Morgunblaðið - 28.07.1960, Blaðsíða 8
8
MORCVNBl AÐlh
Fimmtudagur 28. júlí 1960
t
Argentína
„MARGT skeður á sæ“,
segir máltækið, og það eru
vissulega orð að sönnu,
þegar bandaríska skemmti
ferðaskipið „Argentina“ er
annars vegar. Þar um borð
er fátt, sem ekki gerist —
eða getur að minnsta kosti
gerzt. — Af því fengu
fréttamenn að finna smjör
þefinn í fyrradag, þegar
þeir skoðuðU þetta 25
milljón dala skip á ytri
höfninni, meðan farþeg-
arnir spókuðu sig á
götum Reykjavíkur og í
nágrenni höfuðstaðarins.
k
Meðal þeirra, sem frétta-
menn hittu á skipsfjöl, var
hinn sjötugi Rear-Admiral,
— gægzt um
gáttir í glæsi-
legum far-
kosti
ar þess úti undir berum
himni, spænska og portú-
galska hvarvetna Við hlið
enskunnar á leiðbeininga-
spjöldum o. s. frv. En í ár og
máske hin næstu fara systur-
skipin auk Suður-Ameríku-
siglinga sinna í tvær ferðir
til Eystrasaltsins og tvær til
Afríku með skemmtiferða-
fólk. „Brazil“ var í ár fyrr á
ferðinni um norðurslóðir og
Vélarúmið er heimur út af fyrir sig, sem fæstir farþegar eða
gestir sjá nokkru sinni. Þessi mynd sýnir hinn aðeins 38 ára
gamla yfirvélstjóra við eitt »f mörgum stórum mælaborðum
niðri í skipinu, sem knúið er áfram með 35,000 hestöflum
Robert C. Lee, sem eftir fleiri
áratuga starf í þágu Moore-
McCormacklínunnar hefur nu
um 1 árs skeið verið stjórnar-
formaðúr þessa þriðja stærsta
skipafélags í Bandaríkjunum.
Gaf hann ýmsar mjög athygl-
isverðar upplýsingar um fé-
lagið, sem nú á 43 skip; tvö
farþegaskip, eitt olíuskip og
hin vöruflutningaskip, en
mörg þeirra síðastnefndu hafa
oftsinnis sézt í Reykjavíkur-
höfn á undanförnum árum. •
•k
„Argentina" er 23,000 lestir
og getur tekið 557 farþega, en
í lengri skemmtiferðum, eins
og þeirrv 32 daga ferð, sem
skipið nú er í til Reykjavík-
ur, Hammerfest, Bergen,
Osló, Stockhólms, Helsinki,
Leningrad, Travemiinde,
Kaupmannahafnar, Southam-
ton og aftur til New York,
vilja margir hafa rúmt um sig
og er skipið því fullskipað
með þeim 340 farþegum, sem
um borð eru. Þeir greiða um
1800 dali hver.í ferðakostn-
að — eða um 70 þúsund ísl.
krónur — og geta í staðinn
fengið að njóta flestra lysti-
semda daglegs lífs, meðan
þeir berast yfir úthöfin með
22% sjómílu hraða.
Þetta glæsilega skip, sem nú
er í 18. ferð sinni, byrjaði að
kljúfa öldurnar í desember
1958 og hefur síðan ásamt
systurskipi sínu „Brazil"
einkum verið í förum milli
New York og Suður-Ameríku.
Þess verður líka nokkuð vart,
þegar gengið er um skipið, að
það er sérstaklega ætlað til
ferða um þær hlýju slóðir,
t d. eru hinar tvær sundlaug-
Úr prentsmiðju skipsins, þar sem 3—4 mcnn starfa. Yfirprent-
arinh sést til vinstri, en hann hefur um árabil starfað hiá
bandaríska stórblaðinu „New York Times“.
kom því ekki við á því kalda
Islandi.
Lee aðmíráll sagði, að það
ylti mikið á því, hvemig far-
þegunum nú,líkaði hér, hvort
staldrað yrði við hér á landi
í framtíðarferðum skipanna.
Aðspurður skýrði hann frá
því að allmargir farþega og
einnig ýmsir af hinhi 405
manna áhöfn skipsins hefðu
komið til Islands áður. Sjálf-
ur hefði hann oft komið við
hér, einkum á stríðsárunum,
þegar hann stjómaði vöru-
flutningum með skipalestum
milli Ameríku og Evrópu.
Aðeins eitt farrými er á
„Argentina" og sagði Lee að-
míráll, að ástæðan til þess
væri sú, að ferðin væri svo
löng og þannig skipulögð, að
ekki færi í hana annað fólk
en það, sem vildi njóta sigl-
ingarinnar. Ef þeir ætluðu sér
aðeins að komast á miili
þeirra staða, sem skipið kem-
ur á, mundu þeir fara flug-
leiðis, og við flugvélarnar
Íiyggðust þeir ekki reyna að
keppa. Megináherzla er lögð
á það, að búa sem bezt að far-
þegunum, meðan ferðin stend-
ur yfir, og sjá til þess, að all-
ir finni eitthvað við sitt hæfí
meðal þeirra lystisemda, sem
skipið hefur upp á að bjóða.
'k
Þegar blaðamenn síðan
skoðuðu skipið stafna á milli
og allt frá brú niður undir
kjöl, sannfærðust þeir fljótt
um, að þetta hefur tekizt al-
veg ótrúlega vel. Af því, sem
fyrir augun bar, má t.d. nefna
glæsilegar setustofur, nætur-
klúbb, vínstúkur, barnaheim-
ili, leikfimisal með megrunar-
tækjum m. a., sem ýmsum
getur komið vel, kvikmynda-
sal, með 160 þægilegum sæt-
um, þar sem fram fara tvær
sýningar á hverjum degi — og
guðsþjónusta að auki á sunnu
dögum, matsalur, sem rúmar
alla farþega í einu og þar sem
45 þjónar og þjónustustúlkur
ganga um beina, sjúkradeild
með lækni, 2 hjúkrunarkon-
um og aðstoðarmanni, skurð-
stofu og 12 sjúkrarúmum,
skipt bróðurlega milli beggja
kynja, allgott bókasafn í hlý-
legri lesstofu, sundlaugamar
tvær, önnur fyrir fullorðna og
hin börn, báðar með upphit-
uðu vatni, sólbaðsskýli, m. a,
í voldugum reykháf skipsins,
prentsmiðja, þar sem gengið
er frá 4 síðna dagblaði skips-.
ins, „The Good Neighbor",
matseðlum o. fl., kennslustofu
fyrir tungumálanám, dans-
skóla, sem tveir kennarar
starfa stöðugt við o. fl., o. fl.
„Argentina“ liggjandi við akkeri á ytri höfnlnni i fyrradag,
eftir að hafa Iagt að baki um 2515 sjómílur af um 11,450 í
þessari skemmtisiglingu sinni frá New York til 8 landa i
Evrópu og heim aftur.
— Margir skemmtikraftar eru
með skipinu, þ. á m. 5 manna
hljómsveit. Það er því naum-
ast ofsagt hjá Lee aðmírál, að
farþegarnir eigi jafnan að
geta haft eitthvað fyrir stafni
sér til ánægju og dægrastytt-
ingar. Og enn er það svo ótal-
ið, að sérstakur útbúnaður er
á skipinu, til þess að gera það
sem stöðugast í sjó og óþæg-
indi farþeganna af veltingi
sem minnst; þannig er hugs-
anlegur halli skipsins í sjó-
gangi með þessum útbúnaði
t. d. minnkaður um 15°. Loks
ætti ekki að draga úr ánægju
farþeganna sú vitneskja, að
aðeins 2 skip í heiminum eru
búin jafnfullkomnum stjórn-
tækjum og „Argentina" — og
ekkert fullkomnari.
k
Það er heldur fátitt, að
blaðamenn eða aðrir, sem slík
skip skoða, bregði sér niður
vélarrúm þeirra, þó að þar sé
vitaskuld margt að sjá líka.
I þetta sinn gerðu fréttamenn
Mbl. hér undantekningu á.
Þar niðri í „Argentina“ starfa
16 vélstjórar en 52 menn alls.
Skipið er knúið tveim 17,500
ha. aðalvélum og snúast skips
skrúfurnar, sem eru 5—6 m
í þvermál, 137 snúninga á
hverri mínútu, þegar siglt er
á fullri ferð. Á sólarhringi
eyða vélarnar um 220 lestum
af olíu. Ljósavélar skipsins
eru 3 talsins, allar af General
Electric gerð, eins og fleiri
Ekkert skip hefur rumbetri bru eða fullkomnari stjorntæki en
„Argentina“. Einhver hafði orð á þvi, að gólfið þarna uppi
væri dálítið hált — en einn skipsmanna varð þá fljótur til
svars og sagði að sér hefði aldrei orðið fótaskortur þar eu
hins vegar oftar en einu sinni stungizt á höfuðið heima hjá sér.
Robert C. Lee, aðmíráll,
forseti Moore-McCormack
iínunnar
vélar þar neðan þilja. Þær
framleiða hver um Sig 1250
kílówött. Allt vatn, sem not-
að er í skipinu, er unnið úr
sjó í 2 til þess gerðum vél-
um, og eru afköst hvorrar um
sig um 340 smálestir á sólar-
hring. — Ótalmargt fleira bar
fyrir augu þarna niðri og yar
margt af því ekki síður stór-
kostlegt en hávaðinn, sem
óneitanlega var mikill, þó að
skipið lægi við festar.
k
Það sem hér að framan hef-
ur verið rakið var með-
al þess marga, sem vakti
athygli fréttamanna um borð
í „Argentina" í fyrradag. —
Ómögulegt er að telja það allt
upp, enda ber margt hratt
fyrir, því að um skipið er
ferðast ýmizt í lyftum eða
rennistigum; jafnvel í véla-
rúminu líka. Að lokum skal
það þó nefnt, að stjórnandi
þessa nýtízkulega og glæsilega
skemmtiferðaskips er Commo-
d ' Thomas Simmons.
— Ól. Eg.