Morgunblaðið - 06.07.1960, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 06.07.1960, Qupperneq 6
6 MORCVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. júlí 1960 Á vaídi kaupenda hvort framleiðslan skilar arði Björgun járns á Dynskógafjöru hætt Paul Fabricius og Leif Holbæk Hansen. Vatnið rann inn i eldhús hjá frú Agústu KIRKJtTBÆJARKLAUSTRI, 4® EINS og skýrt var frá í blaðinu í gær hefur staðið hér yfir fundur framkvæmdanefndar norrænu sölutæknisamtakanna. — í hádeg isverðarboði í fyrradag tók Paul Fabricius, forstjóri frá Dan- mörku m.a. til máls. Hann sagði m.a.: Enginn stendur einn „Þið þurfið að flytja erlendan iðnað inn í landið. Hér hafið þið nóg landrými, næga ódýra orku. Ykkur vantar aðeins fjármagnið. Fyrr eða síðar kemur að þvi, að þið verðið að Ijúka uþp dyrun- um. Nú stendur enginn einn fram ar. íslendingar eins og aðrir munu taka sína afstöðu gagnvart verzlunarbandalögunum. En út- flutningurinn er of einhæfur og markaðimir þröngir. Ef þið opn- ið landið fyrir erlendum iðnaði kemur brátt að því að hægt verð- ur að tala um ísland sem iðnað- arland og útflytjendur iðnvam- ings“. Á valdi kaupendanna Fabricius ræddi um söluáróður fyrir útflutningsvöru almennt og drap á margt athyglisvert í því sambandi. „Heimsmarkaðurinn er ekki einn markaður, heldur margir. Og þessir markaðir eru ólíkir, hver þeirra krefst sinna aðferða. íslenzkir útflytjendur hafa e. t. v. fallið í samá pyttinn og margir danskir útflytjendur. Þeir miða framleiðsluna við það hvað hagstæðast er fyrir fram- leiðandann sjálfan, en ekki hvað kaupandanum geðjast- bezt að. Þeir menn gleyma líka því, að það er á valdi kaupendanna hvort framleiðslan skilar arði“, sagði Fabricius. Vörugæðin mikilvægust margir stórir aðilar — og þeir væru mjög sterkir. Þeir smáu hefðu það þó fram yfir hina stóru að þeir væru ekki háðir „Parkin- sons-lögmálinu“. Hæfni minni framleiðendanna til að laga sig eftir markaðsþörfinni og breyti- legum kröfum kaupendanna væri miklu meiri. Að ræðunum loknum var frétta mönnum boðið að ræða við nokkra hinna erlendu fulltrúa. Annars voru sænsku fulltrú- arnir 3, sömuleiðis 3 frá Dan- mörku, 2 frá Noregi og 1 frá Finnlandi. Á fundinum hafa fulltrúarnir borið saman bækur sinar, kynnzt þvi nýjasta í starfsemi samtak- anna í nágrannalöndunum, fræðslustörfum, vörumerkingu og réttmætum verzlunarháttum. Þá hefur viðhorfið til verzlun- árbandalaganna verið rætt svo og auglýsingarstarfsemi margs- konar. Sendíherra Kanada afhendir skilríki SENDIHERRA Kanada ,dr. Ro- bert A. MacKay, afhenti í dag forseta fslands trúnaðarbréf sitt sem ambassador Kanada á ís- landi. Fór afhendingin fram við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, að viðstöddum utanríkisráðherra. Að afhendingunni lokinn-höfðu forsetahjónin boð inni fyrir am- bassadorinn. Reykjavík, 4 jújí 1960. júlí. — Hér hefur verið stöðug stórviðrisrigning súðan í fyrri- nótt og er ekkert lát á enn sem komið er. Regnið virðist þó hafa verið miklu meira austar og til hafsins, því úrkoma mældist þrisvar sinnum meiri á Fagur- hólsmýri i nótt en hér á Klaustri. -¥• Vatnavextir. Vatnavextir eru miklir, og í þessum hamförum skyldi maður ætla að mikið hefði farið úr skorðum á Mýrdalssandi. Helztu fréttir þaðan eru þessar: — í nótt óx vatnið vonum minna í farveginum þar sem unnið er að brúarsmíðinni. Hins vegar er hlaupinn mikill vöxtur í Múlakvísl, svo að eftir því að dæma virðist útfallið undan Jöklinum eitthvað hafa breytzt, a. m. k. í bili, þótt ekkert verði um það sagt. Björgun járns hætt. Vöxturinn í Blautukvísl und- anfarna daga og óveðrið nú hef- ur gert það að verkum að ókleift er nú orðið að vinna frekar að björgun járnsins á Dynskóga- fjöru. Mun vinnuflokkurinn flytja sig þaðan í dag, enda var vatnið farið að renna inn í eld- húsið hjá Ágústu, er síðast frétt- ist. Ekki hefir það enn verið mælt eða vegið, hve miklu járnj, hefur verið bjargað í allt á undanförn- um vikum, en allvæn hrúga af hrájárni liggur nú undir brekk- unni ofan við veginn fyrir vest- an brúna á Kerlingardalsá. —Fréttaritari. Frestað réttar- höldum \fir Powers flugmanni MOSKVU. (Reuter): — Réttar- höldunum yfir bandaríska njósna flugmanninum Francis Powers, er flaug U-2 vélinni, sem skotin var niður yfir Sovétríkjunum 1. maí sl., hefir verið frestað, en búið var að tilkynna, að þau myndu hefjast í byrjun júlí. Þær upplýsingar hafa verið gefnar í Moskvu, að frestun þessi sé gerð vegna ótölulegs grúa af umsóknum um vegafréfsáritanir frá útlendingum, sem óska eftir að fá að vera viðstaddir réttar- höldin. Flestar umsóknir hafa borizt frá Bandaríkjunum, Bret- landi og Frakklandi. — Ekkert hefir verið upplýst um það, hvenær fyrirhugað sé að réttar- höld þessi fari fram. Góður fiskafli BÆ, Höfðaströnd, 30. júní: — Fiskafli má heita góður í Hofsósi og allir í góðri atvinnu, við þorsk veiði, kolaveiði, vegavinnu og heyskap. Byrjuð er aðgerð og lenging á hafnarmannvirkinu á Hofsósi. Á að setja ker, sem steypt var i fyrra á Skagaströnd, framan við bryggjuna og gera við hana. — Björn. Oft gætti þess misskilnings hjá forytumönnum á þessu sviði, að verð útflutningsvörunnar skipti mestu máli um það hvort hún seldist vel eða ekki. En verðið væri aðeins eitt af mörgu, en alls ekkert aðalatriði. Fyrst og fremst væru það gæði vörunnar, sem kæmu til mats hjá kaupendum — svo og frágangur. Óplægðir akrar Að lokum gat Fabricius þess, að eftir stutta dvöl á íslandi hefði hann komið auga á stóra óplægða akra. Fyrst og fremst á sviði iðn aðarins, og þá næst hvað ferða- mönnum viðkemur: „Þið getið vart setið að náttúrufegurð lands j'xkar eins og gersemum, sem þið íiljið ekki að nokkur annar fái augum litið,“ sagði hann. „Danir hafa geysimiklar tekj- ur af erlendum ferðamönnum, það er stór hluti þjóðarteknanna. Bér eru ótæmandi möguleikar á þeim sviðum. Að vísu þarf til mikla fjárfestingu, en það eru peningar, sem koma fljótt aftur,“ sagði Fabricius að lokum. Þeir stóru — og smán Leif Holbæk Hansen, prófessor frá Bergen, flutti lika ræðu við þetta tækifæri. Hann tók til meðferðar sama efni og Fabricius — og sagði m. a. að á heimsmarkaðinum væru * Ný bílfær leið Það er mikill áhugi í ferða- mönnum að finna nýjar bíl- færar leiðir um óbyggðir lands ins og vöð á ám, sem komast má yfir. Nú nýlega fór Ferða- félagið og Jöklarannsóknar- félagið í könnunarferð, til að freista þess að komast á bíl Fjallabaksieið syðri, en þar er einkennilegt og fallegt. — Jöklar og háfjöll ber við him in og þar eru lindir, heitar og kaldar. Ætlunin var að komast inn í Hvannagil, en mikil bleyta var og var snúið við hjá Torfa kvísl.Stjóm Ferðafélagsins fór þessa ferð í þeim tilgangi að opna nýja leið fyrir ferðafólk, en jöklamenn til þess að fá betri aðgang að Kaldaklofs- jökli til rannsókna sinna. En sé hægt að komast þetta á bíl veitir það möguleika á að komast yfir í Reykjadalinn og þaðan er örstutt í Landmanna laugar. Þó þessir framámenn í ferða málum kæmust ekki alla leið sem þeir ætluðu sér í þetta sinn vegna aurbleytunnar, spái ég því, að ekki Hði Iangt þangað til þetta verður orðin ein af hinum eftirsóttu og fjöl förnu öræfaleiðum. Vegagerð ríkisins og Rangvellingar munu í sumar ætla að lagfæra eitthvað veginn, svo hægt sé a. m. k. að komast þarna með bíla undir dót þegar rekið er á fjall eða smalað. Og þá verð- ur áreiðanlega ekki langt þang að til skemmtiferðafólk kem- ur á eftir. • Maður á hverjum bás Bréfritari einn skrifar: „Ég er einn þeirra manna, sem oft eiga erindi í pósihúsið í Reykjavík. Alltaf hef ég mætt lipurð og kurteisi hjá afgreiðslufólki pósthússins, í hvaða deild, sem ég hef snúið mér. Gildir þar einu, þótt mik ið sé að gera og starfsmenn verði að leggja hart að sér. En ég vildi kvarta yfir því, að oft hef ég orðið að bíða í almennu bréfaafgreiðslunni, af því, að einhver básinn, þar sem almenn bréf eru afgreidd, er auður. Það er nefnilega svo ákaflega oft, sem afgreiðslu- mann vantar í einhvern al- menna básinn. Skora ég hér með á póst- stjórina að ráða bót á þessu, svo að viðskiptamenn þurfi ekki að tefjast aðeins af þeirri ástæðu, að afgreiðslumenn eru of fáir, þótt afgreiðslustaðirn- ir séu nægilega margir. Heiðarlegi drengurinn hann Ómar, sem sagt var frá í sunnudagsdálkunum er Halls- son ékki Halldórsson, eins og þar stóð. • Hættulegir axla- bandasprotar Sárreiður maður gerði ferð sína til Velvakanda á dögun- um og hélt á tveimur slitnum axlabandasprotum í hendinni. — Þessi axlabönd, sem fram leidd eru hér á landi, eru stór varhugaverð, sagði hann — og raunar svikin vara. Frágang- ur á sprotunum er svo óvand- aður, að lykkjan getur bilað þegar minnst varir, jafnvel á nýjum böndum. Getur hver maður gert sér í hugarlund þau óþægindi, sem af þessu geta hlotizt, ef maður fer út að skemmta sér og axlaböndin bila skyndilega — eða ef slíkt skeður á götum úti! Sjálfsagt er að taka það fram, svo að hinn innlendi framleiðandi sé látinn njóta sannmælis, að efnið í sprotanum er ágætt og teygjan góð. Það er einung is festing teygjunnar sem er hvergi nærri nógu örugg — og getur því brugðizt hrapal- lega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.