Morgunblaðið - 28.07.1960, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 28. júlí 1960
MORCUNt T. 4 ÐIÐ
5
Þessa dagana eru staddir
hér tveir gestir sunnan frá
Ástralíu. Þaff eru þeir heims
hornaflækingarnir (fremur
óvirðuleg þýðing á enska al-
þjóðaorðinu „globetrotters)
Itoy Wright og Xom Mosley.
Árið 1954 luku þeir báðir verk
fræðingaprófi í heimalandi
sínu, en þar sem þeim fannst
þeir verða að kynnast heim-
inum eitthvað, áður en þeir
réðu sig í fasta vinnu og yrðu
virðulegir borgarar, ákváðu
þeir að flakka um veröldina
næstu árin. Síðan eru liðin
sex ár, og enn eru þeir á ferða
lagi. Þeir ferðast hægt yfir,
taka hvaða vinnu sem að hönd
um ber til þess að eiga fyrir
daglegu brauði og gera sér
allt far um að kynnast persónu
lega fólki í þeim löndum, sem
þeir fara yfir, deila kjörum
þess og læra tungu þess.
„Meðan við eru ungir“, segja
þeir, „viljum við nota tæki-
færið til þess að skoða heim-
inn og reyna að skilja fólk-
ið, sem byggir hann".
— Hefur það teki*t?
— Já, við vitum nú, að
allir menn eru svipaðir, gest-
risnir og góðhjartaðir. Allar
deilur þeirra á milli stafa cin
göngu af misskilningi og fá-
fræði þeirra hver um annan.
— Aldrei lent í neinu
klandri?
— Helzt í löndum Araba.
Þeir eru tortryggnir í garð út
lendinga, og við vorum oft
grunaðir um njósnir. Eina
viku urðum við meira að segja
að dúsa í fangelsi.'
__*__
f nóvember 1954 lögðu þeir
af stað til Nýja Sjálands. Það
an fóru þeir til Fiji-eyja,
Ceylon og Indlands. Þaðan
hafa þeir gengið svo að segja
alla leið til Norcgs, yfir Kas-
mír, Pakistan, Afganistan,
Persíu, Mesópótamíu, Jórdan-
íu, Sýrland, Tyrkland, Grikk
land, Júgóslavíu, Austurríki,
ítaliu, Þýzkaland, Frakkland,
Danmörku og Svíþjóð. f Ind-
landi lifðu þeir með frum-
stæðum ættbálkum og likaði
það vel, þótt þeim ægði fá-
tæktin. Þar lentu þeir í hálf-
gerðum vandræðum meðal
kynþátts, þar sem konur lifa í
fjölveri. Þeir voru að teikna
kvenfólkið, þegar eiginmenn
irnir hnöppuðust i kringum
þá, fjórir til fimm um hverja
konu. Afbrýðissemin leyndi
sér ekki, en samt voru þeir
látnir afskiptalausir.
Þeir Tom og Roy taka hvaða
vinnu, sem til fellur. Viða
hafa þeir kennt ensku, en oft
hafa þeir unnið við uppþvotta
á veitingahúsum, við land-
búnað, fægt glugga í stór-
borgum o.s.frv. Bæði í Dan-
mörku og Svíþjóð hafa þeir
aflað sér tekna með því að
koma fram i útvarpi. Báðir
fást þeir við listteiknun og
tistmálun og hafa mikinn hug
á að fá að starfa við eitthvað
þessháttar hér á landi.
Þeir hyggjast dveljast í
Reykjavík í nokkra daga,
fara siðan í ferðalag um land
ið, en setjast síðan að i höf
uðborginni um tíma, ef þeir
fá vinnu.
★
„Afsakið frú, fílar verða oft
mjög þyrstir í hitum“.
Einu sinni heimsóttu þrjár
stúlkur heimili í London, þar sem
kvenfangar voru hafðir í haldi.
Þeim var vísað inn í herbergi þar
sem tveir kvenmenn voru að
sauma. „Guð minn góður“ hvísl-
aði ein af stúlkunum að leiðsögu
manninum", en þrjóskulegar
skepnur. Hverjar eru þær?“
„Þetta er setustofan mín“, svar
aði leiðsögumaðurinn stuttur í
Árnað heilla
Guðmundur Guðmundsson, Sel
vogsgötu 22, Hafnarfirði er 60
ára í dag. Hann er nú fjarstadd-
ur.
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband í Há-
skólakapellunni af sr. Gunnari
Árnasyni, ungfrú Guðrún I. Jóns
dóttir, híbýlafræðingur, Freyjug.
34 og stud. med. Ásgeir Karlsson,
Hafnarstr. 45, Akureyri. Heimili
þeirra verður á Freyjugötu 34.
Ennfremur ungfrú Jórunn Jóns-
dóttir, teiknari, Freyjug. 34 og
stud. med. Guðmundur Oddsson,
Helgamargrastræti 15, Akureyri.
Heimili þeirra verður einnig á
Freyjugötu 34.
spuna,“ og þetta er konan mín og
dóttir“.
Frú Hansen átti von á gest-
um. Hún kom að Hansen bónda
sínum, þar sem hann var að fjar-
lægja regnhlífarnar úr ytri gang-
inum.
„Hvers vegna ertu að þessu
Hansen“? spurði frúin, „ertu
hræddur um að þeim verði stol-
ið“?
„Nei“ .svaraði Hansen, „ég er
hræddur um að þær þekkist".
★
— Talar dóttir þín mörg tungu-
mál?
— Já, mikil ósköp, hún get.ur
sagt já á sex tungumálum, ef út-
lendingar skyldu biðja hennar.
Allir fiskar eru með uggum.
Það eru ekki allt góðir fiskar sem
synda.
Fyrst fúnar fiskur á höfði.
Fiskur tekur beitu, en öngull fisk.
Vesæll fiskur fer í vesals manns net.
Enginn dregur l>ó ætli sér annars fisk
úr sjó.
Þar liggur fiskur undir steini.
Gott á fiskurinn, hann má drekka
þegar hann vill, sagði drykkjurút-
urinn.
Betri er lítill fiskur en tómur diskur.
Lýist fiskur ef lengi er barinn.
Jafnir fiskar spyrðast bezt.
H.f. Eimskipafélag íslands. — Detti-
foss r á leið til Gautaborgar. Fjallfoss
er á Akureyri. Goðafoss kemur til
Rvíkur í dag. Gullfoss kemur kl. 8,30
í dag. Lagarfoss er á leið til Rvíkur.
Reykjafoss er á leið til Riga. Selfoss
er á leið til Vestmannaeyja. Tröllafoss
er í Rostock. Tungufoss er á Siglufirði.
Hafskip: Laxá er á Siglufirði.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er i K-
höfn. Esja fer kl. 17 í dag vestur um
land. Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið fer frá Rvík
á morgun til Breiðafjarðarhafna. Herj
ólfur fer frá Vestmannaeyjum í dag
til Hornafjarðar.
H.f. Jöklar: — Langjökull er vænt-
anlegur til Kotka í dag. Vatnajökull
er i Grimsby.
Skipadeild SÍS. — Hvassafell er í
Kolding. Arnarfell er í Swansea. Jökul
íell lestar á Norðurlandshöfnum. Dís-
arfell fór í gær frá Kristiansand ti1
Akureyrar. Litlafell kemur í dag til
| Rvíkur. Helgafell er á Akui-eyri.
Hamrafell er á leið til Batum.
Eimskipafélag Reykjavíkur hf.: —
Katla er í Noregi. Askja er á le.ð til
Frakklands.
Flugfélag íslands hf.: — Gullfaxi fer
til Glasgow og Khafnar kl. 8 í dag.
Væntanleg aftur til Rvíkur kl. 22:30 í
kvöld. Hrímfaxi fer til Lundúna kl. 10
í dag. Kemur til Rvíkur kl. 20:40 í
kvöld. Fer til Glasgow og Khafnar kl.
8 í fyrramálið.
Innanlandsflug: I dag til Akureyrar,
Egilsstaða, Isafjarðar, Kópaskers, Pat-
reksfjarðar, Vestmannaeyja’ og Þórs-
hafnar. A morgun til Akureyrar, Egils
staða, Fagurhólsmýrar, Flateyrar,
Hólmavíkur, Hornafjarðar, Isafjarðar,
Kirkj ubæj r klausturs, Vestmannaey j a
og Þingeyrar.
Loftleiðir hf.: — Edda er væntan-
leg kl. 9.15 frá New York. Fer til Oslo,
Gautaborgar, Khafnar og Hamborgar
kl. 10:30.
Snorri Sturluson er væntanlegur kl.
23 frá Luxemburg og Amsterdam. Fer
til New York kl. 00:30.
ÁHEIT og GJAFIR
Sólheimadrengurinn afh. Mbl. AS 50,
NN 100.
Hallgrímskirkja í Saurbæ afh. Mbl.:
X 100 kr.
Áheit og gjafir til Barnaspítalasjóðs
Hringsins: Aheit frá Klöru kr. 100.
Aheit frá RJ 100. Gjöf frá ónefndri
konu til minningar um látinn vin 300.
Kvenfélagið Hringurinn færir gefend-
unum sínar beztu þakkir.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ hefi ég
nýlega móttekið kr. 3260.00, nefnilega
úr safnbauk kirkjunnar kr. 2110,00, á-
heit frá konu á Akranesi kr. 1000,00,
gjöf frá G.F.R. kr. 100 og önnur frá
N.N. kr. 50.
— Matth. Þórðarson.
Eldri kona
óskar tftir 1—2 herb. með
eldunarplássi eða lítilli í-
búð, helzt í Vogahverfi, 1.
okt. Fyrirframgreiðsla. Til
boð á afgr. Mbl. merkt:
„528“.
íbúð
Barnlaus hjón óska eftir
2ja herb. íbúð til leigu sem
fyrst, helzt í Hafnarfirði.
Tilb. á áfgr. Mbl. fyrir
föstud.kvöld merkt „531“.
Kæliskápur
Eldri gerð af Rafha kæli-
skáp til sölu ódýrt. Uppl.
í sima 24966.
Jarðýta til leigu
VélsmiSjan BJARG
Höfðatúni 8. Sími 17184.
Tannlækningastofan
verður lokuð 28. júlí til
4. ágúst. Jafnframt verður
stofan lokuð á laugard.
ágústmánuð.
Birgir J. Jóhannsson
tannlæknir. Laugavegi 126.
3ja herb. íbúð óskast
til kaups með 50 þús. í
útborgun og hagkvæmum
eftirstöðvum. Tilb. sendist
afgr. Mbl. fyrir 1. ágúst
merkt „0533“
Plymouth ’42
nýuppgerður, til sölu, ó-
dýrt. Uppl. í síma 17096
eftir kl. 6.
íbúð óskast
Ung hjón með 2 börn vant
ar 2ja—4ra herb. íbúð
strax. Reglusemi, góð um
gengni. Uppl. í síma 32943.
Dömur
Fyrlr verzInnarm&nnaJielgin:
Sportbuxur, Blússur, Sólbrjóstahaldar og Short,
Sundhettur, Sundbolir, Kaðkápur o. m. fl.
„Hjá Báru44
Austurstræti 14.
Tilkynning
Nr. 21/1960.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi há/narks-
verð á brenndu og möluðu kaffi frá innlendum
kaffibrennslum:
I heildsölu, pr. kg...................... Kr. 40.55
I smásölu með söluskatti, pr. kg......... — 48.00
Iteykjavík, 26. júlí 1960.
VERÐLAGSSTJÖBINN.
Tilkynning
Nr. 22/1960.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarks-
verð á steinolíu og gildir verðið hvar sem er á
landinu:
Selt í tunnum ..... Kr. 2,00 pr. líter.
Mælt í smáíiát..... — 2,40 — —
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 26. júlí 1960.
V ERÐL AGSSTJ ÓRINN.
Ferðaborð
með 4 stólum. — Verð kr. 1098.—
Garðar Gísleson hf.
bifreiðaverzlun.