Morgunblaðið - 28.07.1960, Side 3

Morgunblaðið - 28.07.1960, Side 3
Fimmtudagur 28. júlí 1960 MOKCVynTATHÐ 3 „Villtar r ■ rosir BLOM OG KONUR gæti ver- iö naín á ljóðabók eftir Vil- bjálm frá Skáholti. Ekkert ís- lenkzt skáld hefur ort meir um konur og blóm. Stundum verða þessi fyrirbæri svo sam slungin í ljóðum hans, að mað ur veit varla, hvar blóminu sleppir og konan tekur við, eða öfugt. Konan og blómið verða eitt. Ilmur þeirra og fegurð . . . Nei, það er bezt að láta hann um það. Auk þess að yrkja um blóm selur hann þau, (auðvitað ekki konur). I>á er blómið ekki lengur kona heldur peningaseðill. Sérhver maður drepur yndi sitt, sagði Óskar Wilde. — En það eru fleiri en Vilhjálmur, sem halda upp á konur og blóm, þótt þeir yrki ef til vill ekki um þær eða þau. Hver- gerðingar, sem líka selja blóm, hafa undanfarin ár haldið sérstakt blómaball, þar sem þeir hafa kosið blóma drottningu. Sextán ára gömul stúlka úr Reykjavík, Theó- dóra Þórðardóttir, var kjörin blómadrottning árið 1960 í Hótel Hveragerði laugardag- inn 23. þ. m. Það er bezt að vita, hvað hún hefir að segja um blóm og konur. ★ — Hvernig bar þig í Hvera- gerði? — Ég var í sumarbústað við Álftavatn, og krakkarnir vildu endilega, að ég kæmi með þeim á ballið, svo ég lét tilleiðast, þó ég væri ekki nógu vel klædd. — Hvernig varstu klædd? — Bara i pilsi og peysu. — Ekki buxum og peysu. — Nei, ég hefði aldrei farið í buxum. __ Þú hrepptir blómakrans- inn, þó þú væi'ir í peysu. — Ég átti ekki yon á því, og vildi ekki fara upp á pall- inn, en lét svona undan. — Hvað voruð þið margar á pallinum? __ Dómnefndin valdi fimm stúlkur úr salnum, og síðan greiddu viðstaddir atkvæði. __ Hverjir voru í dómnefnd inni? — Ég veit það varla, jú, einn heitir Páll Michelsen og selur blóm. — Voru þeir ungir? — Nei, þeir hefðu allir get- að verið pabbar mínir. — Hver krýndi þig? — Fáll. ^ , v s V wv*v ■■ • ■ ■ ■ t'1 V'lZJ f j ++ #-*■+*■ * * * ■* * j||, >■= flP — HefurfSu gaman af ljóð- H8f * i BF i um? — Já, sérstaklega atómljóð- um? JpiSHi — Ekki rímum? — Nei, alls ekki, en mér finnst gaman að kveðast á. Sflr § UM I — Við hvern? — Við krakkana í skólan- um. Við gerum það oft, þeg- ar við förum eitthvað sér- stakt. — í hvaða skóla ertu? — Verzlunarskólanum, en í sumar vinn ég i verzluninni Örnólfi við Snorrabraut. — Langar þig til að verða leikkona? — Já, en ég vil ljúka skól- anum fyrst. — Hvers vegna langar svona margar fallegar stúlkur til að verða leikkonur? — Ég veit það ekki, kannski af því svo”margir tala um það við þær. — Hefurðu leikið? — í skólaleikritum, já, en ég veit ekki, hvort ég hef nokkra hæfileika. — Langar þig ekki í feg- urðarsamkeppni j Tívolí? . v^Wfr^im ^ — — Nei, það tefur bara fyrir mér í skólanum. — En vildurðu verða raun- veruleg drottning? — Nei, ég yrði alveg upp- gefin af að taka í hendurnar á öllum þegnunum. ’f jP' [■* — Þá hefðurðu þjón á hvern fingur og hverja tá. flflp — Það vil ég ekki. — Bara aðdáendur? — Það fer eftir því, hvernig þeir eru. — Kannski að þú botnir vís ' ' 8' ? una fyrir þann, sem sendi þér • * rósirnar rauðu? Í ^ — Kannski. f ^ * ' 4 É- ' ■ ■' s — Viltu botna núna? Markús fór heim til blómadrottningarinnar og tók þessa mynd 8 — Nei, það fær enginn að heyra, nema þá hann. af henni og nellikunum frá Hverageröi. Kransinn var visnað- — Hvaða hann? ur en höfuðið er hið s*— .— Hann hlýtur að þekkja mig, því hann skrifaði nafnið vel ég þér“ — Gekk það vel? — Nei, hann var dálítið klaufskur. — Hvernig? — Honum gekk illa að festa kransinn á höfuðið á mér. — Notaði hann títuprjóna? .— Nei, hárnálar. — Gastu ekki hjalpað hon- um? — Nei, ég var með heilt kýr fóður af nellikum í höndun- um, sem ég fékk áður en ég var krýnd. — Þykir þér vænt um blóm? — Já, ég elska blóm. Það er allt fullt af þeim haima. — Elskarðu nokkuð fleira? — Nei, það held ég ekki, nema lífið, stundum, þegar það er ekki grátt og leiðin- legt. — Það hefur ekki verið leið inlegt í Hveragerði. — Nei, það var gaman, líf og fjör, dans og blóm. — Varstu taugaóstyrk? — Já, hræðilega, en það er kannski líka gaman. — Hvað var mest gaman? .— Þegar ég kom heim. — Nú? — Eimhver hafði sent mér rauðar rósir. — Aðdáandi? — Það fylgdi vísupartur með, „Villlar rósir vel ég þér, villta blómadrottning“, og undir stóð, „Ókunnur aðdá- andi“. Ég vildi að eg vissi, hver það er. STAKSIEIMAR Þvottalaugarnar meðal minjastaða í Reykjavik BÆJARYFIRVÖLDIN hafa ákveðið, að Þvottalaugarnar gömlu skuli verða meðal minjastaða í Reykjavík. — Skýrði Auður Auðuns borg- arstjóri frá þessu á fundi bæjarráðs er haldinn var á þriðjudaginn. ★ Staöurinn prýddur Borgarstjóri skýrði bæjarráðs- fulltrúum frá því að hún hefði í aprílbyrjun síðastl. óskað til- lagna garðyrkjustjóra um hvaða ráðstafanir hann teldi rétt að gera til fegrunar og prýðis við hinar gömlu þvottalaugar. Nú hefur gai'ðyrkjustjórinn, Hafliði Jónsson sent borgarstjóra tillögur sínar í málinu. Þar er gert ráð fyrir að höggmyndin Þvottakonán, eftir Ásmund Sveinsson verði reist. ★ Endurbætur Á grundvelli þessarar tillagna ákvað bæjarráð sVo að fela minjaverði bæjarins, að sjá um framkvæmdir í málinu, þar á meðal endurbætur á gömlu laug- unum og lagfæringar í næsta ná- grenni. Skal hann hafa um þetta samráð við garðyrkjustjóra og hitaveitustjóra. ★ Sögufrægur staður Frá því í fornöld hafa hús- mæður í Reykjavík farið til þvotta inn í Þvottalaugar. I bók sinni úr „Bæ í borg“, segir K. Zimsen borgarstjóri frá því að árið 1883 hafi þar fyrst verið reist skýli fyrir þvottakonurnar. Það stóð til ársins 1957, en þá mitt rétt, það eru svo fáir, sem geta það — Theödóra. — Já, þú getur það, en það varst samt ekki þú, einhver annar. — Kannski Vilhjálmur frá Skáholti. — Nei, það held ég ekki, þó hann haldi upp á konur og elski blóm. — Hefurðu lesið ljóðin hans? — Já, mér finnst þau mjög falleg. — Finnst þér einhver skyld leiki með blómum og konum? — Veiztu það ekki? .— Jú, en málið er skylt þér núna. — Ja, yfirleitt finnst mér konur blómstra eins og blóm, þegar þær eru hamingju- samar. —- Og visna svo eins og blóm, ef .... — Já, það þarf að vökva hvorttveggja. i.e.s. fauk það. Hinar dugmiklu konur stóðu svo við þvotta sína vetur og sumar, án þess að hafa nokk- urt skýli til ársins 1887, — eða í þrjá áratugi. Þá gekkst Thor- valdsensfélagið fyrir því að reist var skýli á ný. Fram yfir aldamótin síðustu báru konurnar allan þvott til og frá Þvottalaugunum. í lokákafla sínum um Þvottalaugarnar getur K. Zimsen þess að notkun þeirra muni aldrei hafa verið eins mikil og árin 1916—21, en á þeim árum voru kol lítt fáanleg. AKRANESI, 26. júlí. — Trillu- báturinn Freyr kom í gær með 12 lúður, er hann fékk á skötu- lóð. Alls vógu þær 500 kg. — Oddur. Norskt og íslenzkt fiskverð Undanfarið hefur því mjöf verið haldið fram, einkum al hálfu kommúnista, að fiskverj til sjómanna í Noregi væri mikl- um mun hærrá en islenzkir sjó. menn fá fyrir sinn fisk. Halldór Jónsson ritaði grein um þetta hér í blaðið í gær. Leiddi hann rök að því, að í raun og veru væru launakjör norskra sjó- manna lakari en islenzkra sjó- manna. Hann tók upp í grein sína kafla úr grein, sem birtist fyrir skömmu i blaði norsku sjó mannasamtakanna. Þar er frá því skýrt að norskir sjómenn séu mjög óánægðir með launakjör sín og að meðaltekjur sjómanna, sem fiski við ströndina í Noregi séu um 5000 norskar krónur á ári, þ. e. 25—30 þús. ísl. kr. mið- að við núverandi gengi. Þessar tölur byggjast á upp- lýsingum, sem sjálft málgagn norskra fiskimanna hefur birt. Mjög æskilegt er að fá sem gleggstar upplýsingar um fisk- verð og launakjör sjómanna í Noregi. Ilalldór Jónsson hefur þegar með grein sinni hér í blað- inu í gær gefið ýmsar athygiis- verðar upplýsingar um þessi atriði. „Gróðrabrallsmenn Framsóknar“ Þjóðviljinn dregur í gær upp ófagra mynd af „gróðabralls- mönnum Framsóknar“. Er í for- ystugrein blaðsins komizt að orði um þetta m. a. á þessa leið: „Gróðabrallsmenn Framsókn- ar hafa vaðið í umboðum fyrir bandarísk auðfétög, og hafa jafn vel fengið umboðslaun fyrir inn flutning til Keflavíkurflugvall- ar. En hryggilegast er þó, aV Vilhjálmi Þór og hjálparmönnum hans í Framsókn skuli hafa tek- ict að fleka Samband íslenzkra samvinnufélaga og kaupfélög landsins út á þá hálu braut að mynda hlutafélög með svörnum fjandmönnum samvinnuhreyfing arinnar, og þar með opnað spill- ingunni veg að samtökum fólks- ins og gefiö andstæðingum sam vinnumanna höggstað á hreyfing unni, er þeir hafa aldrei haft áður. Renna saman í einn flokk f þessu sambandi má á það minna, að kommúnistar eru ná í nánu sambandi við „gróðabralls menn Framsóknar". Svo virðist sem Framsóknarmenn og komm únistar séu að renna saman i einn flokk. Á það má einnig minna, að það voru kommúnist- ar og vinstri stjórnin, sem gerðu Vilhjálm Þór að Seðlabanka- stjóra og æðsta yfirmann peninga mála á íslandi. Þeir bera því fulla ábyigð á störfum hans þar og ferst mjög illa að hæla sér af því, að hann hefur nú látið af störfum samkvæmt ósk núver andi rikisstjórnar vegna tengsla við oliumálið. Sú staðreynd verður heldur ekki sniðgengin, þrátt fyrir allt tal kommúnistablaðsins um gróðabrall Framsóknarmanna, að þessir tveir flokkar eru nú sem einn, standa hlið við hlið i hinni pólitísku baráttu og foringjar þeirra eru þess alráðnir að ganga saman til stjórnarstarfs, hvenær sem tækifæri gæfist til þess. — Alvaran virðist því ekki vera ýkja mikil hjá kommúnistum i hinni harðorðu fordæmingu þeirra á „gróðabralli" Fram- sóknar. Þeir biða fyrsta tækifær- is til þess að skríða saman í nýja rikistjórn með sjálfum „gróða brallsmönnum Framsóknar“!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.