Morgunblaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 24
Nýr flugvöllur — Sjá bls. 3. — fllorijMiiWaMfo 226. tbl. — Þriðjudagur 4. október 1960 IÞRÓTTIR eru á bls. 22. Leki kom að Skúia M agnússyni Mal dró hann áleiðis til hafnar á Nýfundnalandi M B L. frétti í gær, að svo mikill leki hefði komið að togaranum Skúla Magnússyni þar sem hann var staddur á Nýfundnalandsmiðum, að vél ar hans hefðu stöðvazt. Tog- arinn Maí frá Hafnarfirði kom Skúla til hjálpar laust fyrir hádegið í gær og hélt með hann í eftirdragi áleiðis til hafnarborgarinnar St. Johns á Nýfundnalandi. Togari og bíll UMFERÐASLYSADEILD rann- sóknarlögreglunnar barst um helgina óvenjuleg lögreglu- skýrsla til frekari rannsóknar. Þar var um að rseða tjón á bíl, sem togari hafði valdið, er hon- um var lagt að Faxagarði á laug ardagskvöld. Er togaranum Geir var lagt að Faxagarði, rakst hann með þungu skriði á garðinn og brotn aði bryggjuviðui við árekstur- inn. Brakið úr bryggjunni lenti á bíl, sem stóð á garðinum og skemmdi hann nokkuð. Þetta mál verður rannsakað hjá rannsóknarlögreglunni. Eins mun að öllum líkindum koma til kasta sjódóms. Um hádegisbilið í gær voru skipin i 190 til 200 mílna fjar- lægð fra St. Johns, en nánari fregnir höfðu ekki borizt í gærkvöldi. Togarinn Skúli Magnússon er eign Bæjarútgerðar Reykiav,kur, en Maí er eitt hinna nýju 1000 lesta skipa togaraflotans. Pökkunarkostn- aður í athugun LÍTIÐ mun hafa verið selt af kartöflum í verzlunum í Reykjavík í gær, að því er blaðinu er tjáð. Lögfræðing- ur kaupmannasamtakanna, sagði í samtali í gærkvöldi, að ekki hefði enn verið úr því skorið hver pökkunar- kostnaður kartaflna væri hjá Grænmetisverzlun landbúnað arins. Þegar sá pökkunar- kostnaður lægi fyrir, myndi framleiðsluráð landbúnaðar- ins væntanlega fjalla um mál- ið. Fleygði sér ölóð ur fyrir horð Togaraunglingi bjargað frá drukknun U M kl. sjö í gærkvöldi bjarg- aði dráttarbáturinn Magni ungum pilti frá drukknun í Reykjavíkurhöfn. Hafði pilt- urinn, sem var ölóður, varp- að sér íyrir borð á togara úti við Gróttu. Stökk fyrir borð Togarinn Þormóður goði lagði af stað á veiðar laust fyrir kl. 7 Leit úr lofti hætt LEITINNI að norska selfangaran um var haldið áfram í gær. Fór norski katalínaflugbáturinn frá Hvet íann peninga gamla mannsins ? GAMALL maður leitaði í gæi morgun til rannsóknarlögregl unnar og sagði sínar farir ekki sléttar. Hann hafði farið að heim- an frá sér með bankabók og 2000 krónur í peningum, sem hann hugðist leggja inn í Út- vegsbarikann. Var hann kom inn að bankanum, er hann fór ofan í vasa sinn. Hann fór síðan inn í bankann og hugð- ist þar taka til bankabókar og peninga, en þá kom í ljós að peningarnir voru týndir! Fór gamli maðurinn þá út í þeirri von að hann myndi finna þá á gangstéttinni. Er þangað kom fann hann þá hvergi. Þá gaf sig fram við hann maður og spurði hvort hann hefði týnt einhvev.iu. Fékk hann að vita um rivnar týndu 2000 krónur. Hann sagði gamla manninum frá því, og staðfesti það síðan hjá rannsóknarlögreglunni, að hann hefði séð mann taka cvo 1000 króna seðla upp af gang stéttinni skömmu áður. Þetta gerðist um klukkan 10,30. Það eru vinsamleg tilmæli rannsójtnarlögreglunnar til manns þess, er fann pening- ana, að hann gefi sig fram hið fyrsta. Keflavíkurflugvelli og flaug með strandlengj unni frá Kulusuk til Scoresbysunds. Hefur þessi leið ekki verið flogin áður, en fyrr hafði verið leitað frá Hvarfi til Kulusuk. Varð flugvélin einskis vör og mun hætta leitinni og halda heimleiðis í dag. í gær leituðu hvorki danska né ameriska leit- arflugvélin, sem fyrr hafa tekið þátt í leitinni. Eftirlitsskipið Garm var statt á 63. breiddargráðu í gær á leið norður eftir og var búizt við að það yrði um hálfan annan sólar- hring á leitarsvæðinu. Á laugar- daginn kom Garm að rekaldinu, sem ameríska flugvélin fann á dögunum og reyndist það vera timburfleki. í gærkvöldi. Er togarinn var kom inn út undir 6-bauju, út af Gróttu, stökk einn skipverja, sem var öldrukkinn 16—18 ára ungl- ingur, fyrir borð. Magni á ferð Rétt í sama mund var dráttar- báturinn Magni að fara þarna um á leið til hafnar sunnan úr Skerja firði. Heyrðu Magnamenn, að tog arinn þeytti eimpípu sína og sáu að hann breytti skyndilega um stefnu. Þóttust þeir þegar vita, að ekki væri allt sem skyldi um borð og stefndu til togarans. Sáu hann í sjónum Á leið þangað sáu þeir hvar maður svamlaði í sjónum. Sigldi Magni að manninum og hentu skipverjar til hans bjarghring, sem hann greip þegar. Var piltur inn nú færður um borð í Magna, en dráttarbáturinn lagðist upp að togaranum. Bað flytja hann til Rvíkur Skipstjórinn á Þormóði goða, Marteinn Jónasson, kom um borð í Magna og leit á piltinn, sem var ómeiddur, en dasaður eftir volkið. Kvaðst hann ekki mundu taka hann á skip sitt aftur, og bað hafnsögumennina að flytja hann til Reykjavíkur. Skipstjórinn á Magna, Hörður Þórfhallsson lét nú hlú að piltin- um og sigldi með hann til hafnar. Á hafnarbakkanum tók lögreglan við honum. Séra Sigurður M. Pétursson bráðkvaddur SÉRA Sigurður M. Pétursson prestur á Breiðabólstað á Skóg- arströnd, varð bráðkvaddur hér í bænum síðdegis í gærdag. Það var laust fyrir kl. 3. að sjúkraliðið var beðið að koma í biðstofu tannlækningastofu í Aðalstræti 16. Hafði sr. Sig- urður fallið í ómeginn í bið- stofunni. Var maðurinn flutt- ur meðvitundarlaus í slysavarð- stofuná. Er þangað kom, var hann örendur. Séra Sigurður M. Pétursson stóð á fertugu, fæddur 20. okt. norður á Vatnsnesi. Hann varð stúdent 1941, tók embættispróf í guðfræði 1946 og var vígður til Breiðabólsstaðar þetta sama ár. Hann lætur eftir sig konu og eict bam. Fischer á 4ra manna móti ÁKVEÐIÐ hefir nú ver- » ið að Bobby Fischer J keppi hér á fjögurra manna skákmóti, sem hefst n. k. fimmtudag. — Auk hans taka þátt í mótinu Friðrik Ólafsson, Ingi R. Jóhannsson og Freysteinn Þorbergsson. Tefld verður tvöföld um- ferð. — Síldiu þokast nær landi SÍLDARGANGAN, sem skýrt var frá í sunnudagsblaðinu, hef- ur þokazt nær landinu, sam- kvæmt upplýsingum, sem Illugi Guðmundsson, form.aður fiskileit amefndar gaf í gærkvöldi. Sagði hann, að gangan væri nú á all- stóru svæði, 30 til 40 sjómílur vestur af Snæfellsnesi og færðist suður á bóginn og nær. Kvað hann það von manna, að veiði- horfur bötnuðu með hverjum straumi. Víðir II hefur verið á þessum slóðum og fengið diálítinn afia, en ekki var kunnugt um fleiri báta þarna í gærkvöldi. Mikill atkvœða- munur í HÍP Kjör fulltrua á jbing ASÍ KJÖRI fulltrúa Hins íslenzka prentarafélags a þing Alþýðu- sambands fslands lauk í gær- kvöldi. Voru lýðræðissinnar kosnir þar með meiri atkvæða- mun en verið hefur á undan- förnum árum. Hlutu þeir 166— 176 atkv., en kommúnistar hlutu 71—78 atkv. Fulltrúar HÍP voru kjörnir Magnús Ástmarsson, Sig urður Eyjólfsson og Kjartan Ólafsson. UM sl. helgi fór fram fulltrúa- kjör til Alþýðusamandsþings í mörgum verkalýðsfélögum. í Félagi ísl. hljómlistarmanna var kjörinn: Hafliði Jónsson, til vara Þorvaldur Steingrímsson — Hlaut listi lýðræðissinna í fé- laginu 39 atkv., en listi komm- únista 21. Félag garðyrkjumanna kaus á sunnudag. Fulltrúi var kjörinn Thedór Halldórsson, til vara Fróði Brinks. í Bifreiðastjórafélaginu Neisti Frh. á bls. 23 Karlakór Reykjavíkjr fagnað í New Yo: : Íslendingaíélagið hélt samsæti á laugardagskvöldið NEW YORK, 2. október. — íslendingafélagið hér í New York •" > «rn- aði á laugardagskvöldið Karlakór Reykjavíkur með samsæti að Hótel Edison. En karlakórinn kom hingað með Loftleiðaflugvél á laugardaginn. Mbl. hitti söngstjórann, Sigurð Þórðarson tónskáld, og fararstjóra kórsins, Gísla Guðmundsson, stuttlega að máli um kvöldið og létu þeir vel yfir ferðinni vestur. En auðsætt var að söngmennirnir voru þreyttir eftir ferðalagið. En þeim er ekki til setunnar boðið. Á morgun, mánudag, halda þeir fyrsta opinhera samsöng sinn í Philadelfíu. Samtals heldur kórinn 40 söngskeinmt- anir á 49 dögum í Bandaríkjunum og Kanada. Formaður íslendingafélagsins í New York, frú Guðrún Milner, setti hóf íslendingafélagsins og bauð gesti velkomna. Meðal við- staddra voru Thor Thors, am- bassador íslands og kona hans, Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra og kona hans, Hannes Kjartansson, aðalræðismaður og kona hans, og sendinefnd íslands á þingi Sameinuðu þjóðanna. Thor Thors og Gylfi Þ. Gísla- son fluttu ræður og árnuðu m. a. Karlakór Reykjavíkur allra heilla í söngför hans. Gísli Guð- mundsson, fararstjóri kórsins, þakkaði bæði íslendingafélaginu Þrír sæk ja um Núp FYRSTA október sl. var útrunn- inn umsóknarfrestur um Núps- prestakall í Yestur-ísafjarðar- prófastsdæmi. Þrír prestar sækja um kallið og eru það þessir: Séra Kári Valsson, prestur á Hrafnseyri, séra Sigurjón Einars- son, prestur á Brjánslæk og séra Stefán Lárusson, prestur á Vatns- enda. og ræðumönnum móttök> og heillaóskir. Karlakór Reykjavíkur sön" :ð an nokkur lög við mikla h,un- ingu áheyrenda. Fyrir 14 árum fór karlakórinn söngför um Bandaríkin og hlaut þá ágæta dóma. — S. Bj. lendir í sjálfheldu og fers* VALDASTÖDUM í Kjós, 3. okt.: — Síðastliðinn laug- ardag urðu gangnamenn var ir við fé í sjálfheldu á l klettasyllu fremst inni i Brynjudal. Fundu þeir þar þrjá sauði dauða. Þá var þar ein ær og tvö lömb. Styggð komst að ánni svo hún hrökk fram af bjarginu. Ekki er fullkannað enn nema fleiri kindur hafi týnt lífinu þarna. — St.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.