Morgunblaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 10
10 M O Tt C rr N n r á nm Þriðjudaííur 4. okt. 1960 SÍÐASTA umferðin í tvímenn- ingskeppni I. flokks hjá Bridge- félagi Reykjavíkur var spiluð á fimmtudagskvöldið og urðu úr- tlit þessi: 1. ívar — Björn 574 2. Torfi — Bernharð 570 3. Eggert — Þórir 568 4. Ingólfur — Jón 564 5. Sigurður — Jón 537 6. Rósmundur — Stefán 516 7. Steinunn — Guðríður 514 8. Ólafur — Brandur 510 9. Kristján — Jónas 504 10. . Guðm. Kr. — Ólafur 500 11. Björgvin — Eiríkur 496 12. Rafn — Hilmar 490 13. Sigurður — Guðmundur 486 14. Birgir — Pétur 485 15. Ingvi — Njáll 484 16. Hreinn — Cyrus 472 17. Gunnar — Haukur 472 Þessir 17 tvímenningar öðlast þátttökuréttindi í tvímennings- keppni meistaraflokks, sem er næsta keppnin á vegum félagsins og hefst hún í Skátaheimilinu kl. 8 á þriðjudaginn. Fyrir frammistöðu sína í I. flokkskeppninni hljóta ívar og Björn 2,16 meistarastig og Torfi og Bernharð 1,08 meistarastig. — ★ — Stjórn Bridgefélags Reykjavík ur er þannig skipuð: Þorgeir Sig- urðsson form., Jón Björnsson varaform., Símon Símonarson gjaldkeri, Jakob Bjarnason fjár- málaritari og Guðm. Kr. Sigurðs- son ritari. EINMENNINGSKEPPNI Tafl og bridgeklúbbsins er nýlokið. 1. Tryggvi Þorfinnsson 1480 2. Guðlaugur Nielsen 1478 3. Böðvar Guðmundsson 1441 4. Kristján Guðmundsson 1425 5. Reimar Sigurðsson 1422 6. Gunnar Vagnsson 1414 7. Benóný Magnússon 1413 8. Björn Benediktsson 1410 9. Björn Kristjánsson 1380 10. Ingi Jónsson 1371 11. Viljálmur Aaðalsteinss. 1366 12. Gísli Hafliðason 1357 13. Aðalsteinn Snæbjörnsson 1356 14. Bjarnleifur Bjarnleifss. 1350 15. Ingi Eyvinds 1342 16. Guðmundur Daníelsson 1339 Æ Fylgisfap sósíalista frá stríðslokum í KRINGUM 1945 voru sósíalistar í mikilli sókn hvarvetna í Ev- lópu, en nú hin síðari árin hafa þeir tapað hinu fyrra fylgi sínu alis staðar nema á ítalíu. Noregur er nú eina landið í Evrópu, þar sem sósíalistaflokkur hefur meirihluta í löggjafarsamkundunni. Stjórn Erlanders í Sviþjóð hefur þurft að reiða sig á stuðning eða hlut- Ieysi kommúnista og í Danmörku hafa tveir borgaraflokkar verið með í samsteypustjórninni. Siðan brezki íhaldsflokkurinn vann sigurinn í kosningunum 1951 hefur fylgi verkamannaflokksins farið jafnt og þétt minnkandi. Tímabili hinna rauðu stjórna í Frakklandi lauk um kringum 1950. í Vestur-Þýzkalandi hefur uppbyggingunni verið stjórnað af Kristilegum demókrötum allt frá 1949 og svo er einnig í Ítalíu, ennfremur eru borgaraflokkarnir við völd í Hollandi og Belgíu. Atkvæðamagn hinna sósíalísku flokka hefur dregizt mjög saman og gildir það jafnt um jafnaðar- menn og kommúnista. Til þess að reyna að spyrna á móti brodd- unum hafa jafnaðarmannaflokk- arnir horfið mjög frá hinni sósíal ísku stefnuskrá sinni og yfirhöf- Hafið þér efni á að láta inn- bú yðar brenna, án þess að fá fullar bætur? Allar brunatryggingar eru nú alltof lágar. Hækkið þvi brunatrygginguna strax og látið bæklinginn, “Hvers virði er innbú mitt í dag“, auðvelda yður að ákyeða, hve há hún þarf að vera. Þér fáið hann ókeypis hjá okkur. MARGUR VEIT OG VARAST EKKI SAM VINNUTRYGGINGAR uð snúizt mjög til hægri. Nægir í þessu sambandi að minna á breytingarnar á stefnuskrá jafn- aðarmanna í V-Þýzkalandi og deilurnar, sem urðu innan verka mannaflokksins brezka eftir hinn mikla ósigur í síðustu kosning- um. Hér fer á eftir tafla, sem sýnir fylgistap sósíalísta í þing- kosningum viðkomandi landa. Bretl. 1945 1959 Verkamfl. 48,2% 43,8% Kommúnistar 0,4% 0,1% Verkamannaflokkurinn hafði árið 1945 398 sæti í neðri mál- stofunni, en nú aðeins 254. Flokk urinn hefur nú tapað fylgi í fjórum þingkosningum í röð, en það hefur aldrei fyrr gerzt í sögu Bretlands. Frakkl. Sósíalistar Kommúnistar 1945 23,7% 26,3% 1959 13,8% 20,7% Fyrstu árin eftir stríð voru ýmsar róttækar stjórnir við völd í Frakklandi, kqmmúnistar tóku þátt í ýmsum þeirra. Það ber að athuga, að þingsætum flokkanna hefur fækkað enn meira en þessi tala sýnir. V-Þýzkal. Jafnaðarm. Kommún. 1949 29,2% 3,3% 1957 31,7% ekkert Kommúnistaflokkurinn hefur nú verið bannaður. Flokkur Ad- enauers, Kristilegir demókratar, hefu'r nú hreinan meirihluta at- kvæða. Jafnaðarmenn hafa nú sagt skilið við hina sósíalísku stefnuskrá sína. ítalía Jafnaðarm. Þjóðfylkingin 1945 7,1% 30,7% 1958 4,6% Sós. K. 14,2% 22,6% Hinn íhaldssinnaði Kristilegi demókrataflokkur hefur haft stjórn á hendi öll eftirstríðsárin. Holl. Jmenn Kommún. Sæti alla (Þings.) 1946 29 10 100 1959 48 3 150 Hluti sósíalísku flokkanna 1 þingmannatölunni hefur minnk- að úr % hlutum í y3. I landinu er nú borgaraleg stjórn. Belgía Jmenn Kommún. Sæti allð (Þings.) 1946 69 23 202 1958 84 2 212 Danmörk Jafnaðarm. Kommún. 1947 40,0% 6,8% 1957 39,4% 3,4% Svíþjóð Jafnaðarm. Kommar 1944 46,9% 10,4% 1958 46,2% 3,4% Þess ber að gæta, að þessar töl- ur eru frá 1958. I kosningunum nú fyrir skömmu juku báðir þess ir flokkar fylgi sitt á nýjan leik. Finnl. Jafnarm. 1945 25,1% 1958 23,1% Kommúnistar 23,8% 23,2% (Þýtt úr norska blaðinu „Unge Höire“) Námskeið um utanríkismál SAMBAND ungra Sjálfstæðismanna efnir til námskeiðs um utan- ríkismál, sem haldið verður í Skíðaskálanum í Hveradölum laug- ardaginn 8. og sunnudaginn 9. september. Pétur Benediktsson bankastjóri verður aðalleiðbeinandinn á námskeiðinu og mun flytja þar yfirlitserindi um þróun alþjóðamála eftir siðustu heima- styrjöld. Einnig mun Gunnlaugur Pétursson borgarritari tala um islenzku utanrikisþjónustuna. Þá verður lögð áherzla á umræður milli þátttakenda. Stjórnarmenn SUS og framkvæmdastjóri F.U.S. Heimdallar, Jakob Möller, munu veita nánari upplýsingar um námskeiðið, en þátttaka er heimil Sjálfstæðismönnum á aldrinum 16—35 ára. — Þatttökutilkynningar þurfa að berast fyrir miðja næstu viku. Aðalfundur Neista í Barbastrandarsýsíu AÐALFUNDUR Neista, félags ungra Sjálfstæðismanna í Vest- ur-Barðastrandarsýslu, var hald inn á Patreksfirði sl. laugardag. Sveinn Þórðarson, Innri-Múla, sem var formaður félagsins síð- asta starfsár, setti fundinn og stjórnaði honum. Hann flutti og skýrslu um starfsémi félagsins, en helzta.verkefnið var þátttaka í undirbúningi þingkosninganna sl. haust. Þá stóð félagið að sam komum á Patreksfirði og að stjórnmálanámskeiði því, sem sagt er frá annars staðar á síð- unni. Reikningar félagsins voru lesnir upp og samþykktir, og stendur hagur þess með blóma. Er gengið var til stjórnarkjörs baðst Sveinn Þórðarson undan endurkosningu. Félagsstjórnin er nú þannig skipuð: Formaður:Hannes Friðriksson, Bíldudal. Aðrir í aðalstjórn: Bjarni Hákonarson, Haga, Gylfi Adólfsson, Patreksfirði, Ingveld ur Hjartardóttir, Patreksfirði, Örn Gislason, Bildudal. Vara. stjórn: Jóhannes Árnason og Sig fús Jóhannesson, Patreksfirði. Endurskoðendur: Helga Guðjóna dóttir og Hilmar Árnason, Pat- reksfirði. Að stjórnarkjöri loknu fóru fram umræður úm stjórnmála- horfurnar op flokksstarfið, m. a. blaðaútgáfu Sj álfstæðismanna á Vestfjörðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.