Morgunblaðið - 06.09.1960, Page 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur S. sept. 1960
Lögheimil ráöstöfun á gjald-
eyristekjum póststjórnarinnar
Yfirlýsing frá Gunnlaugi Briem
póst- og simamálastjóra
Blaðinu barst í gær eftir-
farandi yfirlýsing frá Póst-
og simamálastjórninni:
PÓST- og símamálastjóri var á
ferð á Norðurlandi í gær (sunnu
dag), er honum bárust fregnir
um æsifréttir þær um gjaldeyris
viðskipti póstsins sem birzt
hefðu í Alþýðublaðinu og Tím-
anum.
í 3. gr. laga nr. 88/1953 stend-
ur: „Landsbanki íslands og Út-
vegsbanki íslands hf. hafa einka
rétt til að verzla með erlendan
gjaldeyri. Þó er póststjóminni
heimil slík verzlun innan þeirra
takmarka, sem ríkisstjórnin set-
ur“.
Framkvæmd þessa síðasta at-
riðis hefur verið með nákvæm-
lega sama hætti og tvo undan-
farna áratugi eða lengur. Inn-
eignir stofnunarinnar í erlend-
um gjaldeyri hafa verið gefnar
upp í póstreikningum og til-
kynntar Landsbankanum, hve-
nær sem óskað er. Endurskoðun
ríkisins hefur og farið yfir reikn
inga stofnunarinnar. Þegar sótt
hefur verið um innflutningsleyfi
eingöngu, hefur innflutnings-
skrifstofunni verið tjáð, að
greiðsla yrði innt af hendi af er-
lendri inneign stofnunarinnar.
Hefur aldrei komið fram nein
athugasemd um að farið væri út
fyrir þann ramma, er heimill
væri í þessu efni. Þótt megnið
af þessum gjaldeyrisviðskiptum
feli í sér greiðslur fyrir flutn-
ing á pósti, þá hefur nokkuð far
ið í efniskaup, þ.á.m. frímerki,
og í einstaka tilfellum hefur
starfsmönnum stofnunarinnar
verið greiddur gjaldeyrir
af inneign stofnunarinnar
eingöngu í hennar þarfir í ferð-
um á erlendar ráðstefnur eða til
'þess að mæta óvenjulegum kostn
aði svo og kaupa á smááhöldum
fyrir stofnunina. er þeir kynnu
að rekast á í ferðinni. Slíkan
gjaldeyri hefur að sjálfsögðu
ekki mátt nota nema í þarfir
stofnunarinnar, og hefur verið
gengið ríkt. eftir, að þegar reikn
ingar í sambandi við þær voru
gerðir upp, færi það fram í er-
lendum gjaldeyri eða með ná-
kvæmlega sama gengi og þeir
voru upphaflega bókaðir á,
þannig að enginn gengishagnað-
ur kæmi til greina fyrir hlutað-
eigandi starfsmenn.
Það hefur hvað eftir annað
komið fyrir, að starfsmenn á er-
lendum ráðstefnum hafi staðið
uppi peningalausir vegna tafa á
gjaldyrisgreiðslu dagpeninga
þeirra, og hefur stofnunin þá
orðið að hlaupa undir bagga af
innieign sinni. Á síðustu tveim
árum hefur verið óvenju mikið
um slíkar ráðstefnur, og þannig
varð póst- og símamálastjóri á
síðasta ári að fara 8 slíkar ferð-
ir og stóðu sumar ráðstefnurnar
lengi, og annar starfsmaður varð
að sitja um 5 mánuði á mikil-
vægri ráðstefnu. í þessum til-
fellum kom fyrir dráttur á gjald
eyrisyfirfærslum á venjulegan
hátt, sem var bjargað með
greiðslu af inneign stofnunarinn-
ar.
Allir reikningar stofnunarinn-
ar liggja að sjálfsögðu eins og
að undanförnu opnir fyrir ríkis-
endurskoðendum og hverjum,
sem falið er að athuga þá.
Þess má geta, að í undirbún-
ingi er málshöfðun vegna hinna
ærumeiðandi aðdróttana í áður-
nefndum blöðum
Reykjavík, 5. september 1960.
Sign. Gunnlaugur Briem.
Póst- og símamálastjóri.
Fyrsta flugvélin lenti
á Isafjarðarflugvelli
Flugvallargerðinni miðar mjög vel dfram
A NÝJA flugvellinum á Isafirði
er nú tilbúin 400 m. löng braut
og verið að bera ofan í 350 m.
í viðbót. Vinna við völlinn geng-
ur ákaflega vel, og standa vonir
til að hægt verði að Ijúka 1100
m. langri flugbraut í haust, en
þá fyrst verður völlurinn fær
innanlandsflugvélunum.
Þessar upplýsingar fékk blaðið
í gær hjá Hauki Claessen, en
hann flaug í gær vestur með
<S>-------------
Greinargerð fró
gjaldeyriseftirlitinu
í TILEFNI af blé?8askrifum um
gjaldeyrismál póst- og símamála
stjórnarinnar, vill gjaldeyriseft
irlitið taka fram eftirfarandi.
Samkvæmt lagaákvæðum, sem
í gildi hafa verið síðan árið 1941,
hefur póststjórninni verið heim-
il verzlun með erlendan gjald-
eyri innan þeirra takmarka, sem
ríkisstjórnin eða ráðherra setur.
Síðast var þessi ákvæði að finna
í 3. gr. laga nr. 88 24 desember
1953 um skipan innflutnings- og
gjaldeyrismála o.fl. Á grundvelli
þessarar lagaheimildar og langr-
aT hefðar hefur póst- og síma-
málastjórnin tekið á móti gjald-
eyrisgreiðslum fyrir póst- og
símaþjónustuna og notað þær
gjaldeyristekjur til að inna af
hendi greiðslur fyrir samskonar
þjónustu. Þegar gjaldeyristekjur
hafa ekki hrokkið fyrir gjöldum,
hefur póst- og símamálastjórnin
fengið gjaldeyrisleyfi hjá hlutað
eigandi yfirvöldum. Eins hefur
póst- og símamálastjórnin skil-
að gjaldeyri til bankanna þegar
tekjur hafa verið umfram gjöld.
Vörur, sem póst- og símamála-
stjórnin hefur flutt inn til sinna
þarfa, hafa yfirleitt verið greidd
ar með gjaldeyri, er yfirfærður
hefur verið samkvæmt gjaldeyr-
is- og innflutningsleyfum. Þá hef
ur póst- og símamálastjórninni
stundum verið heimilað að nota
eigin gjaldeyri til vörukaupa og
hafa þá verið gefin út innflutn-
ingsleyfi.
Póst- og símamálastjórnin hef
ur skýrt gjaldeyriseftirlitinu frá
því, að hún hafi yfirleitt aflað
sér gjaldeyrisleyfa til greiðslu
ferðakostnaðar vegna stofnunar-
innar, er hafi þó einstöku sinn-
um, þegar mikið hefur legið á,
notað eigin gjaldeyri í þessu
skyni. Gjaldeyriseftirlitið mun
óska eftir nánari greinargerð
póst- og símamálastjórnarinnar
um þetta atriði.
Póst- og símamálastjórnin hef
ur gert gjaldeyriseftirlitinu grein
fyrir öllum þeim gjaldeyri, sem
henni hafa verið veitt leyfi fyrir,
á sama hátt og aðrir aðilar, er
slík leyfi fá. Gjaldeyriseftirlitið
hefur iðulega fengið upplýsingar
um gjaldeyriseign stofnunarinn-
ar, og fyrir henni er einnig gerð
grein í ársreikningum hennar. Á
hinn bóginn hefur gjaldeyriseftir
litið ekki krafið póst- og síma-
málastjórnina um fullkomnar
yfirlitsskýrslur um gjaldeyris-
tekjur sínar og gjöld, af þeirri
ástæðu, að gjaldeyrisviðskipti
stofnunarinnar sem og aðrar fjár
reiður henrrar, eru undir ná-
kvæmu eftirliti ríkisendurskoð-
unarinnar.
Með hinum nýju lögum um
skipan innflutnings- og gjald-
eyrismála (nr. 30, 25. maí 1960)
og reglugerð, sem sett var sam-
kvæmt þeim lögum (nr. 79, 27.
maí 1960) var fyrri ákvæðum
um gjaldeyrisverzlun póststjórn
arinnar breytt þannig, að það
er Seðlabankinn en ekki ríkis-
stjórnin, sem á að setja þessari
verzlun takmörk (sbr. 15. gr. áð-
urnefndrar reglugerðar). Síðan
þessi nýju ákvæði gengu í gildi
hefur Seðlabankinn haft í undir
búningi reglur um gjaldeyris-
verzlun póststjórnarinnar. í því
sambandi ritaði póst- og síma-
málastjórnin bankanum bréf
hinn 30. júlí s.l. og óskaði eftir
nánari reglum um tiltekin atriði
gjaldeyrisverzlunarinnar. Þessar
reglur mimu verða gefnar út á
næstunni.
Birni Palssym a nyju sjukra
flugvélinni hans. Er það fyrsta
flugvélin, sem lendir á Isafjarð-
’arflugvelli. Hér eftir geta litlar
flugvélar lent þarna, og einnig
flugvél Björns og sjúkraflugvél
Tryggva Helgasonar.
Verkinu hefur miðað ákaflega
vel áfram í sumar, að því er
Haukur Claessen tjáði blaðinu.
í fyrra um þetta leyti hafði rignt
mikið og menn óðu leðjuna upp
í hné þarna, en nú hefur allt
verið skraufþurrt. Þar að auki
hafa litlar bilanir orðið á vél-
um og sérlega góður mannskap-
ur unnið að flugvallargerðinni.
— Með sama áframhaldi ætti
1100 m. braut að verða tilbúin
í haust, en maður þorir ekkert
að fullyrða, sagði Haukur að
lokum.
— Kongó
Frh. af bls. 1
þeir séu vel vopnum búnir.
Óstaðfestar fréttir herma að
her Lumumba hafi á sunnudags-
kvöld ráðizt inn í Katanga, en
dregið sig til baka eftir að hafa
tekið nokkra 'fanga.
1 fréttum frá stöðvum S. þ.
í Kongó segir að skæruliðar úr
her Kalonjis hafi náð á sitt vald
talsverðum birgðum vopna frá
her Lumumba. I átókunum náðu
þeir nokkrum föngum.
FRÉTTAMAÐUR DREPINN
Á sunnudaginn var bandarísk-
ur fréttamaður, Henry N. Taylor,
drepinn í bardögum nálægt
Bakwanga. Varð hann fyrir vél-
byssuskotum á vígvöllunum þar
sem hersveitir Kongó börðust
við hermenn Baluba-ættflokks-
ins. Bandarísk flugvél var í dag
send til Luluaborgar til að sækja
lík fréttamannsins.
Annar bandarískur fréttamað-
ur er nú í stofufangelsi hjá her
Kongóstjórnar í Bakwanga. —
Brezku fréttamennimir þrír, sem
Kongóherinn handtók í síðustu
viku ,eru enn í haldi, og eru nú
fulltrúar S. þ. að reyna að fá J
þá lausa. *
Suðvestur af Reykjanesi er
lægð (um 990 mb), sem
hreyfist hægt NA-eftir og
veldur rigningu á veðurskip-
unum India og Alfa. Er því
búizt við nokkurri rigningu
um sunnan og vestanvert land
ið, en aðeins um stundar-
sakir. Hlustunarskilyrði eru
slæm og vantar því alveg veð
urskeyti frá Ameríku.
Á kortasvæðinu er hlýjast
í Kaupmannahöfn 17 stig, í
London 16 stig, í Osló og
Brattahlíð 14 stig, en 12 stig
í Reykjavík.
Veðurhorfur
SV-mið: Austan rok og
rigning í nótt en allhvass SA-
í nótt og skúrir á morgun.
SV-land. Faxaflói og Faxa-
flóamið: Allhvass eða hvass
og rigning í nótt, SA-stinn-
ingskaldi og skúrir á morgun.
Breiðafjörður, Vestfirðir,
Breiðafj.mið og Vestfjarða-
mið: SA og austan stinn-
ingskaldi, rigning öðru hverju
þegar líður á nóttina.
Norðurland til Austfjarða,
Norðurmið og NA-mið: SA
stinningskaldi, víðast hvar
úrkomulaust.
SA-land, Ausfjarðamið *og
SA-mið: SA stinningskaldi,
sums staðar allhvass í nótt,
rigning öðm hverju.
— Stéttarsamband
Frh. af bls. 1
Næst ræddi formaður kjötfram
leiðsluna. Innvegið kindakjöt til
sláturhúsa var 1021,2 tonn og er
101,8 tonnum meira en haustið
1958. Kjöt af heimaslátruðu er
áætlað 1350 tonn og er þá heildar
kindakjötframleiðslan 22.371,2
tonn. Gera má ráð fyrir að heima
slátrun hafi verið minni vegna
niðurgreiðslunnar á kjötinu. Út
var flutt kjöt 2605 tonn samtals
og er það þúsund tonnum minna
heldur.en 1958. Auk þess eru svið
og innmatur talin samsvara 1500
tonnum af kjöti. Þá er áætlað að
nautgripakjöt sé um 1500 tonn og
hrossakjöt álíka mikið. Silungur
og lax eru talinn samsvírra 1350
tonnum af kjöti.
Afurðamáttur hraðeykst
Næst ræddi formaður garðrækt
ina. 57 þús. tunnur af jnnlendum
kartöflum komu til sölumeðferð-
ar Grænmetisverzlunar landbún
aðarins. Við þetta bætist 1105
tunnur vegna stofnræktar og selt
innlent útsæði. Þá hefur verzlun-
in flutt inn 38.192 tunnur af kar-
töflum. Verzlunin seldi 1360 tunn
ur af rófum. Alls var því sala
innlendra garðávaxta á vegum
verzlunarinnar 59.465 tunnur. For
stjóri verzlunarinnar telur að
framleiðsla garðávaxta í kaup-
stöðum fari ört minnkandi. Þá
sagði Sverrir Gíslason að heild-
arverðmæti landbúnaðarfram-
leiðslunnar árið 1958 mundi nema
um 730 millj. króna. Verðmæti
ársins 1959 hefur ekki enn verið
reiknað út, en mun vera all miklu
meira.
Þá ræddi formaður að síðustu
um fjárfestinguna í landbúnað-
inum og skuldir bænda og benti
að lokum á þróunina, sem orðið
hefði í landbúnaðarframkvæmd-
um einkum með tilliti til aukinna
kaupa á vélum og aukinnar notk-
unar á tilbúnum áburði. Nú munu
vera í notkun 4830 heimilisdrátt-
arvélar. Þá má benda á að 1945
voru notuð 1206 tonn af tilbúnum
áburði, 1955 4230 tonn, en 1959
er áætluð notkun köfnunarefnis-
áburðar 7500 tonn. Hliðstæð aukn
ing eða nokkru meiri er á notk-
un fosfór og kaliáburðar.
14—15 millj. í Búnaðarhúsið
Að lokinni skýrslu formanns
flutti Helgi Pétursson fram-
kvæmdastjóri skýrslú um kjöt-
útflutninginn. Sæmundur Frið-
riksson, framkvæmdastjóri sam-
bandsins, las og skýrði reikninga.
Stærsti liður þeirra er bygging
búnaðarhússins, en í það hefur
verið varið 14—15 millj. Er verið
að steypa 7. hæð þess, en í því
verður sem kunnugt er stórt og
mikið gistihús, eða 90 herbergi
með 150 rúmum. Nokkrir fjár-
hagsörðugleikar hafa tafið fyrir
byggingunni, en vonir standa til
að framkvæmdir geti hafizt í ein
hverjum hluta hennar næsta sum
ar.
Næsti liður á dagskránni voru
umræður um skýrslu formanns
og verðlagsgrundvöllurinn. Voru
umræðurnar mjög miklar, fluttar
22 ræður og stóð fundurinn fram
á kvöld. Var bent á nauðsyn lag-
færinga á verðlagsgrundvellin-
um. En þeir Sverrir Gíslason,
Einar Ólafsson og Sveinn
Tryggvason, framkvæmdastjóri
framleiðsluráðs svöruðu fyrir-
spurnum og athugasemdum af
hálfu stjórnar.
Öldruð hjón slasast
1178. bílaáreksturinn í lögsagn-
arumdæmi Reykjavíkur, á þessu
ári varð um kl. 9,30 á laugardags
kvöldið suður á Hafnarfjarðar-
vegi. Var þetta mjög harður á-
rekstur. Hjónin Ólafur Jóhanns-
son og kona hans Sigríður Magn-
úsdóttir, Sogamýrarbletti 15, er
voru í öðrum bílanna slösuðust
bæði allmikið en þau eru um
sjötugt.
Þau Ólafur og Sigríður voru
að koma norður Hafnarfjarðar-
veginn í bíl sínum, R-628, sem er
17 ára gamall 4ra manna Austin.
Fleiri bílar voru þar í lest. Þeg-
ar Ólafur er kominn að Foss-
vogsvegi, sem liggur til austurs
frá Hafnarfjarðarvegi, ætlaði
hann að aka þar inn á. Um leið
og hann beygði til hægri handar
kom Buick-bíll 3—4 sinnum
þyngri en litli bíllinn, á fleygi-
ferð suður Hafnarfjarðarveginn
og beint á litla bílinn. Var árekst
urinn svo harður, að hjónin köst
uðust bæði út úr bílnum, sem
síðan lenti ofaní alldjúpum
skurði, og var ónýtur orðinn.
Ólafur var fluttur í slysavarð-
stofuna. Hann hafði hlotið á-
verka á höfði eftir þungt höfuð
högg.
Þar var hann enn í gærkvöldi,
undir læknishendi. Kona hans,
Sigríður Magnúsdóttir, var flutt
í Landakotsspítala. Hún hafði
einnig hlotið áverka á höfði,
heilahristing og beinbrot.
Það er af Buick-bílnum R-5033
að segja, að í honum voru tveir
ungir menn, sem báðir suppu ó-
meiddir. Eftir áreksturinn nam
bíilinn staðar á ljósastaur og sat
þar fastur. Það lá þegar fyrir
um kvöldið, er lögreglan kom á
slysstaðinn, að Buicknum hafði
verið ekið mjög hratt. — Sjálfur
telur ökumaðurinn að hann hafi
verið á 80 km hraða!