Morgunblaðið - 12.10.1960, Qupperneq 17
Miðvikudagur 12. okt. 1960
MORCVNBLAÐIÐ
17
•tæði. Samtok stúdenta í þeim
löndum, sem búa við fastmótað
og lýðræðislegt stjórnarfar hafa
aí skiljanlegum ástæðum öðrum
verkefnum að sinrna en stúdentar
í löndum, sem lúta einræði og
tiarðstjórn. Þeir síðarnefndu eiga
sífel'lt yfir höfði sér hverskyns
yfirtroðslur á akademísku frelsi,
en það er að sjálfsögðu algjört
Skifyrði þess, að félagslíf stúd-
enta með þeirn hætti, sem við
eigum að venjast, geti þrifiat.
Þessir stúdentar hafa tíðum leit-
aS eftir fulltingi Alþjóða sam-
taka stúdenta við að vernda hag
sinn og hefur þeim tilmælum ver
i« mætt af samúð og skilningi,
einkum þar sem beinlínis hefur
verið um að ræða skerðingu á
réttindum stúdenta eða möguleik
um þeirra til að afla 9ér mennt-
unar; hefur á vegum ISC-COSEC
verið starfandi sérstök rannsókn-
arnefrtd (Reseraeh and Informa-
tion Commission — RIC), sem
aflað hefur upplýsinga um hagi
atúdenta í þeim löndum, sem á-
stæða hefur þótt til og óskað hef
ur verið eftir, og síðan á grund-
velli þeirra upplýsinga verið gerð
ar á ráðstefnum samtakanna rök-
studdar ályktanir til stuðnings
baráttu stúdenta. Þar að auki
voru ýmsar aðgerðir stjórnarvald
anna stúdentum í óhag.
Landhelgismálið fékk góðan
hljómgrunn
— Þið báruð fram tillögu um
gtuðning við ísland í landhelgis-
málinu?
— Já. — Þó að innan ISC-
COSEC hafi frarnan af nær ein-
göngu verið fjallað um raunhæft
samstarf aðildarsambandanna í
þeim efnum, sem ég vék að áðan,
hefur þar einnig í vaxandi mæli
verið tekið tillit til þeirra mála,
sem stúdentasamböndin í ein-
stökum löndum hafa átt við að
etja, eins og þær ályktanir, sem
gerðar hafa verið til stuðnings
stúdentum í kúguðum löndum
eru glöggur vottur um. Með hlið-
sjón af því, að íslenzkir stúdent-
ar hafa alla tíð verið mjög á
verði í landhelgismálinu, gert um
það ál/yktanir og á annan hátt
urvnið að framgangi málstaðar
okkar og farsælum lyktum máls-
ins, fannst okkur rétt að leita
eftir ályktun ráðstefnunna'r okk-
ur til stuðnings í þessu lífshags-
munamáli þjóðarinnar allrar, en
stúdentaráð hefur frá því fyrsta
kynnt málið rækilega meðal er-
lendra stúdenta. Eftir að tillaga
okkar kom fram lýstu mjög marg
ir fulltráar, sem við áttum tal
við, yfir stuðningi sínum við
hana — og má telja íullvíst, að
hún hefði náð fram að ganga.
Því miður dróust umræður um
önnur mál hins vegar svo á lang-
inn, að ekki vannst tími til að
taka hana fyrir, fremur en tals-
vert mörg önnur mál, sum hin
merkustu.
Engu að síður var landhelgis-
málið fyrir bragðið mikið rætt
meðal þátttakenda og varð flutn
ingur tillögunnar því tvimæla-
laust til þess að kynna málið enn
frekar.
Víðtækara samstarf en nokkru
sinni fyrr
— Hverjar telur þú merkustu
niðurstöður þessarar ráðstefnu?
— Árangurinn af störfum ráð-
stefnunnar var mjög góður og
voru teknar ákvarðanir um víð-
tækara samstarí en nokkru
sinni áður hefur átt sér s tað
með stúdentum í heiminum. Svo
að nokkur dæmi séu nefnd
má geta ályktunar um að
starfrækja í Chile um mán-
aðarskeið vinnubúðir stúd-
enta frá öllum þjóðum til
stuðnings stúdentum þar í landi
við uppbyggingarstörfin eftir
jarðskjálftana þar í vor, er m. a.
márgir skólar hrundu. Ýms að-
stoð við stúdenta í Afriku, en
þeim hefur þegar verið veittur
margvíslegur stuðningur. Enn
má nefna ýms námskeið og mót,
áframhaldandi útgáfu blaðsins
„The Student“, sem kemur út
eigi sjaldnar en á sex vikna
fresti, útgáfa upplýsingarits um
starfsemi stúdentasambandsins á
hverjum tíma og sérstaks rits
um sögu þeirra, stuðning við
landflótta stúdenta, fríðindi og
fyrirgreiðslur í sambandi við
ferðalög, starfrækslu menning-
armálaskrifstofu, sem m.a. skipu
leggur listahátíðir, leikferðir,
myndlistarsýningar, ljósmynda-
keppnir o. fl., og nýjar athugan-
ir rannsóknarnefndarinnar
(RIC) á högum stúdenta m. a. í
Dominikanska lýðveldinu, Aust-
ur-Þýzkalandi, Spáni og fleiri
Iöndum. Svo mætti iengi telja.
Þátttaka okkar erfiðlelknm
bundin
— Að hvaða leyti taka íslend-!
ingar þátt í þessum málum? j
— Vegna þess hve afskekktir
við erum og fáir, er okkur erfið-
ara um vik en stúdentum í flest-
um öðrum löndum að taka mjög
virkan þátt í samstarfinu. Við
höfum þó, eins og kunnugt er,
reynt að halda uppi stúdenta-
skiptum við önnur lönd og lögð-
um við á ráðstefnunni m. a. drög
að skiptum við írland og ísrael,
en ýmsir stúdentar hér, einkum
í guðfræði, hafa haft mikinn
áhuga á að fá tækifæri til að
heimsækja það siðarnefnda. —
Ekki má heldur telja útilokað,
að íslenzkur stúdent taki þátt í
starfsemi vinnubúðanna í Chile.
Við höfum svo leitazt við að
taka þátt í sem flestum nám-
skeiðum og mótum, sem við höf-
um átt kost á að sækja og þegar
fjárhagur hefur ekki gert ann-
að kleift hafa gjarna mætt þar
af okkar hálfu íslenzkir stúd-
entar, sem verið hafa við nám
í viðkomandi landi eða öðru ná-
lægu. Með alþjóðlegu samstarfi
hefur einnig tekizt að leggja
góðan grundvöll að Ferðaþjón-
ustu stúdenta, sem nú býður
upp á ódýrustu ferðir sem þekkj
ast og stúdentar nota sér í vax-
andi mæli.
Ráðherra frá Kúbu
— Þið hafið komizt í kynni
við stúdenta víða að úr heim-
inum dagana sem ráði.tefnan
stóð yfir.
ryksugan er dýrmæt húshjálp
Ruton ryksugan er nú fyrirliggjc ndi
ýmsir litir
★ 10 hjálpartæki
★ Gúmmíhjól
★ Kraftmikil
★ Stjórnað með fæti
Ruton ryksuganerá gúmmíhjólum
sem ekki rispa . . . Tíu mismunandi hjálpar-
tæki fylgja, sem eru á auðveldan hátt tengd
við vélina . . . hún hefir mikinn sogkraft . . .
og er stjórnað með fæti.
— VERÐ Á GERÐINNI R 100 — Kr. 2.217.—.
Jfekla
Austurstræti 14
— Sími 11687 —
— Það gerðum við vissulega.
Þarna voru saman komnir á
þriðja hundrað stúdenta af hin-
um ólíkustu þjóðernum og voru
sums staðar saman í herbergi
gulur, svartur og hvítur. Ekki
bar á öðru en að samkomulag
væri hið bezta þó að hóparnir
virtust sundurleitir við fyrstu
sýn — og sjálfir eignuðumst við
íslenzku þátttakendurnir ágæta
vini af öllum litarháttum.
í hinum fjölskrúðuga hópi var
m.a. háskólamálaráðherra Kúbu,
en eftir byltinguna þar hafa
stúdentarnir bæði tögl og hagld-
ir í háskólanum, að því er þeir
sjálfir sögðu til þess að geta
tryggt, að byltingin beri tilætl-
aðan árangur en renni ekki út í
sandinn fýrir tilverknað aftur-
haldssamra prófessora úr stjórn-
artíð Batista. Það eru ekki ein-
ungis stúdentarnir, sem ganga
undir próf í háskólunum, heldur
verða prófessorarnir að gera það
líka á 5 ára fresti, og fer þá eftir
útkomunni, hvort þeir halda
starfi sínu áfram. Það þarf auð-
vitað ekki að taka fram, að ráð-
herrann, sem var læknanemi,
hafði látið sér vaxa sams kon-
ar skegg og sjálfur vinur hans,
Fidel Castro. Flestar ræður sín-
ar flutti hann af miklum ástríðu-
þunga, reri sér í sæti sinu með
reiddan hnefa á lofti — og gretti
sig stundum óskaplega til enn
frekari áherzlu, þegar mikið var
í húfi. Það var því bæði fróð-
legt og skemmtilegt að kynnast
þarna af eigin raun beim ræðu-
flutningi, sem tíðkast á sykur-
eynni.
Vinur Lumumba
Þá beindist athyglin óhjá-
kvæmilega nokkuð að stúdent-
unum frá Kongó, ve-gna hinna
alvarlegu atburða, sem þá vorw
stöðugt að gerast í landinu.
Öðrum þeirra tókst að vísu
ekki að fá vegabréfsáritun
til þátttöku í ráðstefnunni
fyrr en nokkrum dögum
eftir að hún hófst og eftir að
send höfðu verið mótmæli frá
ráðstefnunni til Thsjombe, hér-
aðsstjóra í Katanga, en þaðan
var stúdentinn. Hinn var aftur
á móti kominn í tæka tíð, og var
hann spurður í þaula um ástand-
ið í landinu og skoðanir sínar á
þróun málanna. Hann var mjög
alúðlegur og einkar háttvís,
ræddi málin af mestu hófsemi,
og að því er virtist skynsemi,
en sagðist hins vegar vera „fana-
tique pour Lumumba", sem væri
vinur sinn og hefði lofað sér
stöðu í menntamálaráðuneytinu,
þegar heim kæmi. Það blæs því
ekki sem byrlegast fyrir hann
þessa stundina, hvað atvinnu-
horfur snertir. Reyndar gæti ég
vel ímyndað mér að hann væri
orðinn einn af stúdentunum í
stjórnarnefnd Mobutus — eða
kannski ráðherra í svo sem einni
og máske fleiri ríkisstjórnum.
Loks voru svo þarna stúdent-
ar, sem staðið höfðu í fylkingu
í stjórnarbyltingunum í Tyrk-
landi og Suður-Kóreu. Var frá-
sögnum þeirra af skiljanlegum
ástæðum mikill gaumur gefinn.
Þeir síðarnefndu lögðu þegar
ráðstefnunni lauk upp í ferðalag
til ýmissa annarra Evrópulanda
og Ameríku — og stóð jafnvel til
að þeir kæmu við hér á leiðinni
yfir hafið, en úr því hefur ekki
getað orðið.
★
Við þökkum Ólafi kærlega
fyrir samtalið og vonum, að ein-
hverjir hafi orðið fróðari eftir.
I-
Röskur sendisveinn
óskast nú þegar. — Uppl. í skrifstofu Ludvig Storr
Laugavegi 15. (ekki síma).
Sagógrjón
n ý k o m i n .
Katla hf.
Sími 19192.
BOKHALD
Tökum að okkur bókhald, uppgjör og skattaframtöl
fyrir verzlanir, iðnfyrirtæki og útgerðarfyrirtæki.
Sanngjörn þóknun. Upplýsingar í síma 16725 eftir
klukkan 7 á kvöldin næstu daga.
Sniðkennsla
næsta síðdegisnámskeið hefst 20. okt. Kvöldnámskeið
í byrjun nóv. Nokkur pláss laus. Kennd er nákvæm
máltaka og sniðteikningar af nýjustu tizku frá
Stokholms Tellskárar Akademi.
Sígrún Á. Sigurðardóttir,
Drápuhlíð 48 II. hæð — Sími 19178.
Rifflað
steypustyrktarstál
Eigum fyrirliggjandi takmarkað magn af 16/mm
25/mm 28/mm riffluðu steypustyrktarstáli. Leifi-
legt spennuþol 1600 kg á fercm.
Sindri hf.
Sími 19422.