Morgunblaðið - 17.09.1960, Blaðsíða 5
LaugardagrJr 17. sept 1960
y n v c ri \ i* r á nifí
5
Fyrir nokkru birtist hér smá
grein um japanska forsætisráð
herrann, Ikeda, og var þá um
leið vikið nokkuð að þeim á-
hrifum, sem Japanir hafa orð
ið fyrir erlendis frá nú síðustu
árin. Þessi áhrif enu að mestu
leyti talin hafa orðið til góðs,
svo sem á sviði tækni, vísinda
og lista, en jafnframt fer ekki
hjá, að eitthvað skolist með
af miður heppilegum tízkufyr-
irbrigðum, sem gerir þjóðrækn
um mönnum gramt í geði.
Eitt þessara fyrirbæra, sem
fer eins og eidur í sinu um
illan heim ,er skellinöðru- og
vélhjólaæði unglinga. í sjálfu
sér væri auðvitað ekkert við
þessu að segja, ef ekki vildi oft
fylgja í kjölfarið ýmislegt, er
eldri kynslóðin a.m.k. kallar
spillingu. Hér er mynd af jap-
önskum „Ieðurjakkagæjum",
sem eru að leggja af stað í út-
reiðartúr á mótorhjólum sín-
um með elskurnar sínar á bak-
sætinu. Eldri kynslóðinni í
Japan er meinilla við þess
konar útreiðartúra, kallar þess
konar ferðir „mótorhjólaólifn-
að“ og gengur jafnvel svo
tangt að kenna þeim að mestu
leyti um þá staðreynd, að á
úðasta ári voru framkvæmdar
i aðra milljón fóstureyðingar
i landinu, sem vitað var um.
Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda-
flug: Gullfaxi fer til Oslóar, Kaupmh.
og Hamborgar kl. 10:00 í dag. Vænt-
anlegur aftur kl. 16:40 á morgun. —
Hrímfaxi fer til Glasgow og Kaupmh.
kl. 08:00 í fyrramálið. — Innanlands-
flug í dag: Til Akureyrar (2 ferðir),
Egilsstaða, Húsavíkur, Isafjarðar, Sauð
árkróks, Skógasands og Vestmanna-
eyja (2 ferðir). — A morgun: Til Ak-
ureyrar, Isafjarðar og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.: — Snorri Sturluson
er væntanlegur kl. 6:45 frá New York
og fer til Osló og Helsingfors kl. 8:15.
Væntanlegur þaðan kl. 23:00 og fer til
New York kl. 00:30. — Edda er væntarv-
leg kl. 19:00 frá Hamb., Kaupmh. og
Gautaborg. Fer til New York kl. 20:30.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Detti-
foss er á leið til Rvíkur. — Fjallfoss er
á Siglufirði. — Goðafoss er í Rvík. —
Gullfoss fer frá Kaupmh. á hád. í dag
til Leith og Rvíkur. — Lagarfoss er á
leið til Rvíkur. — Reykjafoss fór frá
Dublin í gær til Arhus. — Selfoss er
á leið til Gautaborgar. — Tröllafoss fór
frá Helsingborg í gær til Rvíkur. —
Tungufoss er á Vopnafirði.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Korsör. — Askja er á Akur-
eyri.
H.f. Jöklar: — Langjökull er í Riga.
— Vatnajökull fór frá London í gær
á leið til Reykjavíkur.
Skipadeil SÍS: — Hvassafell lestar á
Norðurlandshöfnum. — Arnarfell átti
að fara frá Riga í gær til Gautaborgar.
— Jökulfell fer í dag frá Grimsby til
Calais. — Dísarfell er í Karlskrona. —
Litlafell er í olíuflutningum í Faxa-
flóa. — Helgafell losar á Vestfjarða-
höfnum. — Hamrafell er í Hamborg.
Skipaútgerð rlkisins: — Hekla fer frá
Reykjavík kl. 22 í kvöld austur um
land 1 hringferð. — Esja er í Rvík. —
Herðubreið er á leið til Rvíkur. —
Skjaldbreið er á Vestfjörðum á auður-
leið. — Þyrill er í Rotterdam. — Herj-
ólfur fer frá Vestmannaeyjum kl. 13 í
dag til Þorlákshafnar og aftur frá
Vestmannaeyjum kl. 22 í kvöld til
Reykjavíkur.
Það smáa er stórt £ harmanna heim, —
höpp og slys bera dularlíki, —-
og aldrei er sama sinnið hjá tveim,
þótt sama glysi þeir báðir flíki. —
Eu mundu, þótt veröld sé hjartahörð,
þótt hrokinn sigri og rétturinn víki,
bölið, sem aldrei fékk uppreisn á jörð,
var auðlegð á vöxtum í guðanna ríki.
Einar Benediktsson:
TJr Einræðum Starkaðar.
HIN ágœtu Ijóö Pálmars Hjálm-
árs skálds verða að biða að sinni,
því að þau uggvœnlegu tíöindi
hafa borizt mér til eyrna, þar
sem ég hef setið og hámað í mig
buff og spœld egg (sem sagt á
barnum), að sítdin sé algerlega
búin að segja skilið við Island, ékki einungis Norðurland,
heldur einnig Austurland. Einnig heyri ég því fleygt, að
kolbíturinn sé kominn í staðinn. Þar sannast hið fornkveðna,
að ida fer jafnan, ef kolbítarnir yfirgefa öskustó sína.
Eg stökk upp frá hálfkláruðu buffi, þurrkaði mér um
munninn á erminni og þaut út. Þar spurði ég livern mann,
sem á vegi mínum varð, hvar síldarleitin hefði aðsetur. Eg
hafði spurt átta, og þeir höfðu allir bent mér eitthvað upp í
f jall, þegar ég loksins rakst á þann níunda, sem skýrði mér
frá því sanna í málinu:
— Síldarleitinn er farinn til andskotanns, sagði sá frómi
maður, Hann Stjáni saggdi mér í morgunn, að þeir hebbdu
flutt austur í gœr.
Eg þákkaði greinargóðar upplýsingar, og til þess að gera
eitthvað % málinu, spankúleraði ég mig niður á bryggju. Þar
lá fátt skipa utan færeyskra. Og þar sem Færeyingar eru
þekktir að því aö vera ágœtir sjómenn, ■—- hafa enda oft og
tíðum bjargað bátaflota landsmanna frá þeirri hneysu að
koðna niður í höfnum inni um hábjargrœöistímann —, gaf
ég mig á tál við einn þeirra. Hann sat í mestu mákindum
upp á dekki og var að tína spírur af kartöflum (mér sýndist
þœr vera frá því fyrir stríð).
■— Góðan daginn, sagði ég.
Sá fœreyski tók ávarpi mínu hiö besta, leit upp og hœtti
<zð tæta spírurnar af kartöflunum.
— Hvernig er fiskiríiðf spurði ég.
— Pína dojur, sagði hann spekingslega, pína dojur.
— Ykkur líkar náttúrlega vel hér norðanlands? spurði ég.
— lddsji súm verstúr, gamli, sagði hann, og mér sýndist
Jiann laundrjúgur yfir kunnáttu sinni í túngu hérlands-
manna.
•— Þið skemmtið ykkur náttúrlega, þegar þið eruð í landi?
— O, tað onskji mikki, onskji rnikki.
— Þú ert þarna með ansi myndarlegar kartöflur. Er það
ekki gömul uppskera? Mér sýnist það.
— Já, já. Tað har er gamal, jájá.
Og hann hóf að nýju að tína spb'urnar og fór sér að engu
óðsieaa. Eg kvaddi og þákkaði Jyrir uppbyggilegt viðtál.
Spírubrjóturinn á dekkinu píröi á mig öðru auganu og muldr-
aði eitthvað. Síðan hélt ég upp bryggjuna, en ekki var ég
ko'.ninn langt upp í beeinn, þegar ég mundi, að gaman hefði
verið að fá einhverja frœðslu um fœreysk atómljóð. Þjóð-
söngurinn um Rasmus í Görum er jú mjög öpp tú deit.
Storesar
og dúkar af öllum stærðum
stífaðir og strekktir í Eski
hlíð 18 A 2. hæð tv. —-
Sími 10859.
Prjónavél
Til sölu góð prjónavél. —
Uppl. í síma 36422.
Keflavík
Mjög góður sendiferðabíll
Chevrolet ’57 til sýnis og
sölu við Aðalsendibílastöð
ina í dag kl. 1—5.
Til sölu
vegna brottflutnings Rafha
eldavél, eldri gerð. Stórt
útvarpstæki, sem nýtt.
Sófi og sófaborð. Uppl í
síma 12228.
Vist
Dönsk stúlka óskar eftir
góðri v.ist. Uppl. í síma
17957.
Ung reglusöm hjón
með 1 barn óska eftir 2ja—
3ja herb. íbúð strax eða 1.
okt. Fyrirframgreiðsla
kemur til greina. Uppl. í
síma 18896.
Fallegur hornsófi
og tveir djúpir stólar til
sölu. seljast ódýrt.
Uppl. á Grettisgötu 43.
Tvær mæðgur
óska eftir að taka á leigu
2ja herb. íbúð 1. okt. Fyrir
framgreiðsla. Uppl,- í sima
15181.
2ja herh. íbúð
óskast. Tvö í heimili. —
Uppl. í súna 13616.
Kona óskast
til afgreiðslustarfa. Uppl. á
staðnum
ísborg við Miklatorg.
Kona óskast
Beitu-síld
200 tunnur af góðri beitu-
síld til sölu, sími 1201 —
Karvel ögmundsson
Ytri Njarðvík
Trillubátur
byggður úr stáli í Noregi
til sölu. 1 bátnum er 30 ha.
gangörugg vél. Sími 1201.
Karvel Ögmundsson
Ytri Njarðvík
Segulbandstæki
til næturvaktastarfa á
Vöggustofuna, Hlíðarenda,
nú þegar. Uppl. á staðnum.
Radionetti til sölu. UppL í
síma 32691.
í 2ja herb. íbúð
óskast til leigu. Uppl. í
síma 16871.
Unglingur
óskast til aðstoðar á sveita
heimili til áramóta, eða í
allan vetur. Uppl. í síma
10368 eftir kl. 18,00.
Vinna
Duglegur, ungur maður,
óskar eftir kvöldvinnu, —
margt kemur til greina.
Tilb. merkt: „Aukavinna -
1570“ sendist á afgr. Mbl.
fyrir miðvikudagskvöld.
Kópavogur, nágrenni
Óska eftir 2ja—4ra herb.
íbúð til leigu í Kópavogi
eða nágrenni Rvíkur. Uppi.
í síma 17909.
athugið;
að borið saman við útbreiðsiu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu en í öðrum
blöðum. —
íbúð
Góð 2ja—4ra herb. íbúð
öskast á hitaveitusvæði á
góðum stað 1. okt eða fyrr.
Aðein tveir fullorðnir í
heimili. Allar uppl. gefnar
í síma 13859.
Frá Mýrarhúsaskóla,
Seltjarnarnesi
Böm á aldrinum 10—12 ára þurfa að mæta til inn-
ritunar í skólann í dag 17. sept. kl. 3 e.h.
Á komandi vetri verður starfræktur unglinga-
skóli í tveim deildum. Væntanlegir nemendur ungl-
ingaskólans þurfa að hafa samband við skólastjóra
í dag eða á morgun kl. 5—7 e.h.
Foreldrar athugið:
Geti börnin ekki komið sjálf, þurfa foreldrar
þeirra eða aðrir aðstandendur að gera grein fyrir
þeim í skólanum á ofangreindum tímum.
SKÓLASTJÓRI.
3ja til 4ra herb. ibuð
óskast lil leigu með eða án húsgagna.
Upplýsiiigar í síma 1-9993.