Morgunblaðið - 04.10.1960, Síða 22
22
MORCVISBLAÐIÐ
Þriðjudagur 4. okt. 1960
Keppnisreynsla
fœrði KR sigur
Vann Hafnfirðinga 3:0
HAFNFIRÐINGARNIR hafa lit-
ið sézt hér í sumar og þó þeir
hafi borið sigur úr býtum í 2.
deildarkeppninni, voru fáir, sem
bjuggust við að þeir gætu orðið
skeinuhættir keppinautar KR-
inga. En þegar leikurinn hófst
kom í ljós að KR átti fullt í fangi
tneð að sigra, og má segja með
sanni að keppnisreynslan ein hafi
bjargað þeim að þessu sinni.
Hafnfirðingarnir voru mun
virkari í fyrri hálfleiknum og
fyrsta stundarfjórðunginn af
þeim síðari, en þá náði KR tök-
um á leiknum, svo að sjá mátti
hvað liðið hefir upp á að bjóða,
þegar þeir ná sínu bezta. — KR
skoraði þrjú mörk i leiknum en
Hafnfirðingunum tókst ekki að
skora. KR vann fyrri hálfleik-
inn 1:0, en síðari hálfleikinn 2:0,
svo heildarmarkatalan varð 3:0.
Fyrri hálfleikurinn
Hafnfirðingar áttu frumkvæð-
ið í leiknum í fyrri hálfleik. Þeir
voru mun fljótari á knöttinn og
léku einnig betur saman. Allur
leikur liðsins bar þess merki,
að mikils má af þeim vænta á
næstu arum, þýí leikmenn eru
flestir mjög ungir og 6 leikmepn,
sem algerlega éru byrjendur í
knattspýrnu, en.hver öðrum efni
legri. :
Áðeins voru 4 mín. liðnar af
leiknum er góð sending frá Ragn-
ari Jónssyni gaf Henning gott
tækifæri, en hann varð of seinn
og Heimir tók knöttinn. Á 10.
mín, kömst Ellert í sæmilega að-
stöðu til að skora, en varnar-
leikmaður gætti hans vel, og
skotið, sem markmaðurinn fær á
sig, verður laust og vel viðráð-
anlégt.: Mínútu siðar einleikur
Þórólfur og gefur síðan til Ell-
erts, sejn sendir fast skot í aðra
hliðarstöngina. Knötturinn hrekk
ur út aftur og fer milli nokk-
urra nianna, en síðan sendir
Elfert hann hátt yfir.
Hafnfirðingarnir sækja nú og
tveimur mínútúm síðar bjargar
Bjarni Felixson á línu og stuttu
siðar Ver Heimir fast skot. KR-
ingar gera upphlaup úr útspyrn-
unhi og Sveinn Jónsson fær gott
tækifæri, er mistök eiga sér stað
í ivörh Hafnfirðinganna, sem
Sveinrt notar vel og skorar.
Eftir markið sækja Hafnfirð-
ingárrrir enn í sig veðrið og á
17j mín. bjargar Heimir naum-
lega skoti frá Gunnari Valdimars
syni. KR-ingar gera nú upphlaup
og Þórölfur skallar yfir og stuttu
síðar séndir Sveinn Jónsson skot
að 'markinu, sem lendir í hliðar-
stönginni. Næstu mín. eru það
Háfnfirðingarnir, sem sækja og^
24. mín. eru af leik, er Heimir
er sérlega heppinn og mínútu
síðar bjargar Hreiðar skoti frá
Ragnari og sendir knöttinn fram
völlinn. KR sækir og dæmd er
vítaspyrna á Hafnfirðinga. Þór-
ólfur tekur spyrnuna en sendir
beint á markmanninn. Liðin
sækja og verjast á víxl næstu
mínútur og á síðustu mínútu hálf
leiksins einleikur Ragnar Jóns-
son upp miðjuna og má teija
slembilukku fyrir KR að hann
skoraði ekki mark.
Síðari hálfleikurinn.
Fjórir mín. eru af síðari hálf-
leik, er Bergþór sendir framhjá
KR markinu. Hafnfirðingarnir
eru fyrstu mínúturnar í látlausri
sókn og meginhluti KR-inganna
í vörn. Er 20. mín. eru af hálf-
leiknum er dæmd aukaspyrna á
Hafnarfjörð og sent er til Gunn-
ars Guðmannssonar, sem miðj-
ar þegar og Ellert grípur vel
inn í og skorar með góðu skoti.
Upp úr þessu fer KR að ná
frumkvæðinu í lei-knum, en Hafn
firðingarnir verjast vel og sýna
engan bilbug. Á 35. mín. leikur
Þórólfur á hvern varnarleik-
mann Hafnfirðinganna af öðrum
og sendir síðan til Gunnars Guð-
mannssonar, sem er frír fyrir
opnu marki og sendir knöttinn
í autt markið.
Síðustu mínúturnar eiga Hafn-
firðingarnir aftur góðan leik-
kafla og KR markið er nokkrum
sinnum í hættu, en þeim tókst
ekki að skora og endaði leikur
inn 3:0 fyrir KR. —
Bezti leikmaður Hafnfirðing'
anna var Einar Sigurðsson. —
Sigurjón Gíslason átti og góðan
leik og Ragnar Jónsson er drif-
fjöður framlínunnar.
Af KR-ingum var Hörður
Felixson beztur og einnig átti
Ellert drjúgan leik.
1 heild var liðið mun slapp-
ara en það hefir verið í sumar,
og eins og allur vilji sé kom-
inn úr því. Á. Á.
Fram jafnar óverjandi
From og Valur skildu jöfn
eftir 120 mínútna leik
Mark skorað ur hornspyrnu
í SÓLSKINI og fegursta
haustveðri mættust Valur og
Fram í bikarkeppninni á
sunnudaginn. En langt var frá
því að ’eikur Iiðanna væri
jafn fagur veðráttunni. Fátt
eitt fallegt gat að líta og það
var lengstum svo sem hvorugt
liðanna hefði vilja eða löngun
til að vinna leikinn.
Baráttan varð og löng. Eftir
venjulegan leiktíma stóð 2:2.
Eftir framlengingu 2x15 mín.
stóð enn jafnt 3:3 og verður
að „endurtaka“ leikinn. Mun
það verða gert á laugardaginn
Það tók Skagamenn
55 mín. að skora mark
en mörkin urðu 6 að lokum
Á SUNNUDAGINN mættust Ak- ari hálfleiknum. Þá hristu lands-
urnesingar og KefLvíkingar í bik
arkeppninni. Þeir, sem ekki
þekktu gamla frægð hinna gul-
klæddu Akurnesinga og hin bitru
örlög hinna svartklæddu Keflvík
inga sem nýfallnir eru í 2. deild,
hefðu átt erfitt með að segja til
um hvort liðið á vellinum var
Islandsmeistari. Og reyndar
hefðu sennilega flestir átt bágt
með að trúa, að annað þessara
liða væru meistarar landsins. Svo
bágur var leikurinn, svo tilþrifa-
laus, einkum þó í fyrri hálfleik.
Af Sex mörk í síðari hálfleik
Það birti aðeins upp af svart-
nætti getuleysis og deyfðar í síð-
liðsmenn Skagamanna þeir Þórð-
ur Jónsson og Ingvar Elísson af
sér slenið, átbu nokkrar lagleg-
ar sikiptingar fyrst, en léku síðar
saman á miðjunni, og þetta skap
aði Akranesi 6 mörk sem þeir
skoruðu, (Ingvar 4 og Þórður 2).
Þar með tryggðu þeir áframhald-
andi göngu liðs síns til bikarsins.
En þeirra titþrif voru það eina
sem jákvætt sást í þessum leik.
—★—
Það gáfust 4 tækifæri til marka
í fyrri hálfleik. Þrívegis komst
Ingvar í færi, átti skot í þver-
slá, skot framhjá og hið þriðja er
varið fallega. Hið fjórða tæki-
færi átti Þórhallur útherji Kefl-
og sennilega tefur það bikar-
keppnina um eina viku
A: Valur skorar
Fram átti tvö fyrstu tsekifær-
in en þau fóru eins og flest þau
önnur er Fram skapaði — oft
með alllaglegum leik — út í
sandinn er að markinu dró.
Og það voru Valsmenn sem
fysrt skoruðu. Þá voru 6 mínút-
ur af leik. Björgvin Daníelsson
lék upp vinstri kant, gaf yfir til
hægri og þaðan gaf Steingrímur
h. úth. fyrir markið og Bergur
Guðnason fékk skorað Fram-
vörnin veitti ekkert viðnám í
þessari sóknarlotu.
SÞrir Hafnfirðingar liggja á vellinum eftir að Þórólfur hafðí leikið á þá og sent til Gunnars,
Sc... „noraði. (Ljósm.: Sv. Þorm.)
víkinga. Stóð einn fyrir opnu
marki, en varð svo mikið um að
skotið kom aldrei.
—★—
Á 10. mín síðari hálfleiks kom
fyrsta markið. Klaufalegt og mis
heppnað útspark frá Keflavíkur-
markinu orsakaði að Ingvari
tókst að leika sig í gott færi og
það notaði hann sér, skoraði af
stuttu færi.
Sjö mínútum síðar bætti Þórð-
ur Jónsson öðru marki við. Skaut
hann af vítateig og var hinn ungi
og óreyndi markvörður Keflví'k-
inga of seinn að kasta sér —
missti knöttinn undir sig.
Á. 30. mín. leikur Þórður upp
hægri væng gefur fallega í eyðu
til Ingvars sem skorar auðveld-
lega.
Mínútu síðar eru Skagamenn
enn í sóikn og Þórður Jónsson
skorar af um 12 m færi eftir lag-
legt upphlaup á vinstri væng.
Á tveim síðustu mínútunum
skora Skagamenn tvö mörk til
viðbótar. Áttu Jóhannes útherji
og Ingvar það fyrra. Jóihannes
lók upp hægri kant, miðjaði vel
og Ingvar skoraði viðstöðulaust.
Á síðustu mínútunni þjarma Ak-
urnesingar að Keflvíkingum og
Ingvar fær skorað af stuttu færi.
—★—
í held daufur leikur, en mörk-
in sex gáfu honum svolitinn svip.
Deyfð og drungi var yfir leik'
Keflvíkinga og máttleysi mikið
meðal framherjanna.
_ A.St.
r -
Arsþing
H. S. í.
ÁRSÞING Handknattleikssam-
bands íslands verður haldið nk.
laugardag 8. október kl. 2 i skrif
stofu í. S. í., Grundarstíg 2A.
Þannig lauk hálfleik 1—0. Áttu
þó Framarar tvo stangarskot og
gerðu oft harða hríð að Vals-
markinu, þótt ekki tækist að
skora.
★ Fram tekur forystuna.
Er 5 mín. voru af síðari hálf-
leik jafnar Fram. Guðmundur
Óskarsson kemst einn upp gegn-
um vörn Vals og skoraði af
stuttu færi örugglega.
Á 32. mín. skorar Guðmundur
aftur, nú af þröngu færi frá
hægri, framhjá Gunnlaugi mark-
verki er hljóp móti honum. Lag-
lega gert.
★ Mark úr hornspyrnu
Leit nú út fyrir sigur Fram og
mátti hann heita réttlátur eftrr
gangi leiksins.
En rétt áður en flautað var
af, fá Valsmenn hornspyrnu á
Fram. Matthías Hjartarson
tekur hana og öllum til furðu
hafnar knötturinn í neti Fram
án þess að nokkur snerti knött
inn. Verður að skrifa þetta
mark á Geir markvörð Fram,
sem átti auðveldlega að geta
slegið frá. Mörk úr hornspyrnu
án annara hjálpar eru næsta
fátíð — en Valur jafnaði og
framlengja þurfti.
★ Hætta við Frammarkið
Nú breyttist gangur leiksins.
Valsmenn sóttu fast og munaði
oft mjóu við Frammarkið, enda
var eins og allur máttur værj úr
Fram við hornspyrnumarkið. 1
einu upphlaupanna var Fram-
vörnin algerlega sundurleikin og
Rúnar hljóp í markið og varði
skot með höndum. Úr vítaspyrnu
skoraði Matthías Hjartarson auð-
veldlega.
★ Fallega skorað
Sigur Vals blasti við. Það eru
mörkin sem telja en ekki sam-
leikur og knattmeðferð. í því var
Fram betra.
En er 3 mín. voru eftir af fram-
lengingunni fær Fram auka-
spyrnu á Val á vítateigi. Guðjón
Jónsson framkvæmir spyrnuna,
sendir fallegt og hnitmiðað boga-
skot sem hafnar í bláhorni Vals-
marksins. Valsmenn' sem mynd-
uðu þéttan varnarvegg framan
við Guðjón horfðu slegnir á.
Fallega gert — og jafnteflið
tryggt. Aukaleikur verður fram
að fara.
★
Enginn leikmanna átti góðan
leik frá upphafi til loka, flestir
áttu einhverja spretti en á milli
siík mistök, að því góða ber vart
að halda á lofti. Af þeim sem
bezt sýndu má nefna Guðjón,
Rúnar og Ragnar í Fram og Matt.
hías í Val. Viljaleysið og lítil
löngun til sigurs settu svip sinrv
á leikinn og gerðu hann daufari
en nokkur ástæða var til. Öll skii
yrði voru góð en bað nægði ekki
í þetta sinn. — A. St.