Morgunblaðið - 12.10.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.10.1960, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ .Miðvikudaeur 12. okt. 1960 Stefnt aö úrbótum í fangelsismálum Frv. um ríkisfangelsi, vinnuhæli og héraðs- fangelsi flutt á Alþingi 1 GÆR var útbýtt á Alþingi frumvarpi frá ríkisstjórninni um ríkisfangelsi og vinnu- hæli. Segir þar, að ríkið skuli eiga og reka ríkisfangelsi í Reykjavík eða nágrenni, er rúmi 100 fanga, vinnuhælið á Litla-Hrauni skuli stækkað þannig að það taki 60 fanga, — Utan 12 Framh af bls 1 fyrir endann á úrslitum við- ræðna þeirra, sem staðið hefðu undanfarið og ættu eftir að fara fram. — „Við von- umst eftir, að samkomulag geti náðst innan nokkurra vikna, »g við munum biðja allar grein ar fiskiðnaðarins að hafa sam- vinnu í málinu-', sagði Oliver. ★ Hann kvaðst hafa verið á fundi í landbúnaðar- og sjáv- arútvegsmáiaráðuneytinu í gær, þar sem fulltrúar fiskiðu aðarins hefðu hitt að máli Christopher Soames, fiskimála ráðherra og utanrlkisráðherr- ann, Home lávarð. Þar voru einnig viðstaddir fulltrúar úr nefndinni, sem tók þátt í við- ræðunum í Reykjavík. — Oli- ver sagði, að utanríkisráðherr 1 ann hefði fullvissað sig um, að islenzkir togarar mundu ekki landa afla í Englandi á meðan ríkisstjórnir beggja landanna hefðu samband sín á milli um málið. ★ FUNDUR 1 GÆR- i KVÖLDI Talsmaður togaraeigendafé- iagsins sagði, að fulltrúar „út { hafsdeildar“ félagsins (þeirra, er láta skip sin stunda veiðar á fjarlægnm miðum) hefðu komið saman í Lundúnum í morgun til þess að ræða nýj- ustu fréttir af viðræðum Breta og Islendinga um fisk- veiðideiluna. „Fulltrúar félagsins munu eiga fund með fiskimálaráð- herra í kvöld til þess að leggja fyrir hann álit togara- eigenda á framgangi viðræðn anna. — Togaraeigendur ákváðu að gefa skipstjórum sínum fyrirmæli um að halda áfram að virða „vopnahléð“, sem átti að renna út á morg- un. Eigendurnir ákváðu og, að það skuli gilda ,þar til samkomulag hefur náðst um fiskveiðimörkin eða viðræð- um er endanlega hætt“, sagði talsmaðurinn. — ★ — Dennis Welch, formaður fé- lags yfirmanna á togurum í Grimsby, sagði í dag: „Við fögnum vissulega þeirri ákvörðun íslendinga að landa ekki afla hér, meðan viðræð- um er ólokið“. Finsen Frh. af bis 1 lega nema til Reykvíkinga og Hafnfirðinga. Vilhjálmur Finsen lét þó ekki hugfallast. Hann vann að blaði sínu með hinum mesta áhuga og fjöri. Hann lagði aðaláherzlu á fréttaflutning. Honum var ósýnt um afskipti af flokkapólitík. Það var ekki í hans verkahring. Að fiytja sem fyllstar og nákvæm- astar fréttir og ýmsan annan fróðleik, var honuna hugleikn- ast“ -v en auk þess skuli stofnsetja unglingafangelsi í sveit, sem rúmi 25 fanga. 1 milljón á ári Þá segir ennfremur, að veita skuli eina milljón kr. á ári til þessára framkvæmda, unz þess- um fangelsum hafi verið komið upp. Gert er ráð fyrir, að hegn- ingarfoúsið á Skálafvörðustíg verði lagt niður. Héraðsfangelsi Þá var einnig útbýtt frv. um héraðsfangelsi. Skal stofmkostn- aður þeirra og rekstrarkostnaður þeirra greiðast að hálfu úr ríkis- sjóði, en hinn hlutann greiða við komandi sveitarfélög. Áætlun gerð í sumar Bæði þessi frumvörp eru byggð á tillögum Valdimars Stefáns- sonar, sem falið var á sl. vori „að gera áætlun um að koma fangelsismálum landsins í nútíma SAUÐÁRKRÓKI, 11. okt. — í byrjun þessa árs var það Ijóst, að allt vatn frá Hitaveitu Sauð- árkróks var selt, og því ekki hægt að tengja ný hús, né þau, er voru í smiðum, á þessu ári án viðbótarvatns. Var því horfið að því ráði að bora eftir heitu vatni í eða við Áshildarholts- vatn. Boraðar voru tvær holur, sú fyrri 157 m djúp, og fengust úr henni tveir sekúndulítrar af 68 stiga heitu vatni. Að því búnu var hafin borun á öðrum stað, og borað niður í 154 metra dýpi. Fengust úr þeirri holu 8 sek- úndulítrar af 71 gráðu heitu vatni. Þess skal getið, að eitt hvað minnkaði uppstreymið úr eldri borholunum, þannig að aukningin hefur orðið 6—7 sek- úndulítrar. Alls eru holurnar sex, sem vatn fæst úr, og árang- ur hefur aðallega fengizt á 220— BRUSSEL, 11. okt. (Reuter): — Gaston Eyskens, forsætisráðherra Belgíu, barst í dag bréf frá Moise Tshombe, forsætisráðherra Kat- angahéraðs í Kongó. Hefir Thsombe í hótunum um að slíta stjórnmálasambandi við Belgíu- stjórn, ef hún haldi áfram að stuðla að því, að Kongó verði óskipt ríki með einni allsherjar- stjórn. — ★ — Þetta var upplýst af stjórnar- heimildum, og sagt að í bréf- inu hefði því verið haldið fram, að Belgíustjórn hefði unnið gegn hagsmunum Katanga á þingi Sameinuðu þjóðanna. — Heim- ildirnar sögðu, að svar Eyskens við bréfi Tshombes yrði sent síð- degis í dag, en ekki birt fyrr en það væri komið til viðtakanda. horf, eftir því sem fært þykir miðað við allar aðstæður hér á landi“, eins og það var orðað. Dönsku konungs- hjónin í Was- hington WASHINGTON, 11. okt. (NTB- Reuter): — Eisenhower forseti tók í dag á móti Friðrik Danakon ungi og Ingiríði drottningu, sem komu til Washington í opinbera heimsókn og hlutu hinar glæsi- íegustu móttökur á fíugvellinum. Þau komu frá Chieago. Forsetinn og Danakonungur skiptust á mjög vinsamlegum kurteisiskveðjum á flugvellinum. en 21 fallbyssuskoti var hleypt af til heiðurs hinum konunglegu gestum. — Konungshjónin munu dveljast fjóra daga í Washington. Þau eru síðustu þjóðhöfðingjarn- ir, sem koma í opinbera heim- sókn til Bandaríkjanna í embætt- istíð Eisenhower. 260 metra dýpi. Svæðið, þar sem borholurnar eru á, er 60x70 metrar að flatarmáli. Borunin í sumar var fram- kvæmd undir stjórn hitaveitu- stjóra, Jóns Nikódemussonar, og að sjálfsögðu borað með jarðbor hitaveitunnar, sem hitaveitu- stjóri smíðaði fyrir tveimur ár- LAUST fyrir kl. 12 á miðnætti sl. sunnudagskvöld varð það slys norður í Skagafirði, að bíll með — ★ — Þegar Tshombe tilkynnti sl. sunnudag, að hann hefði sení Eyskens bréf, lét hann þau orð falla, að Belgía hefði sýnt sorg- lega „tilhneigingu til að blanda sér í innanríkismál lands vors“. Ketill Jensson á Ísaíirði ÍSAFIRÐI, 11. okt. — Ketill Jens son hélt söngskemmtun hér í Alþýðuhúsinu í kvöld. Aðsókn var ágæt og undirtektir áheyr- enda frábærar. Varð Ketill að syngja mörg aukalög, og bárust honum og undirleikaranum, Skúla Halldórssyni, fjöldi blómá. — G. K. í GÆR fór háþrýstisvæðið yfir íslandi minnkandi, en lægðirnar fyrir austan og vestan sýndust þó hvorug ætla að ná hingað. Allan daginn í gær sást í suðvestri blik an frá hitaskilunum yfir Græn- landshafi, en hún hækkaði lítið sem ekki, og var því spáð góð- viðri áfram. Um allt land var hægviðri og léttskýjað og 4—8 stiga hiti í lágsveitum, en búizt var við næturfrosti. London, 11. okt. — (ReuterJ H IN svonefnda Monckton- nefnd, sem á sínum tíma var falið að rannsaka ástandið í Mið-Afríkusambandinu (Njassaland og Norður- og Suður-Ródesía), birti í dag skýrslu sína, sem tekið hefur sjö mánuði að ganga frá. — Er þar lögð áherzla á, að gera þurfi ýmsar breytingar á sambandinu, ef það eigi að fá staðizt — og ætti brezka stjórnin að lýsa sig viljuga til að fallast á, að hin einstöku ríki sambandsins geti sagt skilið við það, þegar þau verða sjálfstæð, eða innan 6 manns fór út af vegi og valt ofan í á. Tvær stúlkur slösuðust allverulega, og hitt fólkið meidd- ist allt meira og minna. Á sunnudagskvöldið var bif- reiðin D-146 á leið norður til Sauðárkróks og ók henni Stein- þór Þorsteinsson, kaupfélagsstj. í Búðardal. Þegar komið var að Grófargilsá, fór bíllinn út af við brúna og steyptist niður í ána, um 3ja metra fall. Bifreiðin lenti á þakinu og mun mjög mikið skemmd. Fólkið komst sjálft út úr bílnum, en allt meira og minna slasað. Tvær stúlkur fengu heilahristing, og handleggs brotnaði önnur en hin viðbeins- brotnaði. Heimilisfólk á Grófar- gili, sem hafði horft á slysið, kom fólkinu til hjálpar. Fór það fyrst heim á bæinn en síðan til Sauð- árkróks, þar sem stúlkurnar tvær lögðust í sjúkrahús. Það skal tekið fram, að aðstæð ur allar eru mjög slæmar við brúna, blindbeygja við hana og brúin þröng. Er talið erfitt fyrir ókunnuga að aka þar um í myrkri, þar sem engin hættu- merki eru til aðvörunar. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-land til Véstfjarða: Hæg viðri og víða léttskýjað í nótt en sunnan kaldi og skýjað á morgun. SV-mið til Vestfjarðamiða: sunnan gola og skýjað í nótt en stinningskaldi og dátítil rigning á morgun. Norðurland til SA-lands og norðurmið til SA-miða: Hæg- viðri, víðast léttskýjað. 5—7 ára. — Þá segir, að eitt frumskilyrði þess, að blökku- menn sætti sig við samband- ið sé það, að breytt verði um stefnu í kynþáttamálum Suð- ur-Ródesíu, en þar situr stjórn sambandsins. ★ Ekki uppleyst að sinni Þótt nefndin telji, að Mið- Afríkusambandið fái ekki staðizt í núverandi formi, leggur hún áherzlu á, að vart komi til mala að leysa það upp nú, á þessum miklu umbrotatímum í Afríku. Það mundi jafngilda viðurkenn- ingu þess, að engin von sé um, að þróazt geti ríki hvítra og svartra hlið við hlið í Afríku. ★ Andstaða Welenskys Sir Roy Welensky, forsætisráð herra sambandsins, hefur þegar lýst eindreginni andstöðu sinni við skýrslu Monckton-nefndarinn ar. Lýsti hann því yfir, að nefndin hefði farið út fyrir verksvið sitt — og vísaði algerlega á bug þeirri tillögu, að einstök ríki sam bandsins skyldu geta sagt skilið við það, með vissum skilyrðum. — ★ — Frá Sailsbury í Suður-Ródesíu berast iþær fregnir, að enn sé þar órói mikill og loft lævi blandið, þótt ekki hafi komið til verulegra átaka í dag. — Hafa hvítir ibúar iðnaðarbæjarins Gwelo krafizt leyfis til þess að halda inn í hverfi innfæddra og taka þar íög in í sínar hendur. Á sunnudag urðu óeirðir miklar í Gwelo, og vilja nú hvítir hefna harma sinna á svörtum. Dagskrá Alþingis Dagskrá efri deildar Kosning í fastanefndir sam- kvæmt 16. gr. þingskapa: 1. Fjárhagsnefnd. 1. Samgöngu málanefnd. 3 Landbúnaðarnefnd. 5. IðnajSarnefnd. 6. Heilbrigðis- og félagsmálanefnd. 5. Mennta- málanefnd. 8. Allsherjarnefnd— Dagskrá neðri deildar Kosning í fastanefndir sami kvæmt 16. gr. þingskapa. 1. Fjárhagsnefnd. 2. Samgöngu- málanefnd. 3. Landbúnaðarnefnd. 4. Sjávarútvegsnefnd. 5. Iðnaðar- nefnd. 6. Heilbrigðis- og félags- málanefnd. 7. Menntamálanefnd. 8. Allsherjarnefnd. Borað eftir heitu vatni á Sauöárkróki Tshombe hótar sam- bandsslitum við Belgíu Bíll með sex manns fer í á Breytingar á Mið- Afríkusambandinu? Monckton-nefndin segir, að það fái ekki staðizt í nuverandi mynd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.