Morgunblaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 6
6
MORCViyRT.AÐlH
Þriðjudagur 4. okt. 1960
— Bílslysin
Frh. af bls. 1.
hafði orðið við gatnamót Laugar
nesvegar og Miðtúns. Slys eru þar
tíð.
Roskinn maður lá meðvitundar
laus í götunni. Hann hafði orðið
fyrir bíl, sem kom á móti honum.
Maðurinn heitir Ásgeir Guð-
mundsson Laugavegi 30, bæjar-
vinnumaður, nokkuð við aldur.
Bílstjórinn á bílnum, sem hann
varð fyrir, sendiferðabílnum
R-5359, sagði að hann hefði verið
að mæta bíl. Ekki taldi hann sig
hafa blindazt af ljósum bílsins. —
En allt í einu sá hann hvar Ás-
geir kom gangandi. Það skipti
engum togum, hann varð fyrir
bílnum, kastaðist upp og aftur
með honum og féll í götuna.
— Flugvöllur
Framh. af bls. 3
vel flugvallarbyggingin hefði
gengið og hvað framundan
væri. örn Ó. Johnson talaði
um flugsamgöngurnar við
ísafjörð, hve ört þær hefðu
vaxið. Flugleiðin til ísafjarð-
ar væri nú ein af fjórum
helztu innanlandsleiðum Flug-
félagsins og nú bæri að leggja
áherzlu á að ljúka verkinu
svo að brautin næði fullri
lengd, 1,400 metrum. Að lok-
um talaði Bergur G. Gíslason
um nauðsyn þess að byggja
upp samræmt kerfi flugvalla
og vega og nauðsyn væri á
heildarskipulagi í þá átt.
Flugdögum fækkar
e. t. v. — en ....
1 gær fór svo DC-3 flugvél
Flugfélagsins í fyrsta áætlun-
arflugið vestur. „Það er
gleðilegt, bæði fyrir okkur
hjá Flugfélaginu og ísfirðinga,
að þessum áfanga er nú náð.
í vetraráætlun Flugfélagsins
er gert ráð fyrir, að DC-3 fari
allar ferðir“, sagði Hilmar
Sigurðsson, framkvstj. innan-
landsflug Flugfélagsins", og
við búumst við að þetta verði
hagkvæmara, bæði fyrir ís-
firðinga og félagið. „Kata“ er
búin að þjóna lengi og vel, en
bennar þjónusta er samt ekki
ambærileg við þjónustu land-
,'élanna“. bætti hann við.
Flugfélagið hefur nú gefið
út reglur fyrir flugmenn sína
í flugi til ísafjarðar og svo
sem greint var frá í Mbl. á
sunnudaginn verður ekki
leyft flugtak inn fjörðinn að
sinni, a. m. k. ekki fyrr en
iwautin hefur náð fullri lengd.
„Viðbúið er, að flugdögun-
um til ísafjarðar fækki eitt-
hvað,“ sagði Jóhannes Snorra-
son, yfirflugstj. F. L, „vegna
þess að völlurinn nýtist ekki
í sunnanátt. Við leyfum samt
flugtak í norður í allt að 5
hnúta meðvindi."
„En oft á tíðum verður hægt
að nota flugbrautina þegar
Kataiína gæti ekki lent,“ sagði
Magnús Guðmundsson, flug-
stjóri hjá Loftleiðum, en hann
var með í þessari fyrstu ferð
Gljáfaxa vestur. „T. d. að vetr
inum, þegar Pollurinn er ísi
lagður og ekki hægt að lenda
fyrir utan eyrina vegna und-
iröldu,“ bætti Magnús við.
h.j.h.
Ásgeir mun hafa slasazt mikið
Hann hefur skollið með höfuðið
utan í bílinn með þeim afleið-
ingum að hann höfuðkúpubrotn-
aði. Hann var fluttur í Landa-
kotsspítala.
Árekstur við Leirvogsá
Klukkan rúmlega 8 á sunnu-
dagskvöldið kom maður hlaup-
andi heim að Stardal og fékk að
síma þaðan til Reykjavíkur eftir
hjálp. Ungt fólk í bíl sem var á
leið til Reykjavíkur austan frá
Þingvöllum hafði slasazt er bíll-
inn rakst á brúna við Leirvogs-
vatn (Svanastaði).
Sjúkrabílar voru sendir af stað,
svo og lögreglubilar.
Það var ung stúlka, sem tók
próf fyrir um það bil hálfum
mánuði, sem bílnum ók, Hanna
Gunnarsdóttir, Smáragötu 7. í
framsætinu hjá henni höfðu setið
tvær stöllur hennar. Allar meidd
ust stúlkurnar meira og minna.
Hanna rifbrotnaði er hún skall
á stýri bílsins við áreksturinn.
Norsk stúlka, Mary Hadnak.
Njörvasundi 40, sem sat við hurð
ina fékk heilahristing er hún skall
með höfuðið í hliðarrúðu, sem
brotnaði Á milli þeirra sat Kristín
Þorvaldsdóttir Rauðalæk 57.
Hún meiddist einnig á höfði. í
aftursæti bílsins sátu þrír ungir
piltar og meiddust tveir þeirra
á fótum, er framsæti bílsins skall
á þá, en það fór allt úr skorðum
við höggið.
Piltarnir skýrðu rannsóknar-
lögreglumönnum svo frá, að
Hanna hefði ekki ekið hratt er
slysið varð . Athugun á slysstað
sýndi að ekkert hættumerki er
í námunda við brúna, sem er
aðeins 3 m. á breidd, en bíllinn
sem er amerískur Ford R-3044
um 2 m. á breidd.
Talið er að bíllinn hafi runnið
út í lausamöl, skömmu áður en
hann kom að brúnni. Hafi Hanna
þá hemlað, en við það rann bíll-
inn til, og náði hún ekki að
sveigja hann inn á brúna. Bíllinn
stóð þversum á brúnni og lokaði
veginum alveg.
Fyrsti maður á slysstað var
Ingimar Ingimarsson sérleyfishafi
á Ljósafossleiðinni. Hann og
fleiri úr bíl hans hjlápuðu unga
fólkinu sem slasazt hafði. Ingi-
mar sagðist ekki hafa séð er
áreksturinn varð og ekki heldur
Þannig Ieit bíllinn út við brúna á Leirvogsá.
hafa séð neitt til ferða bílsins
áður.
Hvað segir rannsóknarlögreglan
Mbl. spurðj í gær tvo rann-
sóknarlögreglumenn, Kristmund
Sigurðsson og Óskar Ólason, um
álit þeirra á þessum slysum öll-
um.
Þeir kváðu rétt að benda á að
veðurlag undanfarið hafi verið
mjög gott, svo ekki sé því um
að kenna.
Varðandi slysin við Leirvogsár
brú og Hólmsá, þá væri um að
ræða ungt fólk, sem lítt væri
vant akstri. Pilturinn, sem ók
bílnum, er rakst á Hólmsárbrú
tók próf í júlímánuði, en unga
stúlkan tók próf fyrir nokkrum
vikum. Óhætt er að fullyrða, að
bæði eru þau óvön akstri úti á
malarbornum vegum, og bæði
óvön akstri í myrkri.
Hætt er við að óvanir geri sér
ekki grein fyrir því, hve lítt
maður finnur til hraða á hinum
nýrri bílum. Spurning er líka
hvort óvanir miði ekki akstur
sinn við hámarkshraða á vegum |
úti, en séu vegna lítillar reynzlu
í akstri ekki dómbærir á ytri
aðstæður, t. d. ástand veganna.
Hinir nýbökuðu bilstjórar hljóta
sinn lærdóm á malbikuðum göt-
um og góðum vegum í björtu.
í gær
Tveir litlir drengir lentu í slys-
um hér í Reykjavík í gærdag.
Ekki urðu meiðsl alvarleg á
þeim. Þeir urðu fyrir bíl,
annar vestur í bæ, en hinn inni
í Bústaðahverfi. Annar var tæp-
lega 3 ára en hinn fimm ára.
Á Hafnarfjarðarvegi í gær
HAFNARFIRÐI. — Rétt fyrir
klukkan tólf um hádegið í gær,
varð allharður bifreiðaárekstur á
Hafnarfjarðar-veginum, skammt
frá Hraunsholti. Ekki varð þó
slys á mönnum í þetta skiptið,
en bifreiðaslys hafa verið mjög
tíð upp á síðkastið, eins og fólk
hefir heyrt af fréttum.
Þessi árekstur varð með þeim
hætti, að fólksbifreiðin G-979,
— (Ljósm. Sv. Þormóðsson).
sem er ný Chevrolet, var á leið
til Reykjavíkur og ók stór olíu-
bíll á undan. Ætlaði fólksbíllinn
fram úr honum, en þá birtist
skyndilega vörubíll, sem kom á
móti. Og þá var það, sem óhappið
vildi til. Bílstjórinn á olíubíln-
um dró skyndilega úr ferðinni, og
hafði fólksbíllinn þá ekki ráð-
rúm til að forða sér aftur fyrir.
Hann skall á vörubílinn R-1576,
sem er fimm tonna, og var með
fullfermi af sandi. Við árekstur-
inn lenti vörubíllinn út af veg*
inum og þar á hvolf. Vegurinn
á þessum stað er lítið upphækkað
ur og sléttlendi báðum megin við
hann. Bílstjórinn, sem var einn
í bílnum, slapp að heita ma
ómeiddur, en eitthvað kvartaði
hann þó um eymsli í baki. —
Bíllinn skemmdist talsvert.
Chevrolet-bíllinn beyglaðist
mjög að framan, en bílstjórinn,
sem líka var einn í bílnum, slapp
ómeiddur. Eigandi hans, sem er
frá Brekku á Álftanesinu var
nýbúinn að kaupa bíl þennan.
— G.E.
• Fréttir 7,30 á kvöldin
Hlustandi skrifar: — Fyrir
nokkru kom fram sú hug-
mynd, að fréttatíma Ríkisút-
varpsins yrði breytt þannig,
fréttir yrðu lesnar kl. 7 á
kvöldin í stað kl. 8 eins og nú
er gert. Voru færð fram þau
rök, að þá byrjaði fyrr hið
raunverulega kvöldfrí manna
og fundir og aðrar kvöldsam-
komur gætu hafizt fyrr en
ella.
Þessi hugrnynd er athyglis-
verð og það er hverju orði
sannara, að kvöldfréttimar
kl. 8 tefja oft fyrir mönnum,
sem ætla til fundarhalda eða
mannfagnaðar eftir kvöld-
mat. Afleiðingin verður sú,
að kvöldsamkomum þessum
lýkur síðar en skyldi, menn
koma sér of seint í rúmið og
eru verr búnir undir vinnu
næsta dag en þeir þyrftu að
vera.
Það er þannig margt sem
mælir með því að fréttatíma
útvarpsins yrði breytt og
fréttir lesnar fyrr en nú. En
ég vildi leggja til að þær yrðu
lesnar kl. hálfátta í stað átta,
en ekki kl. sjö. Þá gæti lest-
ur tilkynninga hafizt kl. 7 og
fréttalestri yrði lokið kl. 8 svo
jafnvel þeir, sem eru á leið
í leikhús gætu heyrt frétta-
yfirlit áður en þeir fara að
heiman. Eftir þó nokkra um-
hugsun hef ég komizt að
þeirri niðurstöðu, að tíminn
kl. hálfátta yrði heppilegasti
tíminn fyrir alla aðila til þess
að hlusta á fréttir Ríkisút-
varpsins.
♦ Hvað segja
hlustendur?
Velvakandi kemur hér með
á framfæri þeirri uppástungu
„Hlustanda“, að fréttir út-
varpsins yrðu lesnar kl. hálf-
átta á kvöldin. Þar sem þetta
mál er nú til umræðu væri
gaman að heyra álit fleiri
manna, hvort þeir vilja taka
undir þessa uppástungu, eða
.☆j
FERDIN AIMD
☆
. -
im -1. » -r
7006
hvort menn vilja koma með
nýjar. Sú skoðun mun vera
nokkuð almenn, að það sé
fullseint að lesa kvöldfréttir
kl. átta. því þær tefji þá fyrir
mönnum, sem erindum þurfa
að sinna á kvöldin.
• Ferðir á flugvöllinn
Bréf frá Flugfélagi íslands:
Vegna skrifa Velvakanda
um ferðir og ' ferðaleysi á
Reykjavíkurflugvöll í Morg-
unblaðið 29. september sl.
óskar Flugfélag íslands eftir-
farandi tekið fram:
Um áramótin 1959 og 1950
vakti Flugfélag íslands máls
á því við Strætisvagna
Reykjavíkur, að strætisvagna
leið nr. 5 (Skerjafjörður)
kæmi við á afgreiðsiu félags-
ins á Reykjavíkurflugvelli og
auðveldaði fólki þannig ferð-
ir að og frá flugafgreiðsl-
unni.
Forstjóri Strætisvagna
Reykjavikur, Eiríkur Ás-
geirsson tók þessari máia-
leitan með velvilja og hinn
15. marz sl. hófu Skerjafjarð-
arvagnar viðkomu n.ia af-
greiðslu Flugfélags íslands á
Reykjavíkurflugvelli á leið
að Lækjartorgi kl. 8.15, 13.15,
13.45, 14.15, 16.45, 17.15 og
17.45.
Þótt ferðir með viðkomu á
afgreiðslu Flugfélags íslands
á Reykjavíkurflugvelli séu
ekki þéttari enn sem komið
er, er hér um mikla sam-
göngubót að ræða og Flug-
félag íslands er þakklátt for
stjóra Strætisvagna Reykja-
víkur fyrir skjóta og góða
fvrirgreiðslu í bessu máli.