Morgunblaðið - 06.09.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.09.1960, Blaðsíða 1
20 siðui: Barizt um vðidin Kasavubu rekur Lúmúmba Lumúmba lýsir Kasavubu valdalausan Leopoldvílle, 5. september. — (NTB — ReuterJ. JOSEPH KASAVUBU, forseti Kongó, skýrði frá því í út- varpsávarpi í dag að hann hefði vikið Lumumba forsætis- ráðherra úr embætti og farið fram á það að Sameinuðu þjóðirnar tækju við eftirliti í landinu. Þá hefur hann skip- að Joseph Ileo forsætisráðherra, en Ileo var áður forseti öldunagdeildar þingsins. Sagði Kasavubu að Lumumha hafi verið að steypa Kongó út í borgarastyrjöld og kvaðst nú sjálfur taka að sér yfirstjórn hersins. Þegar eftir að Lumumba heyrði útvarpsávarp Kasa- vubu, fór hann til útvarps- stöðvarinnar. Þrátt fyrir það þótt flokkur úr her S. þ. reyndi að stöðva hann, greip Lumumba hljóðnemann og skoraði á her landsins að standa með sér. Sagði hann að Kasavubu hefði ekki lengur nein völd í landinu og kvaðst ávarpa herinn sem varnarmálaráðherra og yfir- maður hersins. Kallaði Lum- Skotar kvarta EDINBORG, Skotlandi, 5. sept. (Reuter) — Edinborgarblaðið The Scotsman kvartar í dag mjög undan þeirri þörf, sem orðin er á því að viðræður Breta og fs- lendinga hefjist um fiskveiðilög- söguna. Segir blaðið að brezka utan- ríkisráðuneytið viðurkenni að ómögulegt sé að fá íslenzku rík- isstjórnina til að samþykkja hve nær viðræður skuli hefjast. Það geti hins vegar varla verið ís- lenzku ríkisstjórninni ofraun að hefja undirbúning að viðræð- um, segir blaðið, og áframhald- andi bið hlýtur að gefa þeim grun byr undir báða vængi að íslenzka ríkisstjórnin sé að reyna að draga málið á langinn fram yfir vertíð. umba síðan ríkisstjórnina saman á fund til að fá hana til að lýsa því yfir að Kasa- vubu væri þar með vikið úr embætti. Má búast við alvarlegum átökum þjóðarleiðtoganna tveggja. Kasavubu forseti hefur mest fylgi í Leopold- ville, en Lumumba hins veg- ar í Stanleyville. RÚSSNESKAR FLUGVÉLAR Tíu rússneskar flugvélar komu í dag Við í Luluaborg á leið frá Stanleyville til Bakwanga, höf- uðborgar Námuríkisins í Kasai- héraði. I flugvélunum voru 200 hermenn Lumumba. Flugvélarn- ar voru með rússneskum merkj- um, en fyrir nokkru var sagt frá 15 rússneskum flugvélum sem merktar höfðu verið „Repu- blique du Congo“. Áhafnir vél- anna voru rússneskar, en klædd- ust ekki einkennisbúriingum. — Talið er nú að Kongostjórn hafi 1.000 manna herlið í nágrenni Bakwanga. MIKIÐ MANNFALL Hersveitir stjórnarinnar sóttu fram í dag í suður og austur frá Bakwanga og hrekja her Kal- onjis á undan sér. Telja fulltrú- ar S. þ. að um 400 manns hafi fallið úr liði Kalonjis um helg- ina. Hersveitir Kongóstjórnar eru vel vopnum búnar og veit- ist auðvelt að berjast gegn sveit- um vopnuðum borgum og örvum. INNRÁS akveðin I dag gaf Kongóher út yfir- Molotov kominn úr útlegðinni Vínarborg, Austurríki, 5. sept. — (Reuter). — VACHISLAV MOLOTOV, fyrrverandi utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, kom til Vínar í dag til að taka þar við störfum sem fulltrúi Sovét- ríkjanna hjá Alþjóða kjarn- orkumálanefndinni. Kom Molotov starfsmönn- um kjarnorkumálastofnunar- innar að óvörum. Molotov ók rakleitt til rúss- neska sendiráðsins og er ekki vitað hvar hann muni búa í Vín. Rússneskir starfsmenn kjarn- orkumálastofnunarinnar sögðu fyrir nokkru að ekki yrði fyrir- fram tilkynnt um komu Molo- tovs til Vínar og væri sú ákvörð- un tekin til að fyrirbyggja að mannfjöldi safnaðist saman við komu hans. A» ÓVÖRUM Á dagskrá ráðstefnu kjam- orkumálanefndar, sem hófst í dag, er að ræða smærri kjarna- kljúfa, og var ekki álitið að Molotov mundi sitja þá ráð- stefnu, þar sem umræður væru hávísindalegar og málið ekki það umfangsmikið að ástæða væri fyrir hann að mæta. Molotov hefur verið sendiherra Sovétríkjanna í Ytri Mongolíu frá því árið 1957 eftir að honum var vísað úr flokknum og ríkis- stjórninni fyrir and-kommúnist- iska starfsemi. lýsingu þar sem segir að inn- rásardagurinn í Katanga sé þeg- ar ákveðinn. Ekki var þó gefið upp hvenær það yrði. Segir þar að bardagarnir í Bakwanga séu aðeins byrjunin, aðalatriðið sé að ná Katangafylki. Hafi her- sveitir Kongósíjómar fimmtán rússneskar flugvélar til herflutn- inganna og um eitt hundrað rússneskar bifreiðir. En í Kat- anga séu um 40 flugvellir þar sem vélarnar geti lent. Sennilegt er talið að Tshombe muni láta fjarlægja allt elds- neyti frá flugvöllunum, eins og hann hann hefur áður gert er hann óttaðist innrás. NA vopnum Um 200 sjálfboðaliðar frá Kat- anga hafa gengið í lið með her- sveitum Kalonjis, og er talið að Framh. á bls. 2. Kasavubu (í miðju og Lumumba (til hægri). Heildarverðmœti land- húnaðarafurða 730 millj. Frá adalfundi Stéttarsambands bænda BIFRÖST, 5. sept. — í morg- un var settur 16. aðalfundur Stéttarsambands bænda hér að Bifröst. Formaður samtak- anna, Sverrir Gíslason bóndi í Hvammi, setti fundinn og nefndi til fundarstjóra Jón Sigurðsson bónda á Reyni- stað. Varafundarstjóri er Þórir Steinþórsson í Reyk- holti og fundarritarar Guð- mundur Ingi Sigurðsson og séra Gísli Brynjólfsson. Eftir að kjörbréfanefnd hafði verið tilnefnd flutti formaður skýrslu stjórnarinnar og fram- leiðsluráðs. Hóf hann mál sitt með því að ræða verðlaggrund- völl landbúnaðarvara og breyt- ingar þær, sem urðu á fram- leiðsluráðslögunum á sl. starfs- ári. Þá lýsti formaður bví hvar komið væri nú málum um samn- ing á nýjum verðlagsgrundvelli. Verðlagsgrundvellinum var ekki sagt upp, en samkomulag varð um að hagstofustjóri hækkaði vaxtalið grundvallarins um 1210 kr., til þess að mæta hækk- un bankavaxta. Formaður sagði að samkomulag væri að mestu innan sex manna nefndarinnar um verðlagsgrundvöllinn, en þó væri ekki að fullu gengið frá hvað reikna má verð á ull og gærum. Mjólkurframleiðsla aukist Næst ræddi Sverrir Gíslason um framleiðsluvörur landbúnað- arins. Hann kvað innvegið mjólk- urmagn til mjólkurbúa hafa vax- ið um aðeins 0,68% á árinu 1959 (heildarmagnið er 69.632.720 lítr- ar). Neyzlumjólkursalan jókst hins vegar um 8,74% á árinu (heildarsala 32.852.796 lítrar). Tölur benda til þess að nú virðist þurfa að greiða fyrir aukinni mjólkurframleiðslu með því að stuðla að byggingu mjólkurbúa, þar sem engin eru fyrir. Væri þau þó fyrsteog fremst vinnslu- mjólkurbú. Benti formaður á að á sl. ári hefði þurft að flytja inn 100 tonn af smjöri. Framh. á bls 2. Ðe Gaulle harðorður Viðgerð lokið PORTSMOUTH, Englandi, 5. sept. (Reuter) — Brezki tundur spillirinn Dainty fór í dag frá Portsmouth til eftirlitsstarfa við ísland eftir tíu daga töf í höfn vegna skemmdarverka. Fjórir vélamenn skipsins eru í haldi grunaðir um að hafa unnið skemmdarverkin hinn 26. ágúst sl. Verða þeir sennilega dregnir fyrir herétt eftir nokkrar vikur þegar tundurspillirinn kemur aftur úr leiðangri sínum, og mun skipstjórinn verða sækjandi í málinu. París, 5. sept. (Reuter). DE GAULLE forseti boðaði í dag 750 blaðamenn, erlenda fulltrúa og opinbera embættismenn á sinn fund og ræddi við þá um stjórn- málaástandið í Evrópu, Atlants- hafsbandalagið, Afríku, Samein- uðu þjóðirnar og framtið Alsír. Deildi hann harðlega á Samein- uðu þjóðirnar og mótmælti fyrir fram hverri þeirri samþykkt er þar væri gerð varðandi stefnu Frakka í Alsírmálinu. „HINAR SVONEFNDU S.Þ.“ Var De Gaulle mjög harðorður varðandi aðgerðir S.þ. til að koma á friði í Kongó, og sagði að Bandaríkin, Bretland og Frakk- land hefðu strax átt að samrýma stefnur sínar gagnvart Kongó. Ef þessi þrjú stórveldi hefðu tryggt sjálfstæði Kongó, hefði ekki kom ið til afskipta ,,tiltekins“ aðila. Með því hefði álit Vesturveld- anna verið betur tryggt en með vafasömum og kostnaðarsömum aðgerðum „hinna svonefndu Sam einuðu þjóða“, sagði De Gaulle. Hann kvaðst hafa árangurs- laust reynt að koma á samein- ingu á stefnum þessara þriggja stórvelda, sérstaklega varðandi Afríku. Enniþá væri það ekki of seint, og ættu Vesturveldin a8 vinna sameiginlega að því að hvetja hinar nýsjálfstæðu þjóðir til að taka upp skynsamlegar stefnur. ALSÍR INNANRÍKISMÁL Þá minntist De Gaulle á Alsír, og hvað sjálfstæði þess nálgast. öll rök mæltu með því að Alsír yrði samt áfram í tengzlum við Frakkland. Hann bætti við: ,,Hvað sem verður, skeður ekki í New York (hjá S.þ.). Frakkland mun halda fast við stefnu sína varðandi Alsír, þ. e. sjálfsákvörð- unarrétt íbúanna“. Sagði De Gaulle að S.þ. hefðu enga heim- ild til afskipta í Alsírmálinu, sem væri algjörlega franskt innanrík- ismál. Meirihluti atkvæða hjá S.þ. væri ekkert yfirvald og „þessir New York ráðgjáfar' þurfa ekki að borga brúsann. SYNDIÐ 200 METKANA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.