Morgunblaðið - 20.07.1960, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.07.1960, Qupperneq 8
8 MORGVNBl AÐiÐ Miðvikudagur 20. júlí 196( Forsmáð MYNDIRNAR sem hér birt- ast eru teknar á yfirlitssýn- ingu á bronzmyndum og teikn- ingum Sir Jacops Epstein, sem haldin var í Leicester lista- safninu í London fyrir nokkr- um vikum. Frá því um 1913 hafa verC haldnar þar nítján sýningar á verkum þessa lista- manns og þótti því vel viðeig- andi að halda þar slíka yfir- litssýningu nú, ári eftir lát listamannsins. Á sýningunni voru 68 bronz- myndir og 38 teikningar, unn- ar á árunum 1909 til 1959. Þótti hún því gefa góða hugmynd um þróun listamannsins. Einn stór þáttur varð þó útundan, þar sem voru tréskurðarmynd- ir listamannsins, en þær eru msirgar mjög stórar. Sýningar salir Leicester listasafnsins eru ekki stórir og þóttu tré- skurðarverkin því líkleg til að eyðileggja heildarsvip sýning- arinnar. Það listaverk, sem hæst bar á þessari sýningu var bronz- styttan „Kristur“ sem sýnd var í fyrsta sinn fyrir 40 árum og varð tilefni mikillar vand- lætingar og harðra deilna. Hef ur myndin ekki verið sýnd á sýningu síðan. Það fór í sum- ar, sem menn höfðu vænzt, flestir álitu að „Kristur" væri eitt stórbrotnasta listaverkið á sýningunni. Sir Epstein var fæddur 10. nóv. 1880 í New York. Hann nam fyrst þar í borg en fór síðan til Parísar þar sem hann varð fyrir sterkum og varan- legum áhrifum frá Rodin. arum KRISTUR. — Myndin hefur ekki verið sýnd opin- berlega síðan 1920. Hún var gerð 1919 og er nærri 3 m á hæð. Ljóðakvöld hjá Vilhjálmi Á sunnudagskvöldið efndi Vil- hjálmur frá Skáholti til Ijóða- og tónlistarkvölds í hinum vist- lega kjallara sínum við Aðal- stræti í Reykjavík. Kvöldið hófst með þvi, að Jó- hann Hjálmarsson las upp frum- ort Ijóð og þýðingar sínar á kvæð um eftir Quasimodo. Þá lék Skúli Halldórsson á píanó lagið Draumaljóð eftir sig, við texta eftir Vilhjálm, en Gunnar Krist- insson söng. Þorsteinn Jónsson frá Hamri las upp ljóð úr nýútkominni bók sinni, Tannfé handa nýjum heimi. Þá lék Skúli Halldórsson tvö lög eftir sjálfan sig, Smala- drenginn og Vor, við ljóð eftir Vilhjálm. Að lokum las Baldvin Halldórs son, leikari, upp þrjú kvæði eft- ir Vilhjálm. Fjöldi manna 'var viðstaddur þetta kvöld, eða eins margir og húsakynni frekast leyfðu. William Biake. — Frium- myndin af þessari styttu er komið fyrir í Westminster Abbey. Þessi mynd var gerð 1957. Pandit Jawaharlal Nehru, forsætisráðherra Indlands. „Tagore . Myndin er gerð Myndin er gerð 1949. 1926. FIB endurvakið og hyggur á stór verkefni AÐALFUNDUR FÍB — Félags íslenzkra bifreiðaeígenda — var haldinn í Skátaheimilinu við Snorrabraut sl. mánudag. Fund- arsókn var góð, eða á annað hundrað manns. Félagsstarfsemin hefur legið niðri nú um tvö — þrjú undan- farin ár, en nokkrir félagsmenn tóku nú höndum saman um að krefjast aðalfundar. Á fundinum gaf formaður skýrslu um störf félagsins á und- anförnum þrem árum, og lesnir voru upp reikningar þess. Þá var gengið til stjórnarkosningar, og voru allir menn kjörnir nýir í stjórnina. Formaður var kosinn Arinbjörn Kolbeinsson læknir, gjaldkeri Jóhann Ragnarsson lögfr. ritari Björn Sveinsson verk þeir Haukur Pétursson verkfr. og Guðmundur Karlsson blaða- maður. Varamenn í stjórn þeir Gísli V. Sigurðsson póstm. og Valdimar Magnússön verzlunar- maður. Hinn nýi formaður félagsins hélt þá stutta ræðu. Starfsemi félagsins er í rauninni tvíþætt, sagði hann. í fyrsta lagi pjónusta við bifreiðaeigendur, og í öðru lagi endurbætur á umferðarmál- um. Hagsmunamál bifreiðaeig- enda eru mörg og drap hann m. a. á lækkun tryggingariðgjalda en þau eru óvenjulega há hér á landi. Tjón vegna bifreiðaárekstra \ mun nú vera um 25% af öllu I tjóni landsmanna samtais, og / hlýtur það að vera eitt helzta verkefni félagsins, að reyna að draga úr því og jafnframt að fá tryggingariðgjöld lækk- uð. Þjónusta bifreiðaumboða og viðgerðarverkstæða er ekki við- unandi, sagði hann. Iðgjöld af útvarpstækjum í bílum eru ó- réttmæt og illa þokkuð, en ef til vill mætti leysa það mál að nokkru með innlutningi nýrrar tegundar viðtækja. Híngað til heur FÍB aðeins tekið við einka- bifreiðaeigendum í félagsskap sinn en sjálfsagt mundi vera að gefa atvinnubifreiðastjórum kost á að vera með. í sambandi við umferðamál, skýrði formaður nokuð ýtarlega fra þeim sköttum, sem bifreiða- eigendum er gert að greiða í sambandi við benzín- og olíu- kaup. Formaður drap á ýmis fleiri viðfangsefni félagsins, enda mun úr nógu að velja, en eitt hið fyrsía, sem bíður hinnar nýju stjórnar, er skipulagning við- gerðar- og hjálparþjónustu um verzlunarmannahelgina, Harður árelcstur við Fossvogshrú AÐFARANÓTT sunnudagsins varð bílslys á Hafnarfjarðar- veginum, við Fossvogsbrúna. Var stórum bandarískum fólksbíl ek- ið á endastöpul brúarinnar. Tveir menn voru í bílnum og meidd- ust báðir, en ekki mikið. Bíllinn skemmdist mikið. ♦ Bíll á móti Mennirnir í bílnum voru á leið suður eftir Hafnafjarðarvegin- um. Var bíllinn kominn nærri Fossvogsbrúnni, er hann skaust framúr bíl, en þá kom bíll að sunnan beint á móti. — Öku- manni bandaríska bílsins, virðist þá hafa fatazt stjórnin á bílnum, því hann rakst á brúarstöpulinn. Við höggið rifnaði aurbrettið af, og vinstri hurðin brotnaði af bíln um og lá í götunni eftir árekst- urinn. Aurbrettið vafðist svo kringum brúarstöpulinn að nota varð kranabíl sem kom á stað- inn, til að losa það. Ölvun? Eigandi bílsins, Sigurjón Inga- son lögregluþjónn, var farþegi í bílnum. En sá sem bílnum ók er grunaður um að hafa verið undir áhrfium áfengis. Veðdeild Lands- hankans 60 ára VEÐDEILD Landsbanka íslands tók til starfa 30. júlí aldamótaárið og er því orðin sextíu ára. Hefur Seðlabankinn gefið út mynd- skreytt afmælisrit af þessu tilefni, þar sem rakin er saga deildar- innar. —■ ★ Gegn veði í fasteign Veðdeild Landsbankans var stofnuð með lögum frá 12. jan. árið 1900 og tók til starfa 20. júlí sama ár, eins og áður segir. Á síðasta áratug 19. aldar var kominn mikill vorhugur í þjóð- ina og var framkvæmda þörf á flestum sviðum eftir aldalangar hörmungar og fátækt. En fjár- magnsskorturinn var mikill og því var óhægt um vik. Jafnvel þótt menn ættu einhverjar eign- ir, þá var mjög erfitt um alla lánsútvegun. Veðdeildin skapaði smám saman ný viðhorf í þessum málum. í veðdeildarlögunum sagði með al annars: Fé veðdeildarinnar má lána gegn veði í jarðeignum eða húseignum með lóð í kaup- stöðum og verzlunarstöðum og má eigi lána nema gegn fyrsta veðrétti. Lánsupphæðin má ekki fara fram úr helmingi af virðing- arverði fasteignarinnar, sem veð sett er fyrir henni. Lánsfrestur nam 25 til 40 árum. Fyrirkomulag veðdeildarinnar var frá byrjun þannig, að hún skyldi heyra undir yfirstjórn Landsbankans, en vera þó rekin sem sjálfstæð stofnun, óháð bank anum, með eigið bókhald, enda reikningar allir um hag hennar og rekstur birtir sér í ársskýrsl- um Landsbankans. Þessu hefur jafnan verið framfylgt, og er svo enn í dag. Hefur í því efni eng- in breyting orðið á eftir að Seðiabankanum var sett sérstök stjórn, samkvæmt lögum, sem samþykkt voru í maílok 1957, og veðdeildin lögð undir hann. ★ Upphaflegt fé Landssjóður lagði veðdeildinni til 200 þús. kr. tryggingarfé í upp hafi og 1. veðdeildarflokkurinn var opinn fram á vorið 1906. Með lögum frá 1905 var veitt heim- ild til að gefa út nýjan flokk bankavaxtarbréfa fyrir allt að 3 millj. króna og var Landsbank- anum gert að skyldu að leggja fram allt tryggingarféð. Nýir og nýir lánaflokkar tóku smám sam an við. Þannig var tekið að lána úr 16. flokki í febrúar 1947. En 1. nóv. það ár var sú breyting á, að Landsbankinn hætti að kaupa veðdeildarbréf af lánatakendum í deildinni. Urðu menn þá sjálfir að finna kaupendur að bréfun- um. Tók nú mjög að draga úr starfsemi veðdeildarinnar og var verðbólgunni og sífellt rýrn- andi verðgildi peninganna um að kenna. ★ Nýja veðlánakerfið Árið 1955 hófst nýr þáttur í starfsemi veðdeildarinnar. Þá var komið á fót almennu veð- iánakerfi til íbúðabygginga und- ir yfirstjórn húsnæðismálastjórn- ar og veðdeildar Landsbankans og var deildinni veitt heimild til að gefa út bankavaxtabréf allt að 200 millj. kr. Saga veðdeildar Landsbanka ísJanus er gott dæmi um þá stór- stígu þróun, sem átt hefur sér slað að því er snertir bættan og aukinn húsakost landsmanna síð- an um aldamótin 1900 og til þessa dags. Með tilstyrk þessarar stofn unar hefur fólk úr sveit og við sjó getað tryggt sér veðlán til langs tíma og komið sér á þann hátt upp þaki yfir höfuðið. Enda er híbýlakostur þjóðarinnar stór bættur orðinn frá því sem var fyrir sextíu árum. Lánin úr hin- um átján flokkum veðdeildar- innar hafa verið veitt með það fyrir augum að hjálpa á tryggan hátt til að bæta úr brýnni þörf, og fáir munu þeir íslendingar, sem nú eru fulltíða eða á gamals aldri, að ekki hafi notið á einn eða annan hátt, beint eða óbeint, góðs af þessari stofnun. Lengi framan af voru flest lánin veitt til að bæta íbúðarhúsakost, bæði í kaupstöðum og sveitum, enda var aðbúð almennings ill í þeim efnum og þætti ekki boðleg nú. Þarna var því þörfin mest, og úr þeirri þörf bætti veðdeildin stórlega. Síðari hluta þess tíma- bils sem veðdeildin hefur starfað, bættust við lán til skóla, spítala, sumkomuhúsa og fleiri stofnana, og hefur slíkum lánveitingum verið haldið áfram eftir að veð- lánakerfið nýja tók til starfa. • • Olílruð kona fótbrotnaði AKRANESI, 18. júlí. Það slys varð á föstudagsmorguninn, að Guðríður Jónsdóttir, háöldruð kona á 96. ári, fótbrotnaði illa á ViaP-crra fvrir nfan hné.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.