Morgunblaðið - 06.07.1960, Qupperneq 23
Miðvik'udagur 6. júlí 1960
MORGVNBLAÐIÐ
23
Akranes styrkt 3
úr Arsenal vann
I GÆRKVÖL.DI fór fram á
Akranesi leikur milli styrktra
liða Akurnesinga og Vals. —
Með Akurnesingum léku þrir
af atvinnumönnum hins
heimsfræga enska liðs, Ar-
senal. Eru það markvörður-
inn Kelsey, Dodgin miðvörð-
ur og Clapton útherji. — Með
Val lék í marki Helgi Daníels
son. Urslit urðu þau að Akur-
nesingar sigruðu með 3 mörk-
um gegn engu.
Öffilt mark!
Valur skoraði mark strax á 9.
míuútu í fyrri hálfleik, en ddm-
arinn dæmdi ran^stöðu. þó að
boltinn hafi hrokkið af Akur-
nesing til Hjálmars, vinstri út-
hcrja Vals, sem skoraði.
Akurnesingar skora sitt fyrsta
mark á 22. mínútu í fyrri hálf-
leik. Ingvar skoraði eftir góða
sendingu frá tlaplon. Þrem mín.
síðar skorar Helgi Björgvinsson
annað mark Akurnesinga. Jó-
hannes Þórðarson hægri útherji
Akraness hafði hlaupið upp með
knöttinn og inn, gefur síðan til
Helga út á hornið á vítateignum.
Þriðja markið skoraði Ingvar
þegar 20 mínútur voru af seinni
hálfleik eftir mjög mikil mis-
tök í vörn Vals, og knötturinn
hrökk af varnarleikmarmi Vals
í mark.
Góður leikur Vals
Leikur þessi var sá bezti sem
Valur hefur leikið það sem af er
sumrinu og Hermann þjálfari
þeirra segist ekki hafa séð þá
leika betur sl. 3 ár. Helgi Daní-
elsson i marki Vals var bezti mað’
urinn í liðinu.
Magnús Snæbjörnsson miðfram
vörður átti góðan leik, og einnig
Guðmundur Elísson og nýliðinn
Steingrímur Dagbjartsson, sem er
sérlega efnilegur.
Englendingar í liði Akraness
fóru sér mjög hægt. Miðfram-
vörðurinn réði miðjunni og mark-
maðurinn stóð sig mjög vel í
marki. En Slapton var veikur og
mjög miður sín, en augsýnilega
mjög góður leikmaður.
Af Akurnesingunum átti Ingv-
ar mjög góðan leik og sömuleið-
is Sveinn Teitsson og Jóhannes
Þórðarson. Annars var leikur-
ínn vel leikinn og bæði liðio
lögðu mikið upp úr samleik. —•
Mjög margt var um áhorfendur
eða um 1500 manns. Veður var
gott fyrri hálfleikinn, en nokkur
gola kom í seinni hálfleik.
íslenzku sendiherrahjónin í Kaupmannahöfn höfðu að venju
móttöku heima hjá sér á þjóðhátíðardaginn. Þar voru margir
íslendingar saman komnir og auk þess ýmsir danskir tslands-
vinir. Á myndinni sjást sendiherrahjónin hægra megin, að taka
á móti tveimur af gestunum, Sigurði B. Sigurðssyni og Elsu
Sigfúss. —
70-75 millj.
ára
ttOSKVU, 5. júlí. (NTB/
teuter) — Ungur stúdent,
Jodgan Lyashchyuk að nafni,
lefur fundið 10—15 milljón
ira gamalt fuglsegg á bakka
ljótsins Prut í Úkraínu, í
rrennd við Vorokhta. Frétta-
itofa Tass skýrði frá þessu í
lag, og þykir þetta hinn merk
isti fundur.
Eggið er orðið nær svart af
elli. Það vegur 600 grömm,
skurnið er orðið mjög kalk-
runnið, en heldur þó venju-
legri egglögun. — Á sama stað
fann stúdentinn greinilegt
mót af mýrajurtum og spor
eftir óþekkta skepnu með
skarpar klær. Fundurinn var
tilkynntur vísindaliáskóla
Úkraínu, sem nú rannsakar
eg'gið, og staðinn, þar sem
það fannst. — Fréttina sagði
Tass komna frá forseta há
skólans.
150 lestu stólbótur til EskiljarSor
I FYRRADAG kom 150 lesta stál-
bátur til Eskifjarðar, eign hrað-
frystihúss Eskifjarðar hf. Bátur-
inn heitir Vattarnes, SU 220.
Hann er smíðaður í Noregi og
kom beint frá Bergen. Skipstjóri
er Árni Halldórsson og 1. vél-
stjóri Haukur Zóphónía.sson.
— Iþróttir
Framh. af bls. 22
110 m grindahlaup Sek.
1. Lee Calhoun.......... 13.4
2. Willie May .......... 13.5
3. Hayes Jones ........ 13.5
400 m hlaup Sek.
1. Jack Yerman ......... 46.3
2. Earl Young ......... 46.5
3. Otis Davis .......... 46.6
3000 m hlaup Mín.
1. George Young ...... 8.50.6
Framh. af bls. 22
stökki — en tvívegis titraði
ráin á þollunum.
Hástökk Sm
1. John Thomas......... 222.8
Nýtt heimsmet. — Viðurkennt
heimsmet á Rússinn Yuri Step-
anov, 216 m.
2. Joe Faust .......... 213.3
3. Charley Dumas....... 210.8
400 m grindalilaup Sek.
1. Glenn Davis.......... 49.5
2. Dick Howard ......... 49.8
3. Cliff Cuhcman ....... 49.8
200 m hlaup Sek.
1. Ray Norton .......... 20.5
2. Stone Johnson........ 20.8
3. Les Carney ........ 20.9
4. Bobby Morrow ........ 21.1
Tími Nortons er 1/10 sek.
betri en hið viðurkennda
heimsmet, sett af Andy
Standfield 1951. I undanrás
hlaupsins vann Johnson Nor-
ton og fékk sama tíma og
Norton í úrslitunum, 20.5 sek.
Norton hljóp í undanrásinni
á 20.7 sek.
Morrow var fyrstur fyrstu 100
metrana, en hann hefur ekki get-
áð æft sem skyldi vegna þrálátra
tognana í fæti og kom það fram
á síðustu metrum hlaupsins.
800 m hlaup Mín.
1. Tom Murphy......... 1.46.7
2. Jerry Siebert...... 1.46.8
3. Ernie Cunliffe .... 1.47.5
-n Dupree ........ 1.47.5
.
Ganghraði bátsins er 11 mílur, og
fylgja honum öll nýtízku tæki.
Vattarnes fer á síld í dag.
Þokast í ál tina
GENF, 5. júlí (Reuter). -w
Heldur þokaðist í áttina á
kjarnorkuvopnaráðstefnunni i
Genf í dag. — Rússneski full-
trúinn, Tsarapkin, féllst á til-
lögu Sir Michael Wright,
brezka fulltrúans, um skipun
eftirlitsnefndar með banni viff
kjarnavopnatilraunum. —
Meginefni tillögunnar var þaff,
að framkvæmdastjóri nefnd-
arinnar og fulltrúi hans
skyldu vera frá hlutlausum
ríkjum, en aðrir fjórir nefnd-
armenn skiptust jafnt milli
austurs og vesturs.
Bandaríski fulltrúinn, Wads
worth, kvaðst telja, að ríkis-
stjórn sin mundi skjótlega
fallast á tillögu þessa.
Spjótkast M
1. A1 Cantello......... 86.60
2. Bill Alley .......... 82.18
3. Terry Beucker ....... 78.00
5000 m hlaup Mín.
1. Jim Beatty ........ 14.13.6
2. Bill Dellinger..... 14.13.8
3. Bob Soth .......... 14.18.6
100 m hlaup Sek.
1. Ray Norton ........... 10.4
2. Frank Budd............ 10.4
3. Daue Sime ............ 10.4
4. Paul Winder............ 10.4
Charlie Tidwell, sem jafnaði
heimsmetið í 100 m, 10.1 sek., í
vor, varð að hætta eftir 25 metra.
Hann stökk í loft upp og engdist
sundur og saman af kvölum.
Vöðvi hafði sprungið, og þar með
4ra ára þjálfun og draumur um
Rómarferð þurrkaður út. Hann
gat ekki heldur tekið þátt í 200
metra hlaupinu.
2. Phil Coleman ....... 8.51.0
3. Deacon Jones ........8.52.5
1500 m hlaup Mín.
1. Dyrol Burleson ......3.46.9
2. Jim Grelle ......... 3.47.4
3. Peter Close ........ 3.49.0
Kringlukast M
1. Rink Babka .......... 58.61
2. A1 Oerter............. 57.37
3. Dick Cochran......... 55.44
Þrístökk M
1. Ira Davis........... 16.18
2. Herman Stokes ....... 15.82
3. Bill Sharpe.......... 15.78
Sleggjukast M
1. Al Hall.............. 65.40
2. Hal Connolley ....... 64.70
3. Ed Bagdonas ......... 62.78
Kúluvarp M
1. Dallas Long......... 19.297
2. Parry O’Brien....... 18.992
3. Dave Davis ......... 18.986
4. Bill Nieder ........ 18.980
Langstökk M
1. Ralph Boston......... 8.089
2. Anthony Watson ..... 7.855
3. Bo Roberson ......... 7.759
4. Greg Bell ........... 7.721
— Milljónatap
Framih af bls 1
og nær 1200 milli Islands og N,-
Ameríku í viku hverri.
Mikill hluti farþeganna í milli-
landaflugi íslenzku félaganna eru
útlendingar. Bæði félögin hafa
varið mjög miklu fjármagni á
undanförnum árum til auglýs-
ingastarfsemi „og það er fyrst
núna, að við erum farnir að sjá
verulegan árangur“, sagði einn
framámanna flugmálanna í við-
tali við Mbl. í gær.
A aðra milljón
Þess vegna væri það íslenzk-
um flugmálum óbætanlegt tjón,
ef hið erfiða og kostnaðarsama
kynningarstarf liðinna ára yrði
| nú að engu gert. Félögin yrðu
fyrir beinu fjárhagslegu tjóni af
völdum verkfalls, sem næmi
milljónum króna.
Með þeirri góðu sætanýtingu,
sem fyrirsjáanleg er núna, þeg-
ar mesti annatíminn fer í hönd,
er ljóst, að daglegar tekjur af
innanlands-, utanlands- og leigu-
flugi Flugfélags íslands verða
um hálf milljón krónur á dag.
Sömu sögu er að segja um Loft-
leiðir og það mun ekki fjarri
lagi, að sala Loftleiða sé rúmlega
helmingi meiri og samanlögð far
miðasala beggja félaganna verði
á aðra milljón á dag — og
mikill hluti þess í erlendum gjald
eyri. Ótalin eru bein útgjöld, sem
félögin yrðu fyrir vegna stöðv-
unar.
Mikið tap
Og það eru einmitt þessir sum
armánuðir sem fleytt hafa félög-
unum yfir erfiðasta hjallann.
Þessar tekjur eru þeim nauðsyn-
legar til að standast straum af
misjafnri nýtingu flugvélanna yf-
ir vetrarmánuðina, feikilega dýr-
um rekstri svo ekki sé talað um
hina kostnaðarsömu endurnýjun
flugflotans.
j Á hinn bóginn munu þetta smá-
munir miðað við allt óbeint tjón,
t
sem felögin yrðu fyrir eriendis.
Það yrði stórfelldur álitshnekkir
* — og viðskiptasamböndin, sem
! félögin hafa á undanförnum ár-
um öðlazt með ærnum kostnaði,
væru í voða. Það tap yrði lengi
j að vinnast upp — og það tap væri
ekki einungis flugfélaganna
sjálfra, heldur alls þjóðarbúsins.
! Fregnirnar, sem bárust til út-
landa, um verkfallshorfurnar á
íslandi, urðu þess valdandi, að
síðustu dagana hafa margir vænt-
anlegir farþegar flugfélaganna
snúið sér til annarra félaga.
Syndið 200 metrana
Þakka innilega öllum sem glöddu mig með gjöfum og
kveðjum á 50 ára afmæli mínu.
Kærar kveðjur
Hákon Pálsson, Sauðárkróki
í tilefni gullbrúðkaups okkar 29. júní 1960 viljum við
þakka hjartanlega börnum, frændfólki og vinum, allar
góðar gjafir, blóm og skeyti. — Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Kolbeinsdóttir, Indriði Guðmundsson
Mínar innilegustu þakkir færi ég vinum og vandamönn-
um er á margan hátt glöddu mig á áttræðis afmælinu,
þann 29. júni. — Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Gísladóttir, Hjallaveg 19.
Útför
DANlELS ÖGMUNDSSONAR
skipstjóra,
fer fram frá Keftavíkurkirkju fimmtudaginn 7. júlí. —
Kveðja frá heimili hans Þórustíg 20, Ytri-Njarðvík hefst
kl. 1,30.
Eiginkona og börn
Jarðarför mannsins míns og föður okkar
BENEDIKTS B. GUÐMUNDSSONAR
fer fram frá Landakotskirkju föstudaginn 8. þ.m. kl.
10 f.h. — Blóm afþökkuð.
Svandís Vilhjálmsdóttir og dætur
Faðir okkar og tengdafaðir
INGÓLFUR TÖMAS HELGASON
verður jarðsunginn frá, Fossvogskirkju, fimmtudaginn
7. júlí kl. 10,30 f. h.
Börn og tengdabörn
Móðir mín,
KBISTLAUG MARKÚSDÓTTIR
andaðist þ. 3. júlí. — Jarðsett verður að Hjarðarholti í
Dölum, laugardaginn 9. júlí kl. 2 síðd.
Margrét Guðbrandsdóttir
Innilegar þakkir íyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
STEINUNNAR BJÖRNSDÓTTUR
Sólvallagötu 39
Dóttir, tengdadóttir og barnabörn hinnar látnu.
Alúðar þakkir til allra fjær og nær, sem auðsýndu
vináttu og samúð við andlát og jarðarför okkar hjart-
kæru systur, mágkonu og frænku,
JÓHANNE KAROLINE HALDORSEN
Ragnar Severin Haldorsen
Haldor Johan Haldorsen, Guðrún S. Þ. Haldorsen
Þorlákur R. Haldorsen