Morgunblaðið - 28.07.1960, Side 10

Morgunblaðið - 28.07.1960, Side 10
10 MORCVNBL AÐIÐ Fimmtudagur 28. júlí 1960 TJtg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vif'ur Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstraeti 6 Sími 22480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. FUNDUR NORÐ- URLANDARÁÐS í- DAG hefst hér í Reykjavík 8. fundur Norðurlanda- ráðs' En þetta er í fyrsta skipti, sem samtökin halda þing sitt hér í Reykjavík. Er því hér um að ræða merki- legan atburð í sögu íslenzkrar þátttöku í norrænu sámstarfi. Norðurlandaráð var eins og kunnugt er stofnað árið 1953 og var fyrsta þing þess háð í Kaupmannahöfn þá um veturinn. Síðan hafa fundir ráðsins verið haldnir til skiptis í höfuðborgum Norð- urlandanna, í fyrsta skipti í Helsingfors 1956, en það ár gengu Finnar í samtökin. ís- land hefur frá upphafi verið aðili að stofnuninni. Nær 100 þingmenn og ráðherrar frá öllum Norð- urlöndunum sækja þennan fund Norðurlandaráðs. Þar á meðal verða forsætis- ráðherrar allra landanna. Er það í fyrsta skipti, sem þeir hittast hér í Reykja- vík. Má segja, að þar sé um sögulegan viðburð að ræða. ísland í þjóðbraut Á þessu sumri munu verða haldnir um 20 norrænir fundir og ráðstefnur hér í Reykjavík. Aldrei fyrr hafa svo margir sameiginlegir fundir hinna norrænu frænd- þjóða verið haldnir hér á einu sumri.\ Er það enn ein sönnun þess, að fjarlægðirn- ar hafa verið sigraðar og að „einbúinn í Atlantshafinu“ er ekki lengur afskekktur og einmana. ísland er í þjóð- braut,. hingað sækir ekki að- eins fjöldi norrænna manna til funda og ráðstefna, held- ur margt annarra útlendinga, sem vilja kynnast landinu og eiga við okkur erindi. íslenzka þjóðin fagnar því að fá heimsókn ágætra gesta frá Norðurlöndum. Hún býð- ur Norðurlandaráð velkomið og árnar því farsælaar í störf- um þess. Norræn samvinna er það sem við viljum að hún sé. Hún hefur borið mikinn og heillaríkan árangur á ýmsum sviðum. Á öðrum sviðum hefur hún ekki reynzt eins raimhæf. En þrátt fyrir það er það skoðun yfirgnæfandi meirihluta norrænna manna, að þessar náskyldu þjóðir eigi að halda áfram að efla samvinnu sína, treysta frænd- skapar- og vinátluböndin. Af því getur ekkert annað en gott leitt. Islendingar eru norræn þjóð og hljóta, á meðan þeir eru trúir uppruna sínum og fornri menningararfleifð að eiga náin samskipti við þjóð- ir Norðurlanda, þar sem fyrr stóð vagga hinna íslenzku landnámsmanna. Hlutverk Norðurlandaráð Norðurlandaráð er fyrst og fremst byggt upp af þjóð- þingum Norðurlanda og lýð- ræðisskipulagi hinna nor- rænu þjóða. Það hefur ekki framkvæmdavald, en störf þess eru fyrst og fremst í því fólgin að beina óskum og til- mælura til ríkisstjórna land- anna á hverjum tíma um ýmsar aðgerðir. Milli ríkis- stjórnanna og ráðsins er ná- in samvinna, sem tryggir framkvæmd ályktana þess. Margar þeirra hafa þegar komizt í framkvæmd og átt sinn þátt i því að b'æta að- stöðu Norðurlandabúa á ýmsa lund. 1 þessu sambandi má til dæmis minna á, að af- nám vegabréfaskyldu nor- rænna manna innan Norður- landa er einn fyrsti árangur- inn af störfum Norðurlanda- ráðs. Á sviði félags- og menn- ingarmála hefur einnig orðið mikill árangur af því starfi, sem unnið hefur verið á veg- um ráðsins og á fundum þess. Alþjóðleg samvinna Þeir sem telja að lítið liggi eftir Norðurlandaráð í þau 7 ár, sem það hefur starfað, mættu minnast þess, að oft miðar hægt áleiðis í alþjóð- legu samstarfi. Þrátt fyrir það setja menn allt sitt traust á alþjóðlegar ráðstefnur og alþjóðleg samtök. Aldrei í sögu mannkynsins hefur það verið eins háð alþjóðlegri samvinnu og það er í dag. Meðan fulltrúar þjóðanna halda áfram að ræðast við á ráðstefnum, er þó von um að samkomulag náist og hætt- unni af nýjum ófriði og ógn- arátökum verði bægt úr vegi. Morgunblaðið býður Norðurlandaráð velkomið til hinnar íslenzku höfuð- borgar, um leið og það lætur þá ósk og von í ljós, að af störfum þess nú og um alla framtsð megi verða sem drýgstur árangur, norrænum mönnum til þroska og velfarnaðar. MEÐ stöðugt vaxandi far- þegaflutningum loftleiðis eykst þörfin fyrir bætt af- greiðsluskilyrði farþega. Víð- ast hvar í heiminum fara fram stórbreytingar á flug- höfnum til að mæta kröfum nútímans. Margir íslendingar hafa komið í hina nýju flughöín Kaupmannahafnar, sem tek- in var í notkun í sumar og sagt hefur verið frá hér í blaðinu. Heyrzt hafa þaðan misjafnar sögur, jafnvel að farþegar hafi villzt á langri göngu um ganga og sali. Færri munu þeir landar vera, sem séð hafa einkaflugstöð Pan American flugfélagsins, sem ný- lega var tekin í notkun á alþjóða flugvellinum í New York. UNDIR „REGNHLÍF“ Flugstöðvarbyggingin er spor- öskjulaga, og við hana er unnt að afgreiða átta 120 farþ. þotur á klukkutíma. Þak flugstöðvar- innar myndar „regnhlíf". sem nær 35 rrretra út frá sjálfri af- greiðslunni, en undir þeirri Farþegar ganga eftir færan- legri brú beint úr biðstofu um borð. „regnhlíf!‘ standa þoturnar og snúa nefinu að byggingunni. — Væntanlegir flugfarþegar koma akandi að flugstöðinni eftir átta akreina þjóðvegi, sem liggur upp að aðalinngangi hennar. — Ekki þurfa farþegarnir að hafa fyrir því að opna útidyrnar. Inn- gangurinn, sem er 28 metra breiður, er ávallt opinn. Kulda, hita, regni og roki er haldið uti með loftblæstri, heitum á vet- urna, köldum á sumrin. ALLT A SOMU HÆÐ Gengið er beint inn á fyrstu hæð, þar sem öll afgreiðsla fer fram. Þar eru farseðlar afhentir og farangur settur á færibönd sem flytja hann um neðri hæð stöðvarinnar beint að viðkom- andi þotu. Síðan fer farþeginn inn í biðstofu þá, sem sérstak- lega tilheyrir hans flugi, en sex biðstofur eru staðsettar við út- veggi stöðvarinnar ,og geta vænt anlegir farþegar fylgzt þaðan með afgreiðslu farkosta sinna. Þegar brottfarartíminn nálg- ast, er dregið úr birtu biðstof- unnar, en útgöngusvæðið upp- lýst, og halda farþegar eftir ö'r- stuttri, færanlegri brú beint um borð í þotuna. Engar tröppur eða stigar tefja förina. Flugstöðvarbyggingin mun hafa kostað 12 milljónir dollara eða um 460 millj. króna. „Regnhlífin" skýlir bæði farþegum og starfsmönnum Unnt að afgreiða sex þotur í einu t

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.