Morgunblaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 4. olct. 1960 MORCTJNBLAÐIÐ 23 Þing Sjómannasambands íslands: Treystir stjórnarvöldunum í viðræöunum við Breta ANNAÐ þing Sjómannasambands íslands var haldið í Reykjavík dagana 1. og 2. október sl. Sátu það 28 fulltrúar frá 7 félögum og félagsdeildum, sem í sambandinu eru, en meðlimir þeirra eru nú alls 2361 að tölu. Á þinginu voru rædd ýmis mál og þá helzt kjaramál, öryggismál og landhelgismál. Stjórn endurkjörin Margar ályktanir voru gerðar á þinginu um þau mál, sem þar voru til umræðu, og verður efm þeirra rakið hér á eftir. Stjórn sambandsins var öll ein róma endurkjörin, en í henni eiga sæti eftirtaldir menn: Formaður, Jón Sigurðsson, Reykjavík; vara- formaður, Sigríkur Sigríksson, Akranesi; ritari, Ólafur Björns- son, Keflavík; gjaldkeri, Magnús Guðmundsson, Garðahreppi og meðstjórnandi Ragnar Magnús- son, Grindavík. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Óli Barðdal og Jón Júníusson. Xil gagns og heiðurs Ályktun þings sjómannasam- bandsins um landhelgismálið hljóðar á þessa leið: „2. þing Sjómannasambands Íslands haldiff 1. og 2. október 1960, bendir á, aff þegar land- helgi íslands og fiskveiffilög- saga var færff í 12 mílur voru samtök sjómanna því fylgjandi og samþykk. Þingiff þakkar þeim þjóffum, sem viðurkennt hafa landhelgi okkar í verki þótt sumar þeirra hafi mótmælt rétti okk- ar til einhliða ákvörffunar um útfærslu, en fordæmir jafn- framt ofbeldisfullar affgerðir Breta er þeir lengstum hafa haft I frammi, síffan útfærslan var gerff. Þingiff vill treysta því aff í jþeim viðræðum sem nú eru hafnar um landhelgismálin, haldí stjórnarvöld landsins, ríkisstjórn og Alþingi þannig á málum, aff til gagns og heiðurs verffi fyrir land og þjóff og ræffi málin á grundvelli fyrri tillagna og samþykkta“. Hlutaskiptin úrelt 1 ályktunum þingsins um kjara- mál var m. a. lögð áherzla á, „ að sjómenn fái kjör sín miðuð við sama fiskverð og útgerðar- menn fá. „Þar er núverandi hluta skipti á vélbátaflotanum séu orð in með öllu úrelt, taldi þingið að sem fyrst yrði að finna nýjan grundvöll fyrir kjarasamninga, t. d. stighækkandi hundraðshluta og kaup. Sjálfssagt taldi þingið, að Sjómannasamband íslands gerði heildarsamninga fyrir alia meðlimi sína. Þingið taldi einnig, að hið bráð asta yrði að „fara fram heildar- athugun á þeim mikla mun, sem er á fiskverði hér og hjá nágrenna þjóðum okkar“. Þá var lýst „fyllsta stuðningi við allar vitur legar ráðstafanir til aukinnar vöruvöndunar“ en bent á, að aukin fyrirhöfn krefðist að sjálf- sögðu hærra verðs. Sjómenn fái kaup sitt „Athuga þarf gaumgæfilega", segir í einni af ályktunum þings- ins, „á hvern hátt bezt er hægt að tryggja að sjómenn fái laun sín greidd á réttum gjalddaga". Taldi þingið nauðsynlegt, að hlutatryggingasjóður verði efldur svo um munar, svo hann geti verið fær um, ef skip hefur ekki aflað fyrir kostnaði, að greiða það mikið bð hægt sé að gera upp við mannskap að fullu“. Öryggiff sé tryggt Öryggismálin voru ýtarlega tek in fyrir í ályktunum þingsins og þar m. a. lögð áherzla á, að áhöfn um skipa og báta sé kennd með- ferð og notkun gúmbjörgunar- báta, bátaæfingar séu látnar fara fram reglulega, lífbelti eða litlir gúmbátar séu hafðir um borð í öllum opnum bátum og sérstakir eftirlitsmenn ráðnir, til þess að fylgjast með því að lög og reglu- gerðir er öryggismál snerta séu í hvívetna haldin. Þá verði fylgzt vel með öllum nýjungum. Sjó- menn voru eindregið hvattir til að vera ætíð á verði í þessum efnum. Lífeyrissjóffur fyrir alla sjómenn Skorað var á ríkisstjórnina „að láta flytja á næsta Alþingi, frum varp það til laga um lífeyrissjóð sjómanna, er minnihluti lífeyris- sjóðsnefndar skilaði að loknu starfi nefndarinnar“. Var á það bent, að „yfirgnæfandi meiri- hluta farmanna óskaði þess, að starfandi verði einn sameigin- legur lögbundinn lífeyrissjóður fyrir alla sjómenn". Einnig var gerð sérstök álykt- un, þar sem lýst var yfir þeirri skoðun þingsins, „að sjóvinnu- námskeiðin, sem haldin hafa ver- ið, séu nauðsynleg og hafi orðið til mikils gagns, til að auka áhuga æskumanna til þess að stunda atvinnu á sjónum". Fól þingið „stjórn sambandsins að beita sér fyrir því, að slíkum námskeiðum verði komið á sem víðast og kennsla verði sem fjöl- breyttust". Allir íslenzkir sjómenn affilar Þess má loks geta, að mikiil hugur var í þingfulltrúum að efla sambandið svo sem frekast er kostur, og var stjórninni falið „að vinna ötullega að því, að fá félög til þess að ganga í sam- bandið“ með það fyrir augum að „sameina innan vébanda sjó- mannasambandsins alla þá ís- lenzka sjómenn, sem í því geta verið skv. lögum þess og regl Stórþingið sett ÓSLÓ, 3. október. (Reuter). — Norska Stórþingið kom í dag sam an í 105. sinn. Ólafur konungur setti þingið og lýsti því yfir í setningarræðu að Norðmenn mundiu styðja sérhverja raun- hæfa áætlun um alþjóða af- vopnun. Hann sagði hins vegar að ástandið í heiminum væri — Kjör fulltrúa Frh. af bls. 24 í Hafnarfirði var kjörinn: Jón Gestsson. Verkalýðsfélag Hafnahrepps kaus Svein Jónsson og í Verka- lýðsfélagi Vatnsleysustrandar- hrepps var kjörin: Margrét Þór- arinsdóttir. í Sj ómannafélaginu á ísafirði voru kjörnir: Sigurður Krist- jánsson og Gísli Jónsson. í Verkalýðs- og sjómannafé- lagi Miðneshrepps voru kjörnir: Kristinn Lárusson, Elías Ó. Guð mundsson og Bjarni Sigurðsson. I A.S.B. fór fram allsherjar- atkvæðagreiðsla. Listi kommún- ista hlaut 98 atkv., en lýðræð issinnar 73. Kommúnistar hafa farið með stjórn í því félagi árum saman. Fulltrúi Brynju á Þingeyri á ASÍþing var kjörinn Steinþór Benjamínsson. Fulltrúi Verkamannafélagsins Grettis í Austur-Barðastrandar- sýslu var kjörinn Halldór Páls- son. þannig að nauðsynlegt væri fyr- ir Noreg að grundvalla öryggi sitt á Atlantshafsbandalaginu og mundu Norðmenn halda áfram að vinna að því að styrkja sam- tökin. Konungurinn sagði, að haldið yrði áfram að breyta her- styrk landsins í samræmi við kröfur nútímans og bráðlega yrði lagt fram frumvarp um uppbygg ingu norska flotans. í ávarpi sínu sagði Ólafur konungur að fisk- veiðilögsaga Noregs yrði færð út í 12 sjómílur á næsta ári. — Uppþot Framh af bls 1 rithöfunda og leikara hefur und irritað varðandi Alsír. En þar er haldið fram rétti Frakka til að neita að gegna herþjónustu í Alsír. í VERKFALLI Leikarar við útvarps- og sjón- varpsstöðvar ríkisins hafa gert verkfall til að mótmæla því að þeim leikurum, sem undirrituðu skjalið skuli vera meinað að koma fram í sjónvarpi og út- varapi. Um 80 leikarar taka þátt í verkfallinu. Eitt slagorðanna á útifundin- um við Sigurbogann var: „Skjót ið Jean-Paul Sartre“, en Sartre var einn þeirra er undirrituðu skjalið um herþjónustu í Alsír. Schannong’s minnisvarffar 0ster Farimagsgade 42, Kþbenhavn 0. fullkomitm áiaHúui r Það mó œtíð treusta Royal Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á 70 ára af- mælisdegi mínum 30. sept. sl. Pétur Sveinsson, Barmi Vogum Vatnsleysuströnd Mínar beztu þakkir til allra þeirra nær og fjær, er minntust mín með hlýjum handtökum, veglegum gjöfum og skeytum á sextxu ára afmæli mínu 28. sept. sl. Lýður Skúlason, Keldum Lokað vegna jarðarfarar frá kl. 12—4. Lokað ■ dag frá kl. 2 vegna jarðarfarar Almennar tryggingar hf. Pósthússtræti 9 — Reykjavík Lokað í dag vegna jarðarfarar frá kl. 14 til 17. VERZLUNIN EDINBORG HEILDVERZL. ÁSGEIR SIGURÐSSON h.f. Konan mín VALGERBUR JÓNSDÓTTIR NORÐDAHL lézt að heimili okkar 30. september sl. Haraldur S. Norðdahl. ÁSDfS G. RAFNAR lézt á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 30. september. Vandamenn Móðir okkar KRISTfN BJARNADÖTTIR frá Björgum á Skagaströnd lézt á Sólvangi Hafnarfirði 30. sept. — Jarðarförin aug- lýst síðar. Börnin Faðir minn BJÖRN JÓNASSON frá Hámundarstöðum í Vopnafirði lézt 1. þ.m. á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. — Jarðarförin auglýst síðar. Þorbjörg Björnsdóttir Jarðarför konu minnar GLÐRÚNAR ÁRNADÓTTUR fer fram frá Dómkxrkjunni miðvikudaginn 5. okt. kl. 2 Árni Einarsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför MARGRÉTAR PALSDÓTTUR Jóhannes Halldórsson, börn Svanhildur Jörundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.