var laus í lúk
ar vélbátsins Kára Sölmund-
arsonar frá Reykjavík. Lá
hann og beið þess að röðin
kæmi að honum til löndunar.
Þó nokkur eldur var í lúk-
arnum. Einn skipverjanna,
Herbert Ólafsson háseti Sörla-
skjóli 56, Reykjavik, 16 ára
piltur, brenndist á handlegg
og andliti.
Slökkviliðsmenn voru um
það bil hálftíma að ráða niður
lögum eldsins. Skemmdirnar
urðu nokkrar í lúkarnum og
tnun taka 2—3 daga að lag-
færa þær. En í brunanum urðu
skipverjar fyrir tilfinnanlegu
tjóni því þeir misstu hlífðar-
föt sín.
Það kviknaði i lúkamum út
frá eldavél. — Sveinn.
I upptalningunni yfir skips-
menn í blaðinu í gær vantaði
einn, en hann er Vilhjálmur Vil-
hjálmsson Mávahlíð 42, sem er
Haukur skipstjóri og kona hans Halldóra.
um inniskóm og hafði verið að
borða morgunmat, cornflakes og
mjólkurglas.
Loítskeytamaðurinn á Dranga-
jökli, Bjarni Sigurðsson sem er
31 árs u.pplýsti, að skipið hefði
sokkið á 20 mínútum. Hann
kvaðst hafa verið mjög glaður
yfir því að togarinn kom svo
skjótt til hjálpar eftir að neyðar-
kall hafði verið sent út.
Drangajökull var að koma frá
Vestur Evrópulöndum með ýms-
an varning. Hafði hann tekið
varning í Noregi, Hollandi,
Belgíu og Englandi. Síðasta við-
komuhöfn hafði verið London.
Farmurinn var m. a. kartöflur,
þurrkaðir ávextir, margskonar
stykkjavara og dráttarvélar á
dekki. Skipið var vátryggt hjá
Tryggingamiðstöðinni en varning
unnn hjá ýmsum félögum.
Bir«Sir íluttar
G
brott af landi
NÚ er verið að flytja birgðir
bandaríska landhersins frá Kefla
vík. Sem kunnugt er fóru land-
hermennirnir í vor, en skildu
töluvert að birgðum eftir. Þar er
um að ræða skotfæri og fleira,
sem flutt er landveginn frá Kefla
víls út í skip í Reykjavíkurhöfn.
Fara flutningar þessir fram und-
ir sameiginlegu eftirliti íslenzku
og bandarísku herlögreglunnar
og eru með öllu hættulausir.
14 ára drengur. Var bann skráð-
ur sem messadrengur en mun
fremur hafa verið í skemmtiferð
með skipinu.
Enn síld
í gærkvöldi
AF sildarmiðunum nyrðra bárust
þær fregnir í gærkvöldi að heita
má að algert hlé hafi verið á
veiðunum frá því á miðnætti á
þriðjudagskvöld og þar til kl. 10
í gærkvöldi. Þá var bezta veður
á austursvæðinu, þar sem allur
þorri síldarflotans heldur sig nú.
Bátarnir, sem rufu þögnina,
á miðunum í gær, um kl. 10 í
gærkvöldi, voru Eldborg og Ás-
kell og tveir bátar aðrir, sem
þá voru byrjaðir að kasta. Þá
barst síðdegis í gær fregn frá
togaranum Hallveigu Fróðadótt-
ur að síld væri vaðandi í torfum
á Skjálfandadjúpi. Voru skip á
leið þangað í gærkvöldi. Loks
hafði síldarskipið Fanney til-
kynnt síld nær 60 mílur út af
Raufarhöfn.
Á þriðjudagsmorguninn hafði
síldarverksmiðan á Raufarhöfn
tekið á móti 35—40.000 málum
Framh. á bls. 2.
-□
SHÐUSTU FRETTIR
Um miðnætti barst Mbl.
þær fregnir frá Raufarhöfn,
að í gærkvöldi hefði Eldborg
fengið 700 mál og væri á leið
til Hjalteyrar. Fyrir voru í
skipinu um 400 mál.
Víðir II, fhinn nýi) kom á
veiðisvæðið sunnan Langa-
ness í gærmorgun. í gær-
kvöldi kastaði hann og fékk
fyrstu síldina, um 700 tunnur.
Var það á Digranesgrunni. —
Bátar voru byrjaðir að kasta
í gærkvöldi á svæði sem Fann
ey sá sáld í gærdag.
□-
Héraðsmóf Sjálfstœðis-
manna ákveðin
Verða haldin samkvæmt venju
i öllum landshlutum
SJÁLFSTÆÐISMENN í hinum ýmsu héruðum landsins
hafa ákveðið að efna til héraðsmóta í sumar samkvæmt venju. —
Hafa þegar verið ákveðin 22 mót. Verða þau með svipuðu sniði og
áður. Héraðsmótin eru vinsælar og fjölsóttar samkomur og munu
þau áreiðanlega ekki verða síður sótt í sumar en undanfarin ár.
Mótin hafa verið ákveðin sem hér segir:
Búðardal, Dalasýslu, laugar-
daginn 9. júlí.
Hellu, Rangárvöllum, sunnu-
daginn 10. júlí.
Bjarkarlundi, Barðastrandar-
sýslu, laugardaginn 16. júlí.
Reykjanesi, Norður-ísafjarðar-
sýslu, sunnudaginn 17. júlí.
Mánagarði, Austur-Skaftafells-
sýslu, sunnudaginn 17. júlí.
Kirkjubæjarklaustri, Vestur-
Skaftafellssýslu, sunnudaginn 24.
júlí.
Sauðárkróki, laugardaginn 30.
júlí.
Laugarberkku, Vestur-Húna-
vatnssýslu, sunnudaginn 7. ágúst.
Hólmavik, sunnudaginn 14. ág.
Flúðum, Árnessýslu, sunnu-
daginn 14. ágúst.
Patreksfirði, laugardaginn 20.
ágúst.
Flateyri, Vestur-lsafjarðar-
sýslu, sunnudaginn 21. ágúst.
Ölver, Borgarfjarðarsýslu,
sunnudaginn 21. ágúst.
Skúlagarði, Norður-Þingeyjar-
sýslu, laugardaginn 27. ágúst.
Freyvangi, Eyjafjarðarsýslu,
sunnudaginn 28. ágúst.
Breiðabliki, Snæfellsnesi,
sunnudaginn 28. ágúst.
Borgarnesi, laugardaginn 3.
september.
Ólafsfirði, laugardaginn 3.
september.
Dalvík, sunnudaginn 4. sept.
Blönduósi, sunnudaginn 4. sept.
ísafirði, iaugardaginn 10. sept.
Bolungarvík, sunnudaginn 11.
september.
Önnur mót og samkomur á
vegum flokksins verða auglýst
síðar.
Nánar verður tilkynnt um dag-
skrá hvers héraðsmóts fyrir sig.
Sumarferð Varðar
FARSEÐLAR eru seldir í Sjálfstæðishúsinu (uppi) til kl. 5
í dag. — Þeir, sem eiga frátekna farmiða, eru vinsamlega
beðnir að vitja þeirra sem fyrst.