Morgunblaðið - 20.07.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.07.1960, Blaðsíða 2
'rr~ MORGUTSB1. AÐIÐ Bœttar horfur í Kongó; Belgískt herlið vetður á brott Lið S.þj. brátt fœrt um að tryggja öryggi borgaranna New York og Leopoldville, 19. júlí. NTB-Reuter-AFP. BROTTFLUTNINGUR belg- ískra herflokka frá Leopold- ville mun hefjast á miðviku- dag og skal verða lokið síð- degis á laugardaginn, jafn- framt því sem eflt verður ör- yggislið Sameinuðu þjóðanna til þess að vernda öryggi ev- rópskra og afrískra íbúa. Mikilsverður árangur Þetta eru meginatriðin í sam- komulagi, sem i dag tókst milli Ralph Bunche, aðstoðarfram- kvæmdastjóri S. þj., og belgíska sendiherrans í Leopoldville, Van den Bosch. Annað merki um hin- ar mikilsverðu aðgerðir S. þj. í Kongó var í dag tilkynning frá aðalstöðvunum í New York um að Dag Hammarskjöld hefði ákveðið að fara til Leopoldville. Þarflaus mótmæli Hin stórpólitíska þýðing Kongó- vandamálsins kom enn glöggt fram í mótmælaorðsendingu, sem Sovétríkin sendu Bandaríkjun- um, þar sem þau fyrrnefndu krefjast þess, að 20 bandarískir hermenn, sem skv. blaðafréttum séu komnir til Leopoldville, verði þegar á brott þaðan. Ef ekki verði orðið við þeirri kröfu, muni Sovétstjómin grípa til nauðsyn- legra ráðstafana. Þiír stúdenlor iórust ORLORON, 18. júlí (Reuter): Þrir fjallgöngugarpar, einn þeirra ung kona, fundust í dag látnir á hinum 8,700 feta háa Pic Du Midi í frönsku Pyrenneafjöllunum. Björgun- arlið hraðaði sér allt hvað af tók á staðinn, þegar sást til tveggja þeirra hangandi fram af þverhníptri klettabrún. Fyrst var farið á stúfana í gær, eftir að franskur ferða- maður hafði í kíki sínum kom ið auga á eitthvað, sem líkt- ist rauðum leðurjakka, liggj- andi á klettasillu. Þyrluflug- maður vísaði björgunarliðinu á klettabrúnina, þar sem 2 líkin héngu. Hinir látnu reynd ust vera franskir stúdentar frá Toulouse. Sovézkur alþýðuvagn LONDON, 18. júlí (Reuter): — Nikita Krúsjeff, forsætisráðherra, og Leonid Brezhnev, forseti Sovétríkjanna, fóru í dag í öku- ferð um Moskvu í hinum nýja sovézka „Zaporzhet“ smábíl. Skoðuðu þeir, ásamt öðrum sovézkum leiðtogum, hinn 2 dyra fjögurra manna bíl, sem smíðað- ur er í Kommunar-bílaverk- smiðjunni í Zaporozhye í Ukran- ínu. Bíllinn hefur 25 bremsu- hestafla, loftkælda vél, og er hægt að aka honum með um 80 km hraða á klst., en benzíneyðsl- an er um 5 lítrar á þeirri vega- lengd. — Fyrst var skýrt frá gerð bílsins í janúar 1959, þegar sagt var að fjöldaframleiðsle hans væn að hefjast. Var þessi orðsending Sovét- ríkjanna send út nokkrum klukkustundum áður "en liðinn var sá frestur, er Lumumba for- sætisráðherra hafði sett fyrir brottflutningi belgíska hersins úr landinu, en hann kvaðst svo sem skýrt hefur verið frá mundu leita aðstoðar Sovétríkjanna, ef herinn yrði ekki á brott fyrir tilsettan tíma. Opinberir aðilar í Washing- ton hafa í dag gjörsamlega vís að á bug öllu sovézku tali um bandaríska hernaðaríhlutun í Kongó. Bandaríkjamenn í birgðaflutn- ingum Talsmaður utanríkisráðuneyt- isins, Lincoln White, skýrði frá því í þessu sambandi, að banda- rískir hermenn störfuðu einung- is að birgðaflutningum til lands- ins og ynnu sitt starf á vegum S. þj. Fjölgar í liði Sþj. Ralph Bunche skýrði frá því á 'blaðamannafundi í Leopoldville í dag, að liði S. þj. í landinu fjölg aði stöðugt og væru nú m.a. vænt anlegir hermenn frá nokkrum löndum Suður-Ameríku og Af- ríku, ennfremur Burma, Kanada, ftalíu og Svíþjóð. Öryggisliðið mun þess vegna brátt verða fært um að halda uppi lögum og reglu í landinu Qg tryggja fullt öryggi borgaranna. Belgar á brott Belgíski sendiherrann hefur upplýst, að fyrstu sveitir belg- ískra fallhlífaliða hafi þegar yf- irgefið Leopoldville. Ekki er full- komlega Ijóst*, hvort herlið Belga verður flutt úr landi strax, en það mun a. m. k. snúa aftur til her- stöðva belgískra í landinu. Öryggisráðið ræðir málið Ekki er enn fullvist, hversu fjöl mennt lið S. þj. í landinu verður, talað er um 20.000 manns. Þetta mál mun verða rætt í aðalstöðv- um S. þj. á morgun og tekur Alex ander hershöfðingi frá Ghana þátt í þeim umræðum. Öryggisráðið mun taka Kongó- málið til meðferðar á miðviku- dag. MiðviKúdagur 20. júlí 1960 Sigurvegararnir á Golfmeistaramóti tslands me ð verðlaun sín. — Talið frá vinstri: Gunnlaugur Axelsson, Vestmannaeyjum, 2. í 1. flokki, Sigur jón Hallbjörnsson, Reykjavík, 1. í 1. flokki, Ól- afur Ág. Ólafsson, Rvík, 2. í M. fl., Jóhann Eyjólf son, Islandsmeistari 1960, Jóhann Þorkelsson, Ak- ureyri, öldungamcistari án lorgjafar 1960, Gunn ar Þorleifsson, Rvík, 1. í 2. fl. og Stefán Árnason, Akureyri, 2. I 2. fl. — Á myndina vantar Halldór Magnússon, sem vann öldungakeppnina með for- gjöf, og Svein Arsælsson, sem varð 3. í meistara flokki, og var Islandsmeistari 1959. Hafnarverkamenn hindra útskipun Olöglegt verkfall i Kaupmannahöfn breidist út Kaupmannahöfn, 18. júlí. Frá fréttaritara Mbl. ÖLÖGLEGT verkfall hafnar- verkamanna í Kaupmanna- höfn breiddist út hér í dag, er forvígismönnum þeirra 200 starfsmanna við innanlands- siglingar, er lagt hafa niður vinnu, tókst að hindra ferm- ingu útflutningsvara um borð í nokkur skip við Christians- bryggju, þar sem um 700 verkamenn lögðu niður vinnu snemma í dag. Þykir kaupið lágt Síðar náði verkfallið einnig til fleiri skipa í höfninni. Verkamenn neita að vinna fyrir 230 kr. Iaun á viku, sem þeir nefna „vinnukonulaun“. Krefjast þeir verulegrar kaup hækkunar. Vinnuveltendur hafa aftur á móti neitað að semja við þá, fyrr en hinu ólöglega verkfalli hafi verið hætt. Sektir vofa yfir Búizt er við, að gerðardómur muni dæma verkamennina í veru legar sektir fyrir þátttöku i hinu ólöglega verkfalli. Samtök hafnarverkamanna virðist ekki lengur hafa stjórn á félagsmönn- um sinum. ★ Nýjar fregnir í gærkvöldi: ÞÁTTTAKA í verkfalli hafnar- verkamanna jókst enn í dag og nær nú til yfir 1000 manna og lamar allt athafnalíf í höfn borg- arinnar og fríhöfninni. Vinna við 125 skip hefur stöðvazt. Milljónal útflutningsverðmæti eru í húfi, og haldi verkfallið áfram getur það haft alvarlegar afleiðingar, einkum fyrir sölu á dönsku bacon og smjöri á brezkum mörk uðum. Grípur stjórnin í taumana? Nokkur blaðanna vekja máls á þeim möguleika, að ríkisstjórn in grípi í taumana, e. t. v. með því að nota hermenn til útskip- unar og affermingar skipanna undir lögregluvernd. Forsætis- ráðherrann telur hins vegar enn sem komið er ekki ástæðu til að stjórnin láti að sér kveða. Samtök Ameríku- ríkja fjalli um ósamkomulagið NEW YORK, 19. júlí (NTB/ Reuter). — öryggisráðið sam- þykkti í dag, að vísa ósam- komulagi Kúbu og Bandaríkj- anna til samtaka Ameríkuríkj- anna. Kommúnistaríkin í ör- yggisráðinu, Sovétríkin og Pól land, sátu hjá við atkvæða- greiðsluna. Öll hin aðildarrík- in greiddu atkvæði með tillög- unni, sem borin var upp af fulltrúium Argentínu og Ecua- dor. Minkar í Cilsfirði PATREKSFIRÐI, 18. júlf. — Nýlegá var Pálmi Magnússon, bifreiðastjóri á ferð um Gilsfjörð. Varð hann þá var við tvo minka sem voru í fjörunni. Tókst Pálma að drepa bæði dýrin. Var þetta læða og yrðlingur. Hingað til hef- ir ekki verið til þess vitað að minkur hafi komið þetta langt vestur. — Trausti. fMAIShnúi* ^ SV50hnútar X Sn/óJcomú t 09» V Stúrír K Þrumur KuUatii/ ZS' Hitashi/ H Hmt L Lmai | var á austurleið í gær og bar S með sér skýjað loít og regn- ^ skúrir. Veður var kyrrt hér á S landi, víðast 10-13 stiga hiti, ( mest 15 stig á Kirkjubæjar- ^ klaustri kl. 15, og þá var víð- s ast úrkomulaust. — yfir Eng- i landi voru þrumuskúrir. SV-mið til Vestfjarðamiða: Sunnan gola, smáskúrir. Norðurland til Austfjarða og Norðurmið til Austfjarða- miða: Hægviðri, víða léttskýj- að. SA-land og SA-mið: SV gola, smáskúrir á morgun. Stjórn Tambronis sagöi af sér í gær Liklegast talið, oð Fanfani verði nú falin stjórnarmyndun Róm, 19. júlí. (NTB-Reuter) FERNANDO Tambroni, for- sætisráðherra, afhenti í dag Giovanni Gronchi, forseta, lausnarbeiðni sína og stjórnar sinnar. Tambroni gaf út yfirlýsingu um lausnarbeiðnina eftir fund ríkisstjórnarinnar fyrr í dag, og er buizt við að forsetinn fallist á hana. Verður þar með á enda þriggja mánaða stjórnartíð tutt- ugustu og annarrar ríkisstjórnar ítalíu eftir styrjöldina. Fanfani líklegastur Almennt er gert ráð fyrir, að Gronohi forseti feli næstu stjórn armyndun Amintore Fanfani, úr vinstra armi Kristilega demó, krataflokksins, en hann hefur tvávegis áður verið forsætisráð- herra; þ. e. í 12 daga snemma árs 1954 og frá því í júli 1958 til febrúarmánaðar 1959 Þrír smáflokkar styðja Stjórn Tambronis, sem einnig er kristilegur demókrati, naut m. a. stuðnings 24 nýfasista til tryggingar þingmeirihluta, og var það ástæðan til þeirra ó- eirða, sem kommúnistar í land- inu hafa staðið fyrir upp á síð- kastið. Hin nýja ríkisstjórn kristi legra demókrata undir forsæti Fanfanis mun væntanlegabyggja meirihluta sinn á stuðningi þriggja smáflokka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.