Morgunblaðið - 06.07.1960, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 6. júlí 1960
Monr.insm aðið
11
Sveinn Teits var
konungur vallarins
Akurnesingar unnu Keflvikinga 3-0
TÍUNDI leikur Isiandsmótsins
1. deild hófst kl. 16 á sunnudaj
á hinum nýja grasvelli þeirra
Skagamanna og var þetta fyrsti
leikurinn, sem fer fram á gras-
vellinum í sumar.
Veður var gott þegar leikurinn
hófst, lognmolla og skýjað loft,
en snemma í fyrri hálfleik tók
að rigna og í leikhiéi var komin
úrhellis rigning, sem hélzt leik-
inn út. Bleytan á vellinum hafði
þau áhrif að leikmenn beggja
hða áttu erfitt með að fóta sig
á grasinu og hlutu menn margar
byltur og stórar.
Keflvíkingar hófu þegar sókn
með stuttum samleik og á 2.
mínútu fær Högni góða send-
ingu fyrir markið, en skallar yf-
ir.
Þessi leikaðferð Keflvíkinga
kom mönnum nokkuð á óvart,
því langspyrnur fram miðjuna
hafa einkennt leik þeirra áður í
sumar og samleikurinn verið all
ur í molum. Að vísu hefir Albert
Guðmundsson mætt á einni æf-
ingu hjá Keflvíkingum og lagt
þeim lífsreglurnar, en tæplega
er hægt að búast við miklum ár-
angri af einni æfingu.
Á 4. mínútu er tekið horn á
Keflavík, knötturinn lendir i
varnarleikmanni ÍBK og hrekkur
út aftur. Þarna skall hurð nærri
hælum.
Fyrstu 10 mínútur leiksins
tekst Keflvíkingum að halda uppi
nokkuð góðum samleik, en á 11.
mínútu fær Ingvar knöttinn, ó-
valdaður inni á vítateig og
spyrnir viðstöðulaust á markið.
Heimir virðist ekki hafa átt von
á skoti og rétt nær með fingur-
gómana í knöttinn, sem augna-
bliki síðar liggur í netinu.
Eftir markið ná Keflvíkingar
sæmilegum samleik upp miðj-
una, en sókn þeirra brotnar á
vörn Akraness. Þeir Hólmbert og
Einar gera heiðarlegar tilraunir
að leika saman, en spil þeirra
verður of þröngt og útherjarnir
gieymast.
Skagamenn fara smátt og smátt
að færast í aukana og taka leik-
inn meira og meira í sínar hend-
ur. Sveinn Teitsson er hinn ó-
krýndi konungur á miðju vallar-
ins. Hann matar framherja sína
°g byggir upp hverja sóknina á
fætur annarri. Leiknum hallar
stöðugt á Keflvíkinga, sem eiga
í vök að verjast ,
Sem dæmi um sóknarþunga
Akurnesinga eru eftirfarandi at-
riði úr leiknum: 18,—20. mínúta
5 hornspyrnur á Keflavík. 21.
mín. Sveinn leikur upp, gefur
innfyrir til Ingvars, sem skaut
framhjá. — 26. mín. Ingvar fær
sendingu fyrir opið markið frá
Jóhannesi en missir af knettin-
um. — Ingvar óvaldaður í dauða-
færi, en skaut framhjá. — 29.
mín. Heimir ver hörkuskot frá
Helga. — 33. mín. Sigurður Al-
bertsson bjargar á línu. — 36.
mín Jóhannes spyrnir framhjá
úr dauðafæri og skömmu síðar
er hann einn með knöttinn fyrir
opnu marki, en sendir út tii
Helga í stað þess að skjóta. —
Sáðari hálfleikur var aðeins
tveggja mínútna gamall þegar
Ingvar skoraði annað mark sitt
framhjá úthlaupandi markmanni
eftir að hafa leikið á Hafstein.
Á 23. mín. skorar Helgi þriðja
markið eftir góða samvinnu við
Jón Leósson.
Fyrstu 30 mínútur síðari hálf-
leiks voru Skagamenn í sókn,
en er 15. mínútur voru til leiks-
loka var eins og Keflvíkingar
vöknuðu til lífsins aftur og náðu,
í þeir nú nokkrum góðum sóknar-
lotum, sem sköpuðu hættu fyrir
framan mark lA, en skotin brugð
ust og það var ekki fyrr en á
39. mínútu, sem hægt var að
segja að Helgi Dan. þyrfti að
verja skot, en þá átti Páll gott
tækifæri fyrir opnu marki. Þrátt
fyrir að Keflvíkingar reyndu að
pressa síðustu mínúturnar, þá
tókst þeim ekki að skora og leikn
um lauk 3:0 fyrir Skagamenn.
Beztu menn Keflavíkurliðsins
voru annars flokks piltarnir Ein-
ar og Hóimbert. Þeir reyndu að
ná samleik á miðjunni, en hætti
við að leika of þröngt og gleyma
útherjunum, einnig voru þeir of
seinir að koma Högna til hjálp-
ar, þegar hann var að glíma við
Kristin bróður sinn.
Tilraunin með Þórhall í stað
Skúla brást alveg, enda var
vinstri kanturinn vanræktur meg
inhluta leiksins. Sú tilraun ti!
samleiks sem Keflvíkingar sýndu
i þessum leik, er vafalaust stórt
skref í framfaraátt og takist lið-
inu að fá Hafstein til að vera með
og byggja upp, þá er baráttan
um að halda sætinu í fyrstu deild
alls ekki vonlaus
í liði Skagamanna var Sveinn
Teitsson í sérflokki. Ingvar átti
mun betri leik en gegn Red Boys
á dögunum og með örlítið meiri
rósemi verður hann hættulegur
miðherji. Jóhannes Þórðarson
hægri útherji gerði margt lag-
lega, en hann mætti hafa meira
sjálfstraust þegar hann hefir
skapað sér marktækifæri.
Dómari var Ólafur Hannesson.
Línuverðir Jón Þorsteinsson og
Guðjón Finnbogason. — B.Þ.
Kátir
voru
karlar
en spilið konist ekki í gang fyri
en öruggur sigur var unninn
EFTIR ausandi rigingu var
Laugardalsvöllurinn orðinn
rennandi blautur og fljúgandi
háll, er leikur Vals og KR
hófst á sunnudaginn. Flestir
leikmannanna fengu að finna
fyrir hinum erfiðu aðstæðum,
þegar á fyrstu mínútum leiks-
ins, og duttu hver um annan
þveran og í hálfleik voru
flestir eins og af sundi dregn-
ir. —
© RÓLEGUR LEIKUR
Fyrri hálfleikurinn var mjög
rólega leikinn af báðum liðun-
um en megin hluta leiktímans
voru Valsmenn í heldur meiri
sókn og ákveðnari á knöttinn.
Valsmenn duttu þó oftar en KR-
ingar, sem voru furðu stöðugir
á fótunum, nema Bjarni Felix-
son, sem naut þess að velta sér
í bleytunni, enda leikur Bjarni
sína beztu leiki, er hann verður
sem drullugastur!
Árangur af sóknarspili Vals
varð ekki sem verða átti, því
framlínan var ekki nógu sam-
hent, einn og tveir menn að vinna
að knettinum í einu án hjálpar
hinna. Vörn KR tókst því auðveld
lega að bægja hættunni frá. Hörð
ur átti góðan leik og Heimir var
öruggur í markinu. Bjarni var
öugiegur og Hreiðar átti léttan
leik, því lítið var leikið á Hilm-
ar.
© 1—0 VIÐ LEIKSHLÉ
Upphlaup KR voru snögg, en
leikur framlínunnar ekki eins
ÞEIR eru kátir á svip þess-
ir karlar, sem sjást hér
stíga út úr Viscountvél
Flugfélagsins. — Þeir hafa
lika fulla ástæðu til þess.
Fremstur gengur Axel Ein-
arsson, aðalfararstj. kvenna
landsliðsins, næstur honum
er Rúnar Guðmundsson, að-
stoðarmaður Axels og
sænsku túlkur fararinnar,
og þriðji maðurinn er Pét-
ur Bjarnason, þjálfari
landsliðsins, sem Norður-
landablöðin hældu á hvert
reipi fyrir góða þjálfun
landsliðsins.
öruggur og þeir eiga bezt til að
leika. Eitt mark var skorað í
fyrri hálfleik og var Þorsteinn
Kristjánsson þar að verki. Þórólf-
ur lagði góðan bolta inn á víta-
teigshornið og Þorsteinn kom
brunandi inn og sendi knöttinn
örugglega í mark Vals.
Q KR-SPILIÐ
í síðari hálfleiknum var
varamaður kominn í mark Vals,
þar sem Björgvin Hermannsson
hafði meitt sig í mjöðm og treysti
sér ekki til að halda áfram að
leika í markinu. — Valsliðið var
nú nær óþekkjanlegt frá því sem
það var í fyrri hálfleiknum. Bar-
áttuhugurinn var horfinn og lið-
ið allt mjög sundurtætt. KR-
ingar tóku því brátt leikinn í
sínar hendur og náðu nú upp
skemmtilegum samleik, enda stóð
ekki á árangrinum. 12 mín. voru
iiðnar af hálfleiknum, er Gunn-
ar Guðmannsson skoraði annað
markið. Gunnar fékk bortan ut-
an vítateigs og skoraði með föstu
og öruggu skoti í hægra horn
marks.’hs. Markmaðurinn gerði
tilraun til að verja, en kastaði
sér of seint og snerti knöttinn þvi
aðeins með fingurgómunum.
Tveim mín. síðar er Þórólfur
með knöttinn og einleikur
skemmtilega frá miðju Gefur
knöttinn síðan til Gunnars, sem
aftur sendir til Þórólfs. Skot Þór-
ólfs var fast en lendir í fæti
markmannsins og hrekkur fram
á vöilinn og Þorsteinn kemur að-
vífandi og skorar með föstu skoti
3—0.
NÝ alþjóðleg knattspyrnukeppni
hefur verið ákveðin. Samningar
um keppnina voru undirritaðir
nýlega á ráðstefnu, sem haldin
var í Thurnberry.
Knattspyrnukeppni þessi verð-
ur þreytt af 8 frönskum knatt-
spyrnuliðum, 4 enskum og 4
skozkum liðum. Fjögur hinna
frönsku liða munu leika gegn
ensku liðunum og skozku liðin
gegn hinum fjóru frönsku lið-
unum, sem þá eru eftír. Stig ráða
úrslitum í hverjum riðli og siðan
leikinn úrslitaleikur.
Til greina hefur komið að bjóða
Sviss, ítaiiu og írlandi þátttöku
Q MÖRK Á FÆRIBANDl
Eftir þetta mark leika KR-
ingar betur en nokkru sinni fyrr
í leiknum. Knötturinn fer mann
frá manni. Framverðirnir, Reynir
og Helgi taka völdin á miðjunni
og Reynir Smith sýnir nú betur
en nokkru sinni fyrr að hann er
mjög vaxandi leikmaður. Er 25
mín. eru liðnar af hálfleiknum,
sendir Helgi Jónsson „kanónu'*
að marki Vals, sem lendir upp
undir þverslánni, án þess að
markmaður hafi nokkur tök á
að verja. 4—-0 fyrir KR og Vals-
menn gera nokkrar örvæntingar-
fullar tilraunir til að rétta hlut
sinn, en án árangurs.
35 mín. eru af leik er KR-ingar
skora 5. markið. Heimir hafði
hent út til Hreiðars, sem sendir
áfram til Reynis. Reynir fram til
Arnar, er leikur upp að vítateig,
en sendir síðan inn í vítateiginn
og Þórólfur tekur knöttinn nokk-
ur skref með sér og síðan liggur
hann í neti Valsmarksins — 5—0.
Enn kemur nokkur fjörkippur í
Valsmenn og Ægir er í færi en
Heimir lokar með úthlaupi. Síð-
ustu mínúturnar taka KR-ingar
leikinn algerlega á sitt vald og er
44. mínútur eru af leik er þeim
dæmd vítaspyrna á Val (nokkuð
ódýr).
Sveinn Jónsson spyrnir knett-
inum og knötturinn liggur i
hægra horni Valsmarksins, en
markmaðurinn á leið út í vinstra
horn marksins, og þannig endaði
leikurinn — 6—0 fyrir KR.
Dómari var Þorlákur Þórðason
og sannaði hann að hann er i
flokki þeirra dómara, sem ættu
að taka hlaupaæfingar, áður en
þeir leggja út í að dæma leik i
fyrstu deildarkeppninni. — Á.Á.
rétt í keppni þessari, en það verð
ur ekki fyrr en á næsta ári, þeg-
ar allir byrjunarörðugleikar hafa
verið yfirunnir.
Keppt er heima og heiman og
fara leikirnir fram um helgar.
Skotarnir keppa í Frakklandi
sunnudaginn áður en skozka
deildarkeppnin byrjar og Bret-
arnir keppa sömuleiðis sunnu-
daginn áður en brezka deildar-
keppnin hefst í Bretlandi. Frakk-
arnir munu svo keppa í Stóra-
Bretlandi í haust. — Aðal fram-
kvæmdastjóri keppninnar er
Frakkinn L. B. Dancausse, en til
vara ítalinn G. Pasquale.
Ný knattspyrnukeppni