Morgunblaðið - 02.07.1960, Side 6

Morgunblaðið - 02.07.1960, Side 6
6 r MORCVNBLAÐIÐ Laugardagur 2. júlí 1960 'x/iwVr'f'nj' skrifar um: KVIKMYNDIR Stjörnubíó: BRJÁLAÐI VlSINDA- MAÐURINN Þetta er ensk-amerísk mynd, að mestu tekin í Austurríki. — Gerist hún í dularfullu smáríki, Gudavia, skammt frá landamær- um Austurríkis. Tveir blaða- menn, Mike Wilson (Poul Douglas) frá Bandaríkjunum og Englendingurinn Howard Meade (Leslie Phillips) eru á leið á hljómleikahátíðina í Salzburg. En skyndilega stöðvast jámbraut arlestin i litlu þorpi. Lögreglu- foringi ásamt lögreglumönnum koma á vettvang og segja þeim félögum að þeir séu staddir í ríkinu Gudavia og fara því næst með þá í svarthol þorpsins. Þeir eru þó brátt látnir lausir, en fá þó ekki að fara úr landi. Verða þeir félagar nú margs vísari um þetta furðulega smáríki, meðal annars að þar er allsráðandi vís- indamaður er nefnist Boronski. En veldi hans byggist á því, að hann hefur fullgert vél, sem sendir frá sér gamma-geisla, sem hafa hin furðulegustu áhrif á þá, sem fyrir þeim verða. Enginn þorir að rísa gegn Boronski og ógnarvaldi hans og er hann þó hataður af öllum, jafnvel nán- Vinningar í 2. flokki í Happdrætti DAS hafa nú flestir verið afhentir. Þessi Moskvitch-bifreið kom í umboði frú Margrétar Kristinsdóttur, Öldugötu 24. Myndin er af eiganda bílsins, frú Auði Sigurðardóttur, Bergi, Seltjarnarnesi, ásamt frú Margréti Kristinsdóttur, sem er til hægri á myndinni. Sum arleyfi sferðir SJÖTTA júlí nk. fer Ferðafélag íslands í lengstu ferð sína á sumrinu. Er hún um S'uðvestur- land, endilangt Norðuriand, um stóran hluta Fljótsdalshéraðs og á fimm firði austanlands. Á þess ari leið verða skoðaðir allir feg- urstu og tilkomumestu staðir, svo sem Vatnsdalur, Hólar í Hjaltadal, Vaglaskógur, Mývatns sveit, Ásbyrgi, Dettifoss, Hall- ormsstaðarskógur og fjölmargir fleiri staðir. Komið á Reyðar- fjörð, Eskifjörð, Norðfjörð, Borg arfjörð (eystri), Seyðisfjörð, Ak ureyri og Siglufjörður heimsótt- ur, ef tími vinnst til. Tjöld verða með fyrir þá, sem óska að gista í þeim. Dagleiðir aldrei langar, en fjölbreytni i náttúrufegurð geysimikil. ÞREM dögum eftir byrjun Norð- ur- og Austurlandsferðarinnar, hefst 9 daga ferð félagsins um Vesturland. Sú ferð liggur m. a* * um Dalasýslu, Barðastrandar- sýslu endilanga með viðkomu í Reykhólasveit, Vatnsdal, á Pat- reksfirði og á Látrabjargi ,en Bjargið er einhver svipmesti stað ur á öllu Vesturlandi. Síðan verð ur ekið um hinn nýja hálendis- veg úr Vatnsfirði norður að Dynjanda í Arnarfirði. Þar er einn af mestu fossum fslands, þá haldið til ísafjarðar. Leigt skip um Djúpið og heimsóttar eyjarnar Vigur og Æðey og fleiri fagrir staðir þar um slóðir. .— Farið í heimleið fyrir Klofning, um Uxahryggi og Þingvöll. Allar nánari upplýsingar hjá Ferðafélagi íslands, Túngötu 5, sími 19533 og 11798. ustu samstarfsmönnum sínum. — Ýmis atvik leiða til þess að þeir Mike og Howard taka upp bar- áttuna gegn hinum brjálaða vís- indamanni og harðstjóra og er sú barátta hörð og hættuleg, en ekki verður hér sagt frá leiks- lokum. Mynd þessi hefur ekki til að bera mikið listgildi, en í henni er þó töluverð spenna og þar fara margir góðir Ieikarar með hlutverk, svo sem Poul Douglas, sem er mikilhæfur leikari, Leslie Phillips, hinn týpiski Englend- ingur og Eva Bartok, sem er all- góð leikkona og glæsileg. TJARNABÍÓ: Maðurinn á efstu hæð ÞETTA er brezk mynd og mjög sérstæð. Þvl að með henni er bersýnilega verið að gera gys að hinum ótalmörgu „tauga- spennandi“ glæpamyndum, sem framleiddar eru um allan heim. — Maðurinn á efstu hæð býr í húsi, þar sem fjölli annara leigj- enda býr. — Hann gengur eirðar- laus um gólf í herbergi sínu og rekur við og við upp æðisgeng- ið öskur. — íbúarnir heyra þetta og þá er ekki að sökum að spyrja. Allir þurfa að láta málið til sín taka, sumir vilja „hjálpa“ vesalings manninum, en aðrir kalla á lögregluna. — Leyndar- dómurinn og óhugnanleikinn verða æ meiri er á líður — og fótatak mannsins og óp auka mjög á spennuna. fbúar húss- ins safnast nú allir saman í hí- býlum konu einnar á neðri hæð- inni til skrafs og ráðagerða, og þar eru líka komnir sálfræðing- ur læknir og lögreglumenn, en fyiir utan húsið hafa brunaverð- ir reist heljarmikinn stiga og þar er fjöldi forvitinna manna, sem lögreglan reynir að hafa hemil á. í híbýlum konunnar er ráðgazt í ákafa um það hvað gera skuli til að handsama hinn dularfulla mann, en sitt sýnist hverjum. Að lokum ákveða leigj- endurnir að fara upp til hans og skora á hann að koma út. Þeir fara upp og eftir nokkuð þóf ger- ist það, sem kemur öllum á óvart, ekki sízt bíógestinum, sem beð- ið hefur í ofvæni eftir leikslok- unum. . . . Mynd þessi, er sem áður segir mjög sérstæð, en verður vafa- laust mörgum vonbrigði. Hún er einnig vel leikin. Vinátfa karls og konu ER VINÁTTA milli karls og konu hugsanleg? Marg- ir halda, að svo sé ekki, af því að líkamleg löngun muni ávallt læðast inn í hugskot manna. Hinn mikli enski rithöfundur, D. H. Lawrence, skrifaði eitt sinn konu á þessa leið: „Nei, ég kæri mig ekki um vináttu þína fyrr en hún verður fullkomin tilfinning, ég á við sambland andlegrar og líkamlegrar kenndar. Ég hafna fágaðri og vandfýsinni vináttu þinni; hún myndi stofna heilindum sjálfs mín í hættu“. Lawrenee hefur mikið til síns máls. Karlmenn finna sjaldan í platónskri vináttu hina hreinu öryggis- tilfinningu, sem ást myndi veita þeim. Náinn and- legur kunningsskapur við konu veldur þeim vonbrigð- um. Þeir vita, að jafnvel þótt konan beri hina mestu virðingu fyrir gáfum þeirra og hjartalagi, mun hún ávallt kjósa fremur þann, sem hún elskar. Hinn plat- ónski vinur er aukapersóna, og honum verður fórnað, ef nauðsyn krefur. Samt má finna í sögunni góð dæmi um vináttu manns og konu. Slík vinátta heldur stundum velli, af því að báðir aðilar leggja lítið upp úr líkamlegri löng- un. Það er auðveldara að ala í brjósti sér hreinar and- legar tilfinningar, ef maður er ekki mjög lostafullur. Karl og kona, sem hafa elskazt, geta stundum snúið ást í vináttu. Hugstæðar minningar sameina þau. Bæði eru laus við afbrýðisemi og hafin yfir venjulega vin- áttu. —- Annað dæmi þess, að slíkt geti átt sér stað, er vin- átta gamals manns og gamallar konu. Þau finna sér athvarf í vináttu, af því að þau vita, að það er of seint að elskast. Aðstæðurnar verða erfiðari, þegar aðeins annar vinanna er aldraður. Auðvitað má vel ímynda sér ástúðlegt samband milli léttúðugs ungs manns og reyndrar gamallar konu. Byron vildi heldm- tala við lafði Melbourne, sem var uppgjafadaðurdrós, en ungu stúlkuna Caroline Lamb, sem kvaldi hann með af- brýðisemi sinni. Viktoría drottning hafði sem ung kona gaman af hinu virðulega bónorði Disraelis gamla. En hver veit, hvort gamli trúnaðarmaðurinn var eins hamingjusamur? Hár aldur gerir engan ónæman fyrir freistingum. Bezta lausnin er áreiðanlega sambland ástar og vináttu. Hamingjusamt hjónaband ætti að sameina hreinskilni og rósemi vináttunnar og ástríður ástar- innar.i Líkamleg aðlöðun auðveldar það fyrstu ár hjónabandsins og jafnvel síðar að sýna yfirsjónum makans umburðarlyndi. Hjón taka hvort annað eins og þau eru. Þau hafa sameiginleg áhugamál. Þeim nægir ekki „auðsótt gleði“ í líkamlegum skilningi, heldur munu þau leggja rækt við staðfestu, virðingu og trúnað sem nauðsynlegan þátt í samlífi þeirra. Það er vinátta og líka ást. • Hann er ekki við Margir, sem þurfa að reka erindi á opirtberum skrifstof- um, munu verða fyrir því, að sá maður, sem með þeirra til- tekna mál heíur að gera, er ekki á sinni skrifstofu þegar á að leita til hans. Velvakandi hefur þurft að reka mörg skrif stofuerindi að undanfömu og tífct orðið fyrir þeim óþægind- um, að sá maður, sem bráðlá á að ná tali af, var ekki finn- anlegur á skrifstofunni. Út yfir tók þó, þegar sagt var í fjórða sinn, sem spurt var eftir tilteknum manni eftir hádegi: — Nei, hann eir ekki við i augnablikinu. — Við nán ari eftirgrennslan kom i ljós. að maðurinm hafði ekki séz* á skrifstofu sinni eftir hádegi og enginn af samstarfsfólki hans vissi hvar hann var nið- urkominn. • Er ekkert eftirlit? Þetta dæmi er ekkert eins- dæmi. Því verður mörgum á að spyrja hvort ekkert eftir- lit sé með því, að opinberir skrifstofumenn séu á sínum vinnustað í vinnutímanum. — Auðvitað geta þeir þurft að bregða sér frá í erindum, sem beint snerta vinnu þeirra, en þá er minnsta krafa, að þeir láti símaafgreiðslu viðkom- andi fyrirtækis vita af því og Skýri fih hvenær þeir séu væntanlegir. En einhver tak- mörk hljóta að vera fyrir því; hvað menn geta leyft sér. í öðrum löndum þykir það dauðasynd og er brottrekstrar sök ef opinber starfsmaður hverfur af sinni skrifstofu í vinnutíma til að sinna einka- erindum. Mættum við gjaman taka aðrar þjóðir til fyrir- myndar í þessum efnum. • Frostlögur og hófdrykkja Velvakanda hal'a borizt eft- irfarandi vísur: ★ SÍS á fundi fræðir meir flest nú mæðir á þeim það hafa fundizt fleiri en tveir frostlögsbrúsar hjá þeim. ★ Hófdrykkjan er heldur flá henni er valt að þjóna. Hún er bara byrjun á að breyta manni í róna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.