Morgunblaðið - 12.10.1960, Qupperneq 14
14
MORGVNBLAÐIb
Miðvikudagur 12. okt. 1960
KÆLISKÁPAR
RYKSUGUR
BÓNVÉLAR
HRÆRIVÉLAR
RAFMAGNS-PÖNNUR
Dönsku
V E G G -
VOGIRNAR
með hitastilli
STRAUJÁRN
SN r RU H ALDAIÍA R
STRAU-UÐARAR
STRAUBRETTI
ERMABRETTI
RAFM AGNS-KAFFIK V ARNIR
BRAUÐ- & ÁLEGGSHNlFAR
ELDHCS-VIFTUR
komnar aftur!
HVÍTAR með
rauðri, grænni,
ljósblárri,
hvítri eða
gulri skál.
Kr. 242/—.
Póstsendum.
NILFISK-BACHO-FLAMINGO-SUNBEAM-ATLAS
----f Z.__-
FONIX
O. KORNERUP-HANSEN
Suðurgötu 10 — Sími 12606
Aðalfundur
Verzlunarráðs íslands hefst kl. 2 síðdegis
á morgun í húsakynnum V. í., Pósthús-
stræti 7.
Stjórn Verzlunarráðs íslands.
Föndurnámskeið
INNRITUN i dag og næstu daga kl. 5—7 e.h. að
Fríkirkjuvegi 11 (Bakhúsi).
Byrjenda- og framhaldsflokkar.
Innritunar- og námsgjald kr. 25,—. Leiðbeint
i 8 vikur.
TÖMSTUNDAHEIMILI UNGTEMPLARA
REYKJAVÍK.
VDK FÚAVERKJANDI LÖGUR
Grænn — Dökkbrúnn
1 lítra, 2 lítra, 3 lítra Brúsum.
Heildsölubirgðir:
Kristján Ó. Skagfjörð hf.
Dömu og
herra
RAFMAGNS-
RAKVÉLAR
Númi Kristinn Jónsson
Minningarorð
ÞAÐ syrtir að þá sumir kveðja.
Þetta finnum við aldrei betur en
við brottför þeirra manna meðal
samferðafóiksins, sem hafa verið
hugþekktastir og gefið mest' af
góðvild og starfsgleði. Það eru ein
mitt slikir menn, sem veita mest
af yl og birtu þeim, sem eru í
nánd við þá, ósérhlífnir, fórnfúsir
og ljúfir í lund. Þannig var Númi
Kristinn Jónsson meðal starfs-
fólks síns fyrr og síðar. Hann var
góður félagi, tryggur vinur og
hvers manns hugljúfi, sem kynnt-
ust honum, fríður sýnum og svip-
heiður. Þetta kom glöggt í ljós
meðan hann vann hjá Eimskipa-
félagsi íslands, en þar lágu leiðir
okkar saman um eins og hálfs árs
bil. Hann var og hagleiksmaður
við hvað sem hann vann, var svo
sem allt léki honum í höndum.
Númi Kristinn Jónsson var
fæddur í Borgarnesi 15. janúar
1924. Hann var yngsta barn for-
eldra sinna, en þau voru 6 sem
upp komust, tvö dóu ung. For-
eldrar Núma voru hjónin Hall-
dóra Ólafsdóttir og Jón Helga-
son, úrsmiður, Borgarnesi, mestu
mannkosta manneskjur og vm-
sæl. Faðir hans dó þegar Númi
var sextán ára að aldri, en sá
harmur varð honum mjög sár, þvl
að ástriki var mikið með þeim
feðgum. Flutti hann þá úr for.
eldrahúsum til Reykjavikur og
hóf járnsmíðanám hjá vélsmiðj-
unni Bjargi, sem þá var nústofn-
að fyrirtæki. Að námi loknu varð
hann aðal rennismiður þess fyrir
tækis meðan starfskraftar hans
entust til þess.
Á unga aldri kenndi hann
nýrnasjúkdóms og gek undir erf-
iðar skurðaðgerðir og hættulegar,
fjórum sinnum. Var hann þá orð-
inn svo þróttlítill, að hann varð
að hætta við sitt aðalstarf sem
rennismiður, en þá fékk hann
vinnu hjá Eimskipafélagi íslands,
sem var honum auðveldari, því
að atorka hans leyfði honum
aldrei aðgerðarleysi er af hon-
um bráði og sannarlega var hon-
um umhugsað um hag heimilis
síns og ástvina og vann þeim
allt er hann mátti við koma, og
meira en veikir kraftar þoldu.
Númi kvæntist eftirlifandi
konu sinni Klöru Helgadóttur og
áttu þau hugþekkt heimili og
einn efnilegan son, Helga að
nafni, en hann er nú 14 ára að
aldri.
Það er sárt fyrir þau að verða
að kveðja þennan umhyggjusama
eiginmann og föður í blóma lifs
og vona, og þó er missirinn ekxi
síður sár aldraðri móður hans
sem kveður hér yngsta soninn
sinn með heitri eftirsjá.
Vottum við öll félagar og vinir
Núma þessum ástvinum hans og
sömuleiðis systkinum hans og
tengdamóður hjartanlega hlut-
tekningu og samúð í þessum sára
harmi, og biðjum þeim huggunar
og styrks frá hendi hins al-
máttuga kærleika. Gott er að eiga
minningar um svo góðan dreng
og um leið bjartar eilifðarvonir.
Við, sem áttum samleið og sam-
starf með honum hjá Eimskipa-
félagi íslands þökkum innilega
samveruna og mun minning hans
geymast í vitund okkar björt og
hlý, þótt hausti kait og dagar
verði að árum, það syrtir að þá
sumir kveðja, en allir hinir beztu
skilja eftir birtu við brautina,
sólskin við veginn, og meðal
þeira var og verður Númi. Hans
mun minnzt á meðal okkar J
englaröðum glaðværðar og góðs.
Vertu sæll, við söknum þín.
Ólafur Theódórsson.
Konur — Heimavinna
Konur vanar drengjabuxnasaum óskast strax.
Tilboð merkt „Strax — 1080“ sendi Mbl.
Lyftari
Nýr vörulyftari til sölu, rafknúinn á upp
pumpuðum hjólbörðum. Hleðslutæki fylg"
ir. Uppl. í síma 34333.
Matsölur! HóteE! Athugið
Til sölu er fyrsta flokks sjálfvirk hótelkaffikanna.
Upplýsingar í sima 12783 og á Tjarnarbar, Tjarnar-
götu 4.
Félag Stóreignaskattsgjaldenda
boðar til fundar með öllum gjaldendum hins svo-
nefnda „stóreignaskatts" í samkomuhúsinu Lido mið-
viikudaginn 12. þ.m. kl. 9 síðdegis.
Til umræðu verður afnám laga nr. 44/1957 um
skatt á stóreignir.
Fulltrúum þeirra félagasamtaka, sem beittu sér
gegn lögunum, og lögfræðingum þeirra, er boðið að
mæta á fundinum.
Stuttar íramsöguræður flytja: formaður félagsins
Páll Magnússor., Gústaf A. Sveinsson, hæstaréttar-
lögmaður, og Jóhann Þ. Jósefsson, fyrrv. ráðherra.
FÉLAGSSTJÓRNIN.
sa It
32 volta
rafalar fyrir
fiskibáta
Útvegum hina viðurkennau 32 volta spennustilltu
rafala 2600 og 4600 watta í fiskibáta frá Norsk
Jungner A.S. Mjög stuttur afhendingartími.
Veitum allar tæknilegar upplýsingar.
Smith & IMorland hf.
Pósthólf 519 — Símar 1-1320—21
Söluskattur
Athygli söluskattskyldra aðila í Reykjavík skal vakin á
því, að frestui til að skila framtali til skattstofunnar um
söluskatt og iðgjaldaskatt fyrir 3. ársfjórðung 1960 renn-
ur út 15. þ.m.
Fyrir þann tíma ber gjaldendum að skila skattinum
fyrir ársfjórðinginn til tollstjóraskrifstofunnar og sýna
um leið afrit af framtalinu.
Reykjavík, 11. okt. 1960.
Skattstjórinn í Reykjavík, Tollstjórinn í Reykjavík.